Morgunblaðið - 23.01.1973, Blaðsíða 32
Offsetprentun
tímaritaprentun
litprentun
Freyjugötu 14* Sími 17447
ÞKIÐJUDAGUR 23. JANUAR 1973
nUCLV5inCRR
^-»22480
Hrapaði til bana
Akureyri, 22. janúar.
ÞAÐ slys varð í morgun um
klukkan 10.30, að maður hrapaði
til bana ofan af þaki heimavist-
arhúss M.A. Hann hét Gunnar
Harlsson, 49 ára, til heimilis að
Helgamagrastra*ti 46.
Gunnar heítinr. var starfsmað-
ur Menntaskólans, sá um við-
gerðir og vann ýmis önnur verk,
sem til féllu. Hann ætlaði í morg
un að gera við þakglugga, sem
laskazt hafð; í óveðri fyrir
skemmstu og fór í því skyni út
á þak heimavistarhússins út um
annan glugga. Hann mun ekki
hafa varazt, að glaer ísing var á
þakinu og flughálka, enda rann
hann niður þakið og fram af
b: úninni austan á húsinu. Hann
lenti utan í bíl, sem stóð undir
húsveggnum og féll siðan niður
á malbikað hlaðið. Hann lézt sam
stundis, enda var failið röskir
10 metrar.
Gunnar Karlsson iét eftir sig
tvö uppkomin börn. — Sv. P.
Herþota hrapar í Faxaflóa:
Flugmannsins
leitað í nótt
Fór í sjóinn 16 inílur
fyrir norðan Garðskaga
HERÞOTA frá varnarliðinu
hrapaði í sjóinn 16 sjómílur
norð-norðaustur af Garðskaga
í gær klukkan 18.20. í þotunni
var einn maður og þegar Mbl.
fór í prentun í gærkvöldi var
mannsins enn leitað og sam-
kvæmt upplýsingum blaðafull-
trúa varnarliðsins átti að halda
áfram leit í nótt. Flugmaðurinn
hafði möguleika á að skjóta sér
nt úr þotunni, en ekki var í
gær vitað, hvort honum hefði tek
izt það. Þotan var að koma inn
til lendingar og var aðeins í
um 500 metra hæð, er slysið
varð. f fylgd þot.unnar, sem
fórst var önnur þota.
Flugturnirm í Reykjavík til-
kynnti Slysavarnafélagi ís-
lands um slysið og sendi félagið
þá út tilkynningu til allra báta
og skipa í Faxaflóa og bað þá
fara til leitar. Jafnframt var sett
tilkynming í útvarp og bátar og
sfeip beðin um að hafa samband
við strandstöð. Fyrsti báturinn,
sem gaf sig fram var Ársæll Sig-
urðsson frá Akranesá, sem þá
var staddur skammt innan við
Garðskaga. Hélt hann sfrax
Framliald á bls. 20.
5,°GyI0/Uö
I dag kemur brezki dráttarbát urinii Statesman á íslandsmið. Á þessari mynd sjáum við hverjar
luigmyndir SigTnund, teiknari Morgunblaðins hefur um hiutverk hans á miðunum hér við land.
Skipstjóri Statesman er þó ekki á sama máli — sjá baksíðuramma neðar á síðunni.
Verkfall á togurunum
VERKFALE undirmanna á tog-
araflotanum skall á & miðnætti
síðastliðmi, en samtals hafa ver-
ið haldnir 14 samningaftindir án
þess að samkomulag næðist. Þó
mun mönnum bera saman um að
þokazt hafi í samkomulagsátt,
en breitt bil mun enn vera á
milli deiltiaðila. TJndirmennirnir
hafa krafizt 31 til 35% kaup-
hækkunar á mánaðarlaun auk
annarra krafna.
Þau launþegafélög, sem aðild
eiga að þessari deilu eru: Sjó-
mannafélag Reykjavíkur, Sjó-
mannafélag Hafnarfjarðar, Sjó-
mannafélag Eyjafjarðar, Akur-
eyri, sjómannadeild Verkalýðsfé-
lags Akraness og Matsveinafélag
SSÍ, en öll eiga þessi félög aðild
að Sjómannasambandi Islands.
Samningum sögðu félögin upp
á miðju sumri, en þeir urðu laus
ir 1. október s.l. Kröfur voru lagð
ar fram 4. september og nú á
miðnætti í nótt kom vinnustöðv-
un til framkvæmda. Hún hefur
það í för með sér m.a. að hinn
nýi skuttogari Bæjarútgerðar
Reykjavikur kemst ekki i fyrstu
veiðiferð sína að sinni, þar sem
togarinn var ekki ferðbúinn fyr-
ir verkfal'lið. Þá mun annar bæj-
arútgerðartogari, Hallveig Fróða
dóttir, stöðvast nú mjög bráð-
lega.
Vinnudeilan er i höndum sátita-
semjara ríkisins, Torfa Hjartar-
sonar. Hann boðaði fund í gær-
kvöidi klukkan 21 og stóð fund-
urinn enn, þegar Morgunbiaðið
fór í prentum.
Loðnan horfin
Virðist hafa dreift sér
hraustlega í þetta sinn
Statesman í höfninni 1 Leith.
Skipstjórinn á Statesman:
(Ljósm. Pétur Eiríksson).
Kvíði ekki að mæta ís-
lenzkum varðskipum
Statesman er stærsti dráttarbátur Breta og fjórði
stærsti í heimi — Búinn tveimur stórum vatnsbyssum
Frá Pétri Eiríkssyni, blaða-
manni Mbl. í Edinborg.
„STATESMAN er sterkbyggð-
ari en íslenzku varðskipin,
hraðskreiður, byggður eins
og skriðdreki og getur snúið
a.f sér hvaða skip sem er, svo
ég kvíði engu,“ sagði skip-
stjórinn á Satesman, mr.
Charles NobJe, er biaðamaður
ræddi við hann í Leith síðast-
liðinn laugardag, skömmu
fyrir brottförina á íslands-
mið.
Mr. Nobie, sem er maður
um fertugt, er frá Hull eins
og skipið og mestöll áhöfnin,
virtist vera ánægður með sitt
nýja hlutverfe, sem bonum þó
var ekki alveg Ijóst hvert
væri:
„Ég verð að viðurkenna að
mér er enm að mestu hulið,
hvert hlutverk okfear við ís-
land verður, en ég geri ráð
fyrir að við eigum að sigla
mólli togaramna og varðskipa
og koma í veg fyrir að þau
Framhald á bls. 31.
ENGIN loðnuveiði var í fyrri-
nótt eða gær, þrátt fyrir ágætt
veiðiveður um nóttina og fram
eftir degi í gær. „Þetta er hálf-
gert víindræðaástand," sagði
Jakob Jakobsson, fiskifræðingnr
um borð í Árna Friðrikssyni,
þegar Mbi. hafði samband við
hann í gær. „Loðnan hefur dreift
sér svo hraustlega, að við höfum
hvorki fundið tangur né tetur
a.f henni undanfarna tíma.“
Árni Friðriksson var í gær
staddur um 20 mílur suðaustur
af Hvalbak, og að sögn Jakobs
var talsvert af bátum komið á
þessar slóðir, en ekki höfðu þeir
haft áramgur sem erfiði þann
sólarhringinm. Jakob sagði, að
þeir á Árna Friðrikssymd hefðu
Þrír piltar teknir
eftir innbrot
ÞRÍR 14 ára piltar voru hand-
teknir á sunnudag .eftir innbrot
í verzlun við Kárastig, þar sem
þeir höfðu stolið sælgæti og ým-
iss konar varningi. Rannsóknar-
iögreglan hefur haft rannsókn
máls þeirra með höndum, en
henni er ekki lokið.
að visu ekki leitað norðúr eftir,
en nokkrir bátar hefðu þó reynt
það en haft lítið upp úr því.
7 kg af
hassi
á síðasta ári
ALLS voru um 7 kg af hassi
gerð upptæk af lögreglu og
tollvörðum á íslandi á siðasta
ári, samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. hefur aflað sér, og
er heildarverðmæti efnisins
talið nm 2,1 milljón króna,
miðað við markaðsverð á Is-
landi. Verðmæti þess magns,
sem gert var upptækt a,f of-
skynjunarefninu LSD, er tal-
ið nema nm hálfri milljón
króna. Fer heildarverðmæiá
þess magns fíkniefna, sem
upptækt var gert, því tols-
vert fram úr heildarverðmæti
þess áfengis, sem toUverðir
gerðu upptækt á árinu.