Morgunblaðið - 01.09.1972, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. SEPTBMBER 1972
Landhe
Togarinn stoppaði
við þrettánda skot
Spjallað við elzta starfs-
mann landhelgisgæzlunnar,
Gunnar V. Gíslason
Sá sem lengst liefur starfað
Iijá Eandhelgisffæzlunni þeirra
starfsmanna, sem enn vinna þar
er Gunnar V. Gíslason. Hann
réðat til gæzlunnar 1926, þeg-
ar rikið keypti varðskipið I»ór
af Vestmannaeyinffum og: varð
þft 3. stýrimaður á skipinu, en
hafði áður verið háseti á þvi í
Eyjum. Gunnar var samfleytt
30 ár á skipum landhelgisgæzl
unnar, en frá árinu 1956 hef-
ur liann unnið ýmis störf í
landi á veg’um gæzlunnar og
hefur m.a. unnið að eyðingu
tundiirdufla. Gunnar var ýmist
skipstjóri á Ieigubátum gæzl-
unnar eða stýrimaður á stærri
varðskipunum fram til ársins
1945, en þá varð hann skip-
herra S Óðni og var með hann
þar til hann fór í land. Gunnar
er nú 73 ára og að mestu (hætt-
ur fið vinna. Morgunblaðið
liitti Gunnar að máli og bað
liann að rifja upp nokkur at-
vik úr starfsferli sínum hjá
Landhelgisgæzlunni. Við spurð
um Gunnar fyrst hvort hann
myndi eftir verulegum átökum
við landhelgisbrjóta frá fyrstu
árum sínum i gæzlunni.
— Ekki man ég eftir að veru
leg átök yrðu á þeim árum. Að-
alvandinn á smáskipunum var
að ná togurunum. T.d. varð allt
af að leggja Óðni (II) að tog-
urunum úti á rúmsjó og það
var oft erfitt í vondum veðr-
um. í>á var ég oft hræddur um
mennina, þegar þeir voru að
stökkva á miMi skipanna. í>ess
ir togarar voru allir útilendir,
nær eingöngu brezikir, og þeir
reyndu nokkrir að stinga af.
Eina ráðið til að handsama þá
var að leggjast upp að þeim.
— Þú varst lengi skytta með-
an þú varst stýrimaður?
— Já. Einu atviki man ég sér-
staklega vel eftir, þá var ég á
>ór (II) og Eiríkur Kristófers-
son var skipherra. >á rákumst
við á enskan togara, sem var
að toga bókstaflega uppi
í landsteinum á Skjálfanda.
>egar hann sá okkur, setti
hann á fulla ferð út og við elt-
um, en ekkert dró saman með
okkur. >á skaut ég 12 skotum
á togarann, en færið var of
langt, svo þau hittu ekki. Tog-
arinn stoppaði ekki, en þrett-
ánda skotið fór á milli brúar
og reykháfs í þann mund, sem
skipstjórinn var að ganga nið-
usr brúarvænginn. Hann sá þá
fyrst sitt óvænna og stoppaði,
og náðum við honum.
— >ú hetfur orðið fyrir ým-
issi reymslu á sjónum?
— Já, en ég var alltaf ein-
staklega heppinn, varð aldrei
fyrir óhappi, strandaði aldrei
og missti aldrei mann. >að var
einstakt lán. >að var oft eins
og maður væri leiddur. Einu
sinni var ég á leigubát frá Isa-
firði, Ríkharð, og við vorum að
leita að liitlum landróðrabát,
sem ekki kom fram á tiisettum
tíima. Veður var afleitt, dimm-
viðri, stormur og stórsjór og
við leituðum alla nóttina úti
fyrir Djúpinu árangurslaust.
Með morgninum fórum við í
var til að átta okkur á hvar
við værum og fá okkur að
borða, en áður höfðum við nóg
Gunnar V. Gíslason.
að gera við að halda okfcur og
gátum ekki sinnt því. Ég fór
inn í kortaklefann til að hug-
leiða hvert bátinn, hefði getað
rekið. Urn tvær stefnur gat ver
ið að ræða, inn Djúpið, eða vest
ur með lamdinu. Meðan ég var
að gera upp við mig í hvora
áltina skyidi halda, var skip
ið allt í einu komið á fulla ferð
inn Djúpið. Enginn hafði
hringt véisímanum, en þegair ég
Jeit fram var harnn kominn á
fulla ferð áfram. Ég varð for-
viða en ákvað að láta slag
standa og halda i þessa átt. Og
það leið ekki á löngu áður en
við fundum bátinn, en hann
hafði þá rekið iskygg'ii'ega ná-
lægt lamdi.
>etta var stórskrítið, en ann
ars heid ég að emgimn
bátur sem ég var að leita að
sem skipstjóri hafi farizt, þótt
við værum ekki al'ltaf svo
heppnir þegar ég vár stýrimað
ur. Ég trúi þvi, að þetta hafi
verið yfirnáttúrleg handleiðsla.
ÚTVEGSMENN
Fyrirliggjandi vökvavindur af mörgum stæröum og gerðum
fyrir línu, net og hringnót, einnig tilheyrandi dælur.
Framleiðum einnig:
Frystitæki
ísvélar: 8 tn - 13 tn - 20 tn
Spjaldþjöppur
og fleira tilheyrandi frystiiðnaði.
Stálgrindahús:
7,5-10-12-15-20 m breið
Önnumst einnig alla viögeröaþjónustu í járniðnaði varöandi
báta, skip, frystihús og ýmislegt annað.
SELJAVEGI 2 - SÍMI 2 42 60.
>*
^m/pha
DIESELVÉLAR
Siðan 1898 hafa verið
framleíddar 8.500
B&W ALPHA vélar.
Það er ekki aðeins díeselvélin sjálf...
— heldur allt sem til þarf
til að knýja skipið áfram
'k
Type 400-26V0
300-900 hestöfl
B&WALPHA aðalvé!:
Tvígengis, ventlalaus
dieselvél, beint tengd,
ásamt skiftiskrúfu og
fjarstýringu.
Type V23HU
1000- 2250 hestöfl
B&WALPHA aðalvél:
Fjórgenglsvél, meðal-
hraðgeng, með niðurfærslugear.i
j skiftiskrúfu og fjarstýringu.
V"
Allt þetta framleiðir Alpha
»allt frá eirini og sömu verksmiðjú -
- eitt þjónustukerfi fyrir allt -
Framleiðsla B&WALPHA dieselvéla nær
tveggja eða fleiri véla.
ALPHA- DIESELAs
FREDERIKSHAVN ■ TELEGRAM - ADR.: ALPHA FREDERIKSHAVN • TELEX:9783