Morgunblaðið - 01.07.1972, Side 4

Morgunblaðið - 01.07.1972, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR L JOLl 1972 22-0-22* RAUOARÁRSTÍG 31 14444 S 25555 Bilaleigan TÝR SKULATUNI 4 SÍMI15808 (10937) STAKSTEINAR Landbúnaðar- afrek Framsóknar Á síðasta Alþingi lagði rík- isstjórnin undir forystu Fram sóknarfiokksins fram frum- varp til nýrra laga um Fram- leiðsluráð landbúnaðarins. Fetta lagafrumvarp var eitt af höfuðmálum Framsóknar- flokksins á síðasta þingi. I Framleiðsluráðsfrumvarp- inu fólst m.a., að leggja átti 25% fóðurbætisskatt á bænd- ur. Hér voru fyrirhugaðar stórauknar álögur á bænda- stéttina. Talið er, að þessi skattur hefði þýtt um það bil 20 þúsund kr. viðbótarálögur á hið svonefnda vísitölubú. Fyrir bú með tiittugu kúm og um tvö hundruð fjár, hefði þessi fóðurbætisskattur haft í för með sér um 50 þúsund kr. viðbótarútgjöld. Frumvarpið gerði ráð fyrir, að nota ætti skattinn tll þess að tryggja verðlag á búvör- um, þegar það lækkaði t.d. vegna offramleiðslu. Mikill fjöldi bænda var hins vegar andvígur þessum fyrirhugaða fóðurbætisskatti. Bændur treystu þvi ekki, að skattur- inn myndi koma þeim sjálf- um til góða, enda hefur tak- mark stjórnarinnar fyrst og fremst verið að draga fjár- magn i ríkissjöð til þess að auðvelda miðstýringu fjár- magnsins frá Reykjavík. Ríkisstjórnin lagði einnig til í þessu frumvarpi, að heimilað yrði að skammta bændum ákveðinn fram- leiðslukvóta. Þeir bændur, sem framleiddu umfram til- tekið hámark yrðu að selja iimframframleiðslu sína á lægra verði. Þessar ráðagerðir ásamt öðrum mættu vitaskuld mjög eindreginni andstöðu bænda. Endalokin urðu siðan þau, að ríkisstjórnin heyktist á því að knýja frumvarpið fram. Þannig fór fyrir höfuðmáli Framsóknarflokksins í land- búnaðarmálum á siðasta þingi. Vinnutími bænda Það var eitt af þeim fyrir- heitum, sem gefin voru í mál- efnasamningi ríkisstjórnar- innar, að vinnutíminn yrði styttur niður í 40 stundir og orlof lengt. Ríkisstjórnin und- ir forystu Farmsóknarflokks- ins hefur ekkert gert til þess að reyna að standa við þetta fyrirheit gagnvart bændum. Hins vegar flutti Pálmi Jónsson um það tillögu til þingsályktunar á siðasta þingi, að það yrði tekið til gagngerrar athugunar, hvaða leiðir væru færar i þessu efni, til þess að bændur fengju or- lof engu siður en aðrar stétt- ir. Geðvonzka Tímans nú yfir sinnuleysi Framsóknarflokks- ins i garð bændastéttarinnar breytir engu um staðreyndir málsins. Enda kom það skýrt í Ijós fyrir síðustu Alþingis- kosningar, að málefni bænda- stéttarinnar höfðu algerlega verið sett til hliðar í Fram- sóknarflokknum. Og ekki virðist það á skrifum þeirra, sem þar eru nú að vinna sér frama, að hagur bændastétt- arinnar skipti þá miklu máli. Má í því sambandi vitna til skrifa ungra framsóknar- manna í Timanum að undan- förnu. Nei, sannleiknrinn er sá, að Framsóknarflokkurinn er kominn á mölina. Þess vegna nýtur hann æ minna trausts meðal bænda og annarra þeirra, er búa út um hinar strjálu byggðir. BILALEIGA CAR RENTAL n- 21190 21188 SKODA EYÐIR MINNA. Shodh LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. BILALEIGAN AKBllA VT r' 8-23-47 sendutn V Bezta auslýsingablaðið Jorðýtumaður óskast á jarðýtu. Sími 34314 og 16053. Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri: Hollan hendun-gnsen gnös „Þú réttir mér ilmvönd af íslenzkum reyr —- ég atburðinn geymi. Hvert árið sem líður ég ann honum meir þó öðrum ég gleymi.“ Nú er tími sumarleyfa og ferðalaga og ótrúlega margir leita á suðrænar slóðir í burtu frá íslenzkri sumar- paradís, sem stoáklkonan Jakobína Johnson lofar á svo áhrifamikinn hátt í ljóð- um sínum, að fá skáld hafa gert betur. En það eru ekki allir, sem geta veitt sér þann munað að fara í ferðalög, og fyrir þá er það mikilvægt að geta notið unaðsstunda meðal gróðursins í eigin garði. Það er talsverð vinna að hirða stóra lóð og það er mikilvægt, að ræktun lóðarinnar sé hag- að þannig, að sem auðveldast verði að halda öllu í góðu lagi. Forðast alla óþarfa stalla og tröppur. Hæðarmis- munur, sem nemur hálf- um metra má auðveld- lega jafna svo, að snögg hæðaskil verði ekki. Eitt eða tvö þrep ættu helzt ekki að sjást á nokkurri lóð. Gang- stéttar, sem liggja í grasflöt um, eiga að vera aðeins hærri en grasrót, þannig að sláttu- vélin geti gengið eftir stétt- inni, svo ekki þurfi að hand- klippa krafa meðfram henni. Gróðurbeð mega aftur á móti vera örlítið lægri en grasflöt og leggja þá borð eða planka i beðið meðfram kantin- um fyrir sláttuvélarhjólið að aka eftir, svo vélin geti kant slegið og sparað okkur skær- in. Meðfram húsveggjum gildir hið sama. Þar ætti helzt að vera hellulögð rönd, svo að gras nái ekki að vaxa fast að húsvegg. Hreinlegast er að hafa engin gróðurbeð við húsveggi. Að vetrinum eru þau jafnan auð og oft sóðaleg. Blómabeð ætti að hafa í þeim hlutum garðsins, þar sem við fáum notið þeirra frá gluggum hússins. Vanhirtir kantar á grasflöt- um eru of víða áberandi, þeg- ar litið er inn í skrúðgarða. Snyrtilegir og vel skorn- ir kantar setja áberandi svip á garðinn. Þá er bezt að skera með þar til gerðum kantskera, en fyrir viðvan- inga er oft þægilegra að nota breiðblaða búrhníf. Kant- inn skal skera lóðrétt, en ekki skáhalt. Verklagnir menn skera oft vel eftir strengdri snúru, en auðveld- ara er að skera eftir rand- réttu borði. Arfaklóra er eitt af þeim verkfærum, sem ómissandi eru fyrir garðeigendur. Með þeim er rótað milli plantna í trjá og blómabeðum til að yfirborðið verði laust og hreint af illgresi. Flest af því illgresi, sem við höfum að glima við, er einært. Ef það fær aldrei frið til að vaxa og fella fræ, þá verður það ekki til að ergja okkur ár frá ári. Vanræksla við illgresiseyð ingu hefnir sín fljótlega. Vikuleg yfirferð með garð- hrífu og arfaklóru tekur ekki langan tíma, en kemur i veg fyrir, að beðin fari í sóðaskap. Úti á lóðinni gilda nákvæmlega sömu hreinlætis reglur og innan veggja. Ekk ert heimili er svo vanrækt, að ekki séu sópuð gólf dag hvern og þau þvegin vand- lega, minnst einu sinni I viku. Svipaðar hreinlætisreglur þurfa að gilda utan dyra sem innan. Það mun flestum heilbrigð- um mönnum metnaðarmál að eiga fallegt heimili, en það má engum gleymast, að heim- ilið nær út fyrir þröskuld hússins. Lóði'n er stærsta vistarveran og sá hluti heim- ilisins, sem við bjóðum öllum þeim er framhjá fara að virða fyrir sér og sjá hvernig við búum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.