Morgunblaðið - 25.07.1972, Side 22
22
MORGUNBLÁÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLl 1972
Minning:
Unnur Kjartansdóttir
kennari, frá Hruna
1 dag verður jarðsett
frá Fossvogskapellu Unnur
Kjartansdóttir, kennari, frá
Hruna. Hún var ein minna
elztu og beztu starfsfélaga og í
hópi þeirra, sem ég tel mig eiga
þakkarskuld að gjalda, er ég
greini frá síðar. Mér er þvi
bæði ljúft og skylt að minnast
hennar nú að leiðarlokum, þótt
fátt verði sagt í stuttri blaða-
grein.
Unnur var fædd að Hvammi
í Dölum 26. okt. 1892. Foreldrar
hennar voru hin þjóðkunnu
hjón, séra Kjartan Helgason,
Magnússonar bónda í Birtinga-
holti og Sigríður Jóhannesdóttir,
Guðmundssonar, sýslumanns síð
ast i Borgarfjarðarsýslu. Eru
ættir þessar svo kunnar, að þær
verða ekki raktar hér. Unnur
ólst upp í stórum systkinahópi,
fyrst í Hvammi og síðan að
Hruna, frá 1905, er faðir henn-
ar varð prestur þar. 10 voru
börn þeirra Hrunahjóna, en 7
komust til fullorðinsára Unnur
var elzt þeirra. Tvö fósturbörn
t
Eiginmaður minn
ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON,
húsasmíðameistari frá isafirði,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 26. júlí
kl. 3 e.h.
Fyrir hönd barna, fósturbarna, tengdabarna og barnabarna.
Magnea Þorláksdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir og afi,
Bjarni Bjarnason,
Laugavegi 11,
lézt í Landspítalanum sunnu-
daginn 23. júli. Jarðarförin
auglýst síðar.
Magna Ólafsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t Faðir okkar
KRISTJÁN EBENEZERSSON,
beykir.
andaðist að Hrafnistu sunnudaginn 23. þ.m. Bömin.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Gerðum.
andaðist á Keflavíkurspítala 22. þ.m.
Björg Ámadóttir, Jónas Guðmundsso.n
Ami Ámason, Kristín Jónsdóttir,
Friðrik Árnason,
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
GUÐMUNDUR EINARSSON,
frá Sjávargötu Garði,
verður jarðsunginn frá Útskálakirkju miðvikudaginn 26. júlí
kl. 2 e.h.
Sesselja Jónsdóttir,
Vilborg Guðmundsdóttir, Þórunn S. Guðmundsdóttir.
t
Jarðarför móður okkac,
PETRlNU K. KRISTJÁNSDÓTTUR,
sem andaðist 19. júli í Borgarspítalanum, til heimilis að
Lindargötu 32, hefst í Hallgrimskirkju miðvikudaginn 26. júlí
klukkan 13.30. Blóm og kransar afbiðjast. Þeir, sem vilja
minnast hinnar látnu, láti Hallgrímskirkju njóta.
Ágúst Ingimundarson, Haraldur Egilsson.
t
Minningarathöfn um son okkar og unnusta minn
AÐALSTEIN BJÖRN HANNESSON,
GrænuhHð 5, Reykjavík,
sem drukknaði á togaranum Þorkeli Mána 14. júlí s.l., fer fram
frá Akraneskirkju fimmtudaginn 27. júli n.k. kl. 2 e.h.
Fyrir hönd annarra vandamanna
Þorsteina Guðjónsdóttir Hannes Guðjónsson,
Asta Jósepsdóttir.
ólust og upp í Hruna. Allur
þessi fríði hópur er nú látinn,
nema Helgi, bóndi í Hvammi í
Hrunamannahreppi og annað
fósturbarnið Emil Ásgeirsson
bóndi í Gröf. Hin látnu systk-
ini voru, talin í aldursröð:
Elín, gift Skúla Ágústssyni frá
Birtingaholti, dáin 1971, Jó-
hannes, verkfraeðingur, d. 1928,
Guðrún, gift Stefáni Guðmunds-
syni, bónda í Skipholti, d. 1931,
Ragnheiður, gift Guðmundi Guð-
mundssyni, cand. act, d. 1949 og
Guðmundur, jarðfræðingur, er
andaðist sl. vetur, kvæntur Krist
rúnu Steindórsdóttur. Látin er
og fósturdóttirin, Maren Ellerts
dóttir, bróðurdóttir frú Sigríð-
ar. öll voru þéssi systkini hin
gjörvulegustu, vel gefin og vin-
sæl með afbrigðum. Var þeirra
allra sárt saknað er þau létust,
flest um aldur fram. Æskuheim-
ili þeirra, bæði i Hvammi og
Hruna, var fjölmennt menning-
arheimili og í fremstu röð á
landi hér um 40 ára skeið. Var
þar jafnan mjög gestkvæmt,
bæði af innlendum mönnum og
erlendum. Þótti þar öllum gott
að vera. Það hallaðist ekki á
um hæfileika, manndóm og ljúf-
mennsku húsbændanna. Sambúð
þeirra hjóna var frábær, samtaka
um uppeldi barnanna og allan
hag heimilisfólksins. Hjálpsemi
við alla var þeim í blóð borin.
1 þessu umhverfi ólst Unnur
upp og hún bar foreldrum sínum
fagurt vitni með fágaðri fram-
komu, virðuleik og hjálpsemi í
hvívetna, meðan líf entist. Sama
mátti og segja um systkini
hennar. Þetta mun þykja mikið
sagt, en dómur almennings mun
falla á þessa leið. Og ekki hefi
ég kynnzt ástúðlegra sambandi
milli skyldmenna, en Hrunasystk
inanna.
Unnur var gáfuð kona og
gagnmenntuð. Ung fór hún í
kennaraskólann til séra
Magnúsar föðurbróður sins og
tók kennarapróf vorið 1915, með
ágætum vitnisburði. Svo stund-
aði hún heimiliskennslu á vetr-
um fyrst í stað, en árið 1923 var
hún settur skólastjóri við ný-
stofnaðan heimavistarbarna-
skóla að Ásum í Gnúpverja-
hreppi. Það var fyrsti heima-
vistarbarnaskóli á landi hér og
var Unnur því algjör brautryðj-
andi I því merkilega skólastarfi,
sem þá var hafið. Þess vegna
sneri ég mér til hennar, þegar
ég tók við stjórn hins nýja
heimavistarbarnaskóla að Flúð-
um haustið 1929. Þá hafði hún
stjórnað sínum skóla i 6 ár við
góðan orðstír. Hún tók mér ljúf
mannlega og sagði mér frá dag-
legri tilhögun skólastarfsins.
Einnig talaði ég að sjálfsögðu
við séra Kjartan, sem hafði
leiðbeint Unni við skólastarfið
og var auk þess formaður skóla
nefndar Flúðaskóla. Bæði höfð-
um við notið leiðbeiningar séra
Magnúsar, kennaraskólastjóra.
Þeir bræður voru, sem kunnugt
er, miklir uppeldisfrömuðir og
höfðu mikla trú á heimavistar-
bamaskólum, sem beztu lausn
skólamála í sveitum. Þeir hugs-
uðu sér fyrirkomulag heimavist-
arskólanna sem mest í anda góðs
menningarheimilis í sveit, svo
sem sjá má í ritum þeirra. I
þeim anda starfaði Unnur í Ása-
skóla og á svipaðan hátt reyndi
ég að móta Flúðaskóla. Hvort
tveggja tókst vel, svo sem nóg
vitni eru til um. Þess vegna er
ég Unni alltaf þakklátur fyrir
sitt byrjunarstarf og þær góðu
leiðbeiningar, sem hún lét mér
fúslega í té.
Flúðaskóli var þriðji heima-
vistarbarnaskólinn, sem stofnað
ur var hér á landi. Siðan f jölg-
aði þeim skólum ört í nágranna-
Sveitunum og svo fór að Árnes-
sýsla varð fyrst allra sýslufé-
laga á landi hér, til þess að út-
rýma farskólunum. Síðan fer
heimavistarskólum fjölgandi í
öðrum landshlutum, enda löngu
viðurkennt, að það er bezta
skólafyrirkomulag í dreifbýli,
þar sem heimanakstri verður
ekki komið við.
Ég læt þessa getið hér, vegna
þess að hin látna merkiskona
vann hér í kyrrþey merkilegt
og ágætt brautryðjendastarf.
Sjálf var hún svo hlédræg og
yfirlætisiaus, að hún hélt því
lítt á loft.
Ég spurði nýlega þjóðkunnan
mann, nemanda Unnar í
Ásaskóla, hvernig honum hefði
líkað skólavistin. Hann svaraði
strax, að það hefði verið eintóm
gleði, maður hefði alltaf hlakk-
að til að fara I skólann. Með öðr
um orðum: Hver skóladagur var
gleðidagur. Mundi ekki viðhorf
skólanemenda nútimans verða
annað, ef slíkir listamenn, sem
Unnur, sætu í öllum kennara-
stólum?
Nú veit ég að hin látna mundi
andmæla mér og segja, að þetta
hefði ekki allt verið sér að
þakka. Börnin hefðu verið góð,
fólkið í sveitinni gott og svo
ráðskona skóians, Guðrún
Haraldsdóttir, frá Hrafnkels-
stöðum, frænka Unnar, sem Var
henni svo samhent um stjórn
heimilisins og kenndi börnunum
bæði söng og leiki. Og þetta var
satt. Guðrún var frábær kona
og mikill barnavinur. 1 nær ald-
arfjórðung unnu þær frænkur
saman við heimavistarbama-
skóla og unnu að allra dómi
ágætt starf, sem nemendur
þeirra munu aldrei gleyma. Þær
frænkur giftust ekki og áttu
ekki börn, en öll skólabörnin
voru börnin þeirra og nutu ást-
ar þeirra og umhyggju alla tíð.
Og börnin sýndu þeim frænk-
um líka margan sóma, með sam-
sætum og gjöfum á merkisafmæl
um, þó ekki verði það rakið hér
nánar.
Unnur var skólastjóri Ása-
skóla til ársins 1937. Þá tók hún
við Flúðaskóla og stjórnaði hon
um þar til 1946. Þar var hún I
næsta nábýli við móður sína
aldraða og annað skyldfólk sitt.
SKILTI A GRAFREITI
OG KROSSA.
Flosprent sf Nýlendugötu 14
simi 16480.
S. Helgason hf. STEINIÐJA
tlnholll 4 Slmar 26617 og 14254
t Af alúð þökkum við hlýju og vináttu okkur sýnda við lát
og útför
VILHJÁLMS ÞÓR
Rannveig Þór,
Borghildur Fenger, Hilmar Fenger,
öm Þór, Hrund Þór,
Hjördís Ólöf McGrary. Thomas McGrary.
t
Þökkum öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför
KRISTINS ARNGRiMSSONAR
frá Bakkagerði.
Sérstakar þakkir sendum við Tómasi A. Jónassyni lækni
fyrir frábæra umönnun við hinn látna.
Jónína Gunnarsdóttir,
Ragnheiður Kristinsdóttir, Anton Jónsson,
Hreinn Kristinsson, Guðrún Helgadóttir,
Anna Kristinsdóttir, Ingimar Einarsson,
og bamaböm.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR ÁMUNDADÓTTUR,
Geirlandi, Kópavogskaupstað.
Anna Sigurjónsdóttir, Unnur Sigurjónsdóttir,
Ólafur G. Siðurjónsson. Svava Sigurjónsdóttir,
Sigrún Sigurjónsdóttir, Helga M. Sigurjónsdóttir,
Bragi Sigurjónsson, Fanney Sigurjónsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnaböm.
t
Innilegar þakkir færum við öllum vinum og vandamönnum,
fyrir samúð og vinarhug sýndan okkur við fráfall og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTINS GUÐMUNDSSONAR,
kaupmanns, Laufásvegi 58.
Unnur Kristjánsdóttir,
Ingvar Kristinsson, Ása Þ. Asgeirsdóttir,
Guðmundur S. Kristinsson,
Kristín Kristinsdóttir, Heiðar Magnússon,
Kristján Kristinsson, Nina Hafstein,
og bamaböm.