Morgunblaðið - 24.03.1973, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1973
15
Egill Eðvarðsson, upptökust jóri uppi á palli að athuga mál-
in. Myndarar og sviðsteiknari bera saman bækur sínar.
mikla vinnu við lokaupptök-
una að taka tónlist upp áður.
Vilhjálmur sagði, að söngur
hefði einnig verið tekinn upp
áður í nokkrum atriðum, og í
þeim tilvikum „mæmuðu"
söngvarar aðeins í lokaupp-
töku, (mæma er að líkja eftir
sönig með vörum).
GUÐMUNDUR
„REDDAR“ ÖLLU
Upptaka er að hef jast.
Egill athugar að allt sé til-
búið til upptöku í sjónvarps-
sal og myndatökumenn og
hljóðmeistari fara á sinn stað
og sviðsstjórinn, Guðmundur
Guðjónsson, óperusöngvari
gefur skemmtikraftinum, sem
á að koma fram i þessu atriði
góð og heilladrjúg ráð.
„Allt klárt,“ kallar Guð-
mundur. Egill biður ljósa-
meistarann að athuga Ijósin
og Elísabet athugar, hvort
myndsegulband sé tilbúið fyr
ir upptöku. Svarið er játandi,
og Elísabet tilkynnir að hálf
mínúta sé í upptöku. . . 15
sek. . . 5 . . . og nú. Egill
gefur merki og hljóðmeistari
stillir tónlistina inn í salinn.
Söngvarinn gengur fram á
sviðið og hefur söng. Á með-
an dansar Guðmundur sviðs-
stjóri og dillar sér á gólfinu
fyrir framan pallinn til að
losa dálítið á taugaspennu
söngvarans. — Guðmundur
er alveg snillingur í að fá
fólk til að koma eðlilega fram
og hann hefur bjargað mörg-
um upptökum með þessum lát
um, hvíslaði einhver að mér,
um leið og Guðmundur hopp-
aði upp.
Á skermunum fyrir framan
Egil upptökustjóra koma
fram myndir frá myndavélun
um þremur í salnum. Egill
horfir gaumgæfilega á mynd-
irnar og velur eina og eina
i senn, sem myndveljari still-
ir beint inn á myndsegulband
ið. . . Taktu nú nærmynd á
3, segir Egill .. . prófíl á 2
. . . þétt inn á hann núna
. . . nneigja sig, svona. .
fímt. Upptöku er -lokið. En
Egill er ekki ánægður. —
Endirinn var léiegur, segir
hann og gefur smá hlé.
Elísabet skrifar niður hve
lengi upptakan stóð, Egill
ráðfærir sig við starfsmenn-
ina í salnum og söngvarinn
ráðfærir sig við Rögnu,
sminkdömu. Eftir smástund
hefst svo upptaka á ný, og
söngvarinn kemur aftur fram
á pallinn. Þessi síðari upp-
taka er næstum nákvæmlega
eins og sú fyrri, nema hvað
Guðmundur sviðsstjóri dillar
sér heldur meira nú, og
söngvarinn syngur ögn
hærra. Egill gefur skipanir
út í sal til Guðmundar og
myndatökumanna og velur
myndir. Eftir 3 mín. 23 sek.
er upptöku nr. 2 lokið og Eg-
ill tilkynnir að þessi standi,
þ.e. ekki fleiri upptökur á
þessu atriði. — Báðar upp-
tökurnar fara inn á myndseg
ulbandið en sú betri verður
notuð, sagði Egill. I þetta at-
riði sem tekur 3 mín. 25 sek.
í útsendingu fór næstum
klukkutími í æfingar og upp-
töku. En Egill sagði að oft
tæki þriggja mínútna upp-
taka mun lengri tíma.
1 salnum sat Jónas og
fylgdist með að atriðin kæm-
ust til skila eins og þau
voru æfð. — Varakipringur
og ójafnvægi á milli raddar
og hljóðs getur eyðilegt heila
upptöku, sagði hann.
Að þessu atriði loknu kom
næsti skemmtikraftur inn i
salinn í fullum skrúða og
upptaka á öðru atriði hófst.
1 kvöldstundinni í kvöld
eru alls 17 atriði, sem tekin
eru upp á um 32 klukkustund
um, þar með talin hljóðupp-
taka. Að vísu eru atriðin
ekki tekin upp í sömu röð og
þau eru í útsendingu, því eft
ir að upptökurnar hafa verið
færðar inn á myndsegulband
ið ráðfærir Egill sig við starfs
menn myndseguldeildarinnar
sem síðan raða saman bútum
og stytta eftir skipun Egils.
Samsetning og stytting á
myndsegulbandinu er miðuð
við hálfrar stundar útsend
ingu.
Og nú má segja, að ég sé
búin að opinbera „platið" í
sjónvarpinu, eins og einhver
komst að orði við mig.
á.k.
i mrn ,sí ’fSmm i f 1 • ■ §>M%m
* ' * *
... í’
Tríóið „Lítið eitt“ sér um kynningu á skemmtikröftum í kvöidstundinni í kvöld. Hér sjá
um við tvo liðsmenn ír-ósins ásamt sviðsteiknara .ióni Þóris n .y -I »n ' ;* R ’ inssyni.
Upptökustjórnarherbergi: Egili velur myndir frá skermunum, en myndin, sem birtist á
skermi (st.út) fer inn á mynd egulbandið.
RaBhús — Keflavík
Til sölu nýlegt raðhús að Greniteig 25. Húsið er til
sýnis í dag, laugardag:nn 24. marz, kl. 3—5.
Tilboð óskast. — Réttur áskilinn til að taka hvaða til-
boði sem er eða hafna öllum.
Mallorka
2. — 15. maí
ódýr öryrkjaferð
Beint þotuflug til Palma, Mallorka.
Gisting í fyrsta flokks íbúðum í Magaluf.
14 daga ferð, verð frá kr.: 15.900,00.
Allar nánari upplýsingar
í símum 41760, 40810, 71278.
DRAUMUR í
STEREO
Fjöldi manns á ekki aðra ósk heitari en að
eignast vönduð hljómflutningstæki, t.d. útvarp
með öllum hugsanlegum bylgjum, eða plötu-
spilara, eða stereo magnara með fallegum há-
tölurum, eða segulband (kasettu) sem hægt
V er að hafa í bíl, bát, tjaldi, eða fallegri hand-
f tösku, eða segulband í fallegum harðviðar-
• kassa sem sómir sér vel í stássstofunni og
hefur ekta stereo hljóm og stereo upptöku.
I En vandinn var alltaf sá, hvað ætti að kaupa
t af öllum þessum tækjum, og hvar ætti að
^ kaupa þau. VANDINN ER LEYSTUR. Hjá okkur
getur þú séð ALLAR ÓSKIR þínar rætast.
Við bendum á:
STEREO-magnari Tútvarp 2x35 watts á kr. 33.800.
STEREO-magnara 2x25 watts á kr 13.900
STEREO-heyrnartól frá kr. 695.
Verzlunin
GELLIR
Garðastræti 11 sími 20080