Morgunblaðið - 18.07.1972, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.07.1972, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLl 1972 17 j\ /< v-»» (í r* ■ /i p^y-"' / ♦ .< 7 ^ forum world features Hver vill vera blaðamaður í Tékkóslóvakíu?: Dansaðu á flokkslínunni, annars...! Eftir Bedrich Rohan „Tékknesku blaðamannasamtökin bera stóran hluta af ábyrgðinni vegna hinnar hörmulegu þróunar i þjóðfélaginu . . . árið 1968.“ Sá sem þetta mælti var Josef Valenta, for- seti tékknesku blaðamannasamtak- anna, og tilefnið var opnunarávarp hans á fundi samtakanna 24. apríl. Hann sagði ennfremur að „öll hin röngu, stéttlausu og einangrunar- sinnuðu sjónarmið hægriforustunnar væru úr gildi numin.“ Þar með var Valenta að reyna að réttlæta handtökur þær á miklum en óákveðnum fjölda manna sem tengd- ir voru við atburðina í Prag vorið 1968, en þær fóru fram í nóvember, janúar og febrúar. Meðal þeirra sem ýtt hefur verið þannig til hliðar eru 1300 blaðamenn; nokkrir þeirra eru nú í haldi, aðrir eru i óbreyttri verkamannavinnu, en nokkrir voru svo heppnir að komast til Vesturlanda. Blaðamennska i Tékkóslóvakíu sem hefur verið si- gilt deiluefni, er nú meir en nokkru sinni afsprengi stjórnunarráðsins (Politburo) sem nú gengur aukinn hugmyndafræðilegan berserksgang. Það að Valenta flutti ræðu sína á þessum tíma bendir til að stjórnin sé örugg um að dagblöðin muni sam- vizkusamlega dansa á flokkslínunni og að „hausaveiðunum" á meðal þeirra blaðamanna sem tengdir voru frjálslyndistímanum 1968 sé nú lok- ið og hafi náð tilgangi sínum. En leynileg dreifibréf sem nú eru á sveimi í Prag segja: „. . . refsiað- gerðir lögreglunnar hafa enn ekki borið árangur því að þær hafa ekki bælt andstöðuna niður,“ Búizt er við að handtökur og hreinsanir muni fylgja bráðlega í kjölfarið á öðrum sviðurh tékknesks þjóðfélags. I.ÍTIÐ DÆMI? Örlög blaðamannanna eru dæmi- gerð i máli Jiri Hochmans, eins hæfi- leikamesta blaðamanns Tékkósló- vakíu eftir stríð. Hann- fæddist í Prag 1926 verkamannaættar, og gekk í flokkinn árið 1946. Hann var snikkaralærlingur og nam við svo- kallaða „viðskiptaakademiu". Árið 1956 var hann kallaður í herinn, var þar áfram og vann sig smám saman inn á málgögn hersins. Hann varð hinn snjailasti fréttaskýrandi og fréttaritari, og hækkaði í tign. Rit- stjóri Rude Pravo, Vladimir Kouc- ky (nú sendiherra í Brússel) réð Hochman til starfa við erlendar fréttir á þessu höfuðmálgagni flokks ins. Hochman fór til Alsír á sínum tíma, komst í náin kynni við helztu menn þar, m.a. Boumedienne síð ar forseta og skrifaði fjölda hlut- lægra greina um Alsírmálið. Síðan varð hann fréttaritari blaðs síns í Washington, en ólíkt fyrirrenn- ara sínum ferðaðist hann um landið, kynntist fjölda fólks, reyndi að skilja og skýra bandarískt þjóð- félag fvrir tékkneskum lesendum á óhlutdrægan hátt. Skrif harts voru ekki, eins og þó var vaninn, fordóma full, fyrirfram hugsuð og áróðurs- kennd, því jafnframt því sem hann hélt áfram að vera kommúnisti tengdi hann þau þvl sem hann sá og reyndi. Á þennan hátt átti hann þátt í því að gefa Bandaríkjunum „manneskjulegt yfirbragð" í komm- únistablaði. I einu tilviki var Hoch- man reiðubúinn til að semja upp á eigin ábyrgð við Novotny forseta til að hjálpa bandarískum þegn af tékk nesku bergi sem hafði verið ólöglega handtekinn I Tékkóslóvakíu á sjö- unda áratugnum. HUNDELTIIR Þegar heim til Prag kom lenti Hochman í ritdeilum við kenninga- stífa kommúnista sem voru andvíg- ir efnahagsumbótum og þróun í lýð- ræðisátt. Höfuðandstæðingur hans var Oldrich Svestka, sem þá var rit- stjóri Rude Pravo og viðrið- inn hreinsanirnar á árunum milli 1950 og 1960. Hochman flutti sig þá til hins frjálslynda vikublaðs Re- porter sem útgefið er af blaðamanna samtökunum. Síðan Dubcek fór frá völdum hef- ur Jiri Hochman verið stöðugt hund eltur af stjórn dr. Gustav Husaks. Jafnvel venjuleg verkamannsstörf hafa verið talin „of þýðingarmikil frá pólitískum sjónarhóli" fyrir þennan ágæta fréttamann. í hvert skipti er honum hafði tekizt að fá atvinnu neyddu armar flokksvélar- innar vinnuveitendur hans til að reka hann. Nú er Hochman sjúkur og útilokaður frá vinnu, levnilög- reglan hefur „umsjón" með öll- um tengslum hans við umheiminn; hann er maður sem stiórnin vonar að taki mál sitt með sér í gröfina. Örlög Jiri Hochmans spegla hlut- skipti fjölmargra annarra; saga hans endurtekur sig í mismunandi mæli. Hæfileikamikil blaðakona hellir nú upp á könnuna í verksmiðju einni, en eiginmaður hennar sem einnig var blaðamaður fékk slag af völd- um hreinsananna 47 ára að aldri. Laun hennar eru einu tekjur fjöl- skyldunnar. Næstum allir fyrirlesar ar og fréttaskýrendur við sjónvarp- ið í Prag hafa horfið og eru hundelt ir úr einni verkamannavinnunni í aðra. Fyrrverandi fréttaritara Rude Pravo í Róm hefur verið heimilað fyrst. um sinn að starfa sem vörubíl- stjóri. Síðan 1948 hefur rikisstjórnin ver- ið að reyna að breyta blaðamönn- um í persónuleysingja. Blöðin í Tékkóslóvakíu eru ógagnrýnin, mið- stýrð af flokknum og drepleiðinleg. Ástand dagblaðanna hefur valdið því að upplag blaða og tímarita hef- ur minnkað von úr viti; tölur frá Prag gefa til kynna að útbreiðsla Rude Pravo er nú tveimur þriðju hlutum minni en á dögum Dubceks. Ferðamaður nýkominn frá Prag sagði fyrir skömmu: „Vandamálið er að það eru blaðamannsleysurnar sem skrifa blöðin núna.“ (Forum World Features — öli réttindi áskiiin). 27 verðbólguár í Bretlandi Eftir Ivan Yates íhaldsstjórn Edwards Heatli hef- ur óþyrmilega fundið fyrir tveiin vandamálum, sem reyndar hafa elt flestar stjórnir eftir stríð: verðbólgu osr ósamkomulagi á vinnumarkaðn- um. Meginorsök þessara tveggja vandamála felst í vanmætti iðnaðar- ins til að auka fjárfestingu og fram- leiðni og að liindra verðhækkanir, sem ríkan þátt hafa átt í að minnka samkeppnishæfni Breta gagnvart öðrum iðnaðarþjóðum. En verðhækk anir eiga að mestu rætur að rekja til stöðugra krafna launþegasamtaka um Iaunahækkanir fram yfir fram leiðsluaulcningu. Ákvörðun stjórnarinnar að gera gengi sterlingspundsins fljótandi, sem afleiðing af ráðleysi hennar gagnvart verðbólgu, og sem síðar leiddi til lítillar gengisfelling- ar, ómerkir fyrri fullyrðingar íhaldsmanna að Verkamamnaflokkur inn, en ekki íhaldsflokkurinn, sé flokkur gengisfellinga. Að því leyti eru þeir með sama marki brenndir. Það er því vart að undra þótt talað sé um að snúið verði aftur að einhvers konar launa stefnu, sjálfviljugri eða uppáþving- aðri, með frystingum og tilfærslum. Ríkisstjórnin hefur sem minnst slíkt viljað heyra, af praktískum og kenn ingarlogum ástæðum, en reynt að komast framhjá vandamáilinu með því aðeins að hvetja þjóðnýtt fyrir- tæki til að standa gegn verðbólgu- aukandi launahækkunum. Það hef- ur þeim þó ekki tekizt, samanber ný gerða samninga við járnbrautastarfs menn og kolanámumenn fyrr í vet- ur. íhaldsstjómin hefur því mætt sömu erfiðleikum og fyrirren nari hennar. Hin umdeilda vinnulöggjöf, sem gjörbreyta og bæta á sambúðina á vinnumarkaðnum, hefur enn ekki sannað ágæti sitt en óhugsandi er að hún geti komið í stað launastefnu. Frystingu launa var fyrst beitt ár- ið 1948, þegar Sir Stafford Cripps var fjármálaráðherra í stjórn Verka mannaflokksins. Slík voru áhrif hans innan verkalýðshreyfingarinn ar að frystingin stóð í 18 mánuði og hefði getað staðið lengur, ef ekki hefði komið til gengisfelling og víg- búnaður vegna Kóreustríðsins. Ihaldsmenn endurheimtu völdin ár- ið 1951 og í heilan áratug treystu þeir á sambland af peningapólitík og uppörvun atvinnuveganna, og nutu aðstoðar áhrifamikilla verka lýðsleiðtoga sem beittu sér fyrir hóg værari launakröfum. En árið 1961 neyddist Selwyn Lloyd, sem þá var f jármálaráðherra, til að koma á eigin gerð af tilfærsl- um, eða „launastöðvun". Henni var beitt af atvinnurekendum að beiðni stjórnarinnar og þó að hún næði ekki til verðlags hafði hún hemil á dreifingu ágóða. En „launastöðvun- in“ stóð aðeins í fjóra mánuði, eða þar til hinn þjóðnýtti rafmagnsiðn- aður gerði samninga við starfsmenn sína, sem fólu í sér heldur mikið ör- læti, að Lloyd óaðvitandi. Síðar reyndi Reginald Maudling að leika „leiðandi ljós“, en um það leyti, eða 1964, voru kosningar og valdamissir íhaldsmanna skammt undan, og verð bólguskrúfan tók að snúast á ný. Með Verkamannaflokkinn aftur við völd, tókst George Brown, fjár- málaráðherra, í krafti persónuleika síns, að fá bæði atvinnurekendur og launþegasamtök til að undirrita „ásetningsyfirlýsingu. En það fræga plagg varð aðeins til að leggja leið- ina að hinni lögskipuðu frystingu launa og verðlags eftir kosningarn- ar 1966. Hér var um sex mánaða stö’ðvun hækkana á launum og svo til öllu vöruverði að ræða og í kjöl- farið fylgdi sex mánaða „strangt að- hald.“ Síðan var ríkisafskipt- um sleppt og frjálsir samningar gerð ir árið 1968. Innan tveggja ára var verðbólgan svo komin af stað á ný. Hagfræðingar deila enn um það, hvort frystingar þessar hafi ekki óhjákvæmilega byggt upp stiflu, sem síðan brast undan kröfum laun- þega eða hvort það hafi orðið fyrir áhrif hliðarráðstafana, sérstaklega um og eftir 1966, þegar gengið var fellt og gripið var til ráðstafana til að draga úr neyzlu í því skyni að auka útflutning. Hvað sem rétt kann að vera, þá virðist vera full ástæða fyrir ríkisstjórnina að taka upp launastefnu í einni eða annarri mynd, þar sem aðrar aðferðir henn- ar til að hefta verðbólgu hafa að mestu farið út um þúfur. En tregða stjórnarinnar til að taka ákveðna stefnu í launamál- um stafar að miklu leyti af því að slikt myndi reyna á samvinnuvilja verkalýðssamtaka. En nýlegir árekstrar við róttæka verkalýðsleið toga, vegna vinnulöggjafarinnar nýju, gefa ekki góðar vonir um ár- angur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.