Morgunblaðið - 23.01.1973, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.01.1973, Blaðsíða 11
MOHOUNBL.AÐIÐ, ÞtRIÐJUÐAGUR -23: JANUAR-1&73 11 Halldóra við skrifborðið sitt. Þeíta er ekki borð manneskju. sem situr auðimi höndum. Myndin er tekin á Ási í Vatnsdal, þar sem Halidóra er fædd, 14. október 1873. Þangað fór hún með systur sinni sl. siunar og var myndin tekin 19. ágúst 1972. Halldóra er i miðið, syst- ir hennar, áttræð til vinstri og ráðskonan á Héraðshælinu á Blönduósi til hægri. sér. Við höfum haft sýningar með kvenfélagsÆunduim i 50 ár. Þar var kynnt margt gamnalt og gott. Og ég hafði rikisstyrk, blessuð vertu, Og veiztu hver kom því til ieiðar? Ég var bú- in að sækja lengi uim rikisstyrfk, eins og þeir í garðyrkjunni. Handavinna er alveg eins merki- leg. Svo fór ég tii Kaupmanna hafnar með sýningu 1924, og þar var Sveinn Bjömsson. Þau hjón in voru að fara heim. Og hann sagði við alþingismennina. Það er eðlilegt að hún Halidóra fái stynk, látið hana hafa það sem hún biður um. Og það varð. Ég man ekki lengur hvort það voru 500 eða 1500 kr. Það fékk ég öll árin. Einu sinni haekkaði styrk- urinn svolitið. Ekki af þvi að ég bœði um það, heldiur af þvl að alMir hækkuðu. Ég var svo í þess- um ferðaiögum til 1967 (þá var Halldóra 95 ára). Þá kom einn dag bréf frá alþingl Þar sagði: trÞú ert komin á eftirlaun." Ég var ekkert að biðja um að hætta. Nú hlær HaHdóra dátt. En ég var þá komin á eftirlaun. ég man ekki hve mikil þau eru. 70 þúsund á ári, held ég. — Þegar ég fór til Ameríku, þá var mér bóðið af Þjóðræknis félaginu og kvenfélagasamlbönd um. 11 konur fjarska flínar, tóku á móti mér. Ég ferðaðiist um allt og hélt sýningar á íslenzkuim helmilisiðnaði. Það er góð ferð, 50 sýningar og þurfti aldrei að tala enskt orð. — Hvernig ferðaðistu um Is- land? — Á hestinum, sem æfctingjar minir i Ási í Vatnsdal gáfu mér. Seinna i bílurn og flugvélum. Ég kiom i hvern hrepp á Islandi, nema öræfasveitina. Hana sá ég bara úr fkiigvél. — Og þú hpfur ferðazt í bil- um og flugvélum, aiveg fram undir þetta? — Já, ég fór alltaf norður vegna útgáifu Hhnar. Seinast fóru þeir að sækja mig frá prrentverkinu. Þeir vildu endi- lega fá mig morður og ferðin fcek ur ekki nema 4—5 tíma frá Blönduósi til Akureyrar. Ég fór síðast norður í hitteðfyrra. En ekki nú í sumar, þvi hún Ragn- heiður Björnsson, sem ég bjó hjá, er orðin hei lsuilítil og var að sélja búðina sína. — 1968 fór ég suður á land- búnaðarsýninguna segir Haffl- dóra. Ég spurði karlana héma hVört þeir vildu koma með mér I flugvél. Þeiim þótti það auðvit- að dýrt Og sögðust hafa bila sjálfir. Ég tók þá bara fíugvél ein. — Og norður aftur líka. Hvort það borgaði sig? Já, sýn- ingih var sannarlega þess virði. Þetta var merkileg sýning. —- Og þú vilt láta gera eitt- hváð slikt fyrir þjóðhátíðina 1974? ;'-i— Já, það er til dæmis þjóð- búningurinn. Eitttivað þarf að gera fyrir hann. Til dæmis að láta framleiða þetta þunina fal- lega vaðmái í hann í staðinn fyr ir útíendu efnin. Það er svo mik ið til af búningum í Reykjavík oig um allt lánd1 sem mætti sýna. Konurnar tófeu honum Sigurði rriálara svo vel. Það var alveg ótrúlegt. Vinnukonumar fóru af stað. ! Ein vinnukonan haf ði 40 kr. árslaun, og hún sagðist ehdilega vilja eignast búning. HúStnóðir hennar sagði, að hún yrði að vinna fyrir honum i 2 oig Vz ár. Og sá búningur kvað vera til hér í héraðinu. — Ég man vel eftir þvi, þeg- ar Kristján kóngur og Alex- andría komu 1921. Þá skauibuðu 20 konur í veizlunni í Iðnó. Drottningin var auðvitað í skautbúningnum sínum, sem henni var gefinn. Hann kostaði 30 þúsund króniur og beltið kostaði 10 þúsúnd krónur. Það va.r safnað fyrir því. Margir voru á móti þvi, en það var drif ið fram. Þá sagði Friðirik krón- prins, sem þarna var með for- eldrum símtm: „Hér eru bara margar drottningar.“ Við vorum að gæta sýningarinnar, sem var i Iðnaðanmannahúsimi og sáum konumar koma í veizluna. Ég ætla að skrifa um þessa sýn- ingu fljótlega. ■— En góða, við megum ekki gleyma tóvinnu®kólanuim, segir Halldóra allt í einu. Hann var eitt það merkillegasta, sem ég hefi gert. Við rákum hann tvær frá 1946—55. Ég hafði keypt hús í Glerárþorpi 1940, á Mólandi. En skólinn var hinum megin við fjörðinn, á Svalibarði. Ég flór alltaf yfir um aðra hverja viku. Ég stóð í peningamálunum og ur Stefánsson kom og konan hans. Stefán Stefánsson, sem átti Svafflbarða, og leigði okkur fyrir aðeins 300 kr. á mánuði öll þessi ár, var frændi Vilhjáims. Þeir voru mjög Likir. Á Sval- barði var tóvinnusikólinn fyrir 8 nemendur. Ég var sjáltf í Mó- landi í 15 ár, keypti húsið fyr- ir 2600 og þegar ég fór, gat ég selt það á 50 þúsund krónur. Svo mikið var búið að gera fyr- ir það. —- Komstu þá hingað á Blönduós? — Já, 1955. Daginn fyrir gam'l- ársdag. Siðan, þessi 17 ár, hefi ég verið hér i Kolkakoti, sem éig kalla svo. PáM Koika læknir bjó svo vel um mig hér í nýja Héraðshælinu. Svo var ég á flandri héðan út uim alit. — Þú varst m.a. að gefa út þessa faliegu vefnaðarbók? — Hún kom út 1966. Amnars var ég búin að gefa út aðra bók áður. Það var kennslubók. Sig- rún Blöndal hjáipaði mér með hana. Ég fór þá á hverju ári austur að Hallormsstað til henn ar. Bókin var að koma út í 12 ár og fylgdi Hlín ókeypis. Gegn um Hlín hafði ég kynnzt hundr- uðum manna og svo kiom þetta af sjálfu sér að safna efni i bók- ina. Þá kom menningarsjóður og vildi gefa hana út. En ég á Stef- áni frænda mínum Jónssyni að þákka fallegu litmyndimar i henni. Hann lét prenta þær í Danmörku. — Þegar bókin kom út 1966, var einlægt verið að halda okkur veizlur. Þeir voru svo góðir við mann. Ég safnaði held ég 1500 áskrifendum að bókinni sjálf. — Fékkstu ekki fálkaorðuna það ár? — Nei, það var í fyrra. Það var svo kúnstugt, að ýmsir voru að óska mér til lukku með þessa orðu, en um leið að skamma þá fyrir að ég skyldi ekki hafa fengið hana fyrr! Og nú hlær Halldóra aftur dátt. — Mér var alveg sama um þessa orðu. En ég var auðvitað með hana þarna þegar hún var afhent. — Þó að þú hafir alltaf verið í forustu i kvenfélögunum og í svo mörgum þjóðþrifamálum, Halldóra, þá hefur þú ekki stað ið framarlega í kvenréttindabar áttunni. Af hverju? — Ég vildi það ekki. Ég álít að við höfum nóg réttindi, ef við bara notum þau. — En þegar ég hætti i bamaskólanum á Akur- eyri, þá vildu þær setja mig í bæjarstjóm og á þing. Ég var í bæjarstjóm. Svo fór ég suður, til að kenna við Kennaraskól- ann. En ég sagði nei, við að fara á þinig, þangað færi enigin nema Bríet. „Ég er ailtaf sammála síðasta ræðumanni. Ailir hafa sko mikið til síns máls. Svo það gengur ekki,“ sagði ég. — Og enn siturðu og skrifar í allar áttir. Ég hefi heyrt að enginn á Blönduósi fái annan eins póst eða sendi eins mikið af bréfum? — Já, ég skrifa mikið. Ég sagði í bókinni minni, að þegar ég var bam, þá hefði mig langað til að verða fræg. Loksins varð ég fræg — fyrir bréfaskriftir! — Jæja, Halldóra. þú ert nú búin að sjá svo mikið á langri ævi. Hefurðu trú á íisienzkri æsku? — Já, unga fólkið er gott og svo fljótt að hjálpa. Þeir hafa verið að skrifa um að á hátíð- inni 1974. verði allir fluilir. Þá kom fram þessi hugmynd að láta unga fólkið sjá sjálft um vínið, og ég skrifaði „Góðar fréttir". Það lizt mér vel á. Þegar manni er treyst og trúað fyrir ein- hverju, þá breytist allt. Ég vil halda því áfram að láta unga fólkið hafa ábyrgðina. Það má ekki gera allt fyrir það, í guðs bænum. Það mætti skrifa heila bók um framtíð Islands. Gaman væri að geta það. — Lifandis ósköp er gaman að hafa lifað svo lengi, og verið heilsugóð oig hafa veriO með svo mörgu skemmtilegu og góðu fólki, sagði Halldóra að lokum. En hún sagðist líka vera sátt við að kveðja. Bara taka því sem að höndum bæri. Hún kvaðst ætla að hvila á Akur- eyri. Hún væri búin að tnla við sr. Pétur og segja fyrir um hvemig jarðarförin eigi að vera. Aðeins eigi að syngja einn sáhn, sem hún hefur valið. En húin þurfi að Skrifa organistanum og biðja hann um að spila hann svolítið liflega, þvi fólkið eigi að syngja með. Þetta sé ekki sorgarstund. Sjálf muni hún heilsa hinum megin þeim sem farnir eru á undan henni. Þetta komi bara eins og aninað i Bftniu og verði tekið eins, þegar þar að kemur. viðtökum og svoleiðis. Vilhjálm- Halldóra Bjarnadóttir þakkar við hátíðiega athöfn, sem efntvar til er hún hlaut fálkaorðuna i fyrra. Við hlið hennar situr Jón ísberg sýslumaður og dóttir hans. Ljósm. Sigursteinn Guð mundsson. — E.P&. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 66.. 70. og 71. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1972 á eigninni Hlíðarvegur 15, Njarðvikurhreppi. þinglesin eign Málfríðar Þóroddsdóttur, fer fram eftir kröfu Jóns H. Jakobssonar, hdl., á eigninni sjálfri, föstudaginn 26. janúar 1973 kl. 3.00 e. h. Sýslumaðurinn i Gullbrmgu- og Kjósarsýslu. ÚTSALA — ÚTSALA ULLARKÁPUR TERYLENE-KAPUR VERÐ. KÁPU- OG DÖMUBÚÐIN, Laugavegi 46. REGNKÁPUR STÓRLÆKKAÐ Prentarar Liðlegan handsetjara, helzt vanan smáverkasetningu, vantar strax. Prentsmiðjan LEIFTUR, Höfðatúni 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.