Morgunblaðið - 28.12.1972, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.12.1972, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1972 Ljóti andarunginn u// <sm 'h L »"/ (44) r—\^ Skemmtið ykkur við hið fallega ævintýri H. C. Andersen um Ljóta andarungann, sem var gerður brottrækur úr andagarðinum, en lauk ævi sinni sem fallegasti svanurinn. Hver leikandi byrgir sig upp með 10 hnetum. Við spilið þarf tening og spilapening fyrir hvern þátttakanda. Ef þið hittið á svartan reit, gerist eitthvað. Góða skemmtun. Leikreglur 2. Andamamma ungar út eggjum sínum, en það er bið eftir síðasta unganum. Bíddu eina umferð. 3. Loks brotnar eggið. Stór og ljótur ungi kemur i ljós. Greiddu hverjum mótleik- ara eina hnetu. 6. Andamamma syndir yfir tjörnina, til að kynna unga sina í andagarðinum. Færðu þig fram til nr. 9. 11. „Uss, sjáiö ljóta ungann," segja þau öll. Allir fæfa sig fram um tvo reiti. 14. „Hann er of stór og Ijótur og við ger- um aðsúg að honum," segir kalkúninn. Bíddu eina umferð. 15. Aumingja unginn flýr yfir girðinguna. Færðu þig fram til nr. 18. 19. „Þú ert undarlega flóttalegur," segja viliiendurnar. Þú færð eina hnetu frá hverjum til huggunar og trausts. 22. „Trum-puff“ heyrist i byssu veiði- mannsins. Farðu aftur til nr. 20. 28. Hundur veiðimannsins vill elcki einu sinni bita í ljóta andarungann. Bíddu þar til þú færð 1, 3 eða 5. 33. Vindurinn gnauðar um hinn yfirgefna ljóta andarunga. Hver leikandi á að gefa 3 hnetur. 35. Andarunginn flýr inn hlýja stofuna á litla bóndabænum. Færðu fram til 36. 38. „Þú átt ekki að blanda þór í samtal skynsamra vera," segja kötturinn og hænan. Farðu aftur til nr. 34. 41. Vetur gengur í garö. Dragðu 1 frá þeim tölum sem þú færð i næstu tveimur um- ferðum. 47. Aumingja ljóti andarunginn er aö frjósa fastur í ísnum. Biddu þangað til allir hafa komizt yfir nr. 37. 52. En aftur brýzt sólin fram og andarung- inn hrífst at fallegu hvítu svönunum. Þú færð aukakast. 57. Andarunginn drýpur höröi og sér speg ilmynd sína í vatninu. Hann er ekki lengur ljótur andarungi, heldur svanur. Þú færð 4 hnetur frá hverjum leikanda. 60. „Sjáið, nýr svanur hefur bætzt í hóp- inn og hann er fallegastur," hrópa börnin. Það skiptir engu þú að maður hafi fæðzt í andargarði, þegar maður hefur legið i svanaeggi. Þ0 HEFUR UNNIÐ. '// N\\

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.