Morgunblaðið - 16.12.1972, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. DESEMBBR 1972
Hið nýja Listasafn Norður-.Tótlanfls gert eftir teikninííum AI vars Aalto ásanit konu hans og aðstoðarmanni, Dananum Jea n Jaques Baruél.
Á síðastliðnu sumri átti sér
stað merkur myndlistarviðburð
ur á Norður-Jótlandi, en þá
var þar tekið í notkun nýtt
myndlistarsafn í Álaborg,
byggt eftir verðlaunateikning-
um Alvars Aalto og Elissu
konu hans, svo og Danans Jean
Jaques Baruél. Daninn hafði
verið samverkamaður þeirra
hjóna á árunum 1948—‘54
og gerðist félagi þeirra í sam-
bandi við hina samnorrænu
byggingarsamkeppni 1957. Var
hugmynd þeirra valin úr 144
innsendum tillögum.
Vígsla þessa glæsilega safn-
húss þótti viðburður, sem get-
ið var í flestum helztu blöðum
á Norðurlöndum og það mjög
svo veglega í sumum þeirra.
Þótti mér Islendingar vera þar
afskiptir um merkan menning-
arlegan viðburð, þar eð þessa
var að engu getið í hérlend-
um dagblöðum, að því er ég
bezt veit. Staddur i Kaup-
mannahöfn nýverið ákvað ég
að gera mér ferð til Álaborg-
ar til að Iíta eigin augum hina
þegar nafntoguðu byggingu og
myndlistarverk þau, er/ hún
hýsti. Jafnframt hugðist ég á
heimleiðinni skoða annað til-
tölulega nýlegt myndlistarsafn
í Árósum (fullbyggt og opnað
1967) og bregða mér um leið
til Silkiborgar, sem þar er
skammt frá, og líta á safn og
framtíðaráætlanir Asger Jorn,
ásamt því að skoða hið ein-
stæða og fræga svonefnda mýra
lík frá Tollund á borgarsafn-
inu þar. Allt þetta stóðst og
varð þetta tveggja sólarhringa
ferðalag um Jótland í senn fróð
legt og skemmtilegt, en
all strangt. Ósennilegt
hefði mér fundizt, fyrir nokkr-
um árum, að ég ætti eftir að
hafa ærna ástæðu til að leita á
vit heimslistarinnar meðal
Jóta, en þeir virðast með þess-
um þrem söfnum ætla að taka
af allan efa í framtiðinni um
sinn myndræna þroska á háu
stigi.
Bygging Alvar Aalto og félaga
er mjög stílhrein og líkist þre'pa
pýramída, sem rís frá dalbotni
í sterkri meðvitaðri andstæðu
við skógi klæddar hliðar, en
að því er stíl áhrærir er hún
að nokkru framhald af funk-
sjónalisma fyrirstríðsáranna, er
mjög áhrifarík og virkar hvor-
tvegg.ja tíðarákvarðandi sem
óháð tíma. Að utan er bygging
in klædd hvítum Carrara-mar-
mara og áhrifanna svipar til
kaldrar geometríu, mildaðri
með einingaríkri fjolbreytni i
byggingarformi. Að innan eru
veggir hvítmálaðir og kemur
nákvæm múrsteinshleðslan vel
fram, áhrifin verða létt og loft
ræn, en andrúm nokkuð kalt,
sem myndum á veggjum og
gólfi mun ætlað að vega gegn.
Með sérstökum útbúnaði eru
myndirnar látnar hanga nokk-
uð frá veggjunum en það ávinn
ur rúmtilfinningu og loft um-
hverfis þær.
Hjónin Aalto og Baruél hafa
sameinað hér margar góðar hug
myndir, en þær eru ekki alltaf
formaðar á jafn einfaldan hátt
og grundvallarhugmyndin.
Þau br,-tu t.d. heiiann stift og
m’kið yfir vandamá’um lýsmgar
innar, og um það ber form bygg
ingarinnar órækt vitni. Baru-
él hefur látið hafa eftir sér op-
inberlega, að þeir hafi litið svo
á, að þeim bæri að taka
þá stefnu varðandi bygg-
inguna, að iýsing fyrir
listasafn hlyti að hafa sömu
þýðingu og hljómburður fyrir
hljómleikahöll.
Undir gluggum þaksins
hanga stórir endurgeislandi
fleygbogaskermar, sem eiga að
miðla óbeinu ljósi, en sem jafn-
framt virka líkt og áhugaverð-
ur skúlptúr í innréttingunni. I
gangi á milli hinna mörgu sala
hliðarljósa flæðir ljósið inn
með aðstoð endurgeislun-
ar veggflata. Auðsjáanlega hef
ur ekki með öllu verið mögu-
legt að reikna út áhrifin, því
að í ganginum nær ljósið ekki
nægilega langt niður og stað-
næmist fyrir ofan málverkin,
sem um leið verða i hálfrökkri.
Hannandi flevgbogaskermar í
ofanljóssölunum orsaka stöð
uga, fína og jafna dreifingu
ljóssins, sem verður því ekki of
sterkt þar sem það fellur
ekki beint, og á vissum stöðum
sleppur ljósið i gegn og varp-
ar sterkum og óhömdum sól-
blettum á sumar myndirn-
ar. En þetta ætti að vera hægt
að umbæta. Árangur bessara
flóknu útreikninga ljósgæða
koma þó víða vel fram, t.d. á
þann Veg, að góðar myndir fá
notið sín til fulls, en binar lé
legri afhjúpast. Salargólf
og gangar eru lagðir teppum,
sem einkar þægilegt er að
ganga á, og sé stigið út fyrir
þau á marmaragólfið, uppgötv
ar sá hinn sami að marmari er
JThfnð Hns sv’onefnda nvýrar-
lílts Þ'á Tollund.
st''”>.un riýkri nð ganga á en
’iHnr>
Uú.sið er ein hæð og kiallari,
uppi eru myndlistarverk og
stör kammermúsiksalur, iðri
eru tveir fundarsalir, verk
stæði fyrir safntæki, geymslur;
upplýsingamiðstöð og rúmgóð
kaffitería. Þá er ’-fii'byggt
stæði fyrir 100 bifreiðir enn-
fremur stór og veglegur skúlp
Loftmynd af Listasafni Norður-Jótlands í Álaborg. Til vinstri ofanljóssalirnir sem hvíla á
súlum. Fremst sést innganguri nn og aftast liringleikhúsið.