Morgunblaðið - 01.09.1972, Page 24

Morgunblaðið - 01.09.1972, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1372 ^ * Sigrum með tímanum Samdóma álit sjómanna „Afli minnkaði um helm- ingáfimm árum“ Glettingur var að leggjast að við Grandagarð, þegar við vor- um þar á ferðinni, og i brúnni hittum við Bjarna Þórarinsson, skipstjóra, sem sagðist vera hinn hressasti yfir útfærslunni. — Við hðfum verið á humar- veiðum í sumar og erum nú hætt ir. Það hefur gengið frekar illa. — Ég held að útfærslan komi til með að hafa lítil áhrif á afla humarbáta. Þarna voru að vísu íjórir belgískir togarar, en þeir voru auðvitað allir utan við 12 milna mörkin, svo að þeir hafa lítil áhrif. Hún mun hins vegar hafa mikil áhrif á afla annarra báta. Bjarni Þórarinsson, skipstjóri. Ég er ekki viss um að það verði erfitt að verja nýju land- helgina. Það þarf ekkert að verja hana meira en 58. Þetta gæti þó tekið eitt til tvö ár. — Það var ágætt að fá menn á bátana i vor. Við erum fjórlr á þessum bát, sem er 156 tonn. — Ég held að rækjuafli hafi minnkað um helming síðan fyrir fjórum til fimm árum. „Sigrum með þolin- mæðinni“ — segja skip- verjar á Arney Um borð í Arney, sem lá við Grandagarð, hittum við þrjá skipverja, þá Viðar Björnsson, Sturlaug Albertsson og Svavar Edílonsson, við vinnu. Þeim leizt vel á útfærslu landhelginn ar. — Þeir hefðu bara mátt gera þetta fyrr. Þetta kemur að vísu tii með að hafa lítil áhrif á þær velð- ar, sem við stundum, en það eru humarveiðar. Þær hafa minnkað mikið en það er aðallega vegna þess að það eru of margir stór- ir bátar, sem stunda þær. Ann- ars getur útfærslan örugglega komið betra skipulagi á nýtingu afla. — Okkur finnst þessi yfirlýs- ing Haag dómstólsins nokkuð skrítin, það er auðséð að þeir eru algjörlega með Bretum. Það sem við getum einna helzt gert til að verja landihelgina er að skrifa togarana upp, ef þeir veiða fyrir innan mörkin og taka þá svo þegar þeir leita hafnar. Ef þeir senda herskip, getum við ekkert gert. Annars mun framkoma þeirra koma þeim í koll og við munum sigra þá með þolinmæðinni, sögðu þeir félagar að lokum. „Með- höndlum sjóræn- ingja sem slíka“ Við hringdum í Guðmund Guð, mundsson á Isafirði, foi'mann út vegsmannafélags Vestfjarða, og báðum hann um álit á útfærsl- unni. — Þetta leggst mjög vel i mig og okkur hér. Þessi útfærsla þýðir stóraukna friðun fyrir linuveiðar og við bindum mikl- ar vonir við þessar hömlur gegn ofveiði. Agangur togara hér fyr- ir Vestfjörðum er orðinn gifur- legur. Ef Bretar ætla að haga sér eins og sjóræningjar, þá verð- um við auðvitað að meðhöndla þá sem slíka, þegar þeir leita hafnar. Þeir geta ekki haldið uppi veiðum hér fyrir Vestfjörð um án þess að leita þjónustu úr landi og svo verða bæði radar- og véiarbilanir. Þetta verð- ur voniaust fyrir þá. En við er- um spenntir að sjá, hvort þeir sjá það sjálfir. Þetta verður erfitt fyrir Land- helgisgæzluna fyrst í stað. En starfsmenn hennar kunna sitt fag og munu áreiðanlega gera það sem bezt er' og rétt á hverj- um tíma og við hverjar þær að- stæður, sem upp kunna að koma. Þeir geta tekið þetta þeim tök- um, sem með þarf. ,Óefnilegt ef ekki tekst að friða4 — segja út- gerðarmenn á Akureyri Morgunblaðið hringdi í tvo út gerðarmenn á Akureyri, þá Bjarna Jóhannesson hjá útgerð- arfélagi KEA og Vilhelm Þor- steinsson hjá Útgerðarfélagi Ak ureyringa. Bjarni Jóhannesson sagðist halda að erfitt yrði að standa við útfærsluna fyrst, en þetta mundi vinnast með tímanum. — Menn búast við öllu illu og ég held, að brezkir togarar, sem gerzt hafa brotlegir verði ekki afgreiddir hér, ef þeir koma i höfn. Bretarnir geta sjálfsagt að mestu leyti farið sínu fram í landhelginni til að byrja með, en þeir hljóta að gefast upp vegna vondra veðurskilyrða og slæmrar aðstöðu við veiðarnar. Þeir geta ekki endalaust veitt í hópum. Annars fer afli allra tog ara sífellt minnkandi og þetta er hreint ekki álitlegt, ef ekki verður fært út i 50 mílur, sagði Bjarni að lokum. Vilhelm Þorsteinsison hiá Ú.A. sagði að ekki væri enn búið að ákveða um undanþágur fyrir ís- lenzku togarana, en fyrirtæki lans gerir út 5 togara, og gerði hann ráð fyrir minni afla hjá þeirra togurum fyrst eftir út- færsluna. — Annars horfir ekki efni- lega með togaraútgerð, togararn ir hafa ekki fengið þorsk, og afli er verulega minni í ár en áður. Okkur er lífsspursmál að friða fiskimiðin og við ætlumst til að útfærslan verði virt og trúum því ekki að hún verð ekki virt. Við verðum að vona að þessi aukna friðun og minnk andi sókn á okkar landgrunn muni verða þess valdandi að afli aukist á ný með tímanum og við vonum að aðrar þjóðir skilji þessi sjónarmið okkar. „Enga undan- lát- semi“ Skipstjóri á Arnaimesi GK er Þórarinn Bjarnason og við tók- um hann tali um borð í bátnum og spurðum um álit hans á land helgisútfærslunni og hugsanleg- um átökum. — Það verður auðvitað að standa fast við 50 mílurnar, en það má búast við svipuðu þrasi og 1958. Bretarnir gefa sig varla fyrr en eftir hafréttarráðstefn- una, en ég hef engan hitt, sem er fylgjandi undanlátssemi af okkar hálfu í þessu máli, þetta vinnst með tímanum, getur tek- ið 1—2 ár. Hins vegar verður örugglega erfitt að verja þetta fyrst i stað, enda sjálfsagt erfitt að staðsetja skipin úti við 50 milurnar. Mér finnst prýðishugmynd að reyna að nota hvalveiðibátana til land helgisgæzlu, en ef Bretar gerast brotlegir við þessi nýju lög, tel ég ekki koma til mála, að skip þeirra verði afgreidd hér í höfn um, nema ef um slys verður að ræða. Ég held, að skilningur sé að aukast meðal sjómanna á nauð- syn friðunaraðgerða, en auðvit- að er það svo, að enginn vill missa neitt af sínum míðum. En aflinn fer alltaf minnkandi og Þórarinn BJarnason uni borð í Arnarnesinu. þá verður að taka í taumana. T.d. í humrinum, sem við höf- um verið að veiða, þangað er búið að hleypa allt of stórum skipum, að ég tel. Það verður að friða fleiri svæði, líka fyrir ^etabátum. „Stöðv- um rán- yrkjuna“ í Reykjavíkurhöfn lá rækju- báturinn Hafsúlan RE og þar hittum við skipstjórann, Halldór Sveinsson, sem búinn er að vera eigandi bátsins i eitt ár. Hann Halldór nm borð í bát sínuiri. féllst á að segja okkur sínar skoðanir á landhelgismálinu. Það verður bara að reyna að tefja veiðarnar fyrir Bret- unum eftir föngum og svo held ég, að Bretar hafi engar taug- ar til að standa í veiðum i vond um vetrarveðrum án þess að fá nauðsynlega þjónustu úr landi. Veðrin hjálpa okkur. Við vinn- um þetta mál, enda þótt það geti tek'ð nokkur ár, kanmski 2—3 ár. Hitt er annað mál, að við verð um líka að vernda fiskinn fyr- ir okkar eigin bátum og hafa eftirlit með þeirra veiðum. En veiðin hlýtur nú að skána hjá a.m.k. okkur í rækjunni við út- færsluna. Stóru togararnir liggja fyrir utan miðin og hindra fiskinn i að ganga á mið- in. Ef þetta hættlr h’ýtur aflimn að aukast. Aðalatriðið er að stöðva rányrkjuna. Ég er alls ekki svartsýnn á útgerðarhorf- ur i framtíðinni, ef það tekst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.