Morgunblaðið - 08.03.1972, Side 10

Morgunblaðið - 08.03.1972, Side 10
. 10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1972 Prestsfrúin kemur til b j ar gar í læknisley sinu A REYKHÓLUM í Barða- strandarsýslu er læknis- laust eins og víðar. En þar eru menn svo heppnir í slíkum vandræðum að prestsfrúin, Brynhildur Ósk Sigurðardóttir, kona séra Sigurðar H. Guð- mundssonar, er menntuð hjúkrunarkona með góða starfsþjálfun. Og hún hefur tekið að sér starf héraðs- hjúkrunarkonu á staðnum. Fréttamaður Mbl. hringdi til hennar og átti við hana stutt spjall. — Jú, ég tók þetta starí að mér vegna þess hve vandræð- in eru mikil, svaraði Bryn- hildur. Og ég geri aðeins það sem ég treysti mér til. Af- greiði t. d. aldrei lyf nema eftir læknisráði. — Læknislaust er á Reyk- hólum og enginn læknir held- ur í Búðardal núna. Þegar læknir er í Búðardal, þjónar hann líka þessu læknishéraði og kemur i sjúkravitjanir. Síðan ég kom hingað haustið 1970, hefur hann komið hálfs- mánaðarlega hingað. f fyrra- vetur var læknir hér á Reyk- hólum frá áramótum og fram á sl. sumar. Þegar hann fór, var þess farið á leit við mig að ég tæki þetta starf að mér. Mér fannst ég varla undir það búin, þóttist þurfa sérstakan undirbúning i skyndihjálp og slíku. — En þú ert búin að starfa á sjúkrahúsum, er það ekki? — Jú, ég vann fyrst á Ak- ureyrarspítala, síðan á St, Jósepsspítala og svo á Borg- arspitalanum. Sem betur fer hafa engin alvarleg slys orðið hér, síðan ég tók við starfi héraðshjúkrunarkonu sumar- ið 1971, en ýmislegt smávegis kemur alltaf fyrir. Mínu starfi er mest þannig háttað, að fólk hringir til mín ef ein- hver er veikur og lýsir fyrir mér sjúkdómseinkennum, eft- ir því sem hægt er. Ég tala svo við lækninn í Búðardal og nú þegar þar er enginn læknir, við lækninn í Stykk- Lshóimi. Og siðan afgreiði ég lyf eftir fyrirsögn læknisins. Auk þess sé ég um ónæmis- aðgerðir á börnum, gef sprautur og annað sem til fellur. — Er mikið að gera? — Það er misjafnt, alltaf þó eitthvað á hverjum degi. Ég sé um apótekið. Læknis •héraðið á það, en ég sé um að panta inn og reka það. Þegar enginn læknir er á staðnum, held ég að þetta sé heppiilegasta lausnin, að hafa héraðshjúkrunarkonu. — En er hægt að ná í lækni, ef þörf krefur? — Ekki núna. Ef eitthvað alvarlegt kemur fyrir, verður að senda sjúklinginn til Reykjavíkur. Hér er flugvöli- ur, sem er nokkuð góður, en ektoi er öruggt að alltaf sé hægt að fljúga vegna veðurs. Þetta er þvi mikið öryggisleysi núna. Við erum vonlitil um að fá lækni hingað tii Reyk- hóia, en vonum að læknir fá- ist í Búðardal. Það er bót í Brynhildur Ósk Sigurðardóttir máti, þótt samgöngur séu erfiðar og ófært á milli ef snjór er. — Það eru ekki öll héruð sem hafa prestsfrúr til að koma til bjargar í slikum vandræðum? — Þetta héraðshjúkrunar- konustarf er alveg á byrjun- arstigi og hefur ekki verið í reglugerð. Gert er ráð fyrir 14 hjúkrunarkonurty og þá helzt á stærri stöðunum. Og ég tók þetta að mér vegna þess hve vandræðin eru mikil. Brynhildur segir að sér liki vel á Reykhólum. Þau hjónin eiga tvö img börn og hún segir að fjölskyldan geti vel hugsað sér að búa í dreifbýl- inu, þó það hafi annmarka eins og ótrygga heilbrigðis- þjónustu. — Maður saknar margs, en þar er líka margt jákvætt á móti, segir hún. Ekki segist hún neita því að tilbreytingalausara sé það en í Reykjavík, einkum á vetr- um, en á sumrin sé svo aftur á móti yndislegt í sveit- inni. FJeira hefur Brynhiidur fyrir stafni en að halda heim- ili og stunda hjúkrunarstörf. Hún syngur í kirkjukórnum og aðstoðar mann sinn sem aðrar prestskonur. —- Starf sveitaprests er margbreytilegt, segir hún.- Það kemur inn á mörg svið. En brauðið er dálítið erfitt, það nær yfir alla Barða- strandarsýslu, sem í eru fimm sóknir: Reykhólasveit, Geira- dalur, Gufudalssveit, Flateyj- arhreppur og Múlasveit. Og samgöngur eru erfiðar, til dæmis til tveggja siðasttöldu staðanna. Þá hefur Brynhild- ur ekki á sinni könnu sem héraðshjúkrunarkona. íbúar Flateyjarhrepps leita til Stykk ishólms og Múlasveitar til Patreksfjarðar, þegar um heilbrigðismál er að ræða. Hinir hrepparnir þrír leita til héraðsh j úkrunarkonunmar. «. Verða gerð göng um Oddsskarð í sumar? Frá Neskaupstað. NESKAUPSTAÐUR á Norð- firði er stærsti kaupstað- ur Austurlands. Fréttaritari Morgunblaðsins þar er Ásgeir Uárusson og nýlega var Ás- geir staddur í borginni og áttum við þá við hann viðtai, sem hér fer á eftir. Norðfirð- ingar hafa undanfarið gert út skuttogarann Barða með eir- staklega góðum árangri. Við spurðum Ásgeir um atvinnu- ástand eystra. Hann sagði: — Atvinnuástand hefur ver- Frá Nes- kaupstað Asgeir Lárusson, fréttaritari Morgunblaðsins segir frá ' "7. V' Ásgeir Lárusson. irð ákaflega gott sáðastliðið ár og hefur engrnn verið skráður atvinnulaus. Atvinna er mjög góð hjá ötlum og hef- ur frekar verið stoortur á fótki i flestum atvinnugreimum. — Hvað veldur? — Þetta byggist fyrst og fremst á því, að Barði kom eftir áramótin í fyrra og lagði eimgömgu upp á Neskaupstað. Hefur skipið fiskað mjög vel og útgerð hans verið með ein- dæmum happadrjúg. í sumar var aflinn svo mikill á stund- um að flytja varð hluta hans yfir á Eskifjörð til vinnstu. Þá eru gerðir út frá Neskaup- stað margir smábátar, og þar eð tið hefur verið góð, hafa þeir borið að landi mikinn og góðan fisk. Þá er óvenjumikið um byggtngar og til þeirra framkvæmda þarf einnig fólk. — Hve mörg hús eru í smíðum? — Liklegast eru um það bil 30 hús í smíðum á Neskaup- stað. Eru það allt einbýlishús, nema eitt, sem er sambýlishús með 6 ibúðum. Grunnur þess var steyptur í haust og i vor er fyrirbugað að haldið verði áfram með það. Húsnæðis- skortur hefur verið mikill á Norðfirði og stendur hann kaupstaðnum fyrir þrifum hvað varðar fjölgun ibúa. Margir hafa viljað flytjast til Norðfjarðar, en slíkt strandar á húsnæðisiskorti. Sex íbúða húsið er reist af Fram- kvæmdanefnd byggingaráætl- unar. — Hvað u-m annað athafina- Ifif ? — Mjög mikið hefur verið að gera i Dráttarbrautinni og þar er nú verið að smíða 70 rúmlesta stálbát fyrir Esik- firðinga og 30 rúmlesta eikar- bát. Stálbáturinn er sá fyrsti, sem smíðaður er á Norðfirði og var hann sjósettur fyrir noktorum dögum. Þá má geta þess, að aðalfulitrúi einka- framtaksins á Norðfirði, Gylfi Gunnarsson, hefur viðamikinn rekstur með steypustöð, báta- viðgerðum o. fl. — Hin góða útgerð Barða hlýtur að hvetja Norðfirðinga tiíl firekari framkvæmda á sviði togaraútgerðar ? — Já — nú er verið að semja urn kaup á nýjum skut- togara, 500 rúmlesta skipi, sem Síldarvinnslan, eigandi Barða, kaupir. Er togarinn smíðaður i Japan og verður afhentur í febrúar 1973. Kaup- verð hans er um 99 milljónir króna. — Á Norðfirði er fjórð- ungssjúkrahús Austurlands. — Fyrirhugað er nú að stækka fj órðungssj úkrah úsið um allt að 100% jafnvel á þessu ári. Enginn héraðs- læknir er á staðnum, en við Norðfirðingar höfum verið heppnir með yfirlækna á sjúkrahúsið. Sjútorahúsið er alltaf yfirfullt og þangað leita oft og iðulega skip með veika erlenda sjómenn. Einnig koma sjúklingar frá öllu Austur- landi. Úr þvi við tölum um byggingar hins opinbera, þá má og geta þess, að fyrirhug- að er að reisa iðnskóla Aust- uriands á Norðfirði og hefur þegar verið veitt til hans fé á fjárlögum. — Hvað um samgöngumál? — Samgöngumálin eru ef til vill veikasti hlekkurinn hjá okkur. Hin brennandi spurn- ing er nú, hvort hafizt verður handa í vor um gerð gangna um Oddsskarð. Þau eiga að verða um 650 metrar og yrðu afskaplega mikil samgöngu- bót fyrir okkur Norðfirðinga. Norðfirðingum finnst Flugfé- lagið ekki hafa staðið sig sem skyldi í áætlunarflugi til okk- ar. Flugfierðir til Norðfjarðar voru mjög góðar á meðan Flugsýn hafði þær á hendi, en oktour finnst við vera út- undan síðan Flugfélagið tók við og svo sannarlega msettl þjónusta þess við Norðfirð- inga verða betri. — Hvað með höfnina? — Fyrirhugað er að dýpka nýju höfnina í surnar og er ætlunin að fá Hák austur til þess að bæta úr brýnni þörf. Þá stendur og til að setja á Strandgötuna oUumöl. Sú framkvæmd myndi gjörbreyta allri aðstöðu í bænurn. fbúar á Norðfirði eru nú 1.640 eða um það biil og bafði fjölgað um það bil 40 manns á stíðast- liðnu ári — sagði Ásgeir Lár- usson að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.