Morgunblaðið - 05.03.1972, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972
Hákon Jóhannsson:
Laxveiði við Lárós
23. febrúar 1972.
Á aðalfundi Landssambands
stangaveiðifélaga þann 27.
nóv. síðastiiðinn var ailmikið
rætt um netaveiði, sem íram fór
á Láróssvæðinu síðastliðið sumar.
Spunnust snarpar og fjörugar
umræður um málið og greindi
menn mjög á hvort um ósa- eða
sjávarveiði hefði verið að ræða.
Stangaveiðimenn frá féiögum af
norðanverðu Snæfellsnesi, sem
fyrst hreyfðu málinu, og reynd-
ar fleiri, átöldu veiðar þessar.
Álitu þeir að hér væri um sjáv-
arveiði að ræða, en hún væri
bönnuð samkvæmt lögum. Einn-
ig kom sú skoðun fram, að ekki
væri vitað, hvernig laxinn gengi
inn Breiðafjörðinn. Gæti því sá
lax, sem veiddur var í ádrætt-
inum, einnig verið frá ám á norð
anverðu Snæfellsnesi eða Dala-
ánum. Jón Sveinsson, forstjóri
Láróss h.f., sagði hins vegar, að
hér hefði verið um ósaveiði að
ræða. Hann skýrði frá því að
þeir hefðu sett niður stauragirð
ingu nokkuð fyrir utan stífiu-
garð Lárvaðals, tii vamar sjáv-
argangi. Þaraa hefði nú mynd-
ast sandrif, sem flæddi yfir í
stórstreymi og væri komið lón,
um 5 hektarar að stærð, milli
sandrifsins og stiflugarðsins. Ós
fiskiræktarstöðvarinnar vgeri
nú um 400 metra frá ytri mörk-
um þessa lóns. Netaveiði hefði
farið fram í þessu lóni, en lax-
mn hefði viijað safnazt saman
við stíflugarðinn, sem er gerðúr
úr stórgrýti, þar sem vatn úr
Lárvaðii hafði síazt I gegnum
hann út í ytra lónið. Veiðimáia-
stjóri taldi einnig, að hér væri
um ósaveiði að ræða. Hefði
hann mælt með undanþágu til
þessara veiða samkvæmt 3. máis
grein 16. greinar lax- og sil-
imgsveiðilaganna um ósaveiðar,
en landbúnaðarráðuneytið hefði
veitt heimildina með bréfi dag-
settu 2. júlí 1971.
Ýmsir fundarmenn töldu hins
vegar að með umsóknina til neta
veiða hefði átt að fara sam-
kvæmt 74. grein sömu laga, sem
fjallar um undanþágur til
handa eidisstöðvum til laxveiða
í sjó. Samkvæmt þessari grein
þarf einnig meðmæli veiðimála-
nefndar, en umsagnar hennar
var ekki leitað, enda ekki nauð-
syniegt þegar farið er eftir 16.
grein laganna.
Að umræðum loknum var sam
þykkt að vísa tillögu þeirri, sem
kom fram í sambandi við þetta
mál, tii stjórnar Landssambands
stangaveiðifélaga til athugunar
ag meðferðar.
Nokkrum dögum eftir aðal
fund, eða þann 1. desember síð-
astliðinn, birtist í dagblaðinu
„Tímanum" stutt frétt, en með
stórri fyrirsögn af þessum um-
ræðum, þar sem skýrð er afstaða
beggja aðila til málsins. Það
hafa orðið ailmikil blaðéiskrif
um þessi mál milli Jóns Sveins-
sonar annars vegar og stjómar
stangaveiðifélaga á norðan-
verðu Snæfellsnesi hins vegar.
Nú síðast í dag birtist stór grein
í Tímanum um þessi mál eftir Jón
Sveinsson. Kemur þar fátt nýtt
fram, enda þótt hin stóru orð
séu lítt spöruð. Þar sem vitnað
hefur verið til mín sem heim-
ildarmanns að ofangreindri
„Tíma“-frétt frá 1. des. sl. og
ummæia, sem ég viðhafði á aðai
fundinum, vil ég skýra frá af-
stöðu minni til þessara mála.
Áður en lengra er haldið vil
ég ieiðrétta misskilning, sem kem
ur fram í Morgunblaðsgrein
þann 12. þ.m. um þessi mál. Þar
er .á einum stað vitnað til um-
mæla ritara Landssambands
stangaveiðifélaga og er þar átt
við ummæli er ég viðhafði
á fundinum. Ég vil þvi taka það
fram hér að ég er ekki lengur
ritari L.S. heldur varaformaður.
Ég tel rétt að þetta komi skýrt
fram, svo að núverandi ritara,
Rafni Hafnfjörð, verði ekki
rangiega eignuð ummæli min,
þótt þessi misskilningur sé hins
vegar eðlilegur þar sem ég haíði
gegnt ritaraembættinu um 12 ára
skeið.
1 grein, sem birtist i Tíman-
um þann 6. janúar, þar sem
minn ágæti Jón Sveinsson ræðir
réttiiega um árangursrika starf
semi í Lárósi, en getur jafnframt
ekki stillt sig um að rjúka upp
tii handa og fóta og brigzla heim
iidarmanni áðurnefndrar fréttar,
sem birtist i „Tímanum" 1. des.
sl„ um rangfærslu. Segir hann
jafnframt, „að málið hafi verið
fyllilega upplýst á fundinum".
Hvorugt er reyndar rétt.
Hið sanna er, að blaðamaður
Tímans hringdi til mín og spurði
fregna aí umræðum, sem áttu
sér stað á aðalfundi L.S. þann
27. nóvember um netaveiði við
Lárós. Skýrði ég honum í stuttu
máli frá málavöxtum, eins og
endranær, þegar fréttamenn
ieita frétta til mín um veiðimál.
Það er bæði eðlilegt og ánægju
legt að fréttamiðlar skuli hafa
áhuga á málefnum stangaveiði-
manna, en ég gat þess jafnframt,
að ég væri ekki málinu kunnug-
ur að öðru leyti en því sem fram
kom á fundinum. Ég fæ ekki bet
ur séð en að umrædd frétt í Tim
anum, sem hefur valdið þessu
mikla íjaðrafoki, sé i meginatr-
iðum efnislega rétt, það sem hún
nær, enda ’>ótt hún sé ekki orð-
rétt eftir mér höfð. Hitt er svo
annað mál, að það eru blaða-
menn eða ritstjórar viðkomandi
blaða, sem ráða uppsetningu og
fýrirsögnum frétta, en ég geri
ráð fyrir að það hafi verið fyr-
irsögnin, sem hafi komið sérstak
lega við Jón Sveinsson, en hún
var „Dregið fyrir i sjó við Lár-
ós“.
„Að málið hafi verið upplýst
fyllilega á fundinum", er ekki
heldur rétt. Um það báru um-
ræðumar ljósan vott og einmitt
þess vegna er málinu vísað til
stjóraar L.S. til athugunar.
Til þess að menn geti sjáifir
séð, hvort rangt sé skýrt frá,
tek ég hér upp orðrétt, þann
hluta fréttarinnar, sem fjallar
um ástæðuna fyrir netaveiðinni:
„Þór Guðjónsson veiðimála-
J stjóri og Jón Sveinsson i Lár-
ósi ur.ðu fyrir syörafn. Sögðu
þeír, að hér vaéri ekki um lax-
veiði i sjó að ræða, heldur ósa
veiði. Þeir sögðu að sjávar-
kamburinn við Lárós 'hefði
færzt fram um 600 metra, og
þar fyrir innan hefði myndazt
lón. Þetta lón er hálísalt og
gengur laxinn inn í það, en
alls ekki upp í Láróslónið.
Vegna þessa gaf landbúnaðar-
ráðuneytið út leyfi til þess að
veiða laxinn í net i ytra lón-
inu.“
' Að öðru leyti mun ég leiða
þessar blaðadeilur hjá mér, að-
éihs geta þess, að það liggur
ljóst fyrir, að Lárósstöðin aflaði
sér undanþágúheimildar frá
lémdbúnaðarráöujieytinu eins
og getið er hér að framán. Hafði
stoðin þvi fulit leyfi til veið-
anna.
Hins vegar vaknar sú spurn-
ing, hvort rétt var að veita um-
rætt ieyfi eins og á stóð og einn
ig, hvers vegna lá svo mikið á
að hefja þessar veiðar í júlibyrj
un, einmitt þegar aðallaxagöng
urnar voru að hefjast í
ámar við Breiöaf jörð. Eí
þessar veiðar voru nauðsynleg-
ar, af hverju var ekki beðið með
þær fram í ágúst. Þá hefði vænt
anlega komið betur i ljós hvort
laxinn gengi í Lárvaðalinn og
eins ef þama hefði verið að
ein'hverju leyti um lax frá öðr-
um ám að ræða, þá mátti ætla
að hann væri að mestu leyti
kominn í sinar heimaár.
1 Tímanum i dag telur Jón
eina ástæðuna fyrir neta-
veiðinni, að síðastliðið sum-
ar hafi verið eitt mesta þurrka-
sumar um árabil. Um það gat
hann lítið vitað fyrirfram. Auk
þess er það alkunna að fljótt
skipast veður í lofti. — Þetta
eru þvi haldlítil rök. —
Á síðasta aðalfundi Látravík-
ur, þar sem fjármálin voru
rædd, var samþykkt tiliaga frá
mér og nokkrum öðrum hluthöf
um, efnislega á þá leið, að stjóm
inni var falið að athuga mögu-
leika á stangaveiði í Lárvaðli,
til reynslu, að fengnu jákvæðu
áliti Veiðimálanefndar.
Eftir því sem ég bezt veit hef-
ur ekki verið beðið um álit Veiði
málanefndar til stangaveiði
(slikt er sennilega ekki nauð-
synlegt samkvæmt lögum, þó
taldi ég rétt að það yrði gert)
né heldur var stangaveiði stund
uð þar til reynslu. Ég tel það
mjög miður að framkvæmda-
stjóri Látravíkur h.f. skuJi
hundsa svo tillögu aðalfundar.
Það er ekki aðeins að Jón
Sveinsson láti aðalfundarsam
þykkt sem vind um eyrun þjóta,
heldur íramkvæmir hann þvert
á móti netaveiði í stórum stíl.
Hefði þessi reynsluveiði gefið
góða raun, ætti að vera auðvelt
að selja þama stangaveiðileyfi
í framtiðinni og afla stöðinni
mikilla tekna og veita stanga-
veiðimönnum jafnframt tækifæri
til veiða.
Sem lokaorð legg ég til:
1. Að láta nú þegar, á komandi
vori, þétta stlflugarðinn, en
það hvað hann lekur, er und-
irrót þess, að laxinn safnast
fyrir í ytra lóninu eftir
þvi sem upplýst er. Væri því
fé, sem fékkst fyrir ádráttar-
laxinn naumast betur varið
en til þessara framkvæmda.
2. Að leyfa næsta sumar stanga
veiði með ílugu og að sjálf-
söigðu gegn hæfilegu gjaldi, i
Lárvaði, til reynslu.
Ég vil biðja framkvæmda-
stjóra Látravikur h.f. að minn-
ast þess, að það eru einmitt fyrst
og frejnst stangaveiðimenn, sem
hafa mætt á aðalfundum félags
ins og sýnt málum þess áhuga og
velvilja.
Æskulýðsdagurinn '72
I tiletni œskulýðsdags þjóðkirkjunnar
'72 verður efnf til fjölbreyttrar
kvöldvöku í Dómkirkjunni í kvöld,
sunnudaginn 5. marz kl. 22
Belga Björk Grétudóttir syngur sálma.
Jesús! Pálmi IWatthíasson stud. theol.
Ómar Ragnarsson safnaðarfulltrúi flytur bland gamans og alvöru.
Jesús! Sigurjón Heiðarsson stud. jur.
4 táningar leika og syngja Sálma 20. aldar.
Árni Johnsen syngur föstusálma við eigin undirleik.
Æskulýðskór KFUM og K syngur.
Ungt fólk og Kristur. Séra Bernharður Guðmundsson.
Fjöldasöngur o. fl., o. fl.
Öllum heimill aðgangur
meðon húsrúm leyfir
ÆSKULÝÐSNEFWD.
Flöskuskeyti, skáldsaga eftir
l>röst Karlsson (23).
Ævislóð og mannaminni, ævisaga
Halidórs Stefánssonar, fyrrv. alþm.
(23).
1 svölu rjóðri, ljóðabók eftir Sig-
rlði Einars frá Munaðarnesi (23).
1 skjóli háskans, ljóðabók eftir
Unni Eiríksdóttur (23).
Markús og mikilvæg skilaboð, eft-
lr Þ»óri S. Guðbergsson (23).
Hillingar á ströndinni, ljóðaþýð-
Ingar eftir Jóhann Hjálmarsson (30).
SL.YSFAR(R OG SRAÐAR.
Skipstjórinn á brezka togaranum
Ross Kelly GY 125 týnist af skipi
slnu á Islandsmiðum (2).
Vélbáturinn Ásdís HU 10 sökk út
af Þorlákshöfn (3).
Miðstöövarhús að Garðakoti 1 Mýr
dal brennur (4).
Milljónatjón af eldsvoða i veitinga
húsinu Glaumbæ (5).
Varðskipið Ægir strandar á Sel-
skeri úti fyrir Ingólfsfiröi, en losn-
aði aftur (18).
Vélbáturinn Stígandi NK 33 ferst
og með honum tveir menn (18).
Fjögurra ára telpa verður fyrir
dráttarvél að bænum Hlíð i óiafs-
firði og biður bana (18).
Arnfirðingur II GK 412 strandar
vWJ Grindavík (21).
Jón Helgason, vistmaður A Hrafn-
Istu, 77 ára, bíður bana i umferöar-
slysi (28).
81 banaslys hériendis 1971 (31).
Iþróttir.
Júgóslavar unnu Islendinga 1
tveimur landsleikjum 1 handknatt-
leik, 20:11 og 22:15 (2).
Ármann Reykjavikurmeistari 1
körfuknattleik (21).
Handknattleiksliðíð Partizan frá
Júgóslavlu vann FH 1 fyrri leik fé-
laganna 1 Evrópumeistarakeppni með
28:14 (23), og þann siðari 27:8 (29).
Geir Hallsteinsson, FTI, heiðraður
fyrir 50 landsleiki 1 handknattleik
(28).
AFMÆLI.
lsfélag Vestmannaeyjá 70 ára (1).
Anglía, félags enskumælandi fólks
á lslandi, 50 ára (3).
Félag atvinnuflugmanna 25 ára
(4).
MANNALÁT.
Kristinn Indriðason, óðalsbóndi að
Skarði, 84 ára (3).
Gunnlaugur Briem, fyrrv. póst- og
simamálastjóri, 70 ára (18).
Pétur Friðbjörn Jóhannsson, elzti
borgari Akureyrar, 103 ára (19).^
ÝMISLEGT.
Framleiðsiuaukning iðnaðarins
minnkar miðað við sama tima I
fyrra (1).
Sex einstaklingar I stjórn Húsbygg
ingar h.f. samtals dæmdir 1 670 þus.
kr. sekt fyrir skattsvik (18).
Loftleiðir lækka fargjöld milli
Luxemborgar og New York (19).
98% Reykvíkinga njóta Hitaveitu
(19).
Minningarsjóður Jóns Gunniaugs-
sonar og Guðlaugar Gunnlaugsdótt-
ur, Bræðraparti, Akranesi, stofnaður
til starfrækslu fiskiðnarskóla á
Akranesi (19).
Gengi islenzku krónunnar íellt til
Jafns við dollar (22).
150 af 6253 öldruðum hafa íengið
hækkun lífeyris (22).
Grindavik kjörinn staður sjó-
stangaveiði (23).
Nýr oliusamningur gerður við
Sovétrikin (23).
Pakistansöfnun Rauða krossins
alis 6.1 millj. kr. (24).
óvissa ríkir um bifreiðatryggingar
(29).
Pólskur FIAT-bíll á markaðnum
hér (31).
Hrapalleg missögn I dönsku upp-
siáttarriti (31).
GREINAR.
Veiting stöðu yfirbókavarðar 1
Hafnarfirði, greinargerð bókasafns-
stjómar (1).
Þ»átturinn Daglegt mál: Frumhlaup
Haildórs Halldórssonar, eftir Jó-
hann S. Hannesson (1).
Hver á Rockall? eftir Svend-Aage
Malmberg (1).
„Vísir að áætlunarbúskap4', eftir
Þorvald Garðar Kristjánsson (1).
Athugasemd um „Áramótaskaup",
eftir Jón Þórarinsson (2).
Hvernig farið getur fyrir litlum
þjóðum, eftir Kristján Albertsson
(2).
Til Sjónvarpsins, athugasemd frá
Fiosa Ólafssyni (3).
Samtal við Hannes Kjartansson,
sendiherra (3).
fslenzk öryggismál, eftir Kalman
Stefánssón (3).
Rætt við Robert Garrity, íorstöðu-
mann Menningarstofnunar Banda-
rikjanna (4).
Samningamaðurinn William P.
Rogers (4).
Að hlusta með hlutlausum eyrum,
eftir ólaf Ragnarsson (5).
Rætt við Erlend Jónsson, bók-
menntagagnrýnanda (5).
Fólk og framtak: Þakpappaverk-
smiðjan (5).
„Strið stórveldanna", eftir óla
Tynes, 2. gr. (5).
Jökulferð, eftir Kristin Benedikts
son (5).
Beðiö eítir samningum (18).
Athugasemd um úrdrátt úr íor-
ystugrein, eftir Margréti Jónsdóttur,
fréttamann (18).
Hvað felst 1 skattatillögum
vinstri stjórnar? (19).
Samtal við sveitarstjórnarmenn
um skattafrumvarpið (19).
íslenzk málvöndun og félagslegir
fordómar, eftir Halldór Halldórsson,
prófessor (19).
Otreikningar fjármálaráðherEa á
skattbyrði vefengdir, eftir ólaí G.
Éinarsson (21).
1 Ræða utanrikisráðherra I Brussel
(21).
Villandi firéttaírásögn eða röng
ræða? eftir Óla Tynes (21).
Spjallað við John Neville leikara
(21).
Samtal við Harald Sigurðsson dm
bók hans, Kortasögu íslands (21).
Nokkur orð um fiugmál á Austur-
landi, eftir Sigurð Aðalsteinsson (21).
Samtal við brezku flugkonuna
Sheilu Scott (21).
Flaskan héraðslæknisins, eftir
Friðrik J. Friðriksson, héraöslækni,
Sauðárkróki (21).
Umferðarslysin til umræðu I sjón-
varpsþætti, eftir Þórð Jónsson, Látr-
um (21).
Að lesa af skynsemi og vinna af
heiðarleik (21).
Berlínarráðstefna kaþólskra manna
frá Evrópuríkjum, eftir Torfa Ólafs-
son (21).
„Stríð stórveldanna", 3. gr. Óla
Tynes (22).
Samtal við Loft Bjarnason, pró-
fessor frá Kaliforníu (22).
Barna- og unglingabækur 1971,
greinargerð fimm kvenna (22).
Athugasemd, eftir Valgeir G. Vil-
hjálmsson, Djúpavogi (22).
Rætt við Indriða G. Þorsteinsson
um nýja bók han's, „Norðan við
strið44 (22).
Greinargerð Tómasar Á. Tómas-
sonar, sendiherra, vegna frásagnar
af ræðu utanríkisráðherra i Brússel
(23).
Litiö relkningsdæmi fyrir við-
skiptaráðherra, eftir Ólaf G. Einars-
son, alþm. (23).
Samtal við Magnús Magnússon
prófessor um orkulindir (23).
Um Laxárdeilu, eftir Sígurð Thor-
oddsen, verkfræðing (23).
Minnispunktar um Laxárdeliu, eft-
ir Hermóð Guðmundsson (23).
Ræða Hans G. Andersen á þingi
SÞ varðandi hafréttarráðstefnu (23).
Fyrir innrásina í Austur-Pakistán,
eftir Þóru Fischer (23).
Svar fjármálaráðherra og athuga-
semdir Morgunblaðsins varðandi
skattamál (28), ■V
Frá einu til annars, eftir BJart-
mar Guðmundsson (28).
Greinargerð Efnahagsstofnunar-
innar um hækkun ábyrgðartrygginga
bifreiða (28).
Ameríkubréf frá Geir Haarde (29).
Svavar Björnsson skrifar frá Nor-
egi: Harmleikurinn við Hjörund-
fjörð (29).
Utflutningur hraðfrystra sjávar-
afurða lí)66—1970, eftir Gunnlaug
Tryggva Karlsson (29).
Athugasemd frá 1. des.-nefnd
stúdenta (29).
Samtal við Karólínu Gunnarsdótt-
ur, ritstjóra Lögbergs-Heimskringlu
(30).
Það er farið illa með skattpen-
inga okkar, greinargerð frá Sverri
Runólfssyni (30).
Skyldurnar við aldraða og ör-
yrkja, eftir Jóhann Þórólfsson (30).
Bréf frá Oxford, eftir Þórdisi Árna
dóttur (30).
Ganga erlend verktakafyrirtæki af
þeim íslenzku dáuðum? eftir Hafþór
Helgason (30).
Samtöl við forystumenn atvinnu-
stéttanna (31).
Hafmeyjan við Löngulinu, eftlr sr.
Jón Auðuns (31).
Jólagjöf Sumargjafar, eftir Jónas
Finnbogason, Sigurgeir Steingrlms-
son og Sverri Tómasson (31).
Hann er hjá þér, Jólaprédikun Sig-
urbjörns Einarssonar, biskups (31).
Við áramót, greinar eftir forystu-
menn stjórnmálaflokkanna (31).
ERIÆNDAR GREINAR.
Grein í Life: „Leggjum til að
strandríki fái yfirráðarétt yfir land-
grunni" (2).
Sato neyddur til að hætta (22).
Kurt Waldheim, hinn nýi fram-
kvæmdastjóri Sameinuöu þjóðanna
(23).
Pravda 20. nóvember: Hvað er aö
gerast i Peking? (29).
Gerald Walker skrifar um bókina
„Þegar ég var gamair eftir Georges
Simenon (29).