Morgunblaðið - 25.07.1972, Blaðsíða 32
Askriftarsímar:
15899 — 15543.
EINVIGISBLAÐIÐ
KEMUR ÚT MORGUNINN
EFTIR HVERJA SKAK.
Pósthólf 1179.
ÞBIÐJUDAGUK 25. JÚLÍ 1972
Hlakka til að
reynaþetta skip
Fjölmenni fagnaði komu
skuttogarans Karlsefnis
SKIJTTOGABINN Karlsefni,
sem kom til Tteyk.javikiir sl.
snnmiclag:, er fyrsti skuttogarinn
í flota Beyk.iavíkiir. Karlsefni
BE 24, er 1047 tonn að stærð, en
eigrendur eru Karlsefni h.f. Togr-
arinn var hyggður í Bremerhav-
en 1966. Mikill mannfjöldi tók
á móti skipinu, þeg-ar það sigldi
til hafnar í Beykjavik fánum
prýtt. Skipstjóri á Karlsefni er
Ásgeir Gíslason. Gamla togaran-
um Karlsefni, var siglt til Bret-
iands fyrir skömnui þar sem
skipið landaði afla lir síðustu
ferð, en nýja Karlsefni var siglt
frá Cuxhaven í pýzkalandi til
Hull þar sem áhöfnin á gamla
skipinu var tekin um borð í nýja
skipið. Hefur gamia skipið verið
selt í brotajárn. Framkvæmda-
Framhald á bls. 20
Sex ára dreng-
ur beið bana
— er hann varð undir vörubíl
Akureyri, 24. júlí
SEX ára drengur varð undir
vörubil og beið bana síðdegis í
dag á bænum Hofi í Hörgárdal.
Drengurinn var þarna gestkom-
andi ásamt föður sínum.
Verið var að flytja heim vél-
bundið hey á vörubíl, en uppi á
hlassinu voru noWkur böm, þar
á meðal 6 ára drengur og auk
þess var faðir hans þar. Þegar
kocmið var heim á túniið hrundu
nokkrir baggar af bílnum og litli
drengurinn féll þá niður fyrir
framan vinstra afturhjól bílsins
og varð undir því. Héraðslæknir
taldi drenginn hafa látizt sam-
stundis.
Ökumaður varð einskis var
fyrr en faðir drengsins gerði hon
um viðvart.
Ekki er hægt að birta nafn
drengsins að svo stöddu.
Sv. P.
Skuttogarinn Karlsefni BE 24 siglir fánum prýddur til heima hafnar í Beykjavík, þar sein
fjöldi fólks fagnaði komu skips ins. Ljósmynd Mbl. ÓbK.M.
Deilur nm kvikmyndaréttinn:
ABC segist hafa
samning um tökuna
— en Fox telur hann ógildan
Málin líklega á hreint í dag
PAI'L Marshall, lögfræðingur
Bobby Fischers, var væntanlegur
til íslands snenmia í morgun til
um landlæknis-
embættið
UMSÓKNARFRESTUR um emb-
ætti landlæknis rarm út fyrir
helgina. Þrjár umsóknir bárust
og eru þær frá læknunum Arin-
birni Kolbeinssyni, Brynleifi H.
Steingirímssyni og Ólafi Ólafs-
syni. Núverandi landiæknir hef-
ur beðizt lausnar frá embætti 1.
október n.k.
Bobby Fischer brosir þegar han n tekur í hönd Spassk.vs, eftir
að sá síðarnefndi gaf sjöttn skákina. (Ljósm. Skáksamband Isl.).
Einar Ágústsson, utanríkisráöherra:
Aldrei komið til tals að
99
leita til varnarliðsins
u
— vegna landhelgismálsins
„ÞAÐ HEFUB aldrei komið til
tals í isienzku rikisstjórninni að
leita til varnarliðsins eiftir að-
etoð í sambandi við landhelgis-
málið.“ Þannig svaraði Einar
Ágústsson utanríkisráðherra er
Mbl. sneri sér til hans vegna
fréttar, sem nýlega birtist í
brezka biaðinu Daily Telegraph
þess efnis, að ekki væri útilokað
að fsland fengi aðstoð frá Kefla-
víkurflugvelli við að verja land-
helgina.
Eius og frá hefur verið skýrt í
Morgunblaðiuu sendi einn frétta
manna blaðsins Daily Telegraph,
Maurice Weaver, sem hér var
staddur, blaðinu frétt um land-
helgismálið 14. júlí, þar sem hann
m.a. getur þess að Hannes Jóns-
son blaðafulltrúi eyði nú mesfcum
tima sínum í að undirbúa áróð-
ur fyrir málstað lands sins. Segir
Weaver síðan: „í gær sagði hann
mér (blaðafulltrúinn), þungbú-
inn, að hann gæti ekki útilokað
þann möguleika að Islar.d fengi
aðstoð frá bandarisku sveituinum
á hinni hernaðarlega mikilvægu
NATO-herstöð tíl áð verja 50
mílna landhelgina. Bandarískar
ratsjár- og eftirlitsflugvélar
kynnu brátt að fara að hjálpa ís-
lenzku landiheligisigæzlunini við að
finna „veiðiþjófa". Felmtri sleg-
inn taismaður varnarUðsin.s neit
aði þvi algerlega að slíik sam-
vinna hefði verið undirbúin,
rædd eða jafnvel verið til um-
hugsunar. Bandaríikin vilja alls
ekki blanda sér í miálið.“
Er Morgunbiaðið spurði Einar
Ágústsson utanrilkisráðherra
hvort isienzka ríikisstjómin hefði
leitað eða hefði í huga að leita
aðstoðar varnarhðsins kvað hann
það aidrei hafa komið til tals.
viðræðna við fulltriia ABC-fyrir-
tækisins um lausn á myndatöku-
vandamálinu. ABC telur sig hafa
fullt umboð til að annast mynda-
tökuna samkvæmt samningi,
sem Bichard Stein, lögfræðingur
Chester Fox, nndirritaði í New
Vork fyrir helgi. Chester Fox er
hins vegar á öðru máli.
Guðmundur G. Þórarinsson
tjáði blaðinu, að Paul Marshall
væri væntanlegur með samnings-
uppkast hans og Richard Stein
í dag til viðræðna við Fox, ABC
og Sáksambandið. „Skáksam-
bandið vill hins vegar sem
minnst blanda sér i þessi mál
og þau er erfitt að ræða opinber-
lega.“
„VIÐ EBUM MEÐ
KVIKMYNDABÉTTINN"
„Richard Stein skrifaði undir
samning í New York sem ritari
Ohester Fox-fyrirtækisins,“ sagði
Chet Forte, foringi ABC-manna
hér á landi í samtali við blaðið
í gær. „Samkvæmt þeim samn-
ingi höfum við nú rétt til að
annast framkvæmd allrar mynda
töku við einvígið, þó svo að það
sé i umboði Fox. Mér skilst hins
vegar að Chester Fox sé ekki
ánægður með þann samning.
Hann mun halda því fram, að
hann sé ekki gildur, en hann er
gildur," sagði Forte með áherzlu-
þunga. Hann sagði, að þessi
saimningur hefði borizt hingað til
lands fvrir tveimur dögum.
Fischer og fulltrúar ABC komu
saman aðfaramótt sunnudags í
LaugardalshöMinni til frekari
kannana á aðstæðum. Mun Fisch
er ekki hafa gert þar neimar sér-
stakar athugasemdir við kvik-
myndaútbúnaðinn, hvoriki háv-
aða né annað. „Við vorum þrjá
tíma að ræða við hann um að-
stæðurnar," sagði Forte. „En
honum virtist falla verr við að
vita af kvikmyndatökumönn-
um á bak við myndavélarnar
en myndavélamar sjáltfar, sem
reyndar sjást ekki heldur. Hann
vildi samt engar ákvarðanir taka
fyrr en MarsihaM væri kominn."
„Ég mun ræða við Paul Mar-
shall strax er hann kemur kl. 5
á þriðjudagsmorgun. Við mun-
um reyna allt til þess að ná sam-
komulagi, en vilji Fischer ein-
dregið engar myndavélar, þá
munum við virða það fullkom-
lega.“
Forte kvað málin hijóta að
komast á hreint í dag. Hann
sagði, að samningurinn, sem
Stein hefði undirritað, væri í
raun endurskoðun fyrri samn-
inigs, þar sem ABC væri falin
Framhald á bls. 31
Enn lækk-
ar í Skaftá
SKAFTÁRHLAUPIÐ er liðið hjá
og hefur haldið áfram að lækka
I ánni um helgina. Þó var mikið
vatn í henni í gær.
Þorbjörg í Skaftárdal sagði
Mbl. í símtali að ljótt væri um
að litast, þar sem fjarað hefði,
allt grátt og þakið þýkkri jökul
leðjiu. Ekki hatfa skemmzt slægj
•jr, en erfitt er enn að komast að
suirrauim sdægjiutolettunium. Eins
er veguirinn að Skafbárdal enn ó
fær, því runnið hefiur úr honium
og er hann stórgrýttur víða. En
menn komust út yfir ána í geer
með því að vaða.
Síldarsölur
fyrir 26 millj. króna
ISLENZKU síldveiðiskipin seldu
66 sinnum í Danmörku í síðustu
viku og einu sinni í Þýzkalandi,
samtals 2.913,6 lestir. Heild-
arverðmæti aflans reyndist
26.271.280 krónur og meðalverð
á kiló 9 krónur og tveir aurar.
Hæsta sala í einu var 17. júlí
hjá Helgu Guðmundsdóttur BA,
en skipið seldi fyrir 1.420.375
krónur. Hæsta meðalverð fékk
hins vegar Börkur NK, 20.29
krónur á kíló.