Morgunblaðið - 10.11.1972, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 10.11.1972, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖiSTUDAGUR 10. NÖVEMBER 1972 * v •** SAI B Al N | í frjálsu rtki eftir YS. Naipaul „Þessir Egyptar drekka svo mikinn ávaxtasafa. Um leið og ég næ peningunum minum út þá fer ég. Bróðir minn er þeg- ar farinn. Hvert eruð þér að fara?“ „Ég bý hér,“ sagði Bobby. „Ég er opinber starfsmaður." Maðurinn hætti að dingla fót unum. HCann flissaði. Linda stóð á fætur. „Eigum við ekki að halda áfram?“ Bobby brosti og saup á boll- anum. „Þekktuð þér herra MeCart- land?“ spurði maðurinn eftir stundarþögn. „Ég þekkti hann ekki,“ sagði Bobby. „Hann dó mjög ungur,“ sagði maðurinn um leið og hjann fylgdi Bobby og Lindu tii dyra og út á götuna þar sem enn mátti greina rykskýið. „Hann var góður bilstjóri. Hann ók á hverjum morgni til höfuðborg- arinnar á hundrað mílna hraða.“ Bybby horfði til lofts, sinnti ekki kveðjum mannsins en sagði: „Það verðum við iika að gera, ef við eigum að komast til Sambandsfylkisins fyrir út- göngubannið." Þau sebtust upp i bilinn. Ind- verjinn fór upp á veröndina og fyligdist með, þegar Bobby sneri bílnum og rykið þyrlaðist upp á nýjan leik og byrgði allt út- sýnd. Linds sagði: „Trúir þú því að maðurinn hafi ekið til Jiöf- uðborgarinnar á hundrað mílna hraða?“ „Gerir þú það?“ „Því skyldi hann vera að segja okkur það?“ Bkkert lif var að sjá í kring- um verziunarkumbaldana. Afr- íkumennirnir brostu bara af veggau'gTiýsingunuim. Skuggarn- Opið til kl. 10 í kvöld SKEIFAN KJÖRGAR-ÐI, SÍMI, 16975 ir höfðu lengzt xmdir trjánum. Þau komust upp á þjóðveg- inn og opnuðu bílgluggana. Allt var þakið ryklagi í bílnum. 1 mjúkri tjörunni hægra megin á veginum sá Bobby móta fyrir hjólförunum eftir sinn bil þeg- ar hann hafði snúið við til þorpsins. Hin tförin voru horfin undir grófari hjólför eftir þyngri farartæki, fleiri en eitt, sem voru á sömu ieið og þau. Bobby ók gætiiega. Hann kom aftur að kaflanum þar sem asfaltið var óslétt. Þarna hafði hann sfioppað. Hann sá ógreini- lega hjóiförin eftir sig þar sem hann hafði snúið við. „Erurn við orðin mjög sein?“ spurði Linda. „Við höfum ekki tafizt nema um hálftiima. En þú brosir bara bfllifit til þeirra ef þeir stoppa ókkur og þá bjóða þeir okkur sjálfsagt tebolia." Þau brostiu bæði, eins og bæði hefðu farið með sigur af hólimi. Ferðinni var haldið áfram. Brosið hvarf og svipur beggja varð einbeifitur. Sdðdeigishátinn var óþægilegur, langir sfcuggar féllu yfir veginn frá hægri. Hvorugt þeirra hafði orð á þvi, þegar Leopold Tor birtist á ný, að hálfu í skugiga og að hálifu baðað sól. Hfíðarnar virtust ekki eins þverhníptar þegar nær dró og surns staðar vor|i þær vaxnar skógd. Linda sagði: „Trúir þú því, að hann ætli að flytjast til Kaíró?“ „Hann lýgur,“ sagði Bobby. „Þeir Ijúga allir.“ Hún brosti. Þá sá hún á hvað Bobby starði framundan á veginum: þar var fylking herfliutninga- bila og það voru hjólförin eftir þá sem sáust greinilegast á as- faltinu. 9. Hann hægði íerðina. Jók hana aftur. Hægði hana enn. Hvoruigit þeirra mælti orð. Leo- pold Tor var á hægri hönd, skógivaxin hlíðin í skugga. Gróðurinn við vegkantinn var öðruvisi hér, runnagróður en engin ræktun og fjöliskrúðuigri hitabeltisgróður. Þau nálguðust fíutni.ngabilana. I>eir voru fimm í þýðingu Huldu Valtýsdóttur. og skuggarnir aí þeim runnu eftir ójöfnum vegkantinum. Við og við sáu Bobby og Linda yifir á frumskógasvæðið handan við Leopold Tor, þar sem var land kóngsins. Ekki var þar neinar hræringar að sijá, aðeins máfiti greina dökkleitari reiti I griæn- um gróðrinum þar sem þorpin •voru. Hermennirnir með grænu húf urnar og rifflana, sem sátu aft- ast á herfllutningabílnum gutu augunum iliilega að litla bilnupi sem á eftir fór. Þeir sem sátu að baki þeiim, voru í skuigiga. Þá sá Bobby bílstjórann í hliðar- spegliinum, dökkt andlitið i end- urskiini sólarinnar. Þannig ðku þau góða sitund og héldu hæfilegri fjarlægð frá síðasta bilnum. Hermennirnir á palinum igutu til þeirra augum, iuntalegir á svipinn og stund- um fann Bobby augnaráð bíl- stjómns hvíla á sér. Linda sagði: „Með þessu áframhaldi verðum við áreiðan- lega allt of sein.“ Þau óku áfram og hermenn- irnir höfðu stöðugt auga með þeim. Linda sagði: „Ætli við gerum þá ekki taugaósifiyrka." Bobby brosti ekki. Þau komu að kafla, þar sem vegurinn var beinn framundan. Bobby þeytti bilflautuna oig bjóst til að aka. fmm úr. Her- mennirnir réttu úr sér og fóru að skima. Bobby leit til þeirra um ieið og hann jók hraðann. Hann var kominn til hálifs sam- hliða herfliutninjgabílnum þegar bílstjórinn beygði út í hægri velvakandi Velvakandi svarar í síma 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. • Mismunandi leiðir líknarfélaga til fjáröflunar „Hér er bréf frá' Jóni Odd- geiri Jónssyni, en tilefnið er klausa frá „manni í ábyrgðar stöðu", sem birtist hér í dálk- unum síðast liðinn þriðjudag: „Það eru þrjú liknarfélög, sem á þessum haustmánuðum senda ýmsu fólki happdrættis- miða að verðmæti 150—200 krónur) með tilmælum um að kaupa þá, en endursenda ella. Félögin eru: Styrktarfélag fatlaðra og lamaðra (sendir þeim, sem skráðir eru fyrir síma), Styrktarfélag vangef- inna (sendir bíleigendum) og Krabbameinsfélagið (er sendir heimilisfeðrum og einstakling- uim á alririnum 25—65 ára samkvæmt þjóðskránni; Reykvikingum og nsestu ná- grönnum á haustin, en fólki úr öðrum landshlutum á vor- in. Önnur félög, sem haft hafa sama hátt á, í nokkur skipti eru: Hjartavemd, Rauði Kross Islands og Geðverndar- félag Islands. Engu þessara fé laga hefur verið veitt heimild Allþingis til að refca happ- drætti í stórum stll, eins og DAS og SlBS hafa gert á und anfömum áratugum og þess vegna hafa þau farið aðrar „happdrættisleiðir“ til fjáröfl- unar. En hvaða Islending- ur vildi vera án allra þessara félaga, og alls þess miikla sjálf- boðaliðastarfs, sem við þau eru unnin af iæknum og leikmönn um, eða þeirrar heilbrigöis- og hjálparþjónustu, sem þau eru brautryðjendur að og veita þjóðinni, þar til ríkið er þess megnugt að bera flestar þess- ara starfsgreina einungis á sín um önmum? .lón Oddgeir Jónsson". • Notið niannbrodda meðan hált er! Nú er komið sleðafæri fyrir börnin, þótít ekki sé snjðþymgisl um fyrir að fara, sem betur fer. Börn, sem á annað borð geta vettlingi valdið, hafa tek ið fram snjóþotur og sleðg. Ekki eru þó allir jafnhrifnir af færðínni og börnin, til dæm- is mun eldri borgurum senni- lega ráðlegast að haida sig að mestu innan dyra, meðan hált er á götum úti. Fullwrðtnu fólki er ekki einungis hættara við beinbrotum — það er einnig miiklu lengur að gróa sára sinna en þeir, sem yngri eru. Hvað skyidu annars marg- ir brjóta sig á hálku á hverj- uta vetri ? Velvakandi viffl ekki draga kjarkinn úr fólki með tómum hrakspám, en ástæða er til að hvetja fólk til þess að nota mannbrodda, sem fást hér í verzlunum. • „Hjólbarðamenning“ „Blikkbeljueigandi" einn hafði samband við Velvakanda og sagðist vera undrandi á því, hversu margir þeir virtust vera, sem væru enmþá akamdi á „sumardekkjum". Ekki væri nóg með það, að stórhætta sfiaf aði af þessu „bjartsýnisfólki", heidiur væri það einnig til tafa og leiðinda í umferðinni. Þó mætti ef til vill sjá skoplegar hliðar á þessu, eins og öðru til dæmis hefði hann komið þar að nýlega, þar sem bif- reíð hiafði sig ekki einu sinni út úr stæði, vegma háltou og hefði ökumaðurihn verið held ur kindarlegur þegar hann þurfti að biðja um hjálp til þess að ýta bílnum út á götuna. Ekki fóru sögpr af því, hvern- ig ferðin gekk eftir það, en bíillinn var úr Kópavogi. Von- andi var ekki eins hálit þar og í Reykjavíkinni. • Sleðabrekka á Landa- kotstúni? Ein þessara margfrægu hús- mæðra í Vesturbænum hringdi til Velvakanda og sagði, að lít ill sonur sinn hefði sagt við sig: „Mamma, gefiur þú ekki f’arið og talað við borgarstjór ann og beðið hanm að búa til slieðabrekku á Landakotstún- inu? Það er hvergi hægt að reinna sér á sleða.“ Velvakandi benti húsmóður- inni á það, að um þessar mund Föstudagskvöld Opið til kl. 10 ífc- rr r>C=( Uf., i I Simi-22900 Laugaveg 26 ir efndi borgarstjóri einmitt til funda með borgarbúum, þar sem hægt væri um vik að koma skoðunum sinum og óskum á fraimifæri. Annars vill Velvakandi taifca undir með drengnum, sem vill fá sleðabreltku á Landakots- tún. BarnafjöOiskyldum mun nú fara fjölgandi í gaimla Vest- urbænum, en útivistarsvæði eru þar af skornum sfcammti. Landafcotstúnið er dýrmætt og fleirum kært en Vesturbæing- um einum, en það miætti Líka að sfcaðlausu nota til annars en að horfa á það. Þar maetti, sennillega með litlum tilkostn- aði, búa til smáhól eða bretóku, þar sem börn gætiu rennt sér á sleða á vetrum, en væri grasi gróin á sumrin. MATUR Í HÁDEGINU ódalÍÍ VID AUSTURVÖLL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.