Morgunblaðið - 30.04.1972, Side 18
18
SlfflNUpAG^; 30.
Eru strandsiglingar
á íslandi í hættu ?
HÆPNUM FULLYBÐINGUM
SVARAÐ
Sunnudaginn 5. marz siðastlið
inn, birtist í Þjóðviijanum grein
argerð frá stjórn Landvara,
landsfélagi vörubifreiðaeigenda
á flutningaleiðum. Var fjailað
um vöruflutninga innaniands,
annars vegar með skipum, hins
vegar með bifreiðum. Gert var
mikið úr kostum hinna sið-
arnefndu.
Það þykir vist sjálfsagt, nú
orðið, að hafa áhrif á skoðana-
myndun fóiks bæði með tak-
mörkuðum upplýsingum og vill-
andi. Þá eru rökin oft einföld
og sannfserandi. Auðvitað er ailt
fægt og pússað, og það sem
verða má málstað andstæðing-
anna til framdráttar er oft látið
faiia i skuggann. Þannig er
þess«u farið í greinargerð Land-
vara. Undirrituðum þykir nauð-
syniegt að ailur sannieikurinn
komi í ljós.
ÓRAUNHÆFT DÆMI
1 nefndri grein er það sýnt
töluiega, að það sé kr. 155,— ó-
dýrara að fiytja vörutonn frá
Reykjavík til Akureyrar með
bifreið en með skipi. Ekki verð-
ur hirt um að birta dæmi Land-
vara hér, þvi það er ónákvæmt
og handahófskennt og veitir
vægast sagt takmarkaðar og vill
andi upplýsingar. 1 fyrsta iagi
takmarkaðar af því að aðeins er
taiað um vörutonn. Vörutegund
ekki skilgreind. 1 öðru lagi vill-
andi af því að flestar tölurnar í
dæminu eru rangar/ónákvæmar.
Einnig er ekki sýnt nógu vel,
hve stór hluti gjaldanna rennur
i vasa opinberra aðila og gefið
í skyn að um algjörar hiiðstæð-
ur sé að ræða.
RAUNHÆF DÆMI
Undirritaður vill koma á fram
færi réttum/nákvæmum dæmum
um vöruflutninga á sömu leið,
dæmum sem varpa skýrara ijósi
á þetta mál og kjarna þess.
Schannongs m'mnisvarðar
Biðjið um ókeypis verðskrð.
Ö Farimagsgade 42
Köbenhavn Ö
Fjaðrir, fjaðrabföð, htjóðkútar,
púströr og ftolii varahtutir
í margar gerððr bifreiða
Bflavðiubóðtn FJÖÐRIN
Leugavegi 168 • Síml 24180
I. Vörutegund; hveiti í sekkjum, 1000 kg.
Með skipi
Skipaféiag og vöruafgreiðslur
Útskipun, Reykjavík . . . Kr. 485.—
Flutningsgjald til
Akureyrar.............. — 8.00.0 —
Uppskipun, Akureyri .... — 387.— Kr.: 1.672.—
Opinberir aðilar
Söluskattur af útskipun Kr. 53.—■
— — uppskipun — 43.—
% vörugjaid, Feykjavik — 20.—
— Akureyr — 21,— — 137.—
Samtals Kr.: 1.809.—
Með bifreið
Farmflytjandi
Flutníngsgj. til Akureyrar Kr. 2.500 Kr.: 2.500.—
•f- M - -n kT •
II. Vörutegnnd; varahintir til hifreiða og véla, 1000 kg.
Með skipi.
Skipafélag og vömafgreiðsliir
Útskipun, Reykjavik . . . Kr. 485.—
Flutningsgjaid til
Akureyrar.............— 1.300.—
Uppskipun, Akureyri ... — 387.— Kr.: 2.172.—
Opinberir aðilar
Söluskattur af útskipun Kr. 53.—
— — uppskipun — 43.—
% vörugjald, Reykjavik — 155.—
— Akureyri — 84.—
Kr.: 335,—
Samtals Kr.: 2.507.—
Með bifreið
Farmflytjandi
Flutningsgjaid til
Akureyrar Kr. 2.500.— Kr.: 2.500.—
-f Mism. Kr,: 7.—
GJAUDBYRÐI
VÖRUEIGENDA
Dæmin á undan sýna, að mjög
mikiil aðstöðumunuir er miHi
þessara flutningatækja, vegna á-
laga opinberra aðiia á vörueig-
andann, sem sendir vörur sínar
sjóleiðis. Það verður að teljast
mjög alvarlegt misræmi að siik-
Til sölu
iðnaðar-, lager- eða verzlunarhúsnœði
á götuhæð, tæplega 130 fm, þar sem verið hefur Prentsmiðjan
Viðey að Túngötu 5. Lausf í maí
Upplýsingar hjá Vagni E. Jónssyni, sími 14400 eða í sima 14950
utan skrifstofutíma.
ar álögur skerði samkepþnisað-
stöðu skipafélaganna og geri
þau jafnvel ósamkeppnisfær.
Það hlýtur að vera krafa skipa-
félaganna o-g allrá þeirra sem
láta sig samgöngumál éinhverju
skipfa, að þessi óréttláta mismun
un, í hag vönufflutnimiga með bií-
reiðum. sé leiðrétt tafarlaust.
ORLOF 1972
Undirrituð samtök vilja hér með vekja athygli á, að samkvæmt
lögum nr. 87/1971 um orlof, er lágmarksorlof fyrir þá, sem unnið
hafa fullt orlofsár 22 virkir dagar árið 1972. Það skal tekið fram að
laugardagar eru virkir dagar í þessu sambandi.
Alþýðusamband fslands Vinnuveitendasamband íslands.
Vinnumálasamband samvinnufélaganna.
G.TALDBVRÐI
FARMFUYTJENDA
Gjaidbyrði vöruflutnimgabif-
reiða til veganna hefur stund-um
verið gerð að umtalsefni. Sam-
kvæmt gjaldskrá yfir þunga
skatt mun sá skattur nema frá
kr. 474,60 til kr. 926,60 eftir
stærð bifreiða (diesel), fyr-
ir akstur frá Reykjavik til Akur
eyrair. Sé haft í huga að flutn-
ingsgjald á þessari leið er kr.
2.500.— fyrir vörutonnið, er
þessi skattur smámunir einir.
Sem dæmi má nefna að fyrir við
komu í Reykjavik mundi skip að
stærð 450—500 brt. greiða til
hafnarinnar kringum kr.
8.000.— (lestargjald, bryggju-
gjald, hafnsögubátur, hafnsögu-
gjald). Á ieið sinni kring-
urn iandið þræðir skipið svo 6-
tal hafnir, með mismunandi vöru
magn, oft látið, og greiðir sin
gjöid á hverjum stað. Til viðbót
ar greiða svo vörueigendur vöru
gjöid og söluskatt af vöru-
afgreiðslugjöldum, eins og áður
er getið.
AÐSTÍH)
A FLUTNINGAUEIÐUM
Vegum landsins er haldið
opmum á vetrum, eftir því sem
verða má, og er þá ekkert til
sparað. Á sumrum er stöðugt
unnið að viðhaldi og endurbót-
um. Skipin athafna sig við
strendur landsins við ýmsar að-
stæður. Á vetrum við hættur af
óveðrum og is. Komið hefur oft
fyrir að skip hafa, vegna hafíss,
tafizt, orðið að smúa af leið, set-
ið föst. Það kostar mikið fé að
láta jafn dýr atvinnutæki verða
fyrir stórfeildum töfum dögum
eða vikum saman. En hvar er þá
aðstoðin? Hún er ekki fyrir
hendi. Á sama tíma eru smjó-
moksturstæki, jarðýtur og veg-
heflar önnum kafnir við að
ryðja vöruflutningabifreiðum.
leið. Þetta er aðeins nefnt til að
opna augu manna fyrir hinum
mikla aðstöðumum og einnig
þeirri þjónustu, sem vöruflutn-
ingabifreiðar fá og hlýtur að
kosta þjóðfélagið gifurlegar
fjárhæðir.
SKEMMDIR A VEGUM OG
HftFNUM
Það er .sannað, að vöruflutn-
ingabifreiðar hafa vaidið gífur-
iegum skemmdum á vegum lands
ins í gegnum árin. Hinir al-
mennu bifreiðaeigendur og skatt
greiðendur hafa staðið undir
kostnaðinum við viðhald og við
gerðirnar. Þessi kostnaður er
mjög mikill. Meðferð vöruflutn-
ingabifreiða á vegunum er væg-
ast sagt mjög slæm. Eigendur
vöruflutningabifreiðanna kvarta
sáran undan smávægiiegum
þungaskatti, sem er aStains lítiil
dropi í þamm hatfsjó fjáirmuna,
sem það kostar að halda vegun
um í horfimu. Hvað með skipafé
lögin? Borga skattgireiðendur
skemmdir á höfnum og mann-
virkjum, sem skipin valda? Þvl
fer fjarri. Skipafélögunum er
gert að greiða að fuHu aiiar
skemmdír, sem skipin valda.
Auðvitað eru skipafélögin
tryggð fyrir slíkum óhöppum, en
allir sem þekkja til, vita um hin
háu og síhækkandi tryggingar-
gjöld, sem eru fyrir iöngu orðin
mjög tilfinnanlegur kostnaðarlið
ur í rekstri kaupskipa.
SKYLDUR
VID ÞJÓDFÉLAGID
Hvaða skyldur hafa eigendur
vöruflutningabifreiða við þjóð-
félagið? Áður hefur verið
minnzt á hve „mikið“ þeir bera
af kostnaðinúm við viðhaid og
viðgerðir veganma, sem eru
grundvöHurinn fyrir starf-
semi þeirra. Hvað um skyldum-
ar. Er ekki þessi „bísniss" aðal-
lega fólginn í þvi að fleyta rjóm
ann ofan af á hagkvæmustu og
annasömustu flutningaledðunum?
Eru meðiimir Landvara kannski
reiðubúnir til að flytja vöru-
slatta, með bullandi tapi, til
hinma og þessara afskekktra
staða, svo að ibúarnir þar megi
njóta þjónustu þeirra og fóm-
fýsi? Hvað segja íbúar þeinra
staða, sem verða að treysta á
skipaferðir einvörðungu mik-
inn hluta ársims; sem eiga aHt
undir sjóleiðinni komið varð-
andi aðdrætti og útfiutndng?
Vilja þeir láta vöruflutningabif
reiðar ganga að strandsiglingum
dauðum? Vilja þeir að misræmi
í álögum opinberra aðila þvingi
skipaíélögin tiil að draga saman
seglin? Vilja þéir missa tekjur
vegna minnkandi viðkomu kaup
skipa? Vilja þeir að uppbyggimg
hafnanna stöðvist? Vilja þeir
leggja traust sitt á eiginhags-
muni þeirra Landvaramanna?
TIL UMHUGSUNAR
Það er mikilvægt að samgöngu
málum á Islandi sé vel stjórnað
o.g að þeim sé vel og réttileiga
búið af stjórnvöldunum. Um
þetta hijóta allir að vera sam-
mála. En er svo í raun? Er rétt-
látlega búið að þessum málum?
Nei, siður en svo. Hinum mikla
aðstöðmmun miili skipa og vöru-
flutningabifreiða og rangiæti í
skattlagningu á vöruflutninga
með skipum, hefur hér verið lýst
allnáið. Stefnan er m.jög ranglát,
og hún er meira. Hún er stór-
hættuieg samgöngnmálnm á Is-
landi.
Reykjavik, 13. april 1972.
Arngeir Liíðviksson.
Hf. Eimskipafélags íslands verður haldinn 1
fundarsalnum í húsi félagsins þriðjudaginn
16. maí 1972 kl. 1.30 eftir hádegi.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Reikningar félagsins fyrir árið 1971, ásamt
tillögum um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og
um framlengingu á fresti til aukningar
hlutafjárins, liggja frammi í skrifstofu fé-
lagsins frá og með 2. maí 1972.
Hf. Eimskipafélag íslands.
Okkut vantar humarbáta í viðskipti.
Viljum leigja humarbáfa í sumar.
Getum veitt ýmsa fyrirgreiðslu gegn
því að fá aflann.
BRYNJOLFUH HF.
KEFLAVÍK
Símar: 92-6044—41412.