Morgunblaðið - 24.03.1973, Side 14

Morgunblaðið - 24.03.1973, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1973 Hálfrar klukkustundar „plat“ í sjónvarpinu Eglll Eðvarðsson upptöku stjórl í lista- og skemmti- deild og aðstoðarmaður hans, Elisabet Benediktsdóttir ásamt myndveljara, Ijósa- meistara, stúdíóstjóra og tæknimanni við langt borð, hlaðið tækjum og tökkum. Á vegg fyrir framan þau voru fjöldamargir sjónvarpsskerm ar og stór klukka. Hljóðmeist arinn Vilhjálmur Þór Gísla- son hefur aðsetur sitt í sér- klefa inn af stjórnherberg- inu. Á meðan ég beið eftir því að upptaka hæfist, spurði ég Egil, hvaða undirbúningur hefði farið fram áður. Egill benti mér þá á að tala við Jónas R. Jónsson, sem sér um efnisval þáttarins. Hann tjáði mér að það tæki hann allt að tvær vikur að finna skemmtikrafta í þáttinn og æfa atriðin. — Hvert atriði er sérsamið fyrir þáttinn og það fer oft langur tími í að útvega íslenzka texta við lög- in og sulla saman bröndur- um, sagði Jónas. Þá er komið að skipulags- þættinum, Eftir að Jónas hef- ur valið efni í þáttinn, útbýr Egill „grindina" að þættinum og leggur hana fyrir fund með tæknimönnum sjónvarps- ins. Og eftir að öll fram- kvæmdaratriði lokaupptök unnar hafa verið rædd, ákveð in og raðað niður, fer vélin fyrst í gang. Hljóðmeistari Vilhjálmur Þór Gíslason sagði að upp- taka á undirspili í söngatrið- um þáttarins, hefði farið fram í 3 daga í siðastliðinni viku, og að þá upptöku hefði Marinó Ólafsson annazt. — Það sparar okkur óhemju En hálftíma glens og gam- an fyrir sjónvarpsáhorfendur er annað og meira fyrir þá, sem vinna að gerð og undir- búningi þáttarins. Reyndar er erfitt fyrir Ieikmann að gera sér grein fyrir þeirri gífurlegu vinnu, sem liggur í gerð hálftíma þáttar, og sjálf sagt eru margir, sem lítið hafa hugsað um þau mál. Hvernig fer upptaka fram, og hve lengi er verið að taka upp þátt sem Kvöldstundina? Til að fá svör við þessum spurningum og geta gefið hér sæmilega lýsingu á því, sem gerist, var ég viðstödd upp- töku kvöldstundarinnar, sem fram fór síðastliðinn þriðju- dag. Ég mætti kl. 10 á þriðju- dagsmorgun i upptökusal sjónvarpsins á Laugavegi, þar sem undirbúningur fyrir upp töku stóð sem hæst. Salurinn er aðeins 300 fm og ótrúlega lítill miðað við þá viðamiklu þætti, sem þar hafa verið teknir upp. í nær miðjum salnum hafði hringpalli verið komið fyrir, og á þessum palli komu skemmtikraftar kvöld- stundarinnar fram. Pallurinn var í fullu samræmi við smæð salarins, aðeins 3 metrar að rúmmáli, og það hvarflaði að mér sem snöggvast, er ég leit á hann, að líklega væri erf- itt að dansa ballett á svo litlu svæði. Það kom þó í ljós síðar, að slíkt var vel fram- kvæmanlegt. 1 lofti salarins eru fjölmarg ir Ijóskastarar og loftviftur og á gólfinu fyrir framan pallinn stóðu þrjár voldugar myndavéiar og ein hljóðvél með hátalara. í litlu herbergi til hliðar við salinn sátu þau Mynd úr upptökusal. Myndavélarnar þrjár og hljóðtækið beinast að hringpalliinim, þar sem verið er að kynna skemmtikraftana tvo, sem sjást einnig á pallinum. Sviðsstjórinn, Guðnuindur Guðjónsson getur líka verið al- varlegur. Níunda Kvöldstundin er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld, kl. 20.50. Nafnið „Kvöld- stund í sjónvarpssal“ gefur til kynna, að sjónvarpsáhorf- endur eigi von á glensi og gamni og geti í því tilefni ylj að sér við þá hugsun að hlusta á skemmtilega tónlist og hlæja sig máttlausa að orðheppnum brandaraköll- um. — Það er ekki vanþörf á að bæta aðeins við varalitinn, sagði snyrtidama sjónvarpsins. í næstu upptöku gengur þetta. Egill Eðvarðsson upptökustjóri lista- og skemmtideildar ásamt Elísabetu Benediktsdóttir, aðstoðarupptökustjóra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.