Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1972 11 Fréttabréf úr Biskupstungum: Miklar framkvæmdir Síðast liðið ár var gott, og það sem af er þessu ári. Snjó- létt, grasspretta góð og hagstæð heyskapartíð, enda metheyskap ur, svo hlöðurými reyndist ekki nóg hjá fjölda bænda. 1 fyrra var byggt fjós á Miðhúsum hér í sveit, mjög tráust og ailur frá- gangur snyrtilegur og málað, bónuanum til sóma. Fleiri fjós voru byggð og önnur stækkuð. í sumar stendur til að byggja mörg fjós og heyhlöður, enn- fremur tvö íbúðarhús. Einnig voru endurbyggð gróðurhús í stórum stíl og önnur nýreist. ■í Aratungu á að byggja sund laug og búningsklefa af full- komnustu gerð, sem vart kostar minna en 12—14 milljónir. Fleiri framkvæmdir eru væntanlegar og eru í gangi. Hreppsfélagið lét Orkustofnun ríkisins leita að jarðhita með sæmilegum árangri. Vantar aðeins að Marteinn Björnsson líti á það. Af ofan- nefndu má sjá að það er mikill framfara- og stórhugur í Tungnamönnum. Fyrir 10—15 ár um var það talið hagstætt fyrír bóndann að gefa fóðurblöndu, ef 1 kg af fyrsta flokks fóður- blöndu kostaði ekki meira en 1 Htri af mjólk. 1 dag kostar 3 kg af fóðurblöndu sömu upp- hæð og bóndinn á að fá fyrir 2 litra af mjólk, svo að það er eðli legt að bændur gefi mikinn fóð urbæti. Hin mikla fóðurbætis- gjöf skapar offramleiðslu, sem nú á að skattleggja með nýju lagafrumvarpi. En má þá ekki eins borga bændum í ýmsum landshlutum þar sem ekki er mjólkursala fyrir það að fram- leiða ekki óseljanlegt smjör. Allt stigur í verði, svo hröðum skref um að stjórnarsinnar halda að regluleg gullöld sé að renna yfir land vort og þjóð. Allir eru að verða ríkir, meira fjárfesting aræði en nokkru sinni áður. Kaupgjald stígur daglega með yfirboði í vinnuafl. Alls staðar vantar fólk, sérstaklega í vinnslustaði sjávarútvegsins og sjómenn á skipin. Togarar eru keyptir í tugatali, þótt fyrirsjá- anlegt sé, að þeir verða ekki mannaðir e0a þá að leggja verð ur öðrum skipum vegna mann- fæðar. Fyrir nokkrum dögum gerðist það í Árnessýslu, að ný útlærðum trésmið var boðið í kaup á mánuði 80.000 kr. og alit frítt. Síðan kemur meistaraálag- ið á þessa upphæð, hvað verð- ur timakaupið þá? Hann á að vinna við byggingar er rikið reisir. Þetta er hrollvekja. Hvernig eiga islenzkir bænd- ur, þótt góðæri sé, eða aðr- ir, sem ekki hafa fullar hendur fjár að byggja yfir sig og fén- að sinn? Já, nú á að láta Martein leysa verðbólguvand- ann, fyrir þá, sem eigi hafa full ar hendur fjár. En hvernig fer Marteinn að því? Senni- lega þannig að láta byggja nógu illa og virða svo byggingarnar nógu hátt. Skal ég nefna eitt dæmi. Bóndi einn í Árnessýslu byggði bragga um 23x7,5 metra og ná- lægt 3,50 á hæð. Bragganum er hrúgað upp að mestu af gömlu rusli og illa gerður, að ég held gluggalaús. Sennilega er í hon- um nóg birta, vegna þess að járnið er svo götótt. Ekki get ég haldið að þessi bygging kosti meira en 50—60 þús. kr., því vart mun efnið hafa kost- að meira en 25.000 kr. Sá, sem byggði, sagði mér að Marteinn hefði virt braggann á 500 þús. og hann hefði fengið lán í stofn lánadeildinni samsvarandi því. Ég er ætíð í fjárþröng, vill ekki einhver selja mér gamalt bragga ræksni á 10—15 þús., svo Marteinn geti bjargað fjárhag mínum? Byggingarfulltrúinn Marteinn á að vera hlutlaus í mati og meta hjá mér s-vipað og hjá fyrrgreindum manni. Ef ég fæ umbeðinn bragga og byggi upp, þá er mér borgið fjárhags- lega. í 15. tölublaði Þjóðólfs 1969 skrifar Marteinn um mig orð- rétt: Þótt núverandi ríkisstjórn hafi I orkumálum tekið upp bú- skaparlag Gríms á Syðri-Reykj um, þ.e. að lifa af þvi að selja undan sér kotið, þá verður jarð- hitinn þó einna torveldastur til burtflutnings úr héraði, sem ó- unnið hráefni, þótt slíkt verði að sjálfsögðu reynt. Mér þykir Marteinn sýna mér mikinn heið- ur að telja að fyrrverandi rikis stjórn hafi stælt mitt búskapar- lag. Að endingu: Það vil ég upp lýsa Martein og alþjóð um, að ég hefi ekki selt jarðhita og land fyrir neitt svipaða upphæð og umræddur braggi var metinn af Marteini, ef frásögn bóndans er rétt. Þess óska ég vegna um- ræddra ummæla, að stofnlána- deildin láti rannsaka, hvers mik ils virði veðið er í bragganum, ennfremur hversu mikils virði veðin eru á bújörð minni Syðri- Reykj'um I. Nú vil ég taka það fram, að ég deiU ekki á framkvæmdastj. Stofnlánadeildarinnar, þvi hún fer eftir skýrslugerðum bygg- ingafulltrúans. Þeir sem byggja sterk dg velgerð hús, sem end- ast vel fá ekki nóg, en þeir sem byggja léleg hús virðast stund- um fá jafnvel meiri lán en hús- in kosta. Reykjavík 10. april 1972. Grimur Ögmundsson. Willys jeppi '65 til sölu með Egilshúsi, nýupptekin vél, á nýjum dekkjum, nýskoðaður. Hefur alltaf verið í eigu sama manns. — Upplýsingar í símum 14005 og 17255. ‘s - 7- - ’ ; 7" ® Notaðir bílar til sölu Volkswagen 1300 ’67 og ’71. Volkswagen 1302 S. ’71. Volkswagen 1500 ’64. Volkswagen 1600 A ’68. Volkswagen 1600 TL Fastback ’68 og ’71. Volkswagen 1600 Variant ’67 og ’71. Land-Rover benzín ’62, ’66, ’70. Land-Rover diesel ’67. Land-Rover diesel lengri gerð ’71. Willy’s Jeepster ’67. Rambler Classic station ’66. HEKLA hf. Laugavegi 170—172 — Sírm 21240. vm? c t co ö Y— Steypujárn er eitt af mórgu sem þér fáið hjá Byko (og aö sjálfsögöu í fullkomnu úrvali) VK BYGGINGAVÖRUVERZLUN KÓPAV0GS SÍMI 41000 IS0-ELAST Botninn kemur í stað filts. Hann helzt ætið mjúkur og tognar ekki. — Jafnframt veitir hann mestu hugs- anlega hljóðein- angrun og hita- einangrun og gerir lagningu óþarfa. TILSNIDIN Þér pantið WILTAX teppið í dag og eftir aðeins þrjár vikur kemur teppið „skraddarasniðið" á gólf yðar. Þess vegna þurfið þér ekki að borga það, sem úr teppinu kann að sniðast. Efni: alull, rayon, acryl, enka-perlon og ICI-nælon. 5—7 litir í hverri gerð. Einlit eða mynstruð. Verð og greiðslu- skilmálar við allra hæfi. Skrifið og biðjið um litmynda- bækling með verð- um. Vörumarkaðurinn hf Ármúla 1A — Sími 86-112.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.