Morgunblaðið - 08.12.1972, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGU'R 8. DESEM3BER 1972
13
PÉTURH50ef!Z
UÉTTA IÆISKDS LJÚFA
oí fct, (w P«fc, uwwikiifcfcofcufc:,!'
Bókin sem talað er um
Pétur Eggerz
LÉTTA LEIÐIN UÚFA
Hreinskilin frásögn af áratuga starfi í utanríkisþjónust-
unni, þar sem höfundurinn hafði kynni af fólki í öllum
tröppum mannféiagsstigans. Bók, sem hefur vakið gíf-
urlega athygli og umtal og fyrirsjáanlegt er að verður
ein af mestu sölubókum ársins. — Margir misstu af
bók Péturs Eggerz í fyrra, — „Létta leiðin Ijúfa er enn
eftirsóttari.
JON | \
„Góð bók um grimm örlög." — V.S. í Tímanum.
Jón Helgason
ÞRETTÁN RIFUR OFAN í HVATT
Listatök á máli og frásagnarstil, hrikaleg og harmþujtgl
mannlifssaga. — Jóhann beri var einn frægasti fulltrúf
hinna göngumóðu förumanna, ýturskapaður manndóms-l
maður sem grimm örlög og sviptibyljir mannlegraf
ástríðna firrtu öllum heillum og knúðu gaddsporuml
fram á verganginn. — Saga Jóhanns bera mun snerta|
djúpt hvert mannsbarn, sem hefur hjarta í brjóstinu og
veitir yfirdrepslausa innsýn í mannlegan skapadóm.
Ragnar Ásgeirsson
SKRUDDA I
Safn þjóðlegra fræða í
bundnu og óbundnu máli,
sem Ragnar hefur safnað á
ferðum sinum um landið, er
hann var ráðunautur Búnað-
arfélags Islands. Ragnar er
sjófróður og skemmtilegur
sögumaður, með næma eftir-
tekt og skarpskyggni á þjóð-
leg einkenni. bessi nýja
Skrudda er stóraukin og endurbætt og í henni verða
sögur úr öllum sýslum landsins.
Oscar Clausen
SOGN OG SAGA
Nýtt safn. fróðlegra og
skemmtílegra þátta um ævi-
kjör og aldarfar, islenzkar þjóð
lifsmyndir, sem spegla mann-
líf og menningu fyrri tíma.
Hér kennir margra grasa, þvi
þættirnir eru ólikir að efni og
úr ýmsum áttum, en allii
fjaila um menn og málefni,
sem forvitnilegt er að kynn-
ast. — Bók, sem á erindi við alla, sem lóta sig varða
sögu lands og þjóðar.
Magnús Gestsson
MANNLÍF OG MÓRAR
I DÖLUM
Hér er safnað saman sögnum
og fróðleik, sem varðveitzt
hefur í minni manna í Dala-
sýslu. Margar snjallar svip-
myndir eru dregnar upp, mörg
skemmtileg tilsvör og sér-
stæðar tiltektir. Sagt er frá
fjölda manna í héraðinu,
greint frá slysförum og svað-
ilförum, merkum draumum og sýnum, fylgjum og mögn-
uðum draugum og langur þáttur er um Sólheimamóra. —
Fjölbreytt bók að efni og skemmtileg aflestrar.
Eiríkur Sigurðsson
MEÐ ODDI OG EGG
MINNINGAR RÍKHARÐS JÓNSSONAR
Saga Ríkarðs er saga mikilhæfs listamanns, sem flest-
um öðrum er rammislenzkari í list sinni. En Ríkarður er
einnig frægur sögumaður og söngvinn gleðimaður, vin-
sæll og eftirsóttur félagi. Eftirminnilegir verða vinir hans
úr bakhúsinu við Grundarstíginn, en meðal þeirra voru
séra Árni Þórarinsson, Jón í Skjálg, sem Ríkarður telur
fyndnasta mann sem hann kynntist, Sigvaldi Kaldalóns,
Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnari o. fl. o. fl. — Þá
gleymast ekki svipmyndir hans frá æskustöðvunum é
Austurlandi og sögupersónur þaðan. -— Minningabók
Rikarðs er stórskemmtileg.
Ingólfur Kristjánsson
PRÓFASTSSONUR SEGIR FRÁ
MINNINGAR ÞÓRARINS ÁRNASONAR
BÓNDA FRÁ STÓRAHRAUNI
Séra Árni Þórarinsson prófastur á Stórahrauni er ein
frægasta sagnapersóna siðari tima. Þórarinn sonur
hans, sem hér segir sögu sína, hefur í ríkum mæli erft
frásagnargleði föður síns. Hann er glettinn í frásögn og
hreinskilinn í bezta máta er hann segir sögur af „vondu"
fólki og góðu á Snæfellsnesi, i Reykjavik og víðar, —
stórum hópi samferðamanna, sem hann hefur haft
kynni af á langri og litríkri lifsleið. — Hispurslaus og
skemmtileg minningabók, full af glettni og gamansemi
IMGOLHIR KBIStlÍNSSOK
PROFASTSSONUR
SEGIR- FRÁ
>::vw
MINN5W5AF: ÐÖRA«ÍNf> ÁWASONAK
30NDA FftÁ STÓRAHRAUNL ;;
Kormákur Sigurðsson
DULSPAKT FÓLK
Sonarsonur Haralds Níelsson-
ar, föður spiritismans á fs-
landi, sendir frá sér fyrstu
bók sína um dulræn efni. —
Menn láta sig flest annað
meira varða en uppruna sinn
og tilgang þess lífs. sem þeir
lifa. Kormákur leitast við að
svara áleitnum spurntngum í
þók sinni og hann fjallar um
þessi mál af íhygli og þekk-
ingu. En það, sem e. t. v vek-
ur mesta athygli lesandans, er viðtal hans við völvuna
Þorbjörgu og skýringar hennar á árunni, áhrifum hennar,
útgeislun og útstreymi. — Nýr höfundur, málefni, sem
al.a varðar.
Hafsteinn Björnsson
SÖGUR ÚR SAFNI
HAFSTEINS MIÐILS
Einstæðar og ómetaniegar
bernskuminningar hins kunna
miðils, eigin frásögn hans aí
fyrstu kynnum af dulrænum
fyrirbærum og lýsing hans á
aðstæðum og lifsviðhorfum
sem mótuðu persónu hans á
viðkvæmu æviskeiði, þegai
hann lifði nánast i tveimui
heimum. — I siðari hluta bók-
arinnar segir fjöldi nafn-
greindra manna frá merkum draumum og ýmiss konar
dulrænni reynslu, sem þeim hefur reynzt mikilvæg og í
sumum tilfellum ómetanleg og fært þeim heim sanninn
um framhaldslíf að jarðvistardögum loknum. — Gagn-
merk bók og ómetanleg fólki sem trúir.
Elínborg Lárusdóttir
FÖRUMENN
Þessi skáldsaga er eitt helzta
rftverk hinnar mikilvir' u og
vinsælu skáldkonu. Þetta er
margslungin ættarsaga, þótt
sögufólkið lifi fábrotnu sveita-
lifi. Skáldkonan leikur mörg-
um skjöldum og konur Efra-
Ásættarinnar eru höfuð við-
fangsefnið, ástir takast með
ungu fólki, tryggðabönd eru ,
bundin, eiðar rofnir og örlög V-*
ráðast. Fastheldni á fornar
dyggðir og að ættarinnar dómi hollar venjur fyrri timal
veldur árekstrum og orsaka sviptingar og átök, þvil
konur Efra-Ásættarinnar eru stórlátar, með strangal
og sterka réttlætiskennd. — Á þessari miklu skáld-l
sögu er þróttmikill og hressandi manndómsbragur.
SUíili GuðjóiiMNon
$ jí .jLniiíxvocu -u'uöwí)
* - ‘'HIUi
Skúli Guðjónsson á Ljótunnarstöðum
HEYRT EN EKKI SÉÐ
Hvernig er að vera blindur? Hvernig skynjar blindur
maður umhverfi sitt? Hér segir blindur maður, sem
flýgur til fjarlægs iands i leit að lækningu, ferðasögu
sína. Frásögn hans er sérstæðasta ferðasaga, sem
skráð hefur verið og gefin út á íslenzku, — skrifuð at
hinni óvenjulegu og næmu athyglisgáfu, frásagnargleði
og ritsnilld, sem Skúli er kunnur fyrir.
I>1 IR
SEM HÚN
:■ tiNNi v
Theresa Charles
ÞEIR SEM HÚN UNNI
Þrá Idoneu eftir hlýju, umhyggju og ást, óx stöðugt ogl
varð að ástriðu. Hún hafði ekki fundið það, sem húnj
leitaði að, hjá fyrstu mönnunum i lífi hennar. Hin brenn-l
andi spurning var því: Mundi hún he.dur ekki finnaj
hamingjuna og njóta hinna fullkomnu, sönnu tilfinningaj
hjá Luciusi, manninum, sem hún hafði gifzt? — Enn áj
ný hefur Theresa Charles skrifað svo spennandi ástar-J
sögu, að aðeins vinsæiustu bækur hennar sjálfrar kom-|
ast þar i samjöfnuð við.
ÍSf ! NV.K 'II > ,>(;yfcÓ,-,ru
iu#>moA
m | ■
ÍSLENDINGA SÖGUR MEÐ NÚTÍMA STAFSETNINGU
í útgáfu Gríms M. Helgasonar og Vésteins Ólasonar
Og nú er einnig hægt að fá bækurnar með afborgunarkjörum — aðeins 500
krónur á mánuði.
Þessi eina heildarútgáfa Islendinga sagna og þátta, sem fáanleg er með þeirri stafsetningi
sem lögboðin er i landinu, hefur hlotið almennt lof allra gagnrýnenda.
„Þessi útgáfa er prýði á hverju heimili og því meiri hollvættur, sem hún er betur lesin”. —
Andrés Kristjánsson í Tímanum.
„Það er einmitt höfuðkostur hinnar nýju útgáfu hve sögurnar verða aðgengilegar og aðlað
andi að lesa þær í þessum bókum". — Ólafui Jónsson í Vísi.
SKUGGSJÁ
Strandgötu 31, Hatnartirði
Sími 50045