Morgunblaðið - 18.07.1972, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.07.1972, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLt 1972 <«■ RSCrMLEGA 700 manns tóku þStt t 20. sumarferð Landsmála félagrsins Varðar að Þórisvatni sL sunnudag:. Lag-t var af stað árla morguns og fyrst stanzað á Kambabrún. Þaðan var hald ið í Galtalækjarskóg og snædd- ur þar hádegisverður. í Galta- lækjarskógi flutti Valgarð Bri- em, formaður Varðar ávarp og Ingólfur Jónsson, alþingismað- ur, sem kom til móts við ferða- fólkið ásamt konu sinni, bauð menn velkomna í Bangárþing. I»ví næst flutti Jóhann Haf- stein, formaður Sjálfstæðis- f lokksins stutta ræðu. I ræðu sinni vék Jóhann Haf- stein nokkuð að virkjunarmál- um ag ræddi um þær stórfram- kvæmdir við Sigöldu og Hraun- eyjarfoss, sem samþykkt voru lög um á stjórnartima síðustu rikisstjórnar. Rifjaði hann síð- an upp ágreininginn um virkj- unarmálin og álsamninginn á þingi og ræddi um áform þeirra manna, sem nú fara með völd í þessum málum. Því næst ræddi Jóhann litillega horfur í stjórn- máljuim á íslandi. Vitnaði hann ekki vilja spá um langlífi rik- isstjórnarinnar, en hitt taldi hann víst, að engum frægðar- ljóma mundi af henni stafa og væri það þegar komið fram. Formaður Sjálfstæðisflokksins lauk ræðu sinni með hvatningu til Varðarfélaga og annars sjáiif stæðisfólks til eflingar Sjálf- stæðisflokknum. „Sjálfstæðis- stefnan á nú sem fyrr sterk- astan hljómgrunn í hugum fólksins. Fólkið mun á ný kveðja Sjálfstæðisflokkinn til forystu í iandinu," sagði Jó- hann að lokum. Úr Galtalækjarskógi var hald ið rakleitt að Þórisvatni, þar sem nýju vatnsmiðlunarmann- virkin voru skóðuð. Narfi Hjör- leifsson ráðsmaður á staðnum skýrði framkvæmdirnar fyrir komumönnum. í bakaleiðinni var stanzað við Sigöldufoss og væntanlegt virkjunarstæði skoð að. Síðan var ekið að Stöng í Þjórsárdal og fornleifarnar þar skoðaðar. Kvöldverður var snæddur við félagsheimilið Ár- nes og kusu flestir að snæða úti við, enda var veðurblíðan " 'J' Snætt í Galtalækjarskógi. Vel heppnuð 20. sumarferð Varðar „Sjálfstæðisstefnan á sterkastan hljómgrunn í hugum fólksins“ sagði Jóhann Hafstein í ræðu í ferðinni til ummæla forsætisráðherra í Morgunblaðinu 14. júlí sl.: „Til frægðar skal konung hafa en ekki langlífis." Sagðist Jóhann þá einstök. Að loknum kvöld- verði var ekið til Reykjavíkur með viðkomu i Skálholti og við Kerið í Grimsnesi. Til Reykja- vikur kom hópurinn um kl. 23 eftir vel heppnaða ferð að öllu leyti. Eins og áður sagði var þessi HEKLA hf. Laugavegi 170—172 — Sími 21240. 1300 Varðarferð hin tuttugasta í röð- inni. Nokkrir Varðarfélagar hafa verið með í öllum ferð- unum. Ferðir þessar voru tekn- ar upp 1953 fyrir frumkvæði Birgis Kjaran, þáverandi for- manns Varðar. Þeir Baldur Jónsson, Sveinn Björnsson og Valdimar Ólafsson hafa staðið að undirbúningi ferðanna frá upphafi. Árni Óla hefur verið leiðsögumaður í flestum ferð- unum og Vigfús Sigurgeirsson tekið í þeim myndir. Þeir gátu hvorugur komið með í þessa ferð vegna veikinda. Voru þeim sendar árnaðaróskir og þakkir frá hópnum. Jóhamn Hafstein ræðir við Óla blaðasala og Jón Eyjólfssom, innheimtumann Þ jóðleiklnissins. Nýtt landkynningarrit FEBÐAHANDBÆKUR s.f. hafa sent frá sér þýzka ferðahandbók, sein er þýðing á hinni þekktu bók Iceland in a Nutshell, sem hefur komið út síðan 1966 i þrem ur enskum útgáfum, í alls 41 þúsund eintökum. Höfundur bók arinnar er Peter Kidson, ritstjóri er Örlygur Hálfdánarson, þýzka þýðingu annaðist Benata Erlends son og auglýsingastjóri er Pál! Heiðar Jónsson. Efni þessarar nýju bókar skiptist í tvo meginþætti, þ.e. fólkið í landinu og landið sjálft. Nær helmingi bókarinnar er var- ið til að lýsa öllum kaupstöðum og kauptúnum á landinu. Þá er viðamikil'l þáttur um nokkra sérstæða ferðamanna- staði á landinu svo sem Gullfoss, Geysi, Þingvelli, Þórsmörk og Hallormsstað. Einnig er sérstak- ur kafli um áhugaverða staði í óbyggðum eins og Landmanna- laugar, Veiðivötn og Hveradali. Sigurjón Rist, vatnamælinga- maður, lýsir bifreiðaslóðum á miðhálendinu, og fylgja sérstök kort prentuð í tveim litum. Annað efni er í stórum drátt- um þannig, að gerð er grein fyrir sögu þjóðarinnar, helztu mögu- leikum til þess að komast til landsins, hvenær sé bezt að koma, allt um ferðaskrifstofum- ar og allar helztu upplýsingar sem ferðamenn þarfnast. Hið nýja landkynningarrit er prentað í prentsmiðjunni Eddu, bundið I Bókbindaranum h.f. Hilmar Helgason gerði káputeikn ingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.