Morgunblaðið - 26.07.1972, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.07.1972, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1972 13 Hungurdauði vofir yfir þúsundum — eftir flóðin miklu á Filippseyjum Filippseyjum, 25. júlí. NTB. Þúsundir manna á Filippseyjum eig-a nú á hættu að deyja hung:- urdauða þar sem matvæli eru mjög: af skornum skammti eftir flóðin af völdum monsúnrigning;- anna í siðustu viku. Ferdinand Marcos, forseti, sem stjórnar hjálparstarfinu, hefur skipað hernum aö leggja hald á allar faldar hrísgrjónahirgðir sem liann finni. í>essi skipun var gefin þegar fréttist að suimir kaupmenn hefðu falið hrisgrjónabirgðir til að geyma þar til verðlag yrði hærra. Marcos segir að ef þessir kaupmenn selja ekki stjórninni hrítsgrjón á markaðsverði muni stjórnin taka þau eignarnámi. Sex sérþjúlfaðar bandarískar hjálparsveitir eru nú á Filipps- eyjum og auk þess eru þar þyrlu móðurskipið Tripoli með 30 stór- ar fiutningaþyriur og loftfliutn- ingasveitir úr fluighernium. Brezkar herfluigvólar taka einnig þátt i hjálparstarfinu. Björgunarstarfið gerngur að sogn eins vesl og hægt var að búast við en þó hafa orðið nokkr ir erfiðleikar í sambandi við mat væladreifingu. Þá er byrjað að bólusetja alla sem til næst á flóðasvæðunum eða i grennd við þau, til að hindra að drepsóttir brjótist út. Eftir þvi sem yfirvöld komast næst hafa rúmlega 200 manns farizt i flóðumum, en við- búið er að sú tala hækki eftir þvi sem björgunarsveitirnar ná við- ar, og fá fleiri skýrslur. Bandaríkin svara harkalega ummælum Waldheim umflóðgarða Samemuðu þjóðunum, 25. júlí — AP BANDARÍSK stjórnvöld hafa brugðizt harkalega við þeim um- maium Kurts Waldheim, aðalrit- ara Sameinuðu þjóðanna, að bandarískar sprengjuflugvélar hafi varpað sprengjum á flóð- garða í Norður-Víetnam. Wald- heim sagði á fundi með frétta- mönnum að hann hefði óopinber- ar einkaheimildir fyrir þessu, en kvaðst ekki geta sagt um hvort sprengjunum hefði verið varpað af ásettu ráði. Ef flóðgarðamir eru eyðilagð ir, er hætta á gífurlegum flóðum, sem geta kóstað ótöluleg manns- Mí og lagt stór landsvæði í eyði. Stjórn Bandarí'kja-nna hefur oft gefið yfirlýsin-gar um, að engar árásir séu gerðar á þessa flóð- garða af ásettu ráði, en hugsan- legt sé að skemmdir hafi orðið á þeim i loftárásum á hernaðar- mannvirki. 1 Washington sagði William Rogers, utanrí-kisráðherra, að allar fréttir um að sprengjum hefðd verið varpað á flóðgarðana af ásettu ráði væru uppspuni. George Bush, fastafulltrúi Banda ríkjanna hjá SÞ, flaug frá Was- hington til New York til fundar við Waldheim og sagði honum mjög ákveðið, að þessar fréttir væru liður i áróðursherferð stjómar Norður-Víetnams. Yfirlýsingar bandarísku stjóm arinnar stamgast á við fréttir frá sænskum og frönskum frétta- mönnum, sem segjast hafa séð spi'engjuskemmdir á flóðgörð- um, sem væru viðsfjarri öllum hernaðarmannvirkjum. Banda- risk yfirvöld telja aftur á móti að fréttamenn þessara þjóða séu nokkuð langt frá þvi að vera hlutlausir. Hiingurdauði vofir nú yfir þúsunflum manna á Filippseyjum eft- ir gífurlegar monsúnrigningar sem hafa eyðilagt samgönguleið' ir og kostað hundriið mannslífa. Sérþjálfaðar björgunarsveitir ern komnar til landsins en þær eiga mikið starf fyrir höndum. Á myndinni eru tveir björgunarsveitarmenn að bjarga gamalli konti úr húsi sínu. The Times um landhelgismálið: Kúga í ski óli smæðar Miklar umræður í brezka þinginu BREZKA blaðið The Times birti leiðara um landhelgismálið hinn 14. þ.m. og jafnframt ítarlega frétt uni viðræður um Jandhelg- ismáiið í þinginu. Bæði í forystu- greininni og viðræðnmini er því haldið fram, að ákvarðanir Is- lands í landhelgismálinu séu mjög svo óréttlátar. Umræðurnar í þinginu hófust með því, að McNamara, þing- maður fyrir Norður-Hull, bað uni yfirlýsÍTiigu vegna þess, að slitnað hefði upp úr samninga- viðræðunum við íslenzku ríkis- — Bretland Framhald af bls. 1. vikum til þess að fá sömu hafn- arverkamenn leysta úr haldi, en þá var málið aftur tekið fyrir dómstólana. Starf Turners er í því fólgið, að tryggja rétt sak- borninga fyrir dómstólunum og embætti hans var lítið þekkt áð- ur en núverandi vinnudeila brauzt út. Starf hans er óháð stjórniinnii. Samtímis því, sem Turner skarst í leikinn, lögðu 3.500 starfsmenm í bifreiða- og flu-g- vélaverksmiðjum niður vinnu og að minnsta kosti 48.000 námu- verkamemn, flugvaliarstarfs- menn og vörubifreiðastjórar boð- uðu verkföll seinna í vikunni. Atvinnuráðuneytið segir, að 100.000 verkamenn hafi þegar lagt niður vinnu í samúðarskyni við hafnarverkamennina. Þar við bætast 42.000 hafnarverkamenn, sem lögðu niður viimu skömmu eftir að vinnumáladómstóllinn dæmd-i- hafnarverkamennina fimrn til fangelsásvistar fyrir að vanvirða dómstóiinn. Sendinefndir verkamarma hafa efnt til mótmælaaðigerða fyrir uitan Pentomville-famgelsið í London, þar sem hafnarverka- mennirnir sitja imi, og þar kom til nokkurra átaka í dag milli verkámáftna b-g lögreglu. Vic Feather, aðalritari verka- lýðssambandsins, sagði, að lokn- um fundi með Heath að verkíöll- in mundu magnast því lengur sem hafnarverkamennimir væru hafðir í haldi og að afleiðingarn- ar fyrir efnahagsMf Breta yrðu geigvænlegar. — Á reki Framhald af bls. 1. á leið frá Panama til Gala- pagoseyja, þegar slysið varð. Á stuttum fundi með frétta- mönnum sögðu skipbrots- mennimir, að skútan hefði óvart lent á hvalavöðu. Hval- irnir hefðu beegslazt mikið í kringum hana og eimn þeirra rekið hausinn af miklu afli í byrðing skútunnar með þeim afleiðingum, að mikill leki kom að hemni. Björgunarbát og fleka var í sikyndi hrundið á flot og komust þau í þá, þar eð hvalirnir voru horfnir á braut. Skömmu síðar sökk skúta-n og flekanum var sleppt þar sem báturinn neegði þeim, þótt hann væri ekki nema 10 feta lamgur. Skipbrotsmennimir nærð- ust á skjöldbökukjöti og blóði, fiski og regmvatni. Það var nokkuð aí þeim dregið þegar japanska skipið fann þá, en þeir gátu þó allir gengið frá borði í Panama. stjórnina. Godber, aðstoðarut- ainríkisráðlierra varð fyrir svör- um. Hann sagði, að brezka stjórnin harmaði það mjög að það hefði reynzt ókleift að ná bráðabirgða- sa-mkomulagi 1 Reykjavík. Brerfca samninganefndin hefði gert sitt ítrasta tii að koma til móts við íslenzk stjómvöld hvað smertir verndun fiskistofna og hún hefði einn-ig tekið tillit til sérstöðu Islands sem strandrík- is. Aðstoðarráðherrann sagði, að samninganefndin hefði lagt fram margar tillögur, sem miðuðu að því að takmarka afla brezkra skipa á meðan islenzk skip héldu sinum afla óskertum. Sið- asta tiliboðið hefði jafnvel minnk- að afla brezkra skipa um 30% miðað við 1971. Þvi miður hefði jafnvel þessu verið hafnað. Hann sagði, að fyrsta tilboðið, sem íslendimgar lögðu fram í þessari viku, myndi hafa haft í för með sér að aflá brezkra skipa mimmkaði um 80%. Eng- in brezk stjóm gæti gengið að slíku. Ráðherrann sagði, að frekari tilboð íslendinga hefðu einnig verið óaðgengileg og því ekkert samkomulag náðst. Brezka stjómin væri áfram reiðubúin til að taka til athugunar öll frekari tilboð frá íslenzku stjóm- inini um bráðabirgðalausn, en stæði jafníramt fast á rétti brezkra skipa til veiða utan nú- verandi 12 mílna fiskveiðilög- sögu. Hann sagði eirrnig, að brezka stjórnin myndi leggja rnálið þegar íyrir Alþjóðadóm- stólinn í Haag og biðja hann um tiHögur um bráðabirgðalausn, sem báðir aðilar virtu þar til endanleg lausn fengist á deil- unni. McNamara sagði þá, að ráð- herranum væri kunmugt um ótta þann, sem rikti í Hull vegna aðgerða íslenzku stjómarinnar ög spurði hvort brezka stjórn- in myndi grípa til nauðsynlegra ráðstafana til þess að togaramir gætu haldið áfram veiðum og hvort næg skip væru til verndar- starfanna. Hann spurði einnig hvort stjómin hefði í hyggju að grípa til einhverra refsiaðgerða gegn Islandi og hvort sam- staða væri í því efni miili brezku stjómarinnar og annarra landa, sem þetta hefði áhrií á. Godber svaraði því til, að hon- um væri vissulega kunnugt um hversu alvarlegt þetta væri fyrir sjávarútveginn i Hull og öðrum borgum. Stjórnin vildi hins veg- ar biða úrskurðar frá Haag. Hann vildi ekki ræða herskipa- vernd að svo stöddu. Fleiri þingmenn tóku til máls og voru spurningar og svör í líkum dúr. ÓRÉTTLÁTAR KRÖFUR ÍSLANDS I forystugreinánrw segir m.a., að fsland ætli að færa út fisk- veiðilögsögu sina án tiMits til þeirra samninga, sem það hafi gert. Það sé svo ákveðið i að hafa sitt fram, að það neiti að hlíta úrskurði Alþjóðadómstóls- ins í Haag, eins og það hafi þó samið um áður. Fiskur sé þegar nógu dýr i Bretlandi og nýjar takmarkanir yrðu aðeins til þess að hækka hann. Blaðið segir, að Islendingar hafi nokkuð til sáns máls. Þeir séu miklu háðari fiskveiðum en Bretland og Vestur-Þýzkaland, sem séu þau tvö lönd, sem þetta hafi mest áhrif á. En þetta hafi ailtaf verið viðurkennt. íslendingar haíi einnig talað um verndun fiskstofna og einnig i þvi hafi stjómir hinna land- anna tveggja sagt sig reiðubún- ar til að hlita öllum sanngjörn- um skilyrðum. Bláköld stað- reyndin sé hins vegar sú, að ekk- ert liggi fyrir sem renni stoðum undir þá kenningu, að þessi fiski- mið séu ofveidd. Þvert á móti sé það tilgangur íslendinga að fá bara sem mestan afla sjálfir til að nýta hinn mjög svo arð- bæra Bandaríkjamarkað. Blaðið rekur nokkuð gang samningaviðræðnanina frá sjón- armiði Breta og segir, að sáðast hafi verið rætt um að skipta hafinu í svæði, sem mætti veiða á. Brezka stjómin hefði því að- eins getað fallizt á þetta að það sviptá ekki brezk skip 80% af afla þeirra, eins og tillögur Is- lendinga fælu I sér. Þar standi hnifurinn nú i kúnni. Biaðið segir þvi næst, að nú á dögum sé það ailtaf mögulegt fyrir Mtið land að nýta sérstöðu sína til að vera óréttáátt í garð stærri nágranna sinna. Hugsun- in á bak við það sé sú, að það sé hægt að komast upp með svoleiðis framkomu vegna þess, að landið er lítið. 1 þessu tilviki muni Bretar leita bráðabirgða- lausnar hjá Alþjóðadómstólnum í Haag, sem verði í gildi þar til endanleg lausn fæst. Það sé ekki síður hagur íslands að endanleg lausn náist með samningum. í «tuttumáli JOHNSON VEIKUR Washington, 25. júli NTB Lvndon B. Johnson fyrrver- andi forseti hefur verið flutt- ur í sjúkrahús í San Antonio i Texas. Hann kvartar yfir brjóstverk, en veikindi hans eru ekki talin alvarleg. RÚMENI FLÝR Múnchen, 25. júlí NTB Nítján ára rúmenskur stúd- ent, sem hefur tekið þátt í kappróðramóti í Múnehen, hef ur beðið um hæli í Vestur- Þýzkalandi sem pólitískur flóttamaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.