Morgunblaðið - 25.07.1972, Page 28

Morgunblaðið - 25.07.1972, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JIÍLl 1972 símim. Ég naut álits og öryggis, vegna virðingarstöðu húsbónda míns. En það var einmitt vegna þessarar virðingarstöðu hans, sem líí mitt tók stakkaskiptum til hins verra. Fyrirtæki það sem húsbóndi minn starfaði við, mælti með hon um til ríkisþjónustu og hann var fluttur til Washington. Ég gladd ist hans vegna en var gripinn ótta og kvíða min vegna. Hann var ráðinn til nokkurra ára og hann hafði ekki tök á að útvega mir vinnu hjá öðrum í Bombay. . */^//R!NGANa Ég yrði því brátt atvinnu- og húsnæðislaus. í mörg ár hafði mér fundizt mér vera borg- ið. Ég hafði verið tilskilinn tíma í læri, kynnzt ýmsum erfiðleik- um. Mér fannst ég ekki geta byrjað á nýjan leik. Ég fylltist örvæntingu. Var nokkra vinnu að fá fyrir mig í Bombay? Ég sá fram á, að ég yrði að hverfa aft- ur heim í þorpið mitt í f jöllunum, til konu minnar og barna þar, ekki í helgarleyfi heldur fyrir fullt og allt. Ég yrði að gerast burðarmaður fyrir ferðafólk, hlaupa á eftir bílunum um leið og þeir komu á stöðina og hrópa og kalla ásamt 40-50 öðrum á far angur. Og farangur Indverja er þungur. Allt annað en þetta í frjálsu riki eftir V S. Naipaul ameríska dót. Indverjar nota þungar málmkistur. Ég var gráti nær. Ég var ekki lengur hæfur til þess háttar vinnu. Ég hafði vanizt hóglífi I Bombay og ég var ekki ungur lengur. Ég hafði eignazt ýmsa muni, var orðinn vanur að eiga mitt einkalíf í skápnum. Ég var orðinn stórborgari, háður viss- um þægindum. Húsbóndi minn sagði: „Wash- ington er ekki Bombay, Santosh. Allt er dýrt í Washington. Þótt ég borgi fyrir þig farið, gætirðu aldrei veitt þér þar allt, sem þú getur veitt þér hér.“ Átti ég að yfirgefa Bombay og fara að hlaupa berfættur um fjöllin? Hvílíkt áfall! Hvílík nið urlæging! Ég gat ekki horfzt í augu við vini mína. Ég hætti að sofa á gangstéttinni og dvaldist innan um eigur mínar, sem ég mundi nú brátt glata. Húsbóndi minn sagði: „Santosh, mér blæðir í hjarta þín vegna.“ Ég sagði: „Sahib, ef ég sýnist dálítið dapur, þá er það vegna þess, að ég hef áhyggjur af þér. Þú hefur alltaf verið sérlundað- ur og ég skil ekki, hvernig þú kemst af í Washington." „Það verður erfitt. En við verðum að gera eins og til er ætlazt. Ferðast fulltrúi fátækrar þjóðar, eins og okkar þjóðar, um lönd með einka-mat- reiðslumann? Kemur það vel fyr í þýðingu Huldu Valtýsdóttur. ir sjónir? Er það fagurt fordæmi." „Þú breytir alltaf rétt, sahib.“ Hann þagði við. Nokkrum dögum síðar sagði hann: „Kostnaðurinn er ekki eini vandinn. Við verðum líka að taka útlenda gjaldeyrinn til greina. Rúpían okkar er ekki sú sama og hún var.“ velvakandi 0 Kvartað undan lélegri þjónustu Þorkell Guðmundsson skrif- ar: „Kæri Velvakandi! Félag Snæfellinga og Hnapp dæla á Suðurnesjum fór í hóp- ferð vestur um Barðaströnd í Vatnsfjörð um mánaðamótin júní og júlí, en slíkar hópferð- ir eru fastur liður í starfi fé- lagsins. I ferðum þessum er jafnan keypt ein heit máltíð á dag í matsölum, þar sem leið liggur um. I þessari ferð keyptum við okkur máltíðir að Hreðavatni, Bjarkarlundi og í Borgarnesi. Var öll framreiðsla af hendi leyst með mestu prýði í Borg- arnesi og að Hreðavatni, en þegar matazt var í Bjark- arlundi kvað við annan tón. Kaffið eftir matinn var ekki borið á borð fyrr en við ferða- félagarnir höfðum tekið saman diska og hnífapör, að beiðni framreiðslustúlkunnar. Þegar að því kom að greiða fyrir veittan beina, mættum við nokkuð öðru viðmóti. Áður hafði forráðamaður veitingasöl unnar verið spurður, hvort greiða skyldi framreiðslustúlk unum, en hann kvað bezt, að greitt yrði við afgreiðsluborð í anddyri hússins og sagði stúlkurnar ekki hafa tíma til að sinna innheimtu. En þegar ferðafólkið fór að greiða hon- um sjálfum, reiddist hann og sagðist enga tryggingu hafa fyrir því, að allir greiddu fyr- ir sig og hélt því fram, að væri fararstjóri með í ferðinni, þá ætti hann að sjá um greiðslu fyrir allan hópinn og kvaðst aldrei myndi hafa afgreitt mat fyrir þennan hóp, ef hann hefði vitað, að eigi greiddi einn fyrir alla. Fleiri orð lét hann sér um munn fara, sem liefur virtlegubtinaðinn og veiðistöngina Munið tjaldaúrvalið 5—6 m. fjölskyldutjöld 2 manna tjöld 3 manna tjöld 4 manna tjöld ★ TJALDHIMNAR. Garðstólar — Sólbekkir — Tjaldstólar — Tjaldbarð — Tveibreiðar vindsængur. — Vindsængur frá kr. 979,— Svefnpokar, hlýir, vandaðir. Bakpokar nýjar gerðir. Nestistöskur frá kr. 1132,— Gastæki — Kælitöskur. Handa stangaveiðimönnum: Laxaflugur — Silungaflugur — Spúnar — Veiðitöskur — Veiðivesti — Veiðistígvél — Gladding línur — Flugulínur, nýjar gerðir. veiðistangirnar bregðast ekki. — VERZLIÐ ÞAR SE HAGKVÆMAST ER. — — VERZLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER. — verða ekki rakin hér. Þau verða geymd, en ekki gleymd. . 0 Óvenjuleg framkoma Svona framkomu höfum við hvergi mætt á ferðum okkar fyrr. Við höfum aldrei verið tortryggð, þótt alltaf hafi hver séð um að greiða fyrir sig, enda hefur ekki verið krafizt ann- ars og erum við þó búin að koma víða við, á hótelum og greiðasölustöðum úti um land. 0 Þakkir til félagsheimil- isins í Króksfjarðarnesi Að lokum vil ég, fyrir hönd ferðafélaganna, þakka góða að búð, og lipurð og þægilegt við- mót forráðamanna félagsheim- ilisins í Króksfjarðarnesi, en þar gistum við tvær nætur. Með þökk fyrir birtinguna. Þorkell Guðmundsson, Ilringbraut 92, Keflavík." 6 tonna bátur Til sölu 6 tonna bátur endurbyggður 1971 (stór viðgerð). Mjög bagstætt verð. TRYGGINGAR OG FASTEIGIMIR, Austurstræti 10 — Sími 26560. Verð fjarverandi til 1. september. — Staðgengill Einar Lövdahl, læknir Domus Medica. Upplýsingar í símum okkar beggja 17474 og 21788. GEIR H. ÞORSTEINSSON, læknir, Laugavegi 42. 3jo-4ra herbergja íbúð óskast. Aðeins tvennt til heimilis. Upplýsingar óskast sem fyrst í Félagsprentsmiðjuna. Sími 11640 og 13435 eftir kl. 7 síðdegis. Fogurt útsýni er gulls í gildi. Höfum til sölu 4ra herb. íbúðarhæð við Álf- hólsveg í Kópavogi, um 130 ferm. Ibúðin er teppalögð með góðum innréttingum. Laus til afhendingar. Útsýni yfir Fossvog og til norðurfjalla. Fasteignasalan HÚS & EIGNIR, Bankastræti 6 — Sími 16637. Til leigu Til leigu er varzlunarhúsnæði fyrir kven- fata- og snyrtivöruverzlun í vöruhúsi við Laugaveg. Þeir sem hafa áhuga á leigu sendi nafn- heimilisfang og símanúmer í pósthólf 5073 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.