Morgunblaðið - 16.09.1972, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, L.AUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1972
BILAIEGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
14444 25555
[v
mim/R
BÍLALEIGA - HVEFISGOTU 103
14444 ‘2? 25555
FERÐABÍLAR HF.
Bílaleiga — simi 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
Fimm manna Cítnoen G. S.
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabílar (m. bílstjórum).
BÍLALEIGAN
A KBJiA UT
r8-23-á7
sendum
SKODA EYÐIR MINNA.
LEIGAN
AUÐBREKKU 44- 46.
SÍMI 42600
Óvissa um næsta
formann SFV
Landsfunður Samtaka frjáls
lyndra og vinstrl manna verð
ur halðinn i lok þessa mánnð-
ar. Hannibai Valdimarsson,
félagsmálaráðherra, hefur ver
iS formaður samtakanna frá
stofnun þeirra 1969, en lanðs
fundurinn, sem nú stendur
fyrir dymm er sá fyrsti, sem
haldin er eftir stofnfundinn.
Allt er enn á huldu um það,
hvort Hannibal Valdimarsson
gefur kost á sér til endur-
kjörs sem formaðtir, Hvorki
stuðningsmenn hans né and-
stæðingar innan samtakanna
vita, hvað Hanniba) hyggst
fyrir i þeim efnum. Ekki get-
ur þó liðið á löngu, þar til
línur fara að skýrast í þessu
máli.
Eins og kunnugt ér eru
Samtök frjálslyndra og
vinstri manna klofin i tvær
fylkingar. Annars vegar er
Reykjavíkurdeildin, sem svo
hefur verið nefnd, og hluti fé
laganna í Reykjaneskjör-
dæmi. Þessi armur lýtur for-
ystu Bjarna Guðnasonar. Á
hinum vængniun er lands
byggðarfóikið og ýmsir laun-
þegar á höfuðborgarsvæðinu,
sem andvígir eru mennta-
mannahópnum. Þessi armur
fylkir sér um Hannibal Valdi-
marsson og Björn Jónsson.
Fari svo, að Hannibal gefi
ekki kost á sér til endurkjörs,
eru mestar likur til, að Bjarni
Guðnason verðl næsti for-
maður samtakanna.
Er Hannibal
húsbóndi á
sínu heimili?
Fyrir landsfund Samtaka
frjálslyndra og vinstri raanna
verða lögð drög að stefnuyf-
iriýsingti varðandi hugsan-
lega sameiningu samtakanna
og Alþýðuflokksins fyrir
næstu kosningar.
Sameiningarmálið, sem svo
hefur verið nefnt, var lengi
vel eitt liöfuð baráttumálefni
Samtaka frjálsiyndra og
vinstri manna. Nú er málutn
hins vegar komið svo, að fylk
ingarnar tvær eru algerlega
á öndverðum meiði um sam-
eininguna, sem áður var
æðsta hugsjón.
Fylking Bjarna Guðnasonar
og hans félaga er aigerlega
á móti sameiningu. Þessir að-
ilar létu m.a. málgagn sam-
takanna Iýsa yfir því í sumar,
að sameining væri dskynsam-
leg. Sá armur, sem iýtur for-
ystu Hannibals og Björns
Jónssonar berst á hinn bóg-
inn mjög ákaft fyrir sainein-
ingu.
Alveg er óljóst nú, hvor
armurinn verður sterkari,
þegar á landsfundinn kemur.
En hvað «em því líður mun
reyna á það, hvort Hannibai
er húsbóndi á sinu heimili eða
ekki.
Gagnrýnin
á Ólaf fer
vaxandi
Ólafur Jóhannesson hefur
alla tið verið nmdeildur sent
formaður Framsóknarflokks-
ins og notið mjög takmark-
aðs trausts flokksmanna
sinna. Fyrir kosntngamar
1971 var komin upp mikil ó-
ánægja með flokksforystu
hans og ýmsar raddir kröfð-
ust endurnýjiinar. Úrslit kosu
inganna urðu þau, að Fram-
sóknarfiokkurinn tapaði veru
legu fylgi í öðrum kosningun-
um í röð og þingsæti í kjftr-
dæmi flokksformannsins.
Aðstæður hftguðu því þann
ig, að Ólafur varð forsætisráð
herra, eftir kosnlngarnar; það
bjargaði hans skinni um sinn.
En á nýjan léik gætlr nú vax-
andi óánægju með störf hans
sem forsætisráðherra og
fiokksformanns. Hann þjrklr
ekki sýna þá forystu, sem
krafizt er.
Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri;
Hollan hendun-gn: æn gnös
„Skönnm er ævi blómsins,
en það kveður þig,
eins og þú sért að fara.“
NÆTURFROSTIN um síð-
ustu helgi hér sunnan- og
vestanlands og snjókoman
fyrir norðan og austan, taka
fyrir frekari blómgun á þessu
sumri. Stutt sumar mun okk-
ur flestum finnast og við tök-
um undir með Jóni úr Vör,
að „skömm er ævi blómsins“
og þó vitum við með vissu,
að ævi flestra blómanna í
garðinum okkar er ekki lokið.
f>au hverfa aðeins í moldina
og bíða eftir nýju vori.
Við vonum, að okkur auðn-
ist sjálfum að lifa nýtt vor
og sjá blómim vakna að nýju
til Mfsins. Þess vegna hlúum
við að gróðrinum í beðunum
okkar, til að veita þeim vöm
fyrir frostkulda vetrarins.
En áður en gróðurinn fell-
ur, er rétt að huga að fræ
söfnun. Fuglarnir hamast nú
í reynitrjánum og háma í sig
berin. Ekki er ástæða til að
telja eftir fuglunum næring-
una, en við ættum þó að safna
nokkrum berjum og hirða þar
með nokkur fræ til að sá og
rækta upp ný tré, sem síðar
bera ávöxt fyrir fuglana.
Bezt er að sá öllu fræi sem
við söfnum, strax í haust. Til
þess þurfum við að hafa
kassa úti eða gróðurreit.
Fyrir miðjan október þurf-
um við að hafa lakið við að
gróðursetja haustlauka, svo
þeir blómstri tímanliega
næsta vor. Laukarnir eru um
þessar mundir að koma á
markaðinn og eru seldir í
flestum blómaverzlunum. Þá
má benda á, að þeir sem hafa
verið að setja i stand lóðir
i sumar, gætu lokið gróður-
setningum x trjábeð á þessu
hausti, því reynslan hefur
sýnt, að það getur gefizt
vel.
Ennþá er mögulegt að sá
grasfræi, en viðbúið að svo
geti farið, að það spíri ekki
fyrr en að vori. Sé sáð nú í
haust, er ekki vert að nota
nema hálfan skammt af fræi,
en bæta heldur við með end-
ursáningu snemma næsta vor.
Grasþökur má ieggja meðan
jörð helzt ófrosin, en rétt er
að valta yfir snemma að vori.
Þeir sem hafa trassað gras-
slátt að undanförnu, ættu að
forðast of loðna grasflöt fyr-
ir veturinn og slá fyrir frost-
in, svo grasi ð verði ekki a<3
sinu eða leggist i lag yfir
grassvörðinn og myndi fúa í
grasflötinni.
Öll blómabeð með fjölærum
plöntum þúrfa að standa það
hátt, að vatn geti sigið frá
þeim. Rótum plantnanna staf-
ar mest hætta af of miklum
vetrarraka, sem orsakar rót-
arfúa hjá plöntunum. Þar
sem jörð er leirborin er gott
að setja sandlag yfir beðin til
varnar þvi, að holklaki lyfti
plöntunum upp úr jarðvegin-
um. Ungum trjápíön.tum
ætti undantekningalaust að
veita stuðning með spýtum,
sem þær eru bundnar við,
svo að ekki reyrxi of mikið á
rætur þeirra í vetrarveðrun-
unx.
Að mörgu þarf að hyggja
hjá garðræktendum áður en
vetur gengur í garð, en öll
umhyggja borgar sig marg-
faldlega í betri ræktunar-
árangri.
Hraðbátur Hjartans þakkir fæ-ri ég vinum minum og ættingjum sem
gióddu mig með gjöfum, skeytum og blómum ásamt heim-
Óskum eftir að kaupa hraðbát um 18 til 22 feta. sóknum á 80 ára afmælt mínu, 7. september.
má vera vélarlaus. Tilboðum skal skilað til afgreiðslu blaðsins fyrir 1. október Gtið blessi ykkur öú.
merkt: „Sport 73 — 9875'. Guðbrandur Guðmundsson, Laugavegi 138-
Beinn sími í farskrárdeild 25100
Einnig farpantar.r og upplýsingar hja ferða skrifstofunum
Lartdsýn simi 22890 - Ferðaskrifstofa rikisins simi 11540 - Surina simi 25060 - Feróaskrifstofa
Úlfars Jacobsen simi 13499 - Úrval simi 26900 - Útsýn simi 20100 - Zoega simi 25544
Feröaskrifstofa Akureyrar simi 11475
Auk þess hjá umboósmönnum
umalltland
LOnWBIR