Morgunblaðið - 30.04.1972, Síða 22

Morgunblaðið - 30.04.1972, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1972 Jón H. Þorbergsson: Mál allra mála Sköpunin öll er til orðin með því að Guð talaði og það varð. Orð Guðs eru upphaf kraftar- ins. Orð Guðs er frækorn, af þeim blómstrar jörðin. Hugur og hjarta mannanna er sáðland Drottins, svo að þeir blómstri í trú á Hann. Hún er lífsskilyrði fóiksins, um alla tíma. — Maður inn hefir mikla sérstöðu í sköp uninni. Guð skapaði hann í sinni eigin mynd, gaf honum mikið vit, frjálsræði til að velja og hafna — sér til sjálfsþroskunar — og svo ber Guð umhyggju fyrir mönnunum, svo að þeir nái að verða þegnar í ríki Hans. Þetta er mál allra mála, okkar mannanna I öllu starfi, hugsun og lífi. Krist- ur kom til að kenna fólkinu Guðs orð og að ailir skyldu skilja það sem sjálfsagðan hlut, að hugsa, lifa og breyta sam- kvæmt orðinu. Þetta er daglegt verkefni okkar allra, þess vegna þurfum við að vera ávallt vel vakandi í orði Drottins og vera vel heima í kenningu Krists og lifa samkvæmt henni. Tek hér upp nokkrar setningar sem Kristur talaði, til hugleiðingar öllum þeim, sem kynnu að lesa þessar línur. Kristur sagði: Svo elskaði Guð heiminn (mannheim) að Hann g£if son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á Hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóh. 3,16) — Þessa setn- ingu nefndi Luther litlu biblí- una . Þessi setning Krists, segir okkur að Hann er kominn til jarðarinnar okkar vegna, fyrir umhyggju Guðs fyrir okkur og að höfuð skilyrði okkar, til þess að verða þegnar Hans, er að trúa því að Kristur sé sonur Guðs, sendur okkur öllum af Honum og að allt, sem Kristur sagði séu Guðs orð, sem eiga að móta okkur til Guðlegrar fram- komu. En fómardauði Krists, upprisa Hans himnaför og öll kraftaverk, sem Hann vann, er staðfesting á guðdómi hans, þetta er framkvæmd skaparans, til þess að við skulum ekki glat- ast. Um glötun mannanna er mikið mál í bibliunni. — Bibílían er okkar handbók, sem við þurfum daglega að lesa í, til þess að geta haldið okkur á línunni. — Við getum, í okkar frjálsa vali farið það langt afvega að við glötum lífinu, glötum sjálfum okkur, verðum viðskila við Guð. Það er mestur voði allrar hættu. Því vill Drottinn forða okkur frá þvi Hann vill eiga okkur öll. Það sannar allt það, sem Kristur gerði og gerir fyrir okk ur. Kristur sagði: „Leitið fyrst ríkis Guðs og réttlætis og þá mun allt þetta veitast yður að auki." (Matt 6,33 Fjallræðan) Hér gefur Meistarinn okkur hugsjón til að stýra athöfnum okkar eftir, svo við náum að vinna sigra, sem ávinna okkur þegnréttinn í riki Guðs. Hvem- ig við förum að þvi að gera þessa hugsjón, allra hugsjóna virka, höfum við nægar fyrir- sagnir og leiðbeiningar um í kenningu Krists og dagarnir eru okkar tækifæri. Allt rétt- læti er guðsættar. Með því að lifa samkvæmt þvi verður guðsríki mitt á meðal okkar — samanber orð Krists um þá trúuðu — og gefur okkur trú, skilning og hamingju. Hver sem ástundar réttlæti Guðs, vegnar vel, en hver sem ekki fæst um það, lendir í þrotlaus- um örðugleikum. Þannig sannar Guðs orð sig sjálft. Það ætti að vera öllum ljóst og þarf að vera öllum augljóst. Litum til Hans, sem gekk á vatninu. Kristur sagði: „Nýtt boðorð gef ég yð- ur, þér skuluð elska hver ann- an á sama hátt og ég hefi elsk- að yður — að þér einnig els'kið hver annan." (Jóh. 13.34). Og: „Af þvi skulu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til anmars." (Jóh. 13.24, 25). Þannig má halda áfram að tilfæra lifandi orð Drottins. Þau miða okkur til ótæmandi vizku og blessunar. Við athugun þeirra kemur í ljós að okkur skortir mikið á að ástunda Guðs orð, svo sem vera ber og okkur er þörf á og er lífsnauðsyn. Við höfum heilaga ritningu, biblíuna. Við höfum starfandi kirkju Krists. Við höfum biblíu félag. Við höfum trúboðsfélag, margs konar kristilegan félags- skap, að meðtöldum trúuðum sér trúarhópum og töluvert af kristilegum tímaritum og blöð- um. Samt er daglegt líf fólks- ins í landinu mun fyrirferðar- meira í vantrú en í trú, sam- kvæmt kenningu Krists. Lýsir sér þetta meðal annars á eftirfarandi hátt: 1. Töluverður hópur fólks neit ar tilveru Guðs og hefir heilagt orð hans að engu. 2. Tóonlæti fólks, sem telur sig til kirkjunnar, gagnvart Guðs orði, er mjög áberandi. 3. Ástundun Guðs orðs og helgistunda, í heimahúsum, er stöðugt minni og minni þáttur trúarlífsins með hjóðinni. 4. Fólk, sem stöðuglega finnur þörf hjá sér til að sækja helgar tiðir í kirkjurnar, hús Drottins, er tilfinnanlega fátt. 5. Prestafæð er mikil í Iand- inu, sem er undanhald frá mætti og áhrifum Guðs orðs. 6. Biblían, heilög ritning, er mjög óvíða hreyfð til lesturs á heimilum í landinu. 7. Kristileg samstaða í stjórn- málum og ýmsum samtökum, hættulega Htil. Afleiðing alls þessa er vissu- lega neikvæð. Er hægt að benda á margt í þ\d sambandi og þar á meðal þetta: Ósikírlífi, lauslæti óráðvendni, ofdrykkja, óhöfleg- ar skemmtanir, næturlif, útgáfa ólesandi rita, óhæfar myndasýn ingar, kæruleysi um velferð lands og þjóðar og margt fleira. Þetta stefnir þjóðinni í það ófremdar ástand að hún missi menningu sina í ókristilegum lifnaðarháttum. Hér þarf liís- nauðsynlega að verða breyting á. Koma þarf almenn starfandi vakning meðal fó'ks í landinu, í kristilegum trúarmálefnum. ÖIl b'essunarrík trúarvakning á upptök sín og grundvöll í kenni setniragum kirkju Krists. Hún er höfuð menningarstofnun þjóð anna. Það hefir hún verið, ís- lenzku þjóðinni, siðan kristni var lögtekin árið 1000. Þrátt fyrir mikla vantrú með þjóðinni er þó kirkjan hér í sókn: I kristilegu æskulýðs- starfi, í líknarmálum og í skóla málum. (Löngumýrarskóli og komandi Skáiholtsskóli). En nú þarf hún að koma í gang starfs- kröftum til að vekja upp al- menna lifandi kristilega trúar- vakningu, i fólkinu, sem verði til þess að kefja og útrýma ólifnaði og syndalífi hjá þjóð- inni. Á hinum almenna bæna- degi kirkjunnar — fimmta sunnudag eftir páska — hefir biskup landsins, hr. Sigurbjöm Einarsson, óskað þess opinber- lega, að fólkið í landinu bæði Drottinn að gefa þjóðinni al- menna vakningu í kristilegri trú. Þetta mun lítinn árangur hafa borið. Þetta kynið, vantrúin, fer ekki léttilega út. Að sjálflsögðu er ekkert áhrifaríkara, til að koma á vakningu, en bænir og aftur bænir til Drottins. Án hjálpar Hans erum við vanmátt- ug. I sögulegum viðburðum er það vitað að vakning í trúnni, á almáttugan Guð og Jesúm Krist, sem frelsara og leiðtoga okkar, hefur í för með sér mikla ný- sköpun í þjóðfélagsmálum. Vakningarfólkið verður innblás ið margs konar dyggðum. Eins og litillæti, áreiðanleik, hófsemi, sannleiksást, kærleik og iðkun alls þess, sem kenning Krists býður fólkinu að ástunda þvi til sigurs, i réttri trú. Kirkjan og öll kristileg samtök í land- inu, ættu að stofna til hópbæna og biðja þá meðal annars um vakningu í orði Drottins. Ef við bæðum — í trú — nógu mörg um það. Þá kæmi vakningin yf- ir okkur, yfir þjóðina. Bænin er framkvæmdarafl. Prestar láta stundum kirkjufólk hafa yfir trúarjátninguna og lesa með sér Faðir vor. Þeir ættu að láta fólk biðja miklu meira í kirkj- unum. Nú er svo mjög ferðazt til útlanda. Kirkjan og kristilegu samtökin, í landinu ættu að gera út leiðangur til Bandaríkjanna, til að kynna sér þar starfsemi „Jesúfólksins", hvort þar er hrein kristileg trúarvakning. Það má raunar segja að is- lenzku þjóðina vanti ekkert, í dag nema lifandi vakningu í trúnni. Kæmi hún yrði hér nýtt þjóðfélag, sem orðið gæti öðr- um þjóðum til fyrirmyndar. — Við eigum enga aðra leið til þess. Heimilin mundw verða frið sæl og sterk, undirstaða þjóðfé- lagsins. Fólkið mundi hópast í kirkjurnar og hvers konar helgi stundir. Þeir, sem hafa ósóm- ann að féþúfu yrðu að leita sér annarrar atvinnu. Hinn róttæki Guðlausi kommúnisti yrði að hverfa úr landi. Hann getur ekki lifað þar, sem kristileg trú ræður ríkjum. Þá rikti friður i þjóðmálum. Þá yrði unaðslegt líf í landi hér. Þá yði Guðsríki mitt á meðal okkar allra. Kristur sagði við trúaða fólkið: „Guðs- riki er mitt á meðal yðar." „All- ir þessir voru með einum huga, stöðugir í bæninni ásamt konun um.“ (Post. 1,14). Með því að biðja mörg saman, eykst kraftur bær.arinnar og sameiginleg til- finning biðjenda um þörf, nauð syn og sigurvon, sem felst í því að biðja til Drottins. Fjöldi ungs fólks, nú á tím- um, fer á margs konar villigöt- ur. Það verður að eignast hug- sjónir, sem það finnur að lif- andi er fyrir. Fyrst og fremst að beita kröftum sínum tíl þess að guðsríki verði mitt á meðal okkar. í það kjölfar, koma þær hugsjónir að vinna að velfarn- aði lands og þjóðar. Lifa I vel- vilja hver gegn öðrum og verða að nýtum borgurum að góðu og trúuðu fólki. Þetta eru hugsjón ir kirkju Krists. Mál allra mála. Kirkja Krists er trúuð á Hann og Skaparann. Starfsemi hennar er einkum á tvennan hátt: Efla trúna og berjast við syndina, gróðursetja kenningu Krists, í hjörtum allra og afmá vantrú og trúleysi fólks. — Vinna á móti öllu því, sem Guði er vanþókn- anlegt og aflmá grautargerðina, sambland heiðni og kristni, sem ríkir svo mjög í huga fjölda fólks. — Allt sem Guði er til vanþóknunar er okkur skaðlegt. Kristin trú er ekki aukaatriði eða viðbótaratriði í huga fólks. Hún skipar þar öndvegi. Hún mótar fólk til réttrar breytnd á öllum öðrum sviðum. Veitir því sálu'hjálp, farsœld og frelsi. Hún er mál málanna. 30. marz 1972. Jón H. Þorbergsson. Verxlunin JASMIN HF. Laugavegi 133 Við bjóðum viðskiptavini okkar að taka eftir að við höfum flutt starfsemi okkar í stærri og skemmtilegri húsakynni á Laugavegi 133 (við Hlemmtorg) og bjóðum þá velkomna. \ Höfum, sem áður, mikið úrval sérkennilegra skrautmuna til tækifærisgjafa og heimilis- prýði og munum taka fram ýmislegt nýtt á næstunni. JASMIN. GEÐVERNDARFÉLAC fSLANDS Aðalfundur Geðverndarfélagsins verður haldinn í Lindarbæ v/Lindargötu, leiksviðs- salnum, niðri, fimmtudaginn 4. maí k. 8,30 stundvíslega. — Venjuleg aðalfundarstörf; erindi: — Óafur Jóh. Jónsson læknir: Heim- ilislækningar og geðvernd (viðhorf, með- ferð).— Veitingar fáanlegar á fundinum. Fjölmennið og takið með ykkur gesti, — hlýðið á athyglisverð erindi. GEÐYERND Stjómin. Orðsending fil Kópovogsbún um bilnnntilhynningnr vegnn vntns-, og hitnveitu, holræsn- og vegnkeriis Eftir kl. 19 á virkum dögum og um helgar er vaktmaður í síma 41575 (símsvari). Geymið auglýsinguna. Rekstrarstjóri Kópavogskaupstaðar. 1972 -1973

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.