Morgunblaðið - 10.04.1973, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.04.1973, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1973 Otgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúl Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjórl Björn Jóhannsson. Auglýsingastjórl Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóri og afgreiðsla Aðalstræti 6, símí 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sfmi 22-4-80. Askriftargjald 300,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. eintakið. essa dagána eru alþingis- menn óvenju önnum kafnir. Þingfundir eru haldn- ir á kvöldin og föstudaga og laugardaga, en venjulega eru þingfundir einungis frá mánudegi til fimmtudags. Ef undan er skilin afgreiðsla fjárlaga í desember hefur þetta verið býsna rólegt þing, enda lítið um stórmál frá rík- isstjórninni, sem hafa þurft afgreiðslu við. En nú bregður skyndilega svo við, að ráð- herrarnir henda hverju mál- inu á fætur öðru inn í þingið og krefjast afgreiðslu þeirra á nokkrum dögum. Fyrirætl- an þeirra er nefnilega sú, að senda þingið heim fyrir páska. Sú spurning vaknar auðvit- að, hvers vegna ríkisstjórn- inni er svo mjög í mun að losna við þingið fyrir páska, þegar höfð er í huga sú stað- reynd, að fjölmörg síðbúin stórmál hafa verið lögð fyrir þingið síðustu daga, sem krefjast verulegrar umræðu og skoðunar þingmanna. Þá er einnig rétt að rifja upp, að Eysteinn Jónsson, forseti sameinaðs Alþingis, hefur á undangengnum árum verið talsmaður þess, að þingið ætti að standa lengur á ári hverju en tíðkazt hefur og á þeim grundvelli hafa einnig verið rökstuddar þær miklu launa- hækkanir, sem alþingismenn hafa fengið á undanförnum misserum. Enda þótt heimsending Al- þingis nú fyrir páska, þegar svo stendur á sem nú, sé aug- ljóslega í andstöðu við þær skoðanir, sem Eysteinn Jóns- son hefur manna mest túlkað um þinghaldið er þó augljóst, hvers vegna ríkisstjórninni ér svo mikið í mun að þing- menn pakki saman og hverfi til síns heima eftir rúma viku. Ástæðan er einfaldlega sú, að svo miklir brestir eru komnir í samstarf þeirra þriggja flokka, sem að ríkisistjórnánni standa, að hún getur nánast engu stóru máli komið í gegn- um þingið með tilstyrk þing- manna stjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin hefur algjör- lega gefizt upp við að ráða bót á hríðversnandi ástandi í efnahagsmálum þjóðarinnar í samráði við Alþingi og hún óttast mjög, að Alþingi taki fram fyrir hendur hennar og ákveði að senda málflutn- ingsmann til Haag. Þess vegna er það fyrirætlan rík- isstjórnarinnar að losa sig við þingið og stjórna með bráðabirgðalögum næsta hálfa árið eða fram á haust í von um, að með því móti megi henni takast að berja í brestina og komast yfir þá erfiðleika, sem hún á nú í. Augljóst má vera, að við þessi vinnubrögð er ekki hægt að una. Alþingi verður að fá nægan tíma til þéss að fjalla um þau fjölmörgu mál- efni, sem liggja óafgreidd og sem kastað hefur verið inn í þingið að undanförnu. Þá er það einnig eðlileg krafa til ríkisstjórnarinnar, að hugs- an.legar ráðstafanir í efna- hagsmálum verði ekki ákveðnar með bráðabirgða- lögum, heldur verði þær teknar til meðferðar á Al- þingi. Ennfremur er ljóst, að svo mikill skoðanaágreining- ur er um það, hvort flytja eigi mál íslands í Haag eða ekki, að nauðsynlegt er að umræður fari fram um það á Alþingi og þingið taki ákvörðun um, hvort svo verð- ur gert eða ekki. Þegar allt þetta er haft í huga er ljóst, að það er hið mesta óráð, ef fallizt verður á þau áforrn ríkisstjómafrinnar að senda þingið heim fyrir páska og þess verður að vænta, að þingmenn taki ráðin af rík- isstjórninni í þessu máli eins og þeir hafa gert í fjölmörg- um öðrum málum á þessu þingi. Það eru óviðunandi vinnu- brögð í lýðræðisríki, að rík- isstjórn komist upp með að velta vandamálunum á und- an sér án þess að um þau sé fjallað með eðlilegum hætti í þinginu og sendi þingið heim áður en tímabært er, til þess að losna við þau póli- tísku vandamál, sem í því eru fólgin fyrir ríkisstjórmna, að þingið sitji. Þess vegna verð- ur að vænta þess, að stjórnar- andstæðingar á Alþingi spymi hér hraustlega við fót- um. HVERS VEGNA VILL STJÓRNIN L0SNA VIÐ ÞINGIÐ? Dagrún Kristjánsdóttir: Sjáandi sjáið þér ekki og heyrandi he yrið þér ekki Það hefur alltaf verið ríkur þáttur í eðli manna að sjá ekki annað en það sem þeir vilja sjá — eða heyra ekki annað en þeir vilja heyra og skilja ekki nema það sem kernur þeim bezt. Þessi eiginleiki heíur komið skýrt í ljós hjá ýmsum þessa síðustu daga. Ég hef aldrei orðið þess vör að neitt gott leiddi af þvi að snúa sannleikanum við, rang- túlka orð eða gerðir annarra og snúa seglum eftir vindi, eins og margur virðist gera, —- viljandi eða óviljandi. Af þvi getur aðeins leitt það eitt að þeim er þetta gera er aldrei treystandi, jafnvel þó að svo vilji til að stundum hrjóti þeim satt orð af vörum. Margt illt hefur af því hlotizt að vera ekki sannleikanum trúr og sjálf um sér. Viðbrögð og skilningur sumra á framtakssemi húsmæðra í Hús mæðrafélagi Reykjavíkur og ann arra reykvískra húsmæðra — að mótmæla endalausum verðhækk unum og verðbólgu — er vægast sagt mjög undarlegt fyrirbæri. Það skilningsleysi sem lýsir sér í orðum andstæðinga okkar er af því tagi að varla er hægt að láta sér detta í hug að það stoði neitt að rökræða málið, því þeir eru fyrirfram ákveðnir í því að sjá ekki, heyra ekki og skilja ekki. 1 stað þess að fara með rétt mál og hafa rétt eftir, taka þeir það til bragðs að hreyta ónotum í húsmæðrastétt landsins, og viðhafa um hana óviðurkvæmileg og mjög óhefl- uð orð, rangtúlka og fara með bein ósannindi. Það er venja þeirra sem vita sig röngum megin, að grípa til fúkyrða og smánaryrða, en þeirra eigin skömm er mest, er það gera. Ég hygg að húsmæð ur séu ákaflega þakklátar fyr- ir það að vera kallaðar „ríkar kerlingar" og sagt að þær séu með „hrein fíflalæti" og „bros- legt brambolt" þegar þær geta ekki lengur þolað þá stefnu sem nú ríkir í verðlagsmálum og auð sjáanlega er beint að heimilun um fyrst og fremst. Það liður ekki svo dagur að ekki séu auglýstar nýjar verð- hækkanir á nauðsynjavörum heimilanna. Nokkur dæmi: Kjöt fars hækkar um 20 kr. kg, vínar- pýlsur um 31 kr. kg, bjúgu um 16 kr. kg, kæfa um 20 kr. kg. Ekki þarf að minna á verð- hækkanir á öðrum landbúnaðar vörum 1. marz. 19. marz er auglýst verð á fiskbollum og fiskbúðingi i dós- um, heildós af bollum kostar nú kr. 79, og hálfdós 53 kr. Fisk- búðingur heildós 110 kr. og hálf dós 65 kr. Kaffi hækkaði um 10% fyrir 1. marz, smjörlíki um 5%. Hækkanir á hita og raf- magni um 20%, hækkun afnota- gjalda sjónvarps og útvarps 26—34%, — svona mætti lengur telja, en líklega nægir þetta til að sanna að verðhækkunarskrið- an er á fullri ferð, og ekki sýni legt að hún hægi á sér fyrst um sinn. Er það ekki sjáifsagður og eðlilegur hlutur að reyna að spyrna við fótum, þegar svo er komið að það er oftast nýr verð miði kominn á vöruna þegar næst er keypt? Og hver er út- koman þegar farið er að huga að öðrum nauðsynjum heimil- anna, eins og rafmagnstækjum, húsbúnaði, búsáhöldum, ljósa- tækjum, hreinlætistækjum og hreiniætisvörum, rúmfatnaði og búnaði í því sambandi. Þetta virðist allt vera álitin lúxusvara því tollurinn er frá 80% og oft ar þó 100%. Hverju sætir þetta? Það er mjög auðskilið. Það er ekkert heimili sem kemst af án þessara vara, — hvorki í sveit né kaupstað, þess vegna er það svo tilvalið til að afla ríkinu ör- uggra tekna, að setja hæsta toll inn á nauðsynjarnar. Alveg það sama gildir um mat vöruna sem mest er keypt, hún er dýrust, — hún er nauðsyn- leg, og þess vegna mestur gróða vegur að hækka hana í verði meira en annað. Hingað til hef ég álitið að húsmæður í sveit þyrftu Hka hagsmuna að gæta til jafns við húsmæður í kaup stöðum landsins og væri þess vegna ekki sama um það hvort varan væri dýr eða ódýr. Þess vegna kemur mér það undarlega fyrir sjónir þegar þær koma fram með mótmæli gegn því að við reynum að beita áhrifum svo að varan lækki í verði sem þær þurfa jafnt á að halda. Hver eru rökin fyrir þeim mót- mælum? Þau að einhvers staðar þurfti að byrja og áð landbún- aðarvörur urðu fyrstar á listan um? Ástæðan fyrir því var aug ljós. Landbúnaðarvörur hækk- uðu svo gífurlega að þess eru engin dæmi fyrr né síðar. Þessi hækkun fyllti bikarinn og kom af stað þeirri mótmælaöldu sem beint er gegn öllum hækkunum á nauðsynjum. Það er skýrt tek- ið fram i fundarsamþykktinni að fundurinn mótmæli harðlega öllum verðhækkunum og þeirri óðaverðbólgu sem þeim fylgir. Það ætti ekki að þurfa að taka það fram að það er einmitt vegna þess að landbúnaðarvör- ur eru með hollustu fæðuteg- undum okkar íslendinga að við Dagrún Krist.jánsdóttir. viljurn mótmæla því að þær, ásamt öllum öðrum hollum fæðu tegundum, séu sprengdar svo upp í verði, að fáir geti veitt sér þær. Við viljum mótmæla því að þær fæðutegundir sem gefa mesta líkamlega hreysti og eru ómissandi fyrir hvert heim- ili séu verðlagðar sem lúxus- vara, sem fólk með venjulegar tekjur verður að neita sér um. Það hiýtur að vera augljóst að það er enginn ábati fyrir selj- andann að verðið sé svo hátt á vörunni að enginn geti keypt hana, það gildir jafnt um allar nauðsynjavörur. Seljandinn hlýtur að græða á því að sem flestir kaupi og að sem mest sé keypt, en því er hægt að ná að- eins með því að verðið sé viðráð anlegt fyrir venjulega fjöl- skyldu. Það er þetta sem Húsmæðra- félag Reykjavíkur er að berjast fyrir, en ©kki það að bændur eigi ekki og þurfi að fá sann- gjarnlega fyrir sína vöru. Þetta er hvorki árás á bændur né hús mæður í sveit, — þó að ráðherr ar og vikapiltar þeirra gerðu bæði klaufalega og spaugilega tilraun til að láta líta svo út. Mér þykir bara leitt að húsmæð ur úr hreppum Árnessýslu skyldu láta draga sig hingað suður á föls'kum forsendum og láita kaffiboð ginna sig — hver skyldi annars hafa borgað kaff- ið? Og ferðirnar? Fyrirsögn í Tímanum 22 marz: „Broslegt brambolt". Ég vil að- eins gera svolitla athugasemd við þennan ágæta leiðara blaðs- ins og einnig beina þeim til- mælum til höfundar hans að hann fari sem skjótast til lækn- is og láti bora upp á sér eyr- un, því heyrnardeyfa virðist há honum á hæsta stigi. Þar stend- ur meðal annarra merkilegra staðhæfinga „að ein þessara íhaldskvenina kom fram í sjón- varpinu í íyrrakvöld og lýstí röksemdunum fyrlr þessari her- ferð. Þær voru þær einar, að félagsskapurinn væri á nióti þvi yfirleitt að landbúnaðarvörur hækkuðu i verði.“ Ég sagði aftur á móti að til- gangur okkar væri sá að mót- mæla öllum verðhækkunum, ekki aðeins landbúnaðarvörum. Síðan segir orðrétt „Að vísu varð talsmaður valkyrjanma að viðurkenna það í sjónvarpinu að i staðinn fyrir landbúnaðar- vörur, yrðu þær að kaupa vörur sem væru miklu dýrari og alls ekki eins hollar heimilismönn- um.“ Þetta eru einnig hrein ósannindi: Við spurningu frétta manns um hvað ég vildi benda húsmæðrum á að kaupa í stað- inn, sagði ég orðrétt að ég gæti ekki bent á neina sérstaka vöru því að allt væri dýrt og mér fyndist ekkert betra að kaupa annað sem væri dýrara og óholl ara. Með því vildi ég benda húsmæðrum á að láta sig vanta vöruna — en fara ekki að Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.