Morgunblaðið - 28.07.1972, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1972
23
Hulda Bjarnadóttir:
Er Fischer heilög kýr?
Mörmum hefir orðið tíðrætt
um Fischer og hegðun haus í
sambaruli við skákeionvigið, og
flestir verið sammála um að for-
dæma hana. Þó eru til þeir Is-
lendingar, svo skoplegt sem það
er, sem vart mega vatni halda
af einskærri samúð og vorkunn
semi með manninum og keppast
um að afsaka hann og gerðir
hans, taka undir kröfur hans og
jafnvel auka við þær, og var þó
nóg komið. Þeir rembast við það
eins og rjúpan við staurinn að
reyna að upphefja yfirmáta
frekj'Ulega framkomu Fischers á
eitthvert yfirskilvitlegt plan
honum til afsökunar. Maður hef
ur það á tiifinndngunni að þeir
séu komnir með sálina úr hon-
um í skjóðu, eins og kerlingin
forðum, og hampi henni titrandi
höndum segjandi: „inn skal
hún samt“. Það er engu líkara
en Fischer sé einhver heilög
kýr, sem ekki má blaka við.
Aftur á móti virðist enginn
láta sig hag Chester Fox
nokkru skipta. Hann hefir þó,
að eigin sögn, lagt allar eigur
sinar að veði til þess að geta
tekið verðuga kviikmynd af
þessu Skákeinvígi aldarinnar.
Það er stundu-m skritið þetta
með samúðina. Og eftirtektar-
vert er, að á meðan ýmsir Is-
lendingar eru að bera í bæti-
fláika fyrir Fisaher hafa margir
landar hans séð sig knúða til
þess að biðjast afsökunar á
framferði hans.
Sannleikurinn er sá, að fram-
koma Fischers hefir verið fyr-
ir neðan allar hellur og engin
ástæða til að draga fjöður yfir
það, enda mun hún geymast á
spjöldum sögunnar svo lengi
sem skáklistin verður í heiðri
höfð. Og þó að við Islendingar sé-
um bæði fáir og smáir, þá eru
takmöíd'k fyrir því hverju við
getum kyngt þegjandd og hljóða
laust, frá útlendingi, þótt skák
sniliingur sé, sem við höfum tek
ið á móti með kostum og kynj-
um og dekrað við svo með ein-
dæmum má teljast.
Þetta skákeinvígi er haldið
hér á landi einfaldlega vegna
þess, að tilboð Islendinga var
(hagstæðast fyrir keppendurna
eins og komið var, enda tíu sinn
um hærra en þekkzt hefir áður í
skákheiminum. Skáksamband Is
lands hefir gert allt sem í mann
legu valdi stóð til þess að gera
þetta einvigi. og allar aðstæður
í Laugardalshöllinni eins vel úr
garði, og ég vil segja betur en
nokkum gat órað fyrir, og
hafa stórmeis tararn i r hver af
öðrum og aðrir kunnáttumenn,
bæði erlendir og innlendir, lok-
ið upp einum munni um, hve allt
væri þar til fyrirmyndar.
EJn menn verða að halda leik
reglur, jafnvel þótt þeir séu
skáksnillingar og helzt að kunna
einhverja mannasiði, eins og í
öðrum íþróttakeppnum. Skák
sambandið greiðir keppendum
miklar fjárhæðir og leggur í gíf
urlegan kostnað ti'l þess að
halda þetta mót, og gefur þar
með skákköppum tækifæri til
þess að leiða saman hesta sána
og láta ljós sitt skína. I stað-
inn hlýtur það að vera skýlaus
krafa ekki aðeins Skáksam-
bandsins heldur og alira Islend-
inga, að heimsmeistaraeinvígið í
Til sölu
Ford Galexei 1966 V 8—289 cobic. Sjálfskiptur, vökvastýri,
powerbremsur, sjálfútíherzlur á bremsum, splittað dríf, Vinyl-
toppur, ný dekk, útvarp og 8 rása stereo, skoðaður '72.
Upplýsingar í síma 30972.
Viðurinn iengi lifi
Sadolin
Verjið við yðar á áranguírsríkan hátt gegn
afhöggi, fúa og vatni. Annars eyðileggst
hann og tapar sinni fallegu áferð.
Veljið: GRUNDTEX til notkunar í fyrsta
sinni á nýjan og óunnin við.
PINOTEX litlaust og í 13 blæbrigðum til
frekari yfirferðar.
TOPTEX til lokayfirferðar og viðhalds.
Fáið: Ókeypis bækling — „Góð ráð um viðar-
vörn“.
Sadolin
skák fari fram fyrir opnum
tjöldum, eins og aðrar hliðstæð-
ar íþróttagreinar, en ekki fyrir
luktum dyrum, og Che&ter Fox
fái að kvikmynda keppnina e'ns
og hann lystir. Ef keppendur eru
ekki færir um að tefia við þær
aðstæður, sem fyrir heindi eru,
eru þeir ekki færir um að taka
þátt í keppni sem þessari, eða
ættu þá að minnsta kosti að
gera það á eigin kostnað.
Þó að Skáksambandið hafi
náð svo góðum viðskiptasamn-
ingi við Chester Fox, að hann
hafi hálfan vinninginn en allt
tapið, vegna þess að enginn hef-
ir búizt við þessu kvikmynda-
vandamáli, sem upp kom, þegar
samningar voru gerðir, sérstak-
lega þar eð Fischer sjálfur hafði
haft af því áhyggjur miklar að
sögn, að almenningur I
Bandarikjunum gæti ekki
fylgzt nægjanlega vel með
einviginu hér á hjara heims,
væri það ekki vansalaust fyrir
Islendinga, ef Fox þyrfti að
fara héðan án þess að bera
nokkuð úr býtum nema fyrir-
höfnina.
Vissulega er það ósk flestra
Islendinga, að einvígið geti hald
ið áfram, en þó þvi aðeins, að
það geti orðið með fuilum virðu
leik og í sönnum íþróttaánda,
þannig, að það verði samnkall-
að Skákeinvígi aldarinnar en
ekki Skripaieikur aldarinnar.
ALLTAF EYKST VÖRUÚRVALIÐ
SJÁIÐ SJALF!
Blússur úr indverskri bómuil ú stelpurnur
• Berjaklasar og alpahufur
• Köflóttar unisex-skyrtur
• Munstruð herranærröt
• Bikininærföt á ungu stelpurnar
• Þægilegir frottékjólar
• Köflótt kvenjakkaföt
• Buxur úr burstuðu denim
• Jakkar úr burstuðu denim
• Flauelsjakkar
• Flauelsanorakkar og blússur
• Matrosajakkar og blússur
• Flerraskyrtur í úrvali
• Dömublússur
• Túníkur í stórum stærðum
• Fullt af nýjum peysum.
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD.
OPIÐ A LAUGARDÖGUM.
Allt í íerðalagið:
Tjöld, svefnpokar,
gastæk.i o. fl.
Sendum í póstkröfu.
Símí 30980.
★
Úrval í matvörudeild.
Munið viðskiptakortin.
★
Allt á einni hæð.
HAGKAUP
Skeifunni 15.