Morgunblaðið - 21.06.1972, Síða 22

Morgunblaðið - 21.06.1972, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNl 1972 Sigurður Jóhannsson skipstjóri — Minning Fæddiir 25. janúar 1914. Dáinn 14. júní 1972. Vlnur minn Sigurður Jóhanns son er dáinn. Hann var héðan kvaddur miðvikudaginn 14. júní, aðeins liðlega 58 ára gam- all. Við sem eftir lifum syrgjum góðan vin og mikinn mannkosta dreng. í>egar hann kvaddi okk- ur samstarfsmenn sína fyrir 11 vikum sagðist hann vera með eitthvert tak, sem þyrfti að athuga nánar. Hann hafði þó þegar verið í rannsókn um 8 vikna skeið, en vegna áhuga á starfi sínu fannst honum ekki timabært að vera við rúmið á meðan rannsókn færi fram, þó að læknar hafi eindregið mælt svo fyrir. Allt til siðustu stund ar var hann að velta fyrir sér vandamálum dagsins, við höfn- ina og skipin. 1 huga mínum geymist mynd af einstökum vaskleikamanni, sem alltaf var reiðubúinn að leyea vandamál og leggja gott til í hvívetna. Fyrir tæpum 25 árum kynntist ég 3. stýrimanni á e.s. „Brúarfossi" Sigga Jó eins og við vanalega kölluðum hann. t Eiginkona min, Guðbjörg Sigurey Indriðadóttir, Strandgötu 13, Patreksfirði, andaðist á Landspítalanum 17. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir mina hönd, bama, tengdabama, bamabarna og bamabarnabams. _______Porvaidur Eggertsson. Ég var nýkominn frá skólaborð inu og þekkti lítt til hagnýtra framkvæmda á farskipi, en þá þegar og oft síðan leitaði ég til Sigurðar með ýms þau vanda- mál, sem urðu á minni leið. Er ég vini mínum mjög þakklátur fyrir góð ráð, sem ætíð voru veitt með ánægju og af mikilli skarpskyggni. Sigurður hafði einstaka og skemmtilega kímnigáfu. Hann var mjög orðheppinn og hafði margar skemmtilegar sögur á takteinum. Hann var hrókur aMs fagnaðar í vinahópi. Við sem vorum það heppin að kynnast Sigurði, minnumst hans sem mikilhæfs stjómanda til sjós og lands og raungóðs drengs. Sigurður fæddist 25. janúar 1914 og var þvi viku yngri en Eimskipafélagið, sem hann helg aði alla sína starfskrafta um 40 ára skeið. Fyrri kona Sigurðar var. Anna Hulda Jónsdóttir, skip- stjóra Sigurðssonar. Þau slitu samvistum. Seinni kona Sigurð- ar er Hjördlís Einar.sdóttir, hafn- sögumanns Jónassonar. Þau eign uðust þrjár dætur og sú elzta þeirra fékk sinn hvita stúdents- koll nú fyrir fáum dögum. Við sem sjáum á eftir Sigurði eigum bágt með að skilja það, að hann er horfinn okkur sjón- um, en minning um hinn ágæt- asta mann gleyrnist aldrei. Biðjum við góðan Guð að hug hreysta Hjördísi og dætumar, aldraða móður, sem og alla ætt- ingja og vini. Gef dánum ró og líkn sem lifa. Viggó E. Maack. t Eiginmaður minn. HALLDÓR DIÐRIKSSON, bóndi, Búrfelli, Grímsnesi, andaðist 20. júní. Kristín Guðjónsdóttir. t Eiginmaður minn, HJÁLMAR þorsteinsson, húsgagnasmíðameistari, andaðist að Hjúkrunar- og endurhæfingadeild Borgarspitalans ♦ þriðjudaginn 20. júní. Margrét Halldórsdóttir. t Eiginkona mín SIGRÚN EIÐSDÓTTIR, Asparfelli 2, Reykjavík, er lézt 14. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 22. þ. m. kl. 3 s.d. Fyrir mína hönd og barna okkar Bragi Melax. t Fósturfaðir minn, ÓSKAR GUÐMUNDSSON, Miðtúni 8, sem lézt í Borgarsjúkrahúsinu að kvöldi 15. júní verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 23. júní kl. hálf-tvö. Fyrir hönd vandamanna Guðmundur K’-ístinn Erlendsson. Ég kynntist Sigurði Jóhanns- syni fyrst á Dettlfossi 1949, en þá var hann 2. stýrimaður þar, en ég að byrja mina sjómennsku hjá Eimskip. Kynni okkar urðu ekki náin á fyrstu árum, því Sig urður var ekki allra við fyrstu kynni. Hann var strangur upp- alandi, en réttsýnn og munu all- ir hafa haft gott af samvistum og uppeldi hans. Leiðir okkar lágu síðar sam- an á Goðafossi 1960, þar sem Sigurður var skipstjóri og ég stýrimaður til 1964 að Sigurður tók að sér stjóm vöruafgreiðslu Eimskips og enn lágu leiðir okk ar saman, þvi ég varð yfirverk- stjóri undir hans stjóm til síð- ustu áramóta. Engum kom þá í hug, að svo stutt væri eftir á lífsleiðinni, en nú eru leiðir okkar skildar um sinn. Ég vil aðeins þakka fyrir allt það góða, sem ég hef hlotið af samvinnunni við þennan sér staka mann, sem var seintekinn og vinur vina sinna. Síðustu 15 árin hefur verið einlægur vinskapur á milli heim ila okkar. Ég votta Hjördísi, bömunum og móður hans mírcar dýpstu samúðarkveðjur frá mér og fjöl skyldu minni. Valdimar Björnsson. Hinn 14. júní lézt Sigurður Jóhannsson, skipstjóri i Borgar- spítalanum, eftir erfiða sjúk- dómsbarátbu, 58 ára að aldri. Hann var fæddur 25. janúar 1914, í Reykjavík, sonur hjón- anna Jóhanns Guðmundssonar og Sigríðar Dagfinnsdóttur. Sigurður gerðist snemma sjó- maður og starfaði lengst af við farmennsku. Hann réðst í þjón- u'stu Eimskipafélagsins árið 1934, þá tvítugur að aldri, og starfaði hj'á félaginu til dauða- dags. Hann lauk farmannaprófi við Stýrimannaskóiann í Reykjavik árið 1937 og var stýrimaður á skipum Eimskipa- félagsins til ársins 1959, er hann tók við skipstjórastarfi. Á árunum 1957 og 1958 tók hann að sér yfirverkstjóm við vöru- afgreiðslu Eimskipafélagsins i Reykjavik, hvarf síðam aftur um skeið til skipstjórastarfsins, en var ráðinn forstöðumaður vöru- af.greiðslunnar árið 1964. Han.n gegndi þvi starfi síðan. Við fráfall Sigurðar Jóhanns- sonar á Eimskipafélagið á bak að sjá traustum og du.gmiiklum framkvæmdamanni, sem heligaði félaginu starfsdag sinn óskipt- an í 38 ár. Hann var i senn þróttmikill, karlmannlegur og vaskur maður, eintbeitbur verk- stjóri og þó' vel látinn af öllum. Honum var mjög að skapi að hvert það verk, sem hann átti hlut að, væri vel og fljótt unn- ið. Mun það vart ofmælit, að störf hans sjáffs hafi öll farið vel úr hendi og eimkennzt af dugnaði og vandvirkni. SMkir menn eru hinir miklu máttar- sbólpar hvers fyrirtækis og raunar hvers þjóðfélags, Nó þegar Si'gurður er horf- inn okkur starfsifélögunum hjá Eimskip, söknum við yinar í stað. Við minnumst samverunn- ar, sem við áttum með honum og finnum lwe innilega við hefð um kosið að hún yrði lengri, þvi Framh. á bls. 23 Minning: Ingibjörg Elísdótti Frú Ingibjörg Elísdóttir lézt í Toronto Kanada þann 26. maí 1971 og var jarðsett þar. Ég hef lengi ætlað mér að minnast hennar með nokkrum orðum, og læt nú verða að þvi á afmælisdaginn hennar. Hún var fædd þann 21. júní 1924, og varð þvi aðeins 46 ára. Við hjónin vissum að Inga, — eins og við kölluðum hana jafn an, barðist við ólæknandi sjúk- dóm. Við vissum að hún hafði tekizt á við þessi örlög af dæma fáu harðfengi og sálarþreki. Öðr um, sem þekktu geð hennar og hetjuskap minna, kann að hafa komið andlátsfregn hennar meir á óvart. Þó er eins og enginn ættingi eða vinur, varla nokkur maður, ef um það er hugsað, geti gengið bak við þetta tjald, án þess að manni koml það að ein- hvérju leyti á óvart. Þama skilja heimar og mann setur hljóðan við þessa dul eina. Allar stærð- ir snilld og stórfengleiki verða viðráðanleg í samaniburðd við þetta. Manni finnst að Ingu hefði verið svo mikil þörf hér lengur, en hvað vitum vér menn, helzt það að ekkert stöðvar þennan þunga nið. Ingibjörg var komin af merku Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA JÓNSDÓTTIR, Forsæti V-Landeyjum, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju laugardaginn 24. júní n.k. kl. 2 e.h. — Sætafe'rðir frá Umferðamiðstöðinni kl. 11,30. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabamabörn. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma GUÐRÚN S. BRANDSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. júní kl. 10,30 f.h. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlega bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd systkina og annarra ættingja Sigrún Torfadóttir. Asdís Þórarinsdóttir Við þökkum innilega öllum fjær og nær sem sýndu okkur vinsemd og samúð við andlát og útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, ÞORVARÐAR BJÖRNSSONAR, fyrrverandi yfirhafnsögumanns. Guð blessi ykkur öll. Jónína A. Bjarnadóttir, Petrína Þorvarðardóttir, Gunnar Þorvarðarson, Helga Jónsdóttir, Jónína A. Bjarnadóttir, Aki Jónsson, Bjarni Lúðvíksson, Steinunn Garðarsdóttir, Lúðvík D. Þorsteinsson. fólki í báðar ættir. Foreldrar hennar voru hjónin, Elís Ó. Guð mundsson, kennari og síðar skömmtunarstjóri, sérkennilegur maður, skemmtilegur og greind- ur og meiri hæfileikum búinn en márgir vissu, hann lézt árið 1958, og Helga Jóhannsdóttir Eyjólfssonar, bónda og alþingis manns, sem kenndur var við Sveinatungu, en bjó síðar í Brautarholti á Kjalarnesi. Helga ber sín sterku ættarein- kenni skynsemi, kapps og ótrú- legrar seiglu. Ingibjörg var brautskráð frá Verzlunarskóla íslands vorið 1940, einhver yngsti nemandi, sem _þar hefur lokið prófi, að- eins 15 ára gömul. Hún stund- aði einnig íþróttir og dans. Ingi björg giftist ung Þórði Teits- syni, kaupsýslumanni og bjuggu þau í Reykjavik til ársins 1957, það ár flutt'usf þau búferlum til Kanada, og áttu heima í Van- eouver í 6 ár, en fiuttust þá til Toronto í Ontariotfylki og bjuggu þar síðan. Þau hjónin eignuðust 6 böm. Elsa er elzt, lík móður sinnd, g.ift ágætum manni, í Toronto og bæðd á fullu skriði til lífs og frama. Ólafur og Anna eru líka upp- komin og efnileg, Ingþór er 15 ára, Helga er 10 ára og Gunn ar er 7 ára, stór o>g mannvæn- legur hópur. Það þarf meira en meðal krafta til þess að flytjast fráls- landi velmegunarinnar árið 1957, með stóran bairnahóp, og hasla sér völl í fjarlægu óþekktu landi, og enda þótt Þórður Teits son sé vissulega óvenjulegur maður um margt, og þá ekki sízt hvað dugnað snertir, þá efast ég um að hann hefði farið eða stað izt storminn, ef hann hefði ekki verið giftur þessari konu. Hitt er svo líklegast, að Þórður hefði varla valið sér né verið giftur konu úr meðalmanna hópi. Ingu fýsti aldrei burtu af íslandi, og lengst af mun hugur hafa dreg- ið hana heim. Það mun ekki hafa verið fyrr en allra síðustu árin, Framh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.