Morgunblaðið - 08.03.1972, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 08.03.1972, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1972 21 Fyrirlestur í KVÖLD kl. 20,30 talar frú Kar en Gredal um neytendamál á vegum viðskiptadeildar Háskól- ans í Norræna húsinu. Frú Gredal er hagfræðingur að menmt, og dvelst hún hér á landi ásamt manni sinum, pró- fessor Arne Rasmussen, sem einn ig er hagfræðingur. Halda þau hjónin fyrirlestra í viðskipta- deild Háskólans. í Danmörku hefur frú Gredal sérstaklega látið neytendamál til sin og má þar m.a. nefna að hún er í stjórn Dansk Varede klaration.snævn, en starfsmaður þeirrar stofnunar, frú Jytte Kruse, hefur nýlega flutt erindi um starfsemi nefndarinnar á vegum Norræna hússins og Kven félagasambands íslands í til- efni sýningarinnar Vörulýsing — vörumat. Frú Gredai hefur góð- fúslega gefið kost á að flytja eitt erindi fyrir almenning, sem hún nefnir: „Er biðlað til neyt- andans? Er hann svikinn?“ — Iðnaðar- ráðherra Framh. af bls. 2 inga og um heildsöluverð raf- orku, þar sem sfefnt yrði að verðjöfnun um alit land. • LANDSHLUTAVEITUR UNDIR ST.IÓRN RARIK Síðar í ræðunni sagði Magn- ús Kjartansson, iðnaðarráðherra, að í þessu skyni teldi hann rétt að Rafmagnsveiitum rikisins yrði skipt í landshlutaveitur með lamdfræðilegum mörkum. Þessar landshlutaveitur þyrftu að hafa stjórn í héraði og vera al- gerlega sjálfstæðar rekstrarein- ingar. Rafmagnsveitur ríkisins hefðu hins vegar á hendi yfir- stjórn þessara landshlutaveitna, gerðu til dæmis samninga fyrir þær um kaup á raforku, önnuð- ust fjármögnun til nýrra fram- kvæmda, veittu tækniþjónustu og hefðu ákvörðutnarvald uim meiri háttar framkvæmdir. Rafmagns- veitur rikisins mundu að sjálf- sögðu hafa á hendi rekstur þeirra orkuvera og flutningalína, sem þær ættu nú, þar til stofn- uð hefðu verið þau landshlutafyr irtæki til raforkuvinnslu, sem áð- ur var minnzt á. I þessu sambandi ættu Raf- magnsveitur ríkisins einnig að taka upp samninga við rafveitur í eigu sveitarfélaga um samein- ingu þeirra við landshlutaveitur með a.m.k. helmingsaðild ríkis- ins. Þó væri eðlilegt að eignar- hluti rikisins í slíkum dreifiveit- um gæti orðið minni, ef um væri að ræða sameiningu við stórar sveitarfélagarafveitur á svæðum, sem hefðu yfir 10 þúsund íbúa. Þær sveitarfélagarafveitur, sem ekki óskuðu slíkrar sameiningar, ættu þó að sjálfsögðu að hafa rétt til að starfa áfram með ó- breyttu skipulagi eða sameinast öðrum sveitarfélagarafveitum, þar sem henta þykir og svo um semst. • TENGING RAFORKU- KERFA NORÐANLANDS Ráðherra kvað forsendu þessarar þróunar vera samteng- ingu orkuveitusvæða, en af því leiddi að slíkar skipulagsbreyting ar mundu koma til framkvæmda á alllöngum tíma, þótt nauðsyn- legt væri að hefjast handa sem fyrst. Að þessum samtenginga- málum væri nú unnið á vegum iðn aðarráðuneytisins og Orkustofn- unar. Trúlega yrði fyrsti áfang- inn á því sviði samtenging raf- orkukerfanna á Norðurlandi inn- byrðis. Einnig hlyti fljótlega að komast á dagskrá tenging þessa landshlúta við stærsta raf- orkukerfið á Suðvesturlandi. I þvi sambandi væri ástæða til að minna á að ríkis- stjórnin hefði þegar samþykkt það stefnumið sitt að leggja orkuflutningslínu milli Suður- lands og Norðurlands. En eftir þær framkvæmdir mundi væntan lega líða nokkru lengri tími þar til þetta samtengda svæði næði til Austurlands og Vest- fjarða. En þegar þeim fram- kvæmdum væri lo'kið væri land- ið allt orðið einn samtengdur raforkumarkaður. — Kappræðu- fundurinn Framh. af bls. 2 ur en ákvörðun yrði tekin um það hvort ís.land myndi viður- kenna það sýndi bezt hvérsu sjálfstæð þessi stefna væri. Þorsteinn Geirsson taldi að al- menningur mætti vel við una þeiim breytingum, sem gerðar hefðr nrið á skattakerfinu, þar sem iir byrjuðu fyrst að hætkka þegar tekjur væru komn- ar yfir 700 þúsund krónur. EUert B. Schram ræddi fýrst stöðu ungra framsóknarmanna innan flokksins, og það niýja gildismat á ungu fólki sem for- ystumenn framsóknarmanna hefðu hampað fyrir kosningar. I þessu sambandi benti hann á að á Alþingi væru fulltrúar úr hópi ungs fólks engir, og sýndi það glöggt efndir forystumanna á nýja gildismatinu. Þeir hefðu ekiki eflt unga menn til áhrifa í þjóðfélaginu heldur reynt eft- ir megni að bofia þeim úr embætt- um innan flokksins, svo sem laugardagsbyltingin sýndi gleggst. Þá ræddi Ellert um Fram- kvæmdastofnun ríkisins, og taldi að hlutverk hennar væri að festa kerfið í sessi, og minnka frumkvæði föliksins. Um efndir stjórnarinnar á mál efnasamningnum nefndi ræðu- maður sem dæmi að glöggt væri, að sú kaupmáttaraukning, sem gert hefði verið ráð fyrir í mál- efnasamningnum og kjarasam.n- ingarnir I desember - grundvall- ast á væri mú þegar fyrir borð borin. Þá gagnrýndi ræðumaður ennfremur viðbrögð rikisstjórn- arinnar gagnvart launakröfum BSRB, og sagði að þar hefði ver- ið um hreint lögbrot að ræða. Tómas Karlsson, ræddi land- heiigisimálið, og sagði að það hefði haft úrslitaáhirif á kosn- ingamar sl. vor. Þá hefði þjóðin veitt þeirn flokkum, sem það mál hefðu á stefnuskrá sinni meiri- hluta, og hefði nú niýlega verið samþykíkt með 60 atkvæðum á Alþingi tillaga, sem fyrrverandi stjómarflokkar hefðu neitað um samþýkki á siðasta þingi. Þessu næst rakti Tómas sögu landhelgismáisins og sagði m.a. að afstaða Morgunblaðsins 1958 til landhetgismálsins hefði bein- línis sigað breZkum herskipum inn í islenzka landhelgi. Loks þakkaði Tómas forystu- mönnum Sjálfstæðisfloikksins fyr ir að hafa stutt framigang land- helgismálsins að þessu sinni, og með því sýnt að þeir hefðu dr»g- ið lærdóm af því sem áður gerð- ist. —O— 1 annarri og þriðju umferð kappræðnanna var ræðutími sjö mínútur og fimm mínútur, en vegna þrengsla í blaðinu er ekki unnt að skýra frá þeim umræð- um. — Skattbyrðin Framh. af bls. 11 frádi'áttai'bærs varasjóðstiMags, en síðan kosið að hverfa yfir til arðjöfnunarsjóðsfyrirkomu- lagsins og gerzt svonefnd a-félög, sem yrði bindandi þaðan í frá. Þótt samtök artvinnurekenda gerðu tæpast ráð fyrir því, að margir tækju upp arðjöfnunar- sjóðsfyrirkomulagið alveig á næstiuoni, vildu þau eindregið mæla með þvi, að þeim mögu- leika væi’i haildið opnum, ef at- vinnufyrirtækin teldu það fyjg> komulag liklegra ti'l árangurs við öfiun eigin fjár í formi hiuta- bréfaisölu, t. d. á vænitanleigum verðbréfamaikaði, en þá væiri einfcum haft í huga, að þrótinin yrði sú, að fyrirtækin stækkuðu og byggðust upp með þátttöKu hins almenna borgara gegnum eiignaraðild að félögunum. Þá væri samkvæmrt gi'ldaindl lögum heimilað alllvíðtækrt end- urmat eigna í atvinnurekstri. Samkvæmt fruimvarpinu væri endurmat.sheiimi'ldi'n að því er tæki tii lausafjár skerrt svo mjög, að hún væri lítilis virði. Þó kvað þingmaðurinn brýna nauðsyn á víðtæku enduirmati eiigna í at- vinnurekstri vegna hinna miklu verðhækkana. FLÝTIFYRNINGIN > Þiingmaðurinn vék að því, að í frumvarpinu væri numin úr lögum svokölluð flýtifyrning, sem sé allt að 30%. Tiligangur hennar hafi verið að veita at- vinnufyrirtækjum visst svigrúm við ákvörðun þess, á hvaða tíma þau nötfærðu sér rétrt sinn til fyrninga og auðvelda þeirn á þann hátt nauðsynilega fjárfesrt- ingu með því að flytja skatt- greiðslunnar þannig til, að þær yrðu ekki eins þungbærar á þeim árum, sem fjárfestingin væri mest, en tiltölulega meiri, þegar um minni fjárfestingu væri að ræða. Á þertta hafi okki veirið hlustað af ríkissitjómi ani og það væri ekki fyrsta mikilvsega ábend inigin, sem fram hefði lcomið, en látið væri sem aldrei hefði verið gerð. Alþinigismaðurinn ræddi að lokum einsitaka þætti skatta- frumvarpsins og vék þar m. a. að sjómannafrádrætti og skatt- laigningu giftra kvenna auk ann- arra atriða, eins og fram kom í nefndarálitum í Mbl. i gær. Umræðurnar héldu áfram síð- degis í gær og í gærkvöldi og verður þeirra nánar getið siðar. — Alþjóða- dómstóllinn Framh. af bls. 17 samningum, þjóðréttarvenj- um, almennum grundvallarregl um laga viðurkenndum af öil- um siðuðum þjóðum, dómsúr- lausnum og kennisetningum fræðimanna, sem veita mega, er annað þrýtur, leiðbeiningar um efni og tilvist réttarreglna. Loks getur dómstóllinn dæmt mál eftir sanngimi (ex aquo et bono), ef aðiljar samþykkja það. Láti einhver aðili að máli, þrátt fyrir skyldu sína til þess að hlíta úrskurði Alþjóðadóm- stólsins í því, bregðast að fram kvæma þær skuldbindingar, sem honum ber samkvæmt dómsúrskurði Alþjóðadómstóls ins, getur hinn málsaðil- inn skotið máli sínu til Örygg- isráðsins, sem getur, ef því þykir nauðsynlegt, gert til lögur eða ákveðið aðgerðir til þess að dóminum verði full- nægt. Þetta er mikilvæg regla, sem eykur mjög á gildi dóm- anna, því að hún setur úrskurði Alþjóðadómstólsins að nokkru leyti á bekk með aðfararhæfum dómum venju legra dómstóla. Veitir reglan Öryggisráðinu heimild til þess að framkvæma dómana með þvingunaraðgerðum. Málsmeðferð Málum er stefnt fyrir Al- þjóðadómstólinn annaðhvort með því að tilkynna sérsamn- ing um það eða með skriflegri urnsókn stílaðri til dómritara. Hvor leiðin sem valin er, skal greina bæði aðilja og deiluefni. Svarar því tiHkynning þessi eða umsókn til stefmu í venju- legum dómsmáium. Dómritar- inn skal þegar i stað skýra öllum' hlutaðeigen iu n frá fyr- irtökubeiðni málsins. I-íann skal og fyrir miMigöngu aðai- framkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna tidkynna þetta öll'Uim aðildarrikjum samtak- anna og einnig öðrum ríkjum, sem heimilt er að koma fyrir dómstölinn. Ef einhver riki telja sig eiga hagsmuna að gæta, geta þau gengið inn í málið eftir ákvörðun dómsins. Dómurinn ákveður, hvenær málið skuli síðan tekið fyrir. Hann ákveður einnig fresti og síðari dómþing. Heimilt er dómstólnum að ákveða bráðabirgðaráðstaf- anir til þess að vernda rétt að- ilja, ef atvik gera það nauð- synlegt. Dóminum er t.d. heim- ilt að banna aðilja að hafast eitthvað að, þar tii fullnaðar- dómur er genginn. ÞvíMkar ráð stafanir eru einungis til bráða birgða og segja ekkert til um rétt aðilja. Má segja, að þær svari til bráðabirgðadóms- athafna, sem heimilaðar eru í rétti hinna einstöteu ríkja eins og löghalds og lögbanns. Aðiljar máls láta umboðs- menn gæta hagsmuna sinna. Rétt er þeim að hafa sér til aðstoðar málflutningsmenn, og ráðunauta. Málsmeðferðin sjálf er bæði munnleg og skrifleg. Skriflega sókn og vörn skal leggja fram fyrir dómrit- ara innan þess tíma, er dóm- stól'linn tiltekur. Sama máli gegnir um öll skjöi og skilrítei þeim til stuðnings. Dómritari afhendir síðan dómendum skjöl in, er kynna sér þau, áður en til miunniegs málflutnings kem- ur. Munnlegi málflutningurinn fer fram í heyranda hljóði, nema dómstóllinn ákveði ann- að eða aðiljar kref jist þess, að almenningi sé bannaður að- gangur. Dómurinn getur kraf- ið aðilja um ákveðin skjöl eða upplýsingar og falið sérfræð- ingum eða nefndum rannsókn hvers þess atriðis, er hann tel- ur máli skipta. Ef annar aðilja kemur ekki fyrir dóm eða flytur ekki mál sitt, getur hinn krafizt dóms í málinu sér í hag, en rannsaka skal dómurinn þá, hvort málið sé rétt borið undir hann og hvort krafan sé vel rökstudd bæði um staðreyndir og réttar- reglur. Málið er þá dæmt eftir kröfum þess, sem mætir og framlögðum skjölum og skil ríkjum, eins og gert skal eftir íslenzkum lögum, þegar eins stendur á. Þingmálið er enska eða franska. Geta aðiijar sam- ið um, hvort nota skuli og er þá dómurinn kveðinn upp á því máli. Að málfliutningi loknum ganga dómendur & lokaðan fund til að ræða málið með sér. Steal ráðagerðum þeirra ölium haldið leyndu-m. Afl attevæða ræður úrslitum um dóm, en verði atkvæði jöfn um til- lögu að dómi, ræður atbvæði dómara eða þess dómara, sem sæti hans skipar. í dómi skal nefna, hvaða dómendur hafi tekið þátt i honum. Þar skal og greint frá þeim forsendum, sem dómurinn er byggður á. Dómarar, sem ekiki vilja fali- ast á niðurstöðu meirihlutans, geta greitt sératkvæði og eiga rétt á, að það verði birt með dóminum. Dómurinn bindur að- eins málsaðilja og aðeins i þvi máli. Orlausn Aiiþjóðadómstóls ins er úrslitadómur og verður ekki áfrýjað. Hins vegar gefst aðiljum kostur á að fá dóminn endurskoðaðan, þegar sérstak- ar aðstæður eru fyrir hendi. Um málskostnað er meginregl an sú, að hvor aðiii skuli bera sinn kostnað af máii, eða að málskostnaður er látinn falla niður. Heimilt er þó dóm- inum að setja málskostnaðar- ákvæði i dómsniðuriag. Álitsgerðir Allsherjarþinginu eða Örygg isráðinu er heimilt að æsk.ia þess af Alþjóðadómstólnum, að hann láti i té til leiðbeiningar álit sitt um sérhvert lagalegt atriði. Aðrar stofnanir Samein uðu þjóðanna og sérstofnanirn- ar, sem Ailsherjarþingið getur hvenær sem er veitt slíka heim ild, mega einnig æskja álits- gerða af dómstólnum til leið- beiningar varðandi lagaleg at- riði, sem fram kunna að koma á verksviði þeirra. Þegar álits- gerða dómstóisins er leit- að, skal það gert með skriflegri beiðni, þar sem satearefni er nákvæmlega lýst, enda fylgi öll þau skjöl, er líkleg eru tii þess að varpa ljósi á málið. Þeg ar dómstóMinn starfar að álits- gerðum, skal hann annars hafa ti'l leiðbeiningar framangreind- ar reglur um dómsmál, að því leyti sem þær geta átt við. Mál Norðmanna og Breta Enginn þeirra dómenda, sem nú sitja i Alþjóðadómstólnum, áttu sæti í dómnum, þegar eina málið varðandi fiskveiðilög- sögu kom upp, sem til þessa hefur verið vísað til Alþjóða- dómstólsins. Það gerðist árið 1949, en þá skutu Bretar land heligisdeiiu sinni við Norðmenn um fiskveiðiréttindi við Noreg til Alþjóðadómstólsins. Dómur- inn komst að þeirri niðurstöðu árið 1951, að hvorki aðferð Norðmanna við ákvörðun land helgi sinnar né þau fiskveiði- takmörk, sem þar voru sett, færu í bága við alþjóðarétt. Bretland tapaði því málinu. Alþjóðadómstóllinn í Haag er nú skipaður þessum mönn- um: Forseti: Zafrulla Khan, Pakistan; V.P. Ammoun, Líba- non; Fitzmauriee, Bretlandi; Padilla Nervo, Mexieo; Forst- er, Senegal; Gross, Frakklandi; Gengzon, Filippseyjum; Petren, Svíþjóð; Lachs, Póllandi; Ony- eama, Nigeríu; Dillars, Banda- ríkjunum; Ignacio Pinto, Da- homey; de Castro, Spáni; Mor- ozov, Sovétrítejunum og Jimin- ez de Arechaga, Uruguay. 1 samkomulagi því, sem gert var milli Bretlands og Islands árið 1961 varðandi íslenzku landhelgina, er kveðið á um 12 mílna landheligi umhverfis fs- land og að heimilt skuli að skjóta til Alþjóðadómstóisins í Haag sérhverri deilu, sem koma kynni upp vegna áforma af fslands hálfu um að stækka landhelgi sína út fyrir 12 mil- ur. (Heimildir: Fakta om de For- enede Nationer; Ólafur Jó- hannesson, Sameinuðu þjóðirn- ar; Carl August Fleischer, Fiskeri jurisdiktion o.fl.). Jörð til sölu Jörðin Árnes i Þorkelshólshreppi i Vestur-Húnavatnssýslu er til sölu og laus til ábúðar i næstu fardögum. Á jörðinini er steinsteypt íbúðarhús, fjárhús fyrir 120 kind- ur, fjós yfir niu kýr og við þessar byggingar er heyhlaða. Öll útihús eru úr steinsteypu Á jörðinni er ágætt tún er gefur af sér 1000—1200 hesta. Jörðin á land í Víðidalsá og hefur því að sjálfsögðu ein- ingar í veiðifélagi hennar. Vænitanlegir lysthafendur snúi sér til Jóhamnesar Ragnara- sonar, bónda, Jörfa í Víðidal, sími um Lækjamót fyrir 10. apríl nk. er gefur allar frekari upplýsingar ef óskað er. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.