Morgunblaðið - 28.07.1972, Side 2
2
MQRGU’NBLAÐIÐ, FÖSTUÐAGUR. 28. JÚLÍ 19T2
L.andhelgiskvikmyndin:
23 sjónvarpsstöðvar
vilja fá sýningarrétt
- m.a. í Kína, Ástralíu og Bretlandi
Þótt veður hafi verið þungbúið það sem af er júlímánuði á
Suðvesturlandinu, þá eygja menn þó enn vonina um að sumarið
fari að sýna sínar betri hliðar. Við fréttum t. d. á skotspónum
að örlítiU sólargeisli hefði hrotizt niður úr skýjunum á Kjal-
arnesi í gaer, og birtum þessa mynd, sem tekin var í mynni
Hvalfjarðar, af því tilefni, — svona rétt til þess að minna
menn á að sólin er þarna einhvers staðar uppi ennþá.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Fjallvegir
flestir færir
% 23 SJÓNVARPSSTÖÐVAR víða
iiiu heim hafa nú pantað
eintak af kvikmynd þeirri, sem
ríkisstjórnin hefur Iátið gera til
kynningar á landhelgismálinu.
Ber myndin nafnið „Tlie living
Höfn, Hornafirði, 27. júlí.
UM hádegisbilið í dag kviknaði
í báti hér við bryggjuna og urðu
verulegar skemmdir af völdum
eldsins. Bátur þessi, Þerney KE
33, er eign nýstofnaðs hlutafé-
lags hér á staðnum, Sigurðar
Ólafssonar h.f., og var hann
keyptur hingað í maí sl. af Hrað
frystistöð Keflavíkur.
Mjög erfiðlega gekk að slökkva
eldinn. Lá báturinn fjórði í báta-
röðinni, og var reykur svo mik-
ill, að reykkafarar áttu í erfið-
leikum með að komast niður í
hann. Eldurinn kom upp bak-
borðsmegin í lúkar, en eldsupp-
tök eru ókunn. Slökkvistarfinu
lauk um kl. 1.30, og var bátur-
inn þá dreginn að bryggju þar
Sigrún Magnúsdóttir,
kauþfélagsstjóri.
Fyrsta konan
kaupfélagsstjóri
HINN 1. júlí urðu kaupfélags-
stjóraskipti hjá Kaupfélagi Bitru
íjarðar -á Óspakseyri er Einar
Magnússon lét af þvi starfi, en
við tók Sigrún Magnúsdóttir frá
Þambárvöllum. Þetta mun vera í
tfyrsta skipti sem koma verður
kaupfélagsstjóri hér á landi, en
hins vegar hafa nokkrar konur
gegnt útibússtjórastörfum hjá
'kaupfélögum.
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Ak-
ureyri efna til aumarferðar n.k.
sunnudag. Fararstjóri er Jón G.
Sótrtes bæjarfuflltrúi en ávarp
flybur Lárus Jónsson alþingis-
máðíjr.
Farið verður úni Mývatrussveít,
Laxárdal og Laxárvirkjun skoð-
sea“, eða hinn lifandi sjór, og
er hún boðin til sýningar að
kostnaðarlausu. M.a. hafa sjón-
varpsstöðvarnar tvær í Bretlandi,
BBC og ITV, pantað sitt hvort
eintakið af filmunni.
sem miklúm sjó hafði verið
dælt niður i hann.
Tjón þetta er mjög tilfinnan-
legt fyrir hið nýja útgerðarfé-
lag, og má búast við að endur-
nýja þurfi verulegan hluta af
skipinu framanverðu. Auk þess
misstu skipverjar þarna
föggur sínár, að undantekinni
eínni peysu, sem var alveg ó-
skemmd þótt hún hefði verið
nærri þeim stað, sem áætlað er
að eldsupptök hafi orðið.
Þerney hafði verið gerð út á
humarveiðar, og þann tvo og
hálfa mánuð, sem skipið hafði
verið við veiðar, hafði verðmæti
aflans numið rúmum tveim millj
ónum króna. Skipstjóri á Þern-
ey er Óskar Guðmundsson..
YFIRHEYRSLUR eru hafnar á
ný í Hamranesmálinu, eftir að
saksóknari ríkisins sendi það
aftur til bæjarfógetaembættisins
í Hafnarfirði með ósk um saka-
dómsrannsókn. Þau atriði, sem
saksóknari lagði hvað mesta
áherzlu á að yrðu rannsökuð ít-
arlegar, eru annars vegar fjar-
skiptin við skipið og hins vegar
fjármál útgerðarinnar og eig-
endanna.
Segulbandsupptökur eru til af
fjarskiptum við Hamranesið,
bæði dagana áður en skipið
sökk, og einnig eftir kl. 17, þeg-
ar sprengingin varð í skipinu.
Það vakti m.a. athygli á sínum
tima, hversu lítil fjarskipti áttu
sér stað eftir að sprengingin
varð, og var það þá einkum
Gufunes-radíó, sem hafði frétt
um að skipið ætti í erfiðleikum
og fór að kynna sér málið.
Saksóknari hefur einnig farið
fram á nákvæmari rannsókn á
fjárreiðum útgerðarinnar, trygg-
ingarmálum hennar, og svo einn
ig á fjárhag eigenda skipsins.
— Þrir menn sitja í gæzluvarð-
haldi vegna þessa máls, tveir í
uð. Kynntar verða virkjunar-
framkvæmdir, en hádegisverður
snæddur í Hótel Reynihlíð.
Þeir, sem hug hafa á að fara
í ferðina., geta snúið sér til skrif
stofiu Sjálifistæðisflokksins á Ak
ureyri.
Þær sjónvarpsstöðvar, sem
pantað hafa eintök eru í Hong
Kong, Nýja Sjálandi, sem nú
er í þann mund að færa fisk-
veiðilogsögu sína út í 200 sjó-
mílur, Pakistan, Kenya, Sierra
Leone, Trinidad and Tobacco,
Bretlandi, Ástralíu, Uganda, Kín
verska alþýðulýðveldinu, Sví-
þjóð tvö eintök, Rúmeniu, Tékkó
slóvakíu, A-Þýzkalandi, Dan-
mörku, Noregi, Colombíu, Equa-
dor, Albaníu, Ungverjalandi og
Póllandi.
Kvikmynd þessi var boðin út
með ensku tali annars vegar, og
með alþjóðlegu hljómbandi hins
vegar, þannig að sjónvarpsstöðv
ámar gætu látið tala textann inn
á myndina á viðkomandi máli.
Sigurður Sverrir Pálsson, kvik-
myndagerðarmaður, er nú í
Englandi við að ljúka klippingu
myndarinnar, en sýning hennar
,á að taka 11 mínútur. Stjóm-
andi upptökunnar var Eiður
Guðnason, en Magnús Magnús-
son, starfsmaður BBC í Skot-
landi, veitti ýmsar leiðbeining-
ar við gerð kvikmyndarinnar og
talaði jafnframt inn á hana
enska textann.
Hannes Jónsson, blaðafull-
trúi ríkisstjómarinnar, sagði í
viðtali við Mbl. í gær, að hann
byggist við að fleiri sjónvarps-
stöðvar myndu sækja um að fá
eintak til sýningar, m.a. hefðu
Finnar ekki enn sent inn um-
sókn.
40 daga, skipstjórinn og annar
af eigendum, og einn í 14 daga,
maður sem hefur haft hönd í
bagga með útgerðinni. Gæzlu-
varðhaldsúrskurðinum hefur
ekki verið áfrýjað. Réttargæzlu-
menn þessara þriggja manna
eru Árni Grétar Finnsson, hrl.
og Þorsteinn Geirsson. hrl.
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt eftirfarandi athugasemd frá
Valgarð Thoroddsen og Hjalta
Þorvarðssyni, sem sæti eiga í
stjórn Sambands íslenzkra raf-
veitna:
„Stjórn Sambands íslenzkra
rafveitna (SÍR) sendi hinn 26.
júM sl. frá sér álykbun um raif-
orkumál, sem mun vera birt í
nokkrum diagblöðum.
Ályktunin felur í sér ádeilu á
stefnumörkún rikisstjórnarinnar
vegna þingsályktunartillögu um
raforkumál, sem lögð var fyrir
síðasta Alþingi, framkvæmd
þeirrar stefnu, ásamt ádeilu á
þá ákvörðun að leggja há-
spennulími milli Akureyrar og
Skagafjarðar.
Af þessu tilefni vilja undir-
ritaðir stjórnarmeðlimir geta
þess, að sitjómarfundur var ekki
haldinn um málið, þrátt fyrir
ósk ókkar, en samþykkt meiri
hliuta fengin með simtölum gegn
vilja okkar.
S t j ó rn ar fo rmann i var send
njeðangreind athugasemd Val-
garðs Thoroddsen meðan á um-
FJALLVEGIR á landinu eru nú
flestir hverjir orðnir færir tii
timferðar samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem Mbl. fékk hjá
Vegaeftirlitinu í gær. Þá eru og
þjóðvegir á landinu víðast hvar
í góðu ástandi. Fer liér á eftir
yfirlit um ástand lielztu fjall-
vega á landinu.
Kjalvegur er nú þegar orðinn
fær öllum bílum, og sömu sögu
er að segja um vegina upp í
Kerlingarfjöll og að Hagavatni.
Sprengisandsleið er orðin fær, en
á leiðinni eru tvær ár, Grjótá og
Mjóadalsá, sem gera það að
verkum, að leiðin er ekki fær
öllum bílum.
Af Sprengisandsleið er fært
niður i Skagafjörð um Laugar-
fell bílum með drifi á öllum
hjólum. Hins vegar er ekki fært
af Sprengisandsleið niður í Eyja
fjörð um Hólafjall vegna bleytu.
Fært er velflestum bilum inn
ræðum stóð:
„Á aðalfundi SlR, höldnum á
Akureyri 29. og 30. júni sl„ var
tekin til umræðu tiHaga að
þingsályktunartiHögu, sem lögð
var fyrir síðasta Alþin’gd.
Málið var tekið tii athugunar
í umræðuhópum, sem síðan skil-
uðu skýrslum á aðalfundinum.
Fram komu ýmis sjóna-rmið,
en engin samþykkt var gerð á
fundinum og ákveðið að taka
málið fyrir að nýju á fundi, sem
boðað yrði til í haust. Málið
var því ekki afgreitt.
SÍR heíur þvl að svo komnu
máli ekki tekið neina afstöðu
tH þinigisályktunarttiHögunnar, og
tel ég því stjóm SlR ekki hafa
umboð til stefnuyfirlýsingar
varðandi hana.
Ennfremur tel ég það utan
verkahrings stjórnar SlR að
taka afstöð-u ttl einstakra fram-
kvæmda meðlima sambandsins,
sbr. skrif hennar uim línulagnir
Rafmagnsveitna rlkisins milli
Akureyrar og Varmahlíðar.“ “
Hjalti Þorvarðsson
Valgarð Thoroddsen.
í Jökulheima, Landmannalaugar
og Veiðivötn. Ekki er fært um
Fjallabaksleið nyrðri, Jökuldali,
nema bílum með fjórhjóladrifi.
Gæsavatnaleið er ekki enn orð*
in fær vegna snjóa, en hins veg-
ar er fært inn að Herðubreiðar-
Hndum og að Öskju að norðan-
verðu, ef farið er að Jökulsá,
upp með Hrossaborg og þar suð
ur. Sú leið er flestum bílum
fær.
Hólmatungur, milli Austur-
landsvegar, austan Námaskarðs
og Þingeyjarsýslubrautar við
AxarfjÖrð, er aðeins fær jeppum.
Þá er hægt að komast á jepp-
um inn í Lakagíga um Holt á
Síðu. Tröllatunguheiði, frá
Króksfjarðarnesi yfir að Stein-
grímsfirði er fær öllum bílum.
Loks er rétt að geta þess, að
fjallvegirnir í nágrenni Reykja-
vikur, Uxahryggir og Kaldidal-
ur, eru færir öllum bilum.
Kristín Vilhjálnisson
Kristín Vilhjálms-
son látin
KRISTÍN Vilhjálmsson, ekkjia.
Guðmiundar Vilhjálmssonar for:
stjóra Eimskips, lézt i( gaer, 73ja
ára að aldri. Hún var dóttir
Thors Jensenis, framikyæitpdai-
sitjóra og Margrétar koniu lnana.
Hornaf jörður:
Bátur skemm-
ist af eldi
Sumarferð Sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri
— Elías.
Hamranesmálið:
Fjarskiptin og f jár-
reiður útgerðarinnar
— í ítarlegri rannsókn
að ósk saksóknara
Athugasemd við
ályktun SÍR