Morgunblaðið - 10.04.1973, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 10.04.1973, Qupperneq 23
MORGUNBLA£>IÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1973 23 burðum. Hún lét hinar broslegu hliðar fylgja, — gerði óspart að gamni sinu. Ekki er ósennilegt að sá hæfileiki hennar að sjá björtu hliðar tilverunnar hafi gert henni margar erfiðar stund ir bærilegri. Hún var þakklát tilverunni fyrir þá hamingju, er hún bjó við. Hamingjurikt hjónaband, barnalán einstakt og góða heilsu. Fyrr á árum átti hún við heilsu leysi að stríða, en eftir þvi sem árin liðu varð heilsan betri. Oft ræddi hún um þær breytingar, er höfðu orðið á lífi hennar. Breyting frá fátækt, basli og erf iðleikum til bjargálna, — og þá heilsufarslegu breytingu, sem átt hafði sér stað. Anna var prýðilega máli far- in. Hún átti auðvelt með að ná tökum á áheyrendum, — talaði rösklega og af tilfinningahita. Árið 1971 lét Anna af for- mennsku i Verkakvennafélag inu, en því starfi gegndi hún frá 1968. Við formennsku tók dótt- ir hennar Sigurrós. Fyrir at- beina þeirra kvenna er þekktu til dugnaðar og kappsemi Sigur rósar fékkst hún til að gefa kost á sér til formannskjörs. I fyrstu var hún í nokkrum vafa um það, hvort hún ætti að taka starfann að sér. Hún hafði kynnzt þvi á heimili foreldra sinna, hve starf þetta var erilsamt og oft á tíð- um vanþakklátt. En hún var, eins og móðir hennar mjög sann færð um hlutverk verkalýðs- hreyfingarinnar og þörf þess að liðsmenn hennar tækju til hendi. Henni var tekið fagnandi strax á fyrsta aðalfundinum. Hún hlaut yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða við kjör formanns og hóf hún þegar störf af þeirri einurð, sem henni var lagin. Það var aðdáunarvert, hve mjög áhugi hennar var brenn- andi og hve sjálfstæð hún var í skoðunum og athöfnum öllum. Hún hafði líkt og móðir hennar starfað í fiskvinnslu við svokall að „bónuskerfi", — þeim var því öðrum fremur ljóst hve gallað það kerfi var. Því var það mik- ið áhugamál þeirra að breyta því og bæta, með það fyrir augum að auka jöfnuð inn an kerfisins og hlutdeild starfs- fólksins í afrakstri vinnunnar. Endurskoðun tímamældrar ákvæðisvinnu i frystihúsum hófst er Sigurrós tók við for- mennsku í Verkakvennafélaginu og er það skoðun mín, að hún hafi átt hvað drýgstan þátt í því að verkalýðshreyfingin fór að sinna þessum þáttum samn- ingagerðar meira en áður. Það var oft gaman að starfa að samn ingagerð með Sigurrósu. Hún var hörð af sér og orðum hennar fylgdi sannfæring, sem hafði sín áhrif. Það er greinilegt að konur í Keflavík og Njarðvíkum mátu þær mæðgur mikils. Undir þeirra forystu óx Verkakvennafélagið mjög félagslega og styrkur þess, sem samningsaðila var meiri en nokkru sinni fyrr. Keflvísk verkalýðshreyfing stendur í mik illi þakkarskuld við þær. Miss- ir hreyfingarinnar er mikill og verður skarð þeirra mæðgna vandfyllt. Sigurrósu var ljóst að styrk- ur verkalýðshreyfingarinnar er mjög undir því kominn, að afl hennar á pólitíska sviðinu sé virkt. Hún ræddi oft um þá póli tísku sundrung, sem ríkir meðal vinstri manna i landinu, — hve örðugt það er að fylkja liði verkalýðshreyfingarinnar til starfs í þá veru, að gera þjóðfé- lagið réttlátara. Hún aðhylltist iafnaðarstefnu í þjóðfélagsmál- um og lagði sitt á vogarskálina í þeim efnum. Þau hjón Sigur- rós og Guðmundur voru óvenju samhent. Studdi Guðmundur konu sína með ráðum og dáð í starfi hennar, enda sjálfur þátt- takandi í störfum verkalýðs- hreyfingarinnar. Var heimili þeirra eins og þau sjálf hlýtt og stóð mönnum opið. Við hjónin, sem áttum svo góða sam- vinnu við þær, þekktum þær svo vel, þökkum samfylgdina. Við biðjum góðan Guð að styrkja eftirlifandi maka, börn og aðra ættingja i þungum harmi. En eft ir situr minningin um góðar kon- ur, sem hvergi lágu á liði sínu, þar sem þeiri a var þörf. Kari Steinar Guðnason. 1 dag fylgjum við tii hinztu hvildar, kærri vinkonu okkar og móður hennar, þeim Sigurrósu Sæmundsdóttur og önnu Péturs dóttur, er létust af slysförum að- fararnótt þriðjudagsins 3. apríl. Er við hjónin heyrðum þessa harmafregn setti okkur hljóð, en vegir Guðs eru órannsakan- legir. Sissa mín, eins og við vin- ir þínir kölluðum þig, við eigum bágt með að trúa því að þú sért horfin yfir móðuna miklu, þú sem varst svo ung og lífsglöð. Þú sem áttir svo mörg áhuga- mál, sem þú hlakkaðir til að framkvæma. Oft ræddum við saman um þau mál, sem þér voru svo hjartfólgin, — verkalýðsmálin. Þá fundum við óbilandi trú þína á hugsjónir verkalýðshreyfingarinnar og nauðsyn þess að félagslegt rétt- læti nái fram að ganga. Við þekktum og hjálpsemi þína og það hversu barngóð þú varst. Þú áttir mjög gott með að umgang- así börn. Þú tókst lika oft að þér að gæta þeirra, og var það eftirtektarvert hve mjög börn sóttu til þín, — þau fundu þá hlýju, — þann kærleika, sem mót aði þig svo mjög. Þökkum við þér sérstaklega þá hjálp- semi er þú sýndir okkur í þess- um efnum. Við, sem eftir lifum eigum bágt með að skilja að þú skulir vera kölluð á brott í blóma lífsins, — aðeins 34 ára gömul. Minningin um góða konu mun geymast i hjörtum okkar, elsku Sissa mín. Við minnumst allra ánægjustundanna er við átt um heima hjá ykkur hjónunum og dætrum ykkar. Þótt við sem þekktum mannkosti þína eigum um sárt að binda, er harmur eig- inmanns og dætra sárastur. Við vottum þeim okkar dýpstu sam- úð og biðjum Guð að styrkja þau. Jafnframt vottum við Sæ- mundi og börnum >hans dýpstu samúð okkar hjóna. Helga og Ebbi. ÞAÐ er oft erfitt að lýsa tilfinn- ingum sínum með orðum og þær stundir koma í lifi manns sem slíkt er með öllu ógerlegt. Þann- ig var minum tilfinningum var- ið er ég frétti Mt þeirra önnu föðursystur minnar og Sigurrós ar dóttur hennar. Kvaddar burt svo skyndilega, S.gurrós i árdegi lífsins frá eig- inmanni og tveim ungum dætr- um og Anna enn á góðum aldri frá eiginmanni, bömum, tengda- börnuim og barnabömum. Maður spyr Hann sem öllu ræður. Var þetta ekki of mikið, of skyndi legt? Svarið verður aldrei nema eitt. Hann gaf svo mik'ð. Hann gaf okkur þessar góðu konur sem skilja eftir sig svo margar og fagrar minningar, sem nú eru huigigun i harmi. Hugurinn leitar tii baka, þeg- ar ég var ungur piltur að hefja sjómennsku með sonum þínum og eiiginmanni Anna mín og tengdasyninuim Guðmundi, manni Sigurrósar. Ég kom á heimili þ'tt á Árskógsströnd við Eyjafjörð, meðan þið bjugguð þar og naut þinnar alkunnu gest risni og hlýju. Örlögin höguðu því svo, að við hittumst oft á næstu árum á ýmsum stöðum. Þú að salta og ég að veiða. Þær urðu margar ánægjustuindirnar sem við átt- um þá saman, því aldrei var svo mikið að gera að þú ekki bak- aðir pönnukökur eða igæddir mér á heimabökuðum kökum, þegar ég heimsótti þig i bragg- ann. Yfir kaffinu var margt rætt og skyldleikinn þróaðist í órjúfandi vináttu. Til þín var alltaf gott að leita og vissi ég til að samstarfskon- ur þinar á þessum árum leituðu jafnan til þín ef eitthvað var að og litu á þig sem sjálfkjör- inn foringja í sínum hagsmuna- málum. Það var þvi ekki und- arlegt eftir að þið fluttuzt bú- ferlum t'l Kefliavíkur að þú vald ist til forystu í verkakvennafé- laginu. þar. Þú varst alltaf svo ákveðin og hreinskilin, mála- fylgjumanneskja sem munaði um þar sem þú lagðir hönd að. Þú varst alin upp við harð- ræði i æsku og nauzt ekki mdk- illar skólamenntunar, en með- fæddar gáfur voru rikulegar, og þú kunnir að hagnýta þér skóla lífsins og hafðir mikla og við- sýna þekkingu á hinum margvis legustu málum. Þú kunnir að gleðjast með glöðu'm og voru fáir þér snjaH- ari i ræðu í glöðum hópi. Þér var og lagið að koma fram hugs- unum þínum, bæði í bundnu máli og óbundnu, eins og þín hinzta kveðja til föður mins ber gott vitni um. Þið mæðgurnar voruð mjög samrýndar og var Sigurrós þér í mörgu lík, hún var félags- hyggjumanneskja sem alltaf var reiðubúin að berjast fyrir mál- stað og hag þeirra sem minna máttu sin, enda tók hún upp merki þitt í forystu verka- kvenna í Keflavik þegar þú dróst þdig í hlé. Guðmundur minn og Sæmund- u*r, ég veit að sorg ykkar og fjölskyldna ykkar er mikil, en þið eigið líka fagrar minn'ngar harmi gegn. Guðbjörg amma, við systkinin og fjöliskylduir okkar biðjum Guð að styrkja ykkur og styðja nú og um ókomin ár. Pétur Sigurrtsson. ÞRIÐJUDAGINN 3. apriil al. barst mér sú harmaifregn, að þá um nóttina hefðiu láifiat af slys- förum mæðgurnar Anna Péturs- dótti.r, Melteiigi 22, Keflavík, gift Sæmunidi Benediktssynd og Sig- urrós Sæmundsdótúir, Aðalgötu 16, Keflavík, gift Guðmundl Mariassyni. Ég sem þessar linur riita, áttt þvi lámi að fagna að fá tæki- færi til að kyninast þeiim mæðg- um i gegnum sitarf miitt í verka- lýðshreyfinigunni, þar sem þær störfuöu einnig, fyrst Anna en síðan Sigurrós, sem formenn Verkaikvennaféiags Keflavíkur og Njarðvlkur. Anna hafði hætt formennsku I félaiginu að eigiin ósk vorið 1971. Þar sem formannsstarf í stótt ar- félagi verðiur alloft nokkuð eriii- samt, og Anna búiin að starfa sem formaður félagsins í mörg ár, baðst hún undan endurkjöri. Hún treysti sér ekki lengur tiH að sinna starfinu með þeim brag, sem hún taidi að þyrfti og baðsit því undan endurkjöri, og kemur þar fram f.rekar öðru hin eimlæga afstaða hennar tíi þesis trúnaðarstarfs sem henni var þar falið. Það iftraust sem félagar henn- ar í verkakvennafélaginu báru til hennar, kom kannski ekki sízt í Ijós þegiair þær kusu dótt- ir hennar til að taka við for- mainnsstarfinu af henmi. Mér kemuir í hug mál^hátt- urinn „Sjaldan feliur epilið ítngt frá eiikinni“ og kemur mér í kug, að þær verkakonur, sem vori á þessum fundi hafi hafit þann málshátt í huga þegar þær kusi dóttur hennar sem formann fé lagsins, enda kom það brátt i ijós, að þar höfðu þær vaiið réti. Það kom fljótt í ljós, að Sigur- rós var veil til forystu Xallin, einlægur verkalýðssinni, sönn og öfgalaus i aiiri framkomu og hélit ávaillt á málefmum félaga sinma með þeim hættí að vera sér, félögum sínum og félagd ti vegs og virðimgar, enda voiru henni þökkuð störfin með því að hún var einróma endurkjörin formaður á siðaista aðalfundi fé- lagsins sem var haildinn nú fyr- ir stuttu síðan. Sigurrós eða Sissa eiins og þú varst venjulega kölluð af kunn- ingjuim þínum, mig liangair til að senda þér kveðju mírna yfir móð- una miklu, senda þér þakkir fyr- 'r hin aiMt-O'f si tu'ttu en góðu kynni. Ég hið góðan Guð að gefa þér þamm frið sem öMium er betri, frið þesis sem hefir lagt sitt af mörkum til að beeta og fegra mainnílifiið, eimis oig þú ieitaðist Franihald & bU. 28. Páskaegg f yrir fjölskylduna: Skidaferd med Flugf élagi íslands til Akureyrar og isafjaröar Bjóðum hjónum, fjölskyldum, námsmönnum og hópum sérstök vildarkjör. Kynnið yður sérfargjöld Flugfélagsins. Allar upplýsingar veita ferðaskrifstofurnar og Flugfélagið. FLUCFÉLAC /SLAJVDS ÞJÓNUSTA - HRAÐI - Þ/JEGINDI - X- '

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.