Morgunblaðið - 18.07.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.07.1972, Blaðsíða 16
• 16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLl 1972 Otgefandí fvf Árvakw, R«y*kijavfk Frairíkvaamdastjóri Hataídur Sve'msson. Rrtstjórar Mattlhías Johanrtesssn, Eyjólifur KonráO Jónsson. AOstoOarritstjóri Styrmir Gurtrtarsson. Rftstjórrrarfiull'trúi Þiorbljöm Guðrmndsson Fróttastjóri Bjöm Jófianneson Auglýsingastjöri Árrti Garðar Kristirtsson. Ritstjórn og afgraiðsla ASafstrseti 6, sími 1Ö-100. Augiiysingaf Aðatetraeti 6, sfmi 22-4-80 Áskriftargjafd 226,00 fcr á mánuði innanlands T íaiusaaöfu 15,00 Ikr eintakið veitertdur hefðu heldur kosið að fara hægar í sakirnar í þessum efnum, en freista þess í staðinn að tryggja meiri kauphækkanir. Samhliða þessu hélt ríkis- stjórnin áfram verðbólgu- stefnu sinni með því m.a. að veita miklu fjármagni úr varasjóðum og hækka fjár- lög fyrir árið 1972 um 50 af hundraði frá fyrra ári. Þann- ig var stefnt að því að taka undir ríkisvaldið mun stærri hluta þjóðartekna en nokkru STEFNA STJÓRNARINNAR HEFUR BEÐIÐ SKIPBROT egar núverandi ríkisstjórn tók við völdum gaf hún út langan loforðalista full- an af fögrum fyrirheit- um. Stjórnarandstöðuflokk- -arnir bentu þegar á, að ógæti- lega væri af stað farið. Þó að staða þjóðarbúsins hafi verið með eindæmum góð fyrir ári, var engu að síður lióst, að stjórnin spennti bog- ann um of, sem hlaut að leiða til nýrrar verðbólguskriðu. Ólafur Jóhannesson, for- sætisráðherra, mat efnahags- ástandið svo, að unnt væri að stytta vinnutíma verulega, lengja orlof og auk þess að tryggj3 20% kjarabætur á tveimur árum. Þó að í þessu fælist viðurkenning á góðu efnahagsástandi, voru þessar yfirlýsingar að ýmsu leyti varhugaverðar. Ríkisstjórnin hóf afskipti af gerð kjarasamninga laun- þega og vinnuveitenda. Rík- isstjórnin ákvað í málefna- samningi sínum að stytta vinnutíma og lengja orlof. Eðlilegra hefði þó verið, að aðilar vinnumarkaðarins semdu sjálfir um atriði af þessu tagi. Launþegar og vinnuveit- endur áttu ekki annarra kosta völ en ganga út frá vinnu- tímastyttingunni í síðustu kjarasamningum. Afleiðingin varð sú, að möguleikar at- vinnuveganna til kauphækk- ana voru skertir, eftir að þessi útgjöld höfðu lagzt á. En ástæða er til þess að ætla, að bæði launþegar og vinnu- sinni fyrr. Krónan var látin falla með dollaranum og þar með var framkvæmd sjálf- virk gengisfelling á meiri- hluta gjaldeyrisútgjalda þjóð- arinnar. Öll þessi atriði, ásamt öðru, leiddu til stöðugra verðhækk- ana, sem á endanum komu verðbólguhjólinu á fullt skrið. Nú hefur verið gripið til bráðabirgðaráðstafana til þess að skjóta vandanum á frest. Á meðan ætlar ríkis- stjórnin að gefa sér tóm til þess að finna varanlega lausn á verðlagsmálunum. Sama loforð gaf hún í júlímánuði í fyrra; þá átti einnig að finna varanlega lausn fyrir næstu áramót. Þannig hefur stjórn- in sjálf viðurkennt skipbrot efnahagsstefnu sinnar. KJARASAMNINGUM Á EKKI AÐ BREYTA MEÐ LÖGUM Á ður en ríkisstjórnin gaf út ^ bráðabirgðalögin um skammtímaráðstafanir í efna- hagsmálum, sendi hún flest- um samtökum launþega og vinnuveitenda erindi, þar sem greint var frá fyrirhug- uðum aðgerðum. Hér var um að ræða Alþýðusamband Is- band íslands, Vinnumálasam- lands, Vinnuveitendasam- band samvinnufélaganna og Stéttarsamband bænda. Þann ig var öllum þessum samtök- um gefinn kostur á að segja álit sitt á aðgerðunum, áður en þær voru endanlega ákveðnar með bráðabirgða- lögum. Athygli hefur hins vegar vakið, að Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja var ekki gefinn kostur á að fjalla um þessar aðgerðir fyrirfram. í ályktun stjórnar B.S.R.B., sem birt var fyrir síðustu helgi, er enn vakin athygli á nauðsyn þess, að stjórnvöld hafi samráð og samvinnu við heildarsamtök launþega, þeg- ar leitað er úrlausnar á vandamálum á sviði efna- hagslífsins. Þetta er ekki í fvrsta skipti sem núver- andi ríkisstjórn sniðgengur B.S.R.B. Þess er skemmst að minnast, er ríkisstjórnin þverskallaðist við að ræða launakröfur bandalagsins um sl. áramót. í ályktun sinni ítrekar stjórn B.S.R.B. margendur- tekin mótmæli við því, að kaupgjaldssamningum aðila á vinnumarkaðinum sé breytt með lögum í stað samninga. í ályktuninni segir ennfrem- ur, að ráðstafanir ríkisstjórn- arinnar séu aðeins til bráða- birgða og séu því ekki lausn á þeim efnahagsvanda, sem að steðjar, og lögð er eins og áður áherzla á, að nýjar leiðir verði reyndar í efnahagsmál- um. Fyrst ríkisstjórnin leitaði á annað borð til aðila vinnu- markaðarins vegna þessara aðgerða, eru það mjög ámæl- isverð vinnubrögð að snið- ganga svo fjölmenn laun- þegasamtök. Sérstök ástæða er til þess að vekja athygli á andmæl- um stjórnar Bandalags starfs- manna ríkis og bæja við því, að kaupgjaldssamningum launþega og vinnuveitenda sé breytt með lögum. Það er mikils um vert, að frjáls samningsréttur aðila vinnu- markaðarins sé virtur og það er varhugavert að raska hon- um með löggjöf. Enda eru flestir á einu máli um, að mestur árangur náist, ef þess- ir aðilar standi að samning- unum án íhlutunar. Klípa Bandaríkjanna Viðtal við Gunnar Myrdal Eftir Anthony Lewis « : Jíeitr|íorkSimes( v sf s% Stokkhólmi. Gunnar Myrdal, 73,ja ára að aldri, iitur út eins ogr dæmi- gjerður ótúttlegur og iitangátta próf- essor úr kvikmyndum, með þann vis dóm í yfirbragrðinu sem löngf ævi veitir. Enn eru hugrðarefni hans þau hin sömu sem gjerðu hann að fræði- manni á heimsmælikvarða: Efnahag-s þróunin í fátækum löndum til dæm- is, ogr kynþáttavandamálin sem hann tók til meðferðar í hinu síífilda riti sínu: „An Ameriean Dilemma" sem út kom 1944. Á Stokkhólmsráðstefnun,ni sem nú er nýlokið flutti hann fyrirlestra um efnahagsmál og umhverfisvernd, þar sem hann óf inn mál eins og takmarkanir hagvaxtar, sálræn vandamál í kjölfari allsnægta, lofts- lag og framleiðni, mannfjölda. Hann ræddi af sínu alkunna skynsamlega viti um verðbólgu, og gaf í skyn að ein höfuðorsökin væri þrákelknisleg tregða manna við að „fórna nógsam- lega í einkaneyzlu sinni til að unnt sé að fullnægja sameiginlegum þörf- um þeirra." En það er greinilega eitt málefni sem er honum kærara en öli önnur: Bandaríkin. Hann hefur dvíilið þar svo lengi að margir Svíar líta á hann sem Bandaríkjamann. Hann segir að flestir vina hans séu Banda- ríkjamenn, jg að hann líti varla á sjálfan sig sem útlending á meðal þeirra. Yfir skrifborði hans hangir sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjanna innrömmuð. „Ég hef alltaf verið bjartsýnn varðandi Bandaríkin," sagði hann í viðtali nýlega. „Hvers vegna? Hvers vegna sit ég og vinn þegar ég gæti verið að gamna mér við vín og stelpur? Vegna þess að hugsjónir skipta máli. Þær skipta sérstaklega miklu máli i Bandaríkjunum." BANDARlKIN OG HUGS.TÓNIRNAR „Bandaríkin eru eina landið sem getur gert róttækar breytingar. Ég held það sé arfur frá stran-gtrúnni. Sá arfur er ekki eingöngu jákvæð- ur, t.d. sjálfbyrgingsskap og kyn- ferðiskomplexum, — ég hef sennilega dvalið á fleiri hótelum en flestir aðrir, og ég hef séð hvernig menn haga sér á ráðstefnum. Það er einn hlutinn af strangtrúararfinum. En svo kemur möguleikinn á að taka hlutina til endurskoðunar; að sjá að menn höfðu á röngu að standa og geta breytzt. „Hve fljótt Bandaríkin geta breytzt? Þið fóruð út í stríðið sem einangrunarsinnar og enduðuð það sem jafnöfgafullir málamiðiarar. Eða þá bannárin. 1 sögu Bandaríkjanna eru mörg dæmi um mikiar og snögg- ar breytingar sem gera það þess virði að vona, að standa við hugsjónir sin ar.“ „Jafnvel á McCarthytímabilinu missti ég aldrei trúna á Bandarík- in. Ég vissi að kosningarétturinn og dómstólamir myndu skera úr á end- anum.“ Þá ræddi prófessor Myrdal um það mál sem upp á síðkastið hefur gert suma Bandaríkjamenn nokkuð önuga í hans garð. Það er Víetnam. „Ég er forseti alþjóðlegu rann- sóknarnefndarinnar um stríðsglæpi Bandaríkjamanna í Indókína," sagði hann. „Mér er það engin án-ægja. En ég gat ekki sagt nei samvizku minn- ar vegna. Við höfum staðið fyrir fimm al- þjóðlegum ráðstefnum, og fengum mikið af sönnunum. Þetta vakti mikla athygli hér í Evrópu, en í Bandaríkjunum var varla minnzt á þetta einu orði nema í neðanjarðar eða kommúnistablöðum. Slíkt er ein,s konar sjálfs-ritskoð- un. Þið eruð orðnir hundleiðir á þessu og viljið ekki heyra neitt um þetta talað. Þið eruð að verja sjálfa Gnnnar Myrdal (Myndin tekin 1957). ykkur gegn því að vita of mikið um það sem umheiminum finnst um ykk- ur.“ BANDARÍKIN OG GAGNRÝNENDUR ÞEIRRA Sumir bandarískir diplomatar og embættismenn hafa ýtt skoðun- um Myrdals til hliðar sem hluta af hugmyndafræði vinstri manna. Hið sama gerðu þeir þegar forsætisráð- herra Svíþjóðar, Olof Palme, gagn- rýndi stríðsrekstur Bandaríkja- manna í setningarávarpi sínu á um- hverfisráðstefnunn'i. En þeir sjá ekki kjarna málsins varðandi al- menningsálitið í Svíþjóð. Það er al- mennt mjög fjandsamlegt stefnu Bandaríkjanna í Vietnam. Til dæm- is hafa leiðtogar tveggja íhaldssamra stjómarandstöðufiokika hælt ummæl um Palmes. „Eins og alls staðar höfum við hér ólma krakka sem bremna fána og svo framvegis," sagði prófessor Myrdal. „Slíku er sagt frá í Bandaríkjunum, en ekki skoðunum meirihlutans sern Palme er fullltrúi fyrir. Mér þykir mjög leitt að sjá hve hatursherferðum gegn Bandaríkjun um fer fjölgandi. Ég ætla ekki að hata Bandarikin. Fólk á mínum aldri man eftir því að framlag Bandarikj- anna gerði út um að stríðið vannst, eða öriæti Marshalláætlunarinmar. En unga fólkið lítur eingöngu á Bandaríkin sem illt afl, — það veit ekkert um fyrri tíð. Það vald sem Bandarikin hafa raunverulega misst og verða að ná aftur er traust góðs fólks um heim allan. Það er það sem skiptir máli, — vald hugsjónanna yfir mönnun- um. Til þess að byrja á að uá þvi aft- ur verða Bandaríkjamenn að skilja hið sanna sjálfir. Auðvitað eru til Bandarikjamenn sem gera það, — gott fólk, en það er þreytt. En trú ykkar hafið þið enn. Þetta mun fara vel að lokurn." Yfir skrifborði prófessors Myr- dals hamgir annað innrammað skjal við hliðina á sjálfstæðisyfirlýsing- unni; það er tilvitnun í Lincoln: „Að syndga með þögnimni þegar á að mót mæla gerir menn að heiglum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.