Morgunblaðið - 25.07.1972, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1972
13
Hryðjuverkamönnum írska lýðveldisins virðist vera mjög í nöp við strætisvagna og beina skeyt-
nm sínum oft að þeim. Þetta var Smithfield strætisvagnastöðin í Belfast, áður en lýðveldisherinn
I lagði til atlögu.
Aðrar sveitir lýðveldishersins lögðu til atlögu við strætisvagnastöð í Oxfordstræti í BeJfast
og hér eru slökkviliðsmenn að skola af þvi sem eftár er af henni. —
Tveir þjófar
játa morðið
á Haggloff
Bogota, 24. júlí — AP
ÞRÍR ungir rnenn hafa verið
ákærðir fyrir niorðið á sænska
sendiráðsmanninum Kjell Hágg-
loff i Bogota í Kólombíu. Xveir
þeirra hafa játað, en sá þriðji
kveðst vera saklaus.
Yfirmaður lögreglunnar í Bog-
ota, Carlos Guzman Benitez, seg-
ir svo frá að hinir ákærðu hafi
lesið auglýsmgu í dagblaði að
Hagloff hafi ætlað að selja bif-
reið sína. Þeir komu tvisvar að
máli við hann tit að ræða verðið
og loks bauð Haggloff þeim i
ökuferð til þess að athuga bil-
inn.
Einn hinna ákærðu tók þá
upp skammöyssu og sagði að
þeir ætluðu að ræna hílnum.
Haggloff hélt að þeir ætluðu að
rgena honum líka og reyndi að
veita viðnám. Þá skaut einn þre-
menninganna hann í höfuðið.
Hann var skotinn öðru skoti, en
þriðja skotið geigaði.
Þeir tveir, sem hafa játað,
segja, að félagi þeirra, Jose Ant-
onio Paez, sem neitar öllum sak-
argiítum, hafi einn verið vopnað-
ur.
írland:
Leymskyttur
f elldu tvo og
særðu
Belfast, 24. júlí — AP
LEYNISKYTTA skaut brezkan
hermann til bana í Belfast í dag
og í Londonderry lét einn mað-
ur lífið og fjórir særðust í skot-
bardögum. Brezkir hermenn
héldu áfram húsleítum að vopn-
um og sprengiefni og í tveimur
húsum kaþólskra í Armagh fyr-
ir suðvestan Belfast voru táu
manns teknir til yfirheyrslu.
Brezki herinn hóf húsleitir að
vopnum eftír sprenigmgamar á
fjóra
föstudag, sem kostuðu 16 naanns
lífið. Hingað til hafa þeir fund-
ið rúmlega hálrft tonn af sprengi-
efni, 19 skoti'opn og mikið magn
af skotfærum og ýmis efni til
sprengj ugerSar.
Að þeim meðtöldum, sem létu
lífið í dag, er tala fallinna á
Norður-lrlandi komin upp í 473
síðan 1969. Af þeim eru 103
brezkir hermenn. Flestir her-
mannanna hafa fallið fyrir kúl-
um leyniskyttna.
Agnew aftur
í framboði
Quang Tri að mestu
á valdi S-Vietnama
Enn er J>ó barizt af hörku
Mörg hundruð árásarferðir
farnar til Norður-Vietnams
Saigon, 24. júlí. AP.
HKRAÐSHÖFUÐBORGIN Qii-
ang Tri er nú að mestu á valdi
Suður-Vietnama en þó er enn
bari7,t af mikilli hörku í borginni.
Flestir norður-vietnömsku her-
mennirnir hafa búið um sig í
rammgerðu vígi i niiðborginni og
halda uppi ofsalegri skothrið á
þá sem sækja að þeim. Leyni-
skyttur eru enn á ferli á öðritm
stöðiun og suður-vietonamskar
könnunarsieitir eru að leit* þær
uppi.
SiuOurJVÍetnamskir faúhiifa-
h>e<rm)enn gerðu árás á viigi Norð
ur-Vietnama i dag en sfeothríðin
som mætti þeim var svo áköf að
þeir urðu að hörfa aftur. Suður-
vietnamKkur herforingi satgði
wn andstæðingana að aðstaða
ERLENT
þeirra væri nú vonlaus og það
væri aðeins ttmaspuirsmál
hvenær suður-viebnömsku her-
menmimir næðu borginni alger-
lega á sitt vald. Hann bættí þvi
þó við að baráttuhugur Norðuir-
Vietnama virtist ekkert hafa
míntikað og búast mætti við
áframihaldandi hörðum bardög-
um.
HUNDRlfi ArASARFERÐA
Bandarískar sprengjuflugvélar
fóru hundruð áirásarferða tii
Norður-Vietnam um helgina og
spren.gdu upp brýr, biirgðastöðv-
ar, verksmíðjur og eldsneytis-
geyma. Tæplega 20 Phantom
sprengjuþotur vörpuðu rúmlega
30 tvöþúsund punda laser-stýrð-
— Waldheim
Framli. af Ws. I
Hann var einnig spurður að
þvi hvort hann væri I beinu sam
bandi við Hanoi, og svaraði því
til að um það vildi hann ekkert
segja, nema að upplýsingarnar
væru fengnar eftir óopinberum
leiðum.
um sprengjum á tvær griðarstðr
ar birgðastöðvar í útjaðri Hanoi,
og löigðu 13 stórar vöruskemmur
í rúst. Ofsalegri lo’ftvarnaskot-
hrið var haldið uppi á vélarnar,
en bandari.ska herstjórnin segir
að oogin haf; orðið fyrir skott.
Wastiington, 24. júlí — AP
NIXON forseti hefnr ákveðið að
Spiro T. Agnew varaforseti verði
aftur með honum í framhoði í
forsetakosningunum í haust, og
Agnew er lagðiir af stað í kosn-
ingaferðalag til nokkurra ríkja.
Áðnr en ákvörðun forsetans var
tilkynnt opinberlega sagfö hann
ýmsum áhrifamönnnm frá henni,
þar á meðal John B. Connally,
fyrrverandi f jármálaráðherra, og
John Mitchell, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, en talið var að
annar hvor þeirra gæti orðið
varaforsetaefni repúblikana.
Agnew sagði við blaðamenn,
áður en hann lagði af stað í
kosningaferðalag sitt, að hann
yrði málefnalegur í kosningabar-
áttunni og mundi aðallega beina
máli sínu til óháðra kjósenda og
demókrata. Hins vegar kvaðst
hann ekki mundu hika við að
svara hvers konar persónulegum
árásum, sem demókratar kynnu
að gera á forsetann. Agnew
sagði, að hann mundi aðaliega
fjalia um afstöðu George Mc
Govem til eiturlyfja, náðunar
manna, sem reyna að koma sér
undan herþjónustu, og þá af-
stöðu hans, að Bandaríkin yrðu
að grátbiðja Hanoi ura frið efais
og hann komst að orði.
Fór 186 milljón kílómetra:
Mj úk lending á V enusi
Sendi upplýsingar í 50 mínútur
Moskvu, 24. júh — AP
SOVÉZKA geimflaugin Venus 8
heftir lent mjúkri lendingu á
reikistjörnunni Venusi og sendi
uppiýsingar frá yfirborði hennar
í 50 minútur eftir lendinguna.
Venus 8 var skotið á loft 27.
marz og vegalengdin, sem flatig-
in hefur farið, er 186 milljónír
kílómetra.
Fyrsta sovézka geimílaugin
lentí mjúkri lendingu á Venusi
15. desember 1970, og var það
Venus 7. Frá henni bárust upp-
iýsiragar í 23 mínútur eftir iend-
inguna. Venus 8 er þyngri og
kröftugri en fyrri Venusarflaug-
ar Rússa, sem hafa flestar brunn
ið upp tii agna í gufuhvoifi reiki-
stjörnunnar án þess að lenda.
Hylki fest í fallhlíf var iosað
frá burðarflauginn'i og frá því
bárust upplýsingar í 109 minút-
ur er það fór niður um skýin,
sem hylja reikístjörnuna sjón-
um. I frétt Tass um lending-
una segir, að upplýsingar hafi
borizt um gufuhvolf reikistjörn-
unnar og yfirborð hennar á leið
hennar til lendingar og í 50 min-
útur eftír lendinguna. Hyikið
hefur að öllum líkindum bráðn-
að eða brotnað aí völdum hita
eða þrýstings á yfirborðinu, seg-
ir Tass.
Tass-fréttastofan hermir, að i
þetta skipti hafi verið gerðar
fyrstu tilraunimar ’hingað til til
þess að ákvarða birtu, þrýsting
og hitastig í gufuhvolfi piánet-
unnar og á yfirborði hennar.
Venus 7 og 8 vógu 2.600 pund
hvor, en lendingarferja Venus-
ar 8 var léttari og síðasta flaug-
in gat því borið fleiri visinda-
tæki.
Tass segir, að ferð Vemusar 8
hafi veitt vitneskju um eðli
steina á yfirborðinu og að nú sé
unnið að niðurstöðum mæiinga,
sem voru gerðar. Fréttastofan
segir, að uppiýsingarnar muni
veita mikilvæga vitmeskju um
þróun sóikerfisins.