Morgunblaðið - 13.02.1973, Qupperneq 18
18
MORGU'NBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1973
— Dollarinn
Framliald af bls. 1
verði teknar á morgun eða mið-
vikudag og að gjaldeyrisimflrk-
aðir verði lokaðir fram til þesa
tíma.
Verðbréf í kauphölliinni í New
York hækkuðu verulega í verði
í dag, þar sem kaupsýsiumenn
telja að gengisfelliing Bandaríkja
dollarans og hæfekun marksins
ög yensins verði til að hleypa
nýju lífi í bandarískt efnahags-
líf og sfórauka útflutning, og
eftirspum á innainlandsmarkaði,
er dragi úr innflutn.ingi frá Jap-
an og Vestur-Þýzkalandi.
Nær allir gjaldeyrismarkaðir
á vesturlöndum voru lokaðir í
dag, nema i Sviss, en þar féll
gengi dollarans enn. 1 öllum op-
inberum viðskiptum, svo sem á
hótelum og í verzlunum, fengu
bandariskir ferðamenn í Evrópu
10—15% minna fyrir dollara
sína, en þeir fengu fyrir helgi.
Þá neituðu sum spilavíti að
skipta dollurum.
Anthony Barber, fjármálaráð-
herra Breta sagði í brezka þing-
inu í dag, eftir að hann sneri
heim frá Bonn, ,,að viðræðurnar,
til að leysa vandann- meðal hátt-
settra fjármálasérfræðinga hafa
gengið mjög vel“. Fréttir hafa
borizt um það frá París að m.a.
hafi verið samþykkt að fella
gengi pundsins, en pundið hef-
ur verið mjög veikt á gjaldeyris-
mörkuðum undanfarna mánuði.
— Flutningar
véla
Framhald af bls. 32
þar ákveðið að taka þessu boði
vamarliðsins, og formleg beiðni
um aðstoðina afgreidd. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Al-
mannavannaráði mun ráðið v'nna
að framangreindum björgunar-
störfum í nánum tengslum við
eigendur atvinnufyrirtækjanna í
Eyjum, bæjarráð og almanna-
vamarnefnd Vestmannaeyja og
Vestmannaeyjanefnd.
HÆTTAN EKKI AUKIZT
„Við töldum sjálfsagt að hefj-
ast strax handa um að flytja
burt þær vélar og tæki, sem
auðveldast er að ganga frá til
slíkra flutninga og þá jafnframt
þær vélar sem fljótlegast er að
flytja hingað aftur," sagði Magn
ús Magnússon, bæjarstjóri í sam
tali við Morgunblaðið í gær. —
„Þetta er fyrst og fremst öryggis
ráðstöfun, því að við viljum vera
viðbúnir hinu versta, enda þótt
hraunrennslið hafi ekkert mjak-
azt í átt að hafnarsvæðinu síð-
asta sólarhringinn. Frostið og
norðanáttin hjálpa okkur núna
við að stöðva framrás hraunsins,
en einnig er stöðugt dælt á það
sjó tM kælingar. Og hvort sem
það er því að þakka eða ein-
hverju öðru hefur hraunstraum-
urinn stöðvazt að vestanverðu en
hraunjaðarinn hrannast þar
upp.“ Hraunjaðarinn er þvi enn
í um 80 metra fjarlægð frá hafn
argarðinum og eru enn 100—200
metrar í fyrstu fiskvinnslustöðv
arnar, sem næst standa á hafnar
svæðinu. Þær eru Hraðfrystistöð
in, Fiskimjölsverksmiðjia Einars
Sigurðssonar, Fiskiðjan og ísfé-
laglð en á móti Hraðfrystistöð-
inni handan Strandvegar er Raf
veitustöðin. Að sögn Magnúsar
bæjarstjóra eru nú væntanlegar
til Eyja stórar álleiðsluir frá vam
arliðinu og dælur frá Björgun hf.
og á að dæla utn þær sjó, sem not
aður veirður við kælingu hrauns
ins. „Eftir því sem reiknað hefur
verið dugir eitt tonn af sjó til
þess að kæla sex rúmmetra af
hrauni niður fyrir storknnnar-
mark, eða um 700 gráður,“ sagði
Magnús.
SÉRHÆFÐIR FLUTNINGA-
HERMENN
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér hjá upp
lýsingaskrifstofu varnarliðsins i
gær voru tvær Herkúlesvélar þá
væntanlegar til Keflavikurflug-
vallar um kl. 11 i gærkvöldi. —
Komu vélarnar frá Langley-her-
fkigvelli í Yirginiu í Bandaríkj-
unum og með þeim 43 manna
flokkur hermanna — 11 foringj-
ar og 32 óbreyttir — sem sérhæfð
ir eru til alls kyns fiutninga á
vegum hersins. Er gert ráð fyr-
ir, að flutnngar hefjist í dag,
svo framarlega sem veður leyfir,
og munu þá Herkúlesvéiamar
tvær vera í stöðugum flutning-
um milli Vestmannaeyja og
Reykjaivíkur, en aðeins lenda á
Keflavíkurflugvelli til að taka
eldsneyti. Herkúlesvélarnar geta
hvor um sig tekið allt að 20 tonn
í ferð, en að sjálfsögðu er magn-
ið nokkuð háð ytri aðstæðum,
svo sem veðri, vegalengd o. fi.
Þá skýrði Magnús Magnússon,
bæjarstjóri, blaðamanni Morgun-
blaðsins frá því að von væri einn
ig á 8 þúsund lesta skipi úr flota
Bandarikjanna og kemur það frá
Norfolk. Hefur skipið innanborðs
kranaþyrlur, landgöngupramma
og 100 metra langa brú, sem
hægt er að leggja í land frá skip
inu. Skipið mun eiga eftir um
viku siglingu til landsins og á
það að verða til taks ef á þarf
að halda, en á skipinu eru sér-
þjálfaðar sveitir manna til flutn
inga.
— Búnaðarþing
Framhald af bls. 3
annan. Það er ánægjuleg þróun
á þessu sviði hér á landi. Svo vel
hefur tekizt til með þennan iðnað
að hann líkar mjög vel. Ullarpeys
ur og kápur úr íslenzkum gærum
eru gæðavörur að ógleymdum ull
arteppunum. Það er óneitanlega
mikill styrkux fyrir landbúnaðinn
að til skuli vera innanlands vold-
ug og sterk iðnfyrirtæki, sem
fylgjast með tízkunni og eru vak
andi í viðskiptalífinu innan lands
og utan.“
Síðar í ræðu sinni sagði Ásgeir:
„Það er íslenzku þjóðinni nauð
synlegt að afla eins mikils gjald
eyris og unnt er. Og þótt hliutur
landbúnaðarins á því sviði sé
ekki stór miðað við heildargjald
eyristekjur þjóðarinnar, hefur
hann eigi að síður mikla þýðingu
þar sem við búum við gjaldeyris
skort. Þjóðina munar um minna
en gjaldeyristekjur á annan mill
jarð króna.
Útflutningur á landbúnaðar-
vörum, unnum og óunnum, var
sem hér segir árið 1972:
millj. kr.
Kindakjöt og innmatur 194,7
Mjólkurafurðir 94,2
Ull 25,9
Gærur, saltaðar 111,0
Húðir og skinn 20,0
Refa- og minkaskinn 15,4
Hross, lifandi 38,8
Ýmislegt 15,6
Afurðir af veiði, selveiði
og æðarvarpi 46,6
ísJ. iðnaðarvörur, ioðsútuð
skinn og húðir 266,6
Ullarlopi og ullarband 206,0
Ullarteppi 68,5
Prjónavörur úr ull aðallega 210,6
Alils gerir þetta 1.153,9 millj kr.
Það eru ekki ýkja mörg ár síð
ftn við Islendingar fórum að flytja
út iðnaðarvörur, sem byggjast á
landbúnaði. Þótt búvörufram-
leiðslan sé mest innan þessara
marka, þá fáum við fyrir sumar
búvörur mjög gott verð og mark
aðir þessir hafa farið batnandi.
Ég er bjartsýnn á framtíð land
búnaðarins. Sem betur fer á land
búnaðurinn mikla möguleika. Það
er alltaf eitthvað lífrænt og nýtt
að gerast hjá þeim, sem umgang
ast búfé, yrkja jörðina og stunda
veiðar í ám og vötnum.“
BÚNAÐARMENNTUN
f ávarpi sínu ræddi Halldór
m.a. búnaðarmenntun og sagði:
„Síðasta Búnaðarþing fjallaði
mikið um búnaðarmenntun. Á sl.
ári varð mikil breyting við
bændaskólann á Hvanneyri. Guð
mundur Jónsson hætti, fyrir ald
urssakir, eftir 25 ára skólastjóm
þar og 44 ára kennsiu á staðnum.
Einnig hætbu kennaramir Gunn-
ar Bjarnason og Óttar Geirsson
kennslu þar, að eigin ósk og Guð
mundur Jóhannesson, ráðsmaður
vegna veikinda. Allir höfðu þess
ir menn unnið mikið og gott starf
í búnaðarkennslu og starfi sinu á
Hvanneyri. Sérstaklega Guð-
mundur skólastjóri, sem veitt
hafði staðnum forustu í aldar-
fjórðung og lagt Hvanneyri mest
alla sína starfsævi — og þar með
sinn landsþekkta dugnað og heil
indi í starfi.
Ungur maður skipar nú sæti
skólastjórans á Hvanneyri. Ég
vona að gifta fylgi honum í störf
um hans á Hvanneyri, svo og öll
um þeim ágætu ungu mönnum,
er þar veita nú þessari æðstu
menntastofn'un landbúnaðarins
forustu. Þeim er ætlað það hlut
verk, að vinna að þvi í samvinnu
við B.Í., Rannsóknarstofnun land
búnaðarins og Háskóla fslands að
koma upp að Hvanneyri fulJkom
inni búnaðarmenntun á háskóla-
stigi.
í samræmi við ályktun síðasta
Búnaðarþings hefur landbúnaðar
ráðuneytið skipað nefnd 5
manna, undir formennsku Jónas
ar Jónssonar, aðstoðarráðherra.
Auk hans eiga sæti í nefndinni:
Skólastjórar búnaðarskólanna,
Magnús Jónsson og Haraldur
Ámason og bændurnir Hjörtur
Eldjárn, tilnefndur af stjórn B.f.
og Jón Helgason, Seglbúðum, til-
nefndur af stjórn Stéttarsam-
bands bænda. Hlutverk þessarar
nefndar er að marka heildar-
stefnu um búnaðarfræðslu í land
inu, og miða við það takmark,
sem ég áður greindi.
Nefnd er til að undirbúa
byggingu bændaskóla á Suður-
landi, form. Hj alti Gestsson. Hún
á að gera tillögu um hlutverk
hans i bændaskólakerfinu, og
staðarvali með tiliiti til þess.“
Þá ræddi landbúnaðarráðherra
um jarðamálið, sem hann sagði
í lok ræðu sinnar að Væri mest
þeirra mála, sem fyriæ þinginu
liggja. Er það endurskoðun laga
um jarðeignir og ábúðalög. Verð
ur lagt fyrir þetta Búnaðarþing
árangur af störfum þeirrar nefnd
ar, sem að endurskoðun hefur
unnið, sagði ráðherra.
„Frumvörpin eru í þeim bún-
ingi, er nefndin gekk frá þeim.
Þessi lagafrumvörp verða ykkur
fengin til umsagnar og til að
gera þær breytingar, sem þið
óskið. — En ekki til birtingar. —
Nefndin mun taka málið til með
ferðar eftir að álit Búnaðarþings
liggur fyrir.
Það er imegintilgamgur með
samningu þessara frumvarpa, að
tryggja það að landið verði nýtt
á eðlilegan og hagkvæman hátt
frá þjóðhagslegu sjónarmiði og
að eignarráð á landinu og búseta
á jörðum sé sem hagkvæmust
sveitarfélögunum og þeim, er
landbúnað stunda.
í frumvarpinu er nýmæli um
svonefnd byggðaráð, sem eiga að
vera i hverju héraði. Þau ei,ga að
fylgjast með þróun bygigðar.
Þannig eiga heimaaðilar að hafa
forystu um að leiða þessi mál. í
þessum tveim frumvörpum eru
sameimuð atriði, sem áðuir var að
finna í 5 lagabálkum um þessi
efni.“
Búnaðarþingi verður fram hald
ið í dag.