Morgunblaðið - 01.09.1972, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.09.1972, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1972 Kafli úr ævisögu Einars ríka, þar sem sagt er frá töku þýzks togara „Sjóorrusta við V estmannaey j ar “ En erfiðustu störfin og þau, sem kölluðu á mesta karl- imennsku, voru togaratökurnar og eltingarleikur við útlenda veiðiþjófa. Ekki tókst nú alltaf svo vel til, að sökudólgurinn næðist. Flestir sluppu. Einstaka náðust á miðunum. Nokkrum sinnum heppnaðist að handsama landhelgisbrjóta, þegar þeir leit- uðu hafnar í Eyjum. Áður höfðu verið tekin af þeim nöfn og númer. Við togaratökur var larið með mannsöfnuð um borð, svo að þjófarnir kæmu síður vörnum við. Oft urðu samt hörð ótök, þegar Eyjamenn leituðu uppgöngu i togara. Magnús Guðmundsson í Hlíð- arási sagði mér eftirfarandi af togaratöku við Vestmannaeyjar: „Á aðra viku voru togarar búnir að gera feikna tjón á veiðarfærum inni á Ál. Ég var ó sjó eins og fleiri góðir menn hér í Eyjum, en missti mikið af veiðarfærum. Þó lenti ég ekki í versta tjóninu. Þeir toguðu óhik að yfir veiðarfærin og þarna voru margir togarar. Það var áliðið kvölds. Ég átti ógert að 300 fiskum. Þá kemur til mín Sigurður Sigurfinnsson, hreppstjóri, og biður mig að koma með sér „að taka togara". Ég sagði strax, að mér litist ekki á það. „Ó, jú, Magnús minn, við skulum reyna, hvað við getum. Það ætti þó alltaf að vera hægt að reka þá af miðunuim og kæra þá.“ Ég sagði, að ég héldi, að nógu margar kærur væru komnar í land, því að margir væru búnir að kvarta og klaga. Þeir gerðu aliar kúnstir, breiddu yfir núm- erin, tjörguðu yfir þau, svo að il.lt væri að festa reiður á þeim. Stundum fór þó svo, að nafn og númer á þeirn náðust, Vöruðu ||>eir sig þá ekki á okkur, fyrr len um seinan. Þá segir Sigurður: „Það þýð- ir ekkert að fara með neinar skræfur. Svo framarlega sem við fáum menn, þá gerir þú það, Magnús, að koma." Sýslumaðurinn hafði komið með Sigurði og sagði nú: „Þið fáið gott kaup.“ „Og hver verður fyrir þessari ferð?“ segi ég. „Það verð ég,“ segir Sigurð- ur. „Og hvað! Kemur sýslumað- urinn ekki með?“ segi ég. „Nei, ekki strax.“ „Verður enginn I einkennis- búningi?" „Jú,“ segir sýslumaðurinn, ég fæ Sigurði minn búning.“ Þeir fóru svo frá mér, að ég lofaði engu. Svo sé ég, að Sig- urður kemur aftur nokkru seinna og sý^iumaður labbandi dálítið á eftir. Þó var ég búinn að skurka töluvert í fiskinum. Sigurður spyr mig, hvort ég ætli ekki að koma með sér, þetta sé alveg hættulaus för. „Hvernig ætlar þú að hafa þetta?“ „Hugmyndin er að ná skipinu heim. Ég er búinn að fá sex og hef kannski von um sjöunda manninn, en þeir eru tregir til að fara“. Það voru Junkarabræðurnir, Kristinn og Stefán Ingvarssyn- ir, hann var lengi að ná í þá, það vissi ég. Þeir vildu helzt ekki fara í ferðina, þeim leizt ekki á hana. Guðni Johnsen var túlkurinn okkar, svo var Ámi Johnsen, Þorgeir í Skel og Árni Sigfússon. „Þú gerir það fyrir okkur að koma, Magnús,“ segir Sigurð- ur. „Ég er hræddur um, að ferð- in geti tekið nokkuð langan fwna. Ójú, ætli það sé ekki rétt, að ég ko»ni.“ Mér þótti hálf leið- inlegt að neita að fara, það var eins og ég þyrði ekki. Og svo, þegar þessir menn beiddu mig, sem ég virti báða, gat ég ekki neitað. Þegar ég kom niður á bryggju, var allt tilbúið. Ég var þetta seinn. Þeir voru með handspækur, llkastar stýrissveifum á opnum bát, og átti að nota þær sem barefli til að lúskra þeim með og verja okkur. Við höfðum tvær byssur, Árni Sigfússon hafði aðra þeirra. Annað höfð- um við ekki að vopni. Sveinn Jónsson á Landamót- um átti bátinn, sem við fórum á, og var formaður á honum, og voru með honum fjórir hásetar hans. VAR ME» VÖRPUNA ÚTI Þegar við lögðum af stað, gerðum við þá athugasemd við sýslumanninn, að annar bátur yrði sendur effir vissan tíma, þegar þá færi að lengja eftir okkur. Sýslumaður lofaði þessu. Mér finnst nú, að þeir hafi vorið blindir, að leggja þannig á stað með eina ferjukuntu. Þeim var í lófa lagið að setja okkur í poka. Ég héld, að ég hefði ekki látið Vestmanneyinga fara svona með mig í þeirra spor um og látið þá taka mig í land- helgi. Nú fórum við af stað og héld- um að sjá á Elliðaey. Skip var að toga í landnorður af eynni. Sigurður sagði okkur, er við vorum komnir skammt norður af Elliðaey, að koma niður í lúk- arinn á bátnum. „Ég er að hugsa um, að við verðum hér allir niðri í lúkar, skipstjórinn gæti séð okkur í kíki, en látum há- seta Sveins vera skinnklædda uppi á dekki. Þá heldur hann, að þetta sé bátur að fara i róð- ur. Við skulum skipa okkur í fylkingu. Ég ætla að vera i stig- anum og sjá, hvernig skipinu líð ur og svo kalla ég: Einn, tveir, þrfr, og verða þá allir að hlaupa | í einni svipan beina leið upp á brú. Hana verðum við að verja duglega, því að ég geri ráð fyr- ir, að það verði þegar sótt hart að okkur. Þið verðið að vera við því búnir, að skipstjórinn og stýrknaðurinn séu í brúnni.“ Togarinn var með vörpuna úti. Við renndum með honum, og lengi vel dró hvorki sundur né saman. I bátnum hefur líklega verið 12 hestafla Dan-vél, svo að ekki var að búast við mikl- um hraða. Svo komumst við á móts við vantinn. Þá kallar Sig- urður til Sveins að skella sér að honum. Við vorum þá svo nærri honum, að í þessum töluðum orð um kallar hann til okkar: „Einn tveir, þrár,“ og allir voru í einni sivipan uppi á dekki og þegar komnir upp á brú, og vöruðu skipsmenn sig ekkert á okkur. Þeir hafa vist halldið, að Sveinn ætlaði að fara að sníkja fi®k hjá þeim. Sigurður skipaði nú Sveini frá skipinu og sagði, að hann mætti ekki vera í skotfæri, og fór hann strax í burtu. Nú erum við komnir upp og og kallar þá Guðni og spyr, hvar skipstjórinn sé. Enginn anzar. Þá spyr hann, hvar stýri maðurinn sé, og það er sama, enginn svarar. Guðni kallar þá niður í þvöguna, þar sem karl- arnir eru á dekkinu. Þar var fullt af fiski, og höfðu þeir ver- ið að gera að. Loks segir ein- hver, að þeir muni vera i korta klefanum inn af stýrishúsinu. 1 því koma tveir menn fram á brúna, og fer Guðni að tala við þá. „Við skulum stjaka þeim inn í stýrishúsið,“ segir Sigurð- ur, og gerðum við það. Við vor- um bara fjórir Eyjamenn; Sig- urður, Kristinn, ég og Guðni, því að hann varð alltaf að túlfca því að Sigurður kunni látið í . þýzku. í Skipstjórinn stappaði niður fótunum, bölvaði og ragnaði, og skipaði ofckur í burtu, þvi að hann hefði ráð á skipinu og þetta væri efckert yfiirvald, í mesta lagi lélegur lóðs. Það var ebki svo, að ég skildi þetta, en ég spurði Guðna að því strax, því að mig langaði til að fylgj- ast með öliu. Skipstjórinn hót- aði að fleygja okkur fyrir borð, og það gat hann vel, því að á skipinu voru 25—30 , menn, en við ekki nema 8. En ég er viss um, að þeir hefðu átt erfitt með ökkur, því að þetta voru hraustir, óhræddir karlar. Einn þeirra, Kristinn, var tveggja manna maki, og átti það eftir að fcoma í góðar þarfir. Skipstjórinn opnar gluggann og kallar til hásetanna og skip- ar þeim að draga fflagg i háilfa stöng og körfu neðan undir. Þeg ar Sigurður sér þetta, veit hann, hvað það merkir, því að hann var lærður sjómaður. Þá segir hann: „Magnús og Kristinn, ég bið ykkur að fara og skera þetta niður.“ Við • Kristinn fórum strax að stiganum. Á defckinu voru háset arnir og með hnifa í höndun- um úr aðgerðinnd. Þeir hótuðu að krosssfcera ofckur og mótuðu fyrir á brjóstinu á sjálfum sér til að sýna okkur, hver endalok okkar yrðu, ef við reyndum að fara niður á dekkið. Við fórum samt niður og inn l þvöguna. Ég setti hnefann fyr ir brjóstið á manni, sem var í vegi mánum, svo að hann hraut eftir dekkinu, og stöfck ég svo fram defcfcið. Kristinn tók í buxnarassinn og öxlina á öðr- um og senti honum út að öldu- stokfcnum. Þá sá ég, að hann var sterkur. Ég var með stóran sjálfsfceiðung, sem ég bar alltaf á mér, og brá honum á linuna, sem flaggið og karfan höfðu verið höluð upp á, svo að hvort tveggja féffl niður. Förum við svo í skyndi upp í brú aftur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.