Morgunblaðið - 01.09.1972, Page 9

Morgunblaðið - 01.09.1972, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1972 „Bretarnir kunnu ekki að teflau Ólafur Valur Sigurðsson rifjar upp, þegar níu varðskipsmenn voru fangar um borð í brezka herskipinu Eastbourne í septembermánuði árið 1958 Þes&i mynd var tekin af íslensku varðskipsmönnunum, sem voru í haldi um ÍMtrð í East- bourne í 11 daga. AÐALFRÉTT Morgunblaðsins 3. september 1958 var um þann atburð, er brezkt her- skip tók íslenzka varðskips- menn höndum, þar sem þeir voru að lögrg'æzlustörfiim um borð í brezkum togara. Aðeins einn þeirra níu manna, sem fluttir voru um þann atburð, erb rezkt lier- starfar enn hjá Landhelgisgiezl unni. I>að er Ólafur Valur Sig- urðsson, sem að undanförnu hefur verið stýrimaður og skip herra á flugvélum gæzlunnar. Mbl. hitti Ólaf Val og bað hann að segrja frá þessum ein- stæða atburði. — Þegar við hugðuimst sttga um borð í brezka togarann Northem Foam voru togara- menn mjög vigreifir og gerðu si/g lilkiiega til að ta'ka á móti oktour. En þeir varðskips- menn, sem um borð fóru voru mjög vel samæfðir og vanir að taka togara og komust fram hjá skipverjum og í brúna og tóku tagarann í einu vetfangi. Nokkru siðar kom brezka her- skipið Eastbourne að og setti menn um borð i togarann. Bret arnir stukku um borð i hala- rófu og siðan var sjöliðuim stillt upp í einfalda röð á dekk inu, meðan yfirmenn fóru i Ólafur Valur Sigurðsson. brúna. Bretarnir höfðu stál- hjálma og kylfur, en yfirmenn- irnir skammbyssiur. Við vorum allir óvopnaðir. 1 brúnni urðu síðan nokkur orðaskipti, en ekki önnur átök og lyktaði þeim með þvl, að við vorum færðir um borð i herskipið, þar eð skipherrann á f>ór, Eiríkur Kristófersison, neitaði að taka við okkur aftur og krafðist þess, að við yrðum látnir óáreittir við Okkar lötggeezlu- störf um borð í togaranum. Aðbúnaður okkar um borð í herskipinu var hinn sami og skipsmanna þar, sitýrimennirn- ir borðuðu og sváfu í vistar- verurn yfirmanna herskipsins, en við hásetarnir með brezku hásetunum. Tvisvar vorum við iokaðir inni, þegar skipsmenn voru kallaðir út til að vera fcil- búnir til orrustu, en í þau skipti var herskipið að stugga við ísilenzku varðskipunum. Um borð í skipinu var veQtferð- arfélag, sem var félag undir- manna, og kom það því til leið- ar, að okkur var heimilað að kaupa tvo bjóra á dag í skips- búðinni, af peningum þeim, sem okkur voru skammtaðir, en þeir voru jafnmiklir og stríðs- fangar fá. Ekki fengum við hins vegar rommskammt kl. 6 eins og Bretarnir. Þriðja hvern dag var okbur skammtað te og nokkrar aðrar vörur, sem venja mun að skammta í brezka sjóhernum. I skipinu fundum við tacfa i einum klefanum, en í ljós kom, að enginn skipverja kunni að tefla. Við kenndum þeim að tefla og þegar við yf- irgáfum skipið hafði algert skákæði gripið um sig um borð. Ekki held ég, að yfirmenn hafi verið mjög hræddir um að við hyirðum á skemmdarverk eða eitthvað þess háttar, miklu frekar held ég, að þeir hafi ver ið hræddir við snarvitlausan íra, sem þarna var hásetd. Hann kom stundum í heimsókn til okkar og vildi ólmur sprengja skiplð i íoft upp. Okkur var haldið í skipinu í 11 daga. Þá tilkynnti Ander- son skipherra okkur það, að eftir 2—3 daga mundi skipið halda til Londonderry og hann vildi helzt koma okkur í land, en annars yrði hann að sigla með okkur þangað og hleypa okkur i land þar. Sigldi hann síðan í myrkri upp að landi við Keflavik og þar var settur út áiraibátur og okkur skipað að fara uim borð í bátinn og róa i land. Við töldum eftir atvik- um rétt að fara um borð í bát- inn og róa til lands, en það tök um tuttugu minútur. Þegar litið er til baka á þessa aitburái má e.t.v. sagja að þeir séu ævintýri líkastir. Þessi reynsla hafði mjög misjöfn áhrif á okkur sem einstaklinga, en ég held, að við höfum allir verið sannfærðir um að við vor um að gera það, sem af okkur var sattazt. Og við héCidum allir áfram störfum hjá gæzlunni eft ir þennan atburð, þótt nú hafi flestir snúið sér að öðrum störf um. — Hvaða áhrif telur þú, að þessi atburður hafi haft? — Þessi atburður var vafalaust mjög jákvaður fyrir okkar mál stað og hefði ek-ki verið jákvæðari, þótt meiri hörku hefði verið beitt af okk- ar hálfu. — Þú minnttst á að varðskips- menn hefðu verið mjög vel sam æfðir. Voru þeir undir svona lagað búnir? — Já, þetta voru geysivel þjálfaðir og samæfðir menn og likamlega vel undirbúnir. T.d. höfðum við verið mikið í leik- fimi og róðraæfingum, sem hef- uir siitit að segja varðandi sam- stillingu. Ég held þetta hafi lika á.tt sinn þáfct í því, hve lengi áhafnir varðskipanna gátu staðið i þessu þrefi, þetltr var stanziaus eltingaleikur við togarana. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið mjög góðar áhafnir. Annars er mjög þroskandi fyrir unga menn, sem ætla að verða sjómenn að kynnast störf um á varðskipunum. Þeir fá fyliri skilning á þrotlausu starfi landhelgisgæzlunnar við að gæta landhelginnar, þessara mestu hagsmuna þjóðarinn- ar. Það ætti að geta veitt öíil- um mönnum meiri styrk og fyllra líf. ■ Og SIMRAD er 19 ára á íslandi. SIMRAD fiskileitartækin hafa á þessu tímabili átt veru- legan þátt í að byggja upp skipastól okkar eins og hann er í dag. Og nú hefst nýr sögukafli fyrsta september þegar fiskveiðilögsagan verður færð út í 50 sjómílur. Og áfram getum við treyst SIMRAD-tækjunum við fiskileit, í tilefni 25 ára tímamóta fyrir- tækisins voru sýndar 12 nýjar gerðir fiskileitartækja frá SIMRAD á sýningunni í Þránd- heimi í ágúst síðastliðnum. Hönnunarkostnaður við þetta tiltak varð 135 milljónir króna, en árangurinn er undraveður bæði í verði og tæknifullkomnum fyrir allar stærðir fiskiskipa. SIMRAD UMBOÐIÐ BRÆÐRABORGARSTlG 1. SlMAR 14135 og 14340 FRIÐRIK A. JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.