Morgunblaðið - 26.11.1972, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.11.1972, Blaðsíða 6
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1972 Eg berst á fáki fráum... Eldri sem yngri njóta skemmtilegrar samveru við hesta jafnt sumar sem vetur. Eitt af mörgu, sem menn gera sér til ánægju úti við — nm vetur jafnt sem sum- ar — er að bregða sér á hest bak. íslenzld hesturinn hef- ur fengrið nýtt og verðugt hlutverk, hann er ekki leng- ur þarfasti þjónninn eins og áður fyrr, en mörgum er hann vafalaust hinn þarfasti vinur. Biikkbeljurnar svo nefndu hafa tekið við þjóns- hlutverkinu, en ekld er það sérlega vænlegt til heilsubót ar að sitja alla daga í bif- reið og því gott að leita holl- ustunnar með aðstoð hests- ins. Hestamaíinafélagið Fákur i Reykjavík telur nú rúmlega 600 félagsmenn innan sinna vébanda, aö' því er Rergur Magnússon framkvæmda- stjóri félagsins upplýsir. Sjálft hefur félagið hesthús fyrir 450 hesta og sér um fóðrun og hirðingu alla fyrir eigendur þeirra. Þar fyrir ut an er aðstaða til að hafa 6—700 hesta á landsvæði félagsins i Víði- dal, sunnan í Seiásnum. Þar hafa einkaaðilar hesthús, sem þeir hafa sjálfir séð um að reisa og þar sem þeir sjá sjálfir um fóðrun og hirð- ingu, heyöfliun og þar fram eftir götunum. Bergur sagði, að á vetuma færu hestamenm félags- ins mest um nýja skeiðvöll- inn en þeir, sem færu út úr bænum, legðu aðallega leið sina upp að Geithálsi og Lækjarbotnum, þangað upp- eftir er ágætur reiðvegur. Reiðskóli verður starfrækt ur hjá Fáki í vetur eins og áður, hefst um mánaðamótin fetorúar-marz og starfar fram í júní eða júlí. Hann hefur notið mikilla vinsælda og eru nú þegar famar að ber- ast pantanir fyrir veturinn. Skólinn er fyrst og fremst ætlaður bömum og ungling- um en þar fyrir utan mun félagið halda í vet- ur námskeið fyrir fullorðna, sem óvanir eru — verða það væntanlega nokkurra daga kvöldnámskeið. Sömuleiðis stendur til, að sögn Bergs, að halda nokkra fræðslufundi uim hestamennsku í fé- lagsheimilinu en starfsemi þess verður að öðru leyti með sama sniði og und- anfarin ár. í Kópavogi starfar einnig öflugt hestamannafélag — Gustur heitir það og eru fé- lagsmenn ekki eingöngu úr Kópavogi heldur einnig úr Reykjavík, Garðahreppi og af Seltjamamesi. Félags- menn eru nú nálægt 240 og aðstaða er á fimm hekturum lands í Smárahvammslandi. Þar er óðum verið að byggja hesthús, þegar komin 25 hús, sem ætluð munu 20 hestum hvert, og fleiri eru í bygg- ingu. Verður þama aðstaða fyrir allt að 800 hesta þegar svæðið er fullbyggt, að því er Bjöm Sigurðsson, lög- regluþjónn í Kópavogi, for- maður félagsins, fræddi okk ur um. Hann sagði, að svæð- ið væri á ábyrgð félagsstjóm ar hverju sinni og útbýtti hún lóðum. Þegar hefði öll- um byggingarlóðum verið ráðstafað. Hann sagði, að fé- lagið hefði sótt um viðbótar- land tU Kópavogskaup- staðar og væri það til athug- unar hjá bæjaryfirvöldunum. Á þessu svæði sjá menn sjálfir um byggingu hesthúsa og hirðingu hestanna. Hins vegar sagði Bjöm, að I bí- gerð væri, að félagið byggði þrjú stór hús, þar sem hægt væri að leigja út að- stöðu þeim, sem ekki hefðu tök á að byggja sjálfir. Fé- lagið hefur einnig fengið dá- Mtið félagsheámilí. — „Þeir voru okkur innan handar hjá Kópavogskiaupstiað — sagði Bjöm — og gáfu okkur lítið ibúðarhús, sem við fluttum þama upp eftir og dubbuð- um upp. Hugsum við okkur að hafa þar geymslu og veit- ingasölu, ennfremur aðstöðu fyrir reiðskóla en hann verð ur rekinn í vetur eins og áð- ur. Sagði Björn, að reiðskóli Gusts hefði í fyrravetur ver ið hinn stærsti á landinu en næst stærstur í ár; þá hefði Fákur átt vinninginn. Skól- inn i Kópavogi er rekinn í samráði við Æskulýðsráð bæj- arins. Helztu reiðleiðir hjá Gusti sagði Bjöm, að væru upp með Vifilsstaðavatni. „Við er um búnir að tengja okk ur við nágrannana með reið- braut niður á Fióttamanna- veg,“ sagði hann. En hestamennska er stund uð víðar en á höfuðborgar- svæðinu. Áhugi á þess- ari hollu og skemmtilegu iþrótt fer vaxandi með hverju ári alls staðar á land inu — hvarvetna njóta menn þess að hrista af sér hvers- dagsdrungann og berast á fáki fráuim — jafnt um hjam og snævi þaktar hlíð- ar sem grösug holt og sum- argræna móa. Öll gluggutjöld verzlunurínnur verðu seid með ullt uð 50% ufslætti til jólu Gefum 10% staðgreiðsluafslátt af gólfteppum sem slá í gegn / Gólfteppin frá okkur eru í sérflokki og frumleidd úr íslenzkri ulull Austurstræti 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.