Alþýðublaðið - 27.07.1958, Page 3

Alþýðublaðið - 27.07.1958, Page 3
Sunnudagur 27. júl'í 1958 Alþ^öublQÚiö Útgefandi: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingast j óri: Ritstjórnarsímar: Auglýsingasími: Afgreiðslusími: Aðsetur: Alþýðuflokkurinn. Helgi Sæmundsson. Sigvaldi Hjálmarsson. Emilía Samúelsdóttir. 14901 og 14902. 1 4 9 0 6 1 4 9 0 0 Alþýðuhúsi'8 Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgötu 8—10. Bláþrœðir Morgunhlaðsins MORGUNlBLAÐIÐ heldur því iðulega fram, að utanrlk- isviðskipti íslendinga byggist á stjórnmálaskoðunum vald- hafanna. Það ræðir um kaup og sölur til Rússlands sem íákn og sönnun velþóknunar núverandi ríkisstjórnar á austræna lýðræðinu margumtalaða. Og svo er áróðurslop- inn teygður dag eftir dag. En þjóðin gerir sér ljóst, að þetta eru bláþræðir Morgunblaðsins, svo að allt er fyrir gýg unnið. Islendingar láta ekki blekkjast. Þeir leggja staðreyndirnar til grundvallar afstöðu sinni. Stefna íslendinga er auðvitað sú að eiga verzlunarvið- skipti við þær þjóðir, sem vilja kaupa afurðir okkar við góðu verði og selja okkur það, er við þörfnumst. Annar aðilinn getur ekki ráðið þessari þróun til fulls — það skal tvo til. Rússlandsviðskiptin eru þannig komin til sögunn- ar, að við vildum selja Rússum og þeir okkur. Viðskiptin eru báðum aðilum hagstæð, Og núverandi ríkisstjórn er ekki ein um ákvörðunina. Sjálfstæðisflokkurinn fylgdi auðvitað sömu stefnu í stjórnartíð sinni. Ásakanir Morg- unblaðsins í garð núverandi ríkisstjórnar eru því gagn- rýni á Sjálfstæ.ðisflokkinn, ef taka á þær alvarlega. Bjarni Benediktsson er með öðrum orðum að berja sjálfan sig. Og þetta heldur hann að sé honum farsælt hlutskipti! Áminnztur málflutningur Morgunblaðsins hefur engin áhrif hér heim fyrir. Allir íslendingar, sem íhuga þjóðmál, gera sér staðfreyndirnar Ijósar. En framfeírðL Morgun- blaðsins er hins vegar vel til þess fallið að spilla fyrir Isl'andi út á við. Vinstri stjórn á að vera Vesturlöndum vísbending þess, að nú vilji íslendingar einbeita verzlunar- viðskiptum sínum austur á bóginn. Stjórn Sjálfstæðis- flo'kksins á þá hins vegar að boða Rússum, að nú ætli ís- lendingar að beina kaupum og sölum í vesturveg. Slíkur misskil'nirigur er auðvitað stórhættulegur. En hann vill Morgunblaðið rækta. Sennilega kæmi annað hljóð í strokk þess, ef Sjálfstæðisflokkurinn ætti afturkvæmt í ráðherra- stóla og stjórnarráð. En Morgunblaðið hugsar ekki svo langt. Það einbeitir sér að því að þjóna lund sinni á líð- andi stund. Og víst er það ótrúlegt en satt: Maðurinn, sem ber ábyrgð á útbreiðslu misskilningsins, er fyrrverandi utan- xúkisráðherra íslendinga og ennverandi varafomaður Sjálf- stæðisflokksins, Bjarni Benediktsson. Hann ætti Þ° sannar- lega að vita beiur, ef honurn væri sjálfrátt. Bjarnagrciði TÍMINN ræðir Bjarnargreiða Morgunblaðsins við Bjarna Benediktssón með því að minna á í hvert óefni var komið, þegar hann lét af stjórn utanríkismálanna. Hpp-__ talningin er svo þessi: !;tl „Það, sem þá blasti við, var m. a. þetta: : 1. Fisksalan til Bandaríkjanna hafðj næstum minnk- að uni helming seinasta árið, sem Bjarni var utanríkis- ráðherra. 2. Neitað hafði verið öllum tilmælum íslendinga um lán ve-gna nýju Sogsvirkjunarinnar. 3. Löndunarbann var enn á íslerízkum togarafiski í Bretlandi. 4. Vegna löndunarbannsins í Breílandi og minnkandi fisksölu í Bandaríkjunum hafði verið hafin mikil fisk- sala til Sovétríkjanna og eitt seinasta verk Ólafs Thors var að biðja Rússa um að auka enn meira fiskkaup af íslendingum. Undir forustu núverandi stjórnar hefur tekizt að færa þetta stórlega í betra horf. Löndunarbanninu fékkst af- létt, fisksalan til Bandaríkjannai hefur stóraukizt og lán hefur fengizt til Sogsvirkjunarinnar.“ Allt er þetta satt og rétt og tímabært nema'fyrirsögnin. Þetta er sem sé bara Bjarnagreiði. Bjarni Benediktsson skrifar þetta sjálfur. Hann lfeggur hendur á sjálfan sig í skapsmunaköstunum. ii I þ ý ð ú b I a 3 i 8 » BRETAR hafa til skamms tíma verið taldir öðrum vest rænum þjóðum sérvitrari í þess orðs upphafslegustu merkingu. Edith Sitwell, sem ritað hefur fræga bók um sér vizku landa sinna telur orsök ina meðfædda fullyíssu þessa um að þeim geti ekki í neinu skjátlazt og að þeir séu -um leið eina þjóðin ,sem . slíkum eiginlei'ka er búinn. Vitanlega má um það deila hvort Bretar séu í rauninni; manna sérvitrastir. En eitt verður hins vegar ekki um deilt — þeir gera manna mest gælur við sérvizku sína, hæla sér af henni, hampa henni framan í hvern mann, auglýsa hana og skrifa jafnvel þykka doðranta um það efni. Og enda íþótjt þar gæti. mfest „dæmisagnanna“ um afrek sér vizkupúkanna kemst maður ekki hjá því að dást að öðrum eiginleika sem þjóðin er gædd í að minnsta kosti jafnríkum mæli, .— að geta umgngizt og umborið slíka menn svo stapp ar nærri virðingu fyrir þeim. Það er áreiðanlega miklum vafa bundið að erfðaskráá kvæði majórs Péturs Labelli éres hefðu verið virt í nokkru öðru landl. Hann hafði haldið því fram alla ævi að veröld in stæði á haus, og krafðist þess því í erfðaskrá sinni að vera grafinn þannig að iljar vissu upp en höfuð snéri nið ur, — svo hann hefði þó að síðustu rétt fyrir sér! Margir af góseigendum Bret lands til forna höfðu mjög orð á sér fyrir sérvizku. Það var til dæmis fyrrverndi sútari, Mr. Jemmy Yist, er grætt hafði of fjár á iðn sinni, og keypti sér góz mikið. Naut hann mikillar hylli fína fólks ins, einkum fyrir veiðiboð þau er hann efndi til á gózi sínu. Reið hann þá í broddi fylking ar klæddur hárauðunx leður klæðum. Ekki sat har.n þá á neinum gæðingi, heldur reið hann jafnan svörtum bola, stórhyrndum. og blóðmannýg um og elti hann hópur ham inna svína í stað veiðihunda. Það er og í frásögur fært að þessi fílefldi náungi, sem varð níræður að aldri, hafi látið gera sér líkkistu mikla og sterka er hann var enn ungur að árum; lét hann hana síðan standa í borðstofu sinni og notaði fyrir vínskenk og sá svo um að hún geymdi jafn an gnægð af fullum flöskum. Þá hafði herramaður þessi dá læti mesta á gömluni piparjóm frúm, og vildi umfram allt að átta slíkar bæru hann til graf ar en þær gáfu sig ekki fram enda þótt hann héti þeim háu dagkaupi þegar þar að kæmi. Varð hann því að láta sér duga átta ekkjur til starfans og varð jarðarförin hin hátíðlegasta að því er segir í annáluin. Um svipuð leyti eða um mi-ðja sl. öld var uppi ofursti nokkur, Tboronton að nafni. Sú var sérvizka hans að hann hafði jafnan lent í hálfu verra en frá var sagt. Það var einu sinni er öfurstinn var á veið um, að maður noltkur í hópn um féll af baki, og létu ein hverjir í ljós ótta um að hann kynni að hafa höfuðkúpubrotn að. Ekki kvaðst ofurstinn skilja í að neinurn yrði meint af slíku. Sjálfur hefði hann einu sinni dottið af baki og fallið á ljá, sem sneið höfuð hans í tvennt í herðar niður svo vangar, lágu á öxlum. Skemmtilegri, — en um leið hættulegri grönnum sínum, — var aðalsmaður nokkur, John My.tton, fæddur árið 1796 og náði ekki nema 38 ára aldri, — og gegndi í rauninni furðu, að hann skyldi verða svo gam all, þegar tekið er tillit til þess hvernig hann hagaði sér. Hann fór nefnilega alltaf eins hratt og hann komst og yfir allt, sem hann komst á hest um sínum. Og hann lézt ekki einu sinni af slysförum, held ur brjálaður í skuldafangelsi. Trúlegt er að hann hafi ein hverntíma fundið til kulda, því hann gekk jafnan léttklædd ur mjög og í næfurþunnum skóm, bæði vetur og sumar og hverju sem viðraði. Á stund .um, allsnakinn og berfættur. ÍHann hleypti hesti sínum á ihvaða hindrun sem fyrir varð, |og féll hvað eftir annað af baki þegar hann var drukkinn; ók eins og brjálaður í létti vagni sínum og tók hvorki til lit til sjálfs sín eða annarra. Sögð er sú saga að tveir menn er sátu í léttivagni hans létu í Ijós ótta sinn um að vagninn hlyti að velta er svo gapalega var ekið. „Hafið þ<ö nokkurn tíma meiðzt þótt vagni hvolfdi?“ spurði hann undrandi. Þeir urðu aö viður kenna að þeir hefðu aldrei lent í slíku. ,,Hvað er það- tarna!“ hrópaði hann, „þi'ð verðið fyrir alla muni a'ð reyna það-“ Að svo xnæiíu hsrti hann enn á hestunum og ók svo tæpt á vegarbrúfii að vagninum hvolfdi. Þótt merkilegt kunni að virðast, sluppu þeir allir ómeiddir. John Mytton naut hylii sveitunga sinna og granna þrátt fyrir allt. Það. var oft þegar hann var á veiðum í slæmu veðri að hann barðí að dyrum einhvers bóndans o§ bað um að mega verma sig vit> eldinn. Tejundi hann hestina þá jafnan inn með sér svo hann gæti líka notið hlýjunn ar, og hélt síðan á brott. „Þeg ar þeir voru fullvermdir oro.a ir“. Eítt sinn var það, er hana . sat og vermdi sigf- að harm vildí deila kampavín sfl ösku méð hesti sínurn; þáði: klárjna kampavínið, en féll.síðan dauð ur niður, Myttori-.til undrna ar og hryggðar. ‘W Og loks er það prlnsessan af Caramoo, sem árið 1817 virtist dag nokkui’n falla af himni ofan í þorpið Almonds bury. Barði hún að dyruxn í húsi nokkru þar og bað uta mat og gístingu og talaði kún á máli, sem enginn skyldk- Vakti koma hennar, éða ollú heldur framkoma, vitanlega hfna mestu athygli, og hóíú yf<rvö‘dín víðlíæka eft.id'1 grennslan og rannsókn til að komasL. að hver hún væri, en allt reyndist það árangurs laust. En siálf varð hún ááðari" með' degi hverjum eínkum í samkvæmislífinu; kepptust. frægir menn og auðugir uro votta henni hylli sína og Miifni inguð unz greiðasölukona einf bar ]:ennsl á hana sem fyrr1 verandi starfstúlku. Er þet1:a; að vísu sízt merkilegra en[ það ,er Marlon Porandos hélt sig. kvæntan indverskrj konuð sém var svo alls ekki índ verk fyrir tvo aura, — nenia hvað prinsessan var aIls ekld af baki dottinn. Það var seinna á þessu Framhald-á 5. síðtx.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.