Morgunblaðið - 26.07.1972, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.07.1972, Blaðsíða 2
2 MORGÖNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 26. JÚLÍ 1972 Sovézkur Gyðingur: Vildi flytjast til ísraels - var fangelsaður Rússi kynnir málstaö frænda síns á íslandi Laser Rofé 1 DAG verður dregrinn fyrir rétt i Moskvu 24 ára g-amall tann- læknir, Mark Nashpits að nafni. Eftir að hafa sótt um leyfi til að flytjast til Israels, var Mark handtekinn þann 16. júní sl. og hefur hann síðan verið i haidi á 30. lögregiustöðinni í Moskvu. Frændi Marks, Laser Rofé, sem nýlega fékk leyfi til að flytjast til ísraels, er staddur hér á Iandi um þessar mundir til að vekja athygli á máli Marks. Hann tjáði Morgunblaðinu að þegar Mark Nashpits hefði sótt um að flytjast til Israels, hefðu yfirvöldin fyrirskipað honum að gangast undir herþjálfun. Það þýðir, að Nashpits hefur aðgang að hernaðarleyndarmálum, en þeim, sem eru í slíkri aðstöðu, er meinað að yfirgefa Sovétríkin LITLI drengurinn, sem varð und ir bíl á Hofi í Hörgárdal, eins og frá var skýrt í blaðinu í gær, hét Kjartan Jónsson, sonur Jóns Pálmasonar skrifstofustjóra innan fimm ára frá því að her- skyldu líkur. Með þessu hefði Nashpits því verið hindraður frá því að flytjast á brott nsestu sex árin. Að sjálfsögðu mótmælti hann þessari ólöglegu herkvaðn- ingu, en var fyrir vikið handtek- inn, sem fyrr segir, og á nú yfir höfði sér 6—36 mánaða fangelsi. Aðspurður hvort Nashpits hafi áður gerzt brotlegur við lög, kvað Rofé nei við, en fað- ir Nashpits, sem hann aldrei þekkti, væri af yfirvöldum lýst- ur landráðamaður þar sem hann flúði frá Sovétríkjunum þegar Mark var 8 ára gamall. Mark Nashpits hefur nú verið lýstur samábyrgur föður sínum. Móðdr Marks skrifaði Rudenko rikissaksóknara og bað um að Keflavík: BÆJARFÓGETINN í Keflavík tók í gær rækjuveiðaleyfi af fimm Keflavíkurbátum og hefur þau í sinni vörzlu í eina viku. Er þetta gert að ósk sjávarút- vegsráðuneytisins í refsingar- skyni, þar sem bátar þessir brutu þær reglur, sem rækju- veiðibátum hafa verið settar. Bátarnir hafa eimkum verið að veiðum á Eideyjarmiðum eða undan Jökli, en Landhelgisgæzl- Hafnarfirði og Sigrúnar Aðal- bjamardóttur konu hans. Hann var fæddur 17. júní 1966 og átti heima á Ölduslóð 34 í Hafnar- firði. sonur hennar yrði tímabundið látinn laus gegn sömu skilmál- um og Gabriel Shapario, sem kvæntist bandarískri stúlku, en fékk neitun frá Agaponovu hér- aðssaksóknara. Tveir vinir Marks, Broyeris og Chervinski frá Riga, sendu sak- sóknara ríkisins, Rudenko, bréf, þar sem þeir mótmæltu fangels- un þeirra Nashpits og Shaparios. Fyrir það voru þeir handteknir og afplána nú 15 daga fangelsis- dóm. Rofé sagði, að móður Marks virtust nú öil sund lokuð til að fá son sinn lausan og eina ráðið væri því að vekja athygli á mál- inu í þeirri von, að sovézk yfir- völd létu undan almenningsálit- inu á Vesturlöndum. an stóð þá að því að fara imn á Faxaflóasvæðið til veiða, en það er bannað sikv. reglugerð. Þar sam þetta var fyrsta brot þessara báta, var talið hæfilegt að svipta þá ieyfinu í eina viku. Er þetta í fyrsta sirun, sem bátar sunnan- eða vestanlands eru sviptir rækjuleyfum, en áður hafa það einkum verið bátar á Vestfjörðum sem hafa brotið reglugerðarákvæði og verið sviptir leyfunum. Einn Vest- fjarðabátur hefur verið sviptur leyfi sínu fyrir fullt og allt, eftir að hawn veiddi rækju á Húna- flóa og flutt' til foafjarðar. Það er Landhelgisgæzlain sem heldur uppi eftirliti með því að reglugerðarákvæðunum um rækjuveiði sé fylgt úti á miðun- um þ. á. m. að ekki sé veitt á Framhald á bls. 20 5 rækjubátar sviptir veiðileyfum í viku — veiddu rækju á bannsvæðum Drengurinn sem lézt IJr umferð vegna vanrækslu stendur á skiltinu. XJr umferð vegna vanrækslu BIFREIÐAEIGENDUR í Reykjavík, sem hafa van- rækt að koma með bifreið- ir sínar til skoðunar, hafa sumir komið að bílunum númerslausum að undan- förnu. Á rúðunni hefur staðið skilti með skýring- unni: „Úr umferð vegna vanrækslu á að færa bif- reiðina til skoðunar. — Lögreglan.“ Þetta eru þeir bílar, sem hafa númer undir 10.000, og áttu að vera búnir að láta skoða bílana í síðasta lagi 20. júní. Þann 12. júlí var til- kynnt, að nú yrðu múmerin tekin af án frekari viðvörun- ar og hefur umferðarlögregl- an síðan gengið í að kiippa númerin af þessum óskoðuðu bílum, hvar sem hún hefur rekizt á þá. Fá menn ekki númerin aftur, fyrr en þeir eru búnir að láta skoða bíl- ana og greiða 2000 kr. sekt. Er þegar búið að svipta fjölmargar bifreiðar númer- um sínum. Oftast er um trassaskap að ræða, sagði Ás- mundur Matthíasson, varð- stjóri. 1 nokkrum tilvikum stafar þetta þó af getuleysi á að greiða skattinn eða láta gera við bílinn. Oftast hafa bifreiðaeigendumir bara dreg- ið það að fara með bílinn í skoðun. Sumir bera sig þá illa og hringja I lögregluna, en þegar búið er að benda þeim á það, að þeir hefðu að- eins átt að fara eftir þvi, sem þeir vissu að yrði að gera, þá átta þeir sig á að þeim er Númerið skrúfað af. sjálfum um að kenna. NORÐURÁ Birgir Guðmundsson, veiði- húsinu við Norðurá, tjáði okk ur í gær að um 1270 laxar væru nú komnir á land úr ánni. Sagði hann, að frekar hefði verið rólegt við ána að undanförnu, enda væru nú út- lendir veiðimenn við veiðarn- ar. „Þeir eru heldur lélegir við fiskinn og taka þessu öllu rólega. Ég er hræddur um að landinn væri laxinum skeinu- hættari, þvi nóg er af hon- um í ánni. Skýringin er þó líklega sú, að verð veiðileyí- anna virðist ekki skipta út- lendingana neinu máli, og þeir eru ekki að reyna að fiska upp í kostnaðinn e:ns og oft vill brenna við hjá land- anum." Birgir sagði, að eingöngu væri nú veitt á flugu í ánni. Vinsælustu flugutegundirnar væru Blásjarminn (Blue charm), Sweep og Greeh Highlander. 10 stengur eru nú í ánni, en þær voru 9 tals- ins þar til 20. júlí. Loks gat Birgir þess, að í dag, miðvikudag, væri von á einum frægasta laxveiði- manni heims, Lee Wulfs, þangað upp eftir, en hann ætlaði á næstu dögum að kynna sér ána. Wulfs er auk veiðimennskunnar, víðkunnur fyrir greinar sínar, sem hann hefur ritað í ýms kunnustu sportveiðiblöð heims. Sagðist Birgir búast við að ýmsir full- trúar fjölmiðla, sjónvarps og blaða, myndu fylgjast með honum við veiðarnar, sem án efa yrði góð landkynning. LANGÁ Á MÝRUM „Hér eru allir ánægðir, enda er nú góð veiði,“ sagði Guðjón Styrkársson, er við höfðum samband við hann S veiðihúsinu við Langá í gær. Guðjón sagði, að nú væru komnir hátt á sjötta hundr- að laxar á land af fyrsta veiði svæðinu, en þar er leyfð veiði á fimm stengur, af þeim 8, sem eru í ánni. Þyngsti lax- inn, sem veiðzt hefur í ánni í sumar sagði Guðjón að hefði vegið um 17 pund, en meðal- þunginn væri einhvers staðar í kringum 10 pund. „Annars virðist hann vera að stækka í ánni núna,“ sagði Guðjón. Um miðjan mánuð- inn bar mest á meðalstórum fiski, en núna síðustu daga hefur veiðzt meira af stærri.“ Fyrstu tvær vikur mánað- arins voru eingöngu íslend- ingar við veiðar í ánni, en 15. júlí tóku útlendingarnir við og verða fram til 25. ágúst. Veiði í ánni hófst 15. júní, lýkur 14. september. ÞINGVALLAVATN Séra Eiríkur Eiríksson, þjóðgarðsvörður, sagði í við- tali við blaðið í gær, að veiði hefði verið með skárra móti í sumar í vatninu. „Það er nú reyndar ekki við mikið að jafnast," sagði Eiríkur, „því hún hefur verið afar lé- leg undanfarin ár. Ég býst við að þetta sé góðu vori að þakka, því að tiðarfar í april og mai hefur mjög mikið að segja fyrir allt líf í vatninu." Eiríkur sagði, að veiði þessi væri helzt stunduð af fólki, sem kæmi til útilegu við vatn- ið og dundaði við þetta I ró- legheitum. Mest væri það smælki sem veiddist, en þó kvað hann eina og eina bleikju slæðast með. Veiðileyfi eru nú seld á þremur stöðum við vatnið, þ.e. í Valhöll, Þing- vallabænum og í tjaldi við vatnið. Er þetta breytt fyrir- komulag frá því í fyrra, en þá gengu menn um staðinn og innheimtu veiðileyfin af veiðimönnum. Verð leyfanna er 250 kr. fyrir daginn, en eft ir kl. 2 eru þau seld á kr. 150. BREIÐDALSÁ Guðmundur Stefánsson, Staðarborg, tjáði okkur í gær að alls væru nú 14 laxar komnir á land úr Breiðdals- á. Þetta væru frekar vænir laxar, eða frá 4 pundum upp í 14. Þá kvað hann einnig hafa veiðzt töluvert af bleikju í ánni, og hefðu menn stund- um fengið allt að 30 bleikjur á dag. Veiði er leyfð á 3 laxa- stengur I Breiðdalsá og 5 bleikjustengur, en auk þess er leyfð veiði á eina laxastöng í Tinnu, sem er þverá i Breið- dalsá. Jón Þóroddsson hjá veiðifé- lagi Breiðdalsár tjáði blaðinu í gær, að ákveðið hefði verið að nota ekki að fullu heim- ildina til þriggja mánaða veiðí tima þar sem áin væri nú í ræktun. Sagði hann að í fyrra hefði i fyrsta skipti verið sleppt í hana seiðum, en það hefði einnig verið gert sl. vor. Því hefði ekki verið hafin veiði fyrr en þann 15. þ.m. en veiðitímanum lýkur þann 15. september. ÖLFUSÁ Jón Valgeir, verkstjóri frá Eyrarbakka, tjáði Mbl. að veiði hefði verið góð í Ölfus- á um helgina. Sjálfur hefði hann verið við veiðar ásamt nokkrum félögum sinum, og hefði hann m.a. náð í einn 25 punda lax. „Ég var með hann á króknum í u.þ.b. klukku- tíma,“ sagði Jón, „og ég var satt að segja farinn að velta þvi fyrir mér hvor okkar gæf ist fyrr upp, ég eða laxinn.,‘ Jón sagði, að þeir félagar hefðu samtals veitt 13 laxa, og hefðu þeir allir verið vænir, frá 6 pundum upp í 25, og all- ir veiðzt á maðk. Leyfð er veiði á 6 sténgur í Ölfusá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.