Morgunblaðið - 29.05.1973, Qupperneq 2
2
MORGU'NBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAl 19T3
SIGLINGAR
Fyrr á tímnm þótti sjáKsagt
að sigla á seglskipum enda var
ekki iini aðra farkosti að ræða
ef inenn ætluðu að fara sjóleið-
ina. Tímarnir hafa breytzt
og seglskipin vikið fyrir vélskip
unum. Þé hafa seglskip og segl-
bátar aldrei horfið af sjónarsvið
inu. Krlendis eru siglingar mjög
vinsart keppnlsiþrótt og einnig
sigla menn miklð sér til gamans
og heilsulrótar.
Það virðist hafa verið
útbreiddur misskiiningur meðal
fólks, að þegar minnzt er á sigl-
ingar, sé eingöagu átt við kapp-
siglingar. Eitt er víst, að menn
læra betur að stjórna seglbát
séu þeir í keppni, en undir öll-
um kringumstæðum er íþróttin
skemmtileg. Hér í Reykjavík er
starfandi Siglingaldúbburmn
Brcrikey, sem var stofnaður fyrir
S árnm af nokkrum áhugamönn-
um um siglingar. Höfðu þeir
k.vnnzt siglingaíþróttinni hjá
ÆlskuIýSsráði Reykjavíkur
og erlendis. Markmið klúbbsins
er að efla siglingar sem hollt og
skemmtilegt tómstundagaman,
jafnt sem hörku keppnisíþrótt.
Frá landfræði- og veðurfars-
legu sjónarmiði er aðstaða til
sigiinga hér á iandi góð. Eða
veit nokkur til þess, að á Is-
landi sé mikið um logn og heið-
skírt veður? Við höfum einnig
Skemmtilegt tómstundagaman
en jafnframt erfið íþrótt
Siglingar ern skemmtilegt tómstundagaman.
■ 2075
TeikiHiig wf hinu nýja húsi siglingaklúbbsins Brokeyjar en það áað rísa í Nauthólsvík. Kostitaður
«r áætlaður í kringum 1 miltjón króna.
Opið til kl. 8
í kvöld
HAGKAUP
Skeifan 15
þá sérstöðu meðal annarra þjóða,
sem stunda siglingar, að sumar-
dagamir eru langir og þess
vegna geta menn með góðu móti
iðkað siglingaíþróttina langt
fram á kvöld. Víðast hvar er-
lendis verða menn að láta sér
nægja að sigla um helgar og í
sumarleyfum. Nú á tímum, þeg-
ar frístundir manna hafa auk-
izt, er hvatt til aukinnar líkams-
ræktar og útivistar og ástæða
er til að benda á siglingar sem
heppilega íþrótt fyrir fólk á öll-
um aldri, jafnt fyrir konur sem
karla. Sigla má frá vori til
hausts en á veturna dunda menn
við að endurbæta eða setja sam-
an nýja báta.
Velja má um ýmsar gerð-
ir báta, þá minni smiða menn
oftast sjálfir eftir teikningum og
klassareglum ef bátamir eiga að
standast mál í keppnum. Þessir
bátar eru tiltölulega ódýrir og
er fljótlegt að smíða þá. I>á koma
stærri bátar, sem sigla má
langt á haf út eða milli landa.
Þessir bátar eru nú til da.gs oft
ast smíðaðir úr plasti og
er mesta úrvalið í Bretlandi og
á Norðurlöndunum.
Þær bátategundir, sem íslenzk
ir siglingamenn hafa mestan
áhuga á eru: Int. Fireball, Flipp-
er Skow og Mirror.
Fireball er teiknaður af Bret-
anum Peter Milne og hefur á
siðustu árum náð miklum vin-
sældum og er nú siglt á honum
I 68 löndum, sem gerir hann að
útbreiddustu bátategund í
heimi.
Um það bil 10.000 Fire-
ba/il-bátar haiia nú verið smíðaðir.
Fineball er léttur 2 manna bátur
80 kg að þyngd með 3 seglum
og geysi hraðskreiður. Hér á
landi eru 9 bátar.
Flipper er tiltölulega nýr bát
ur teiknaður af Dananum Peter
Bruun. Hefur útbreiðsla hans
orðið gífurleg á skömmum tíma.
Flipper er búinn til úr plasti og
er til í um 6.000 eintökum, flest-
ir eru á Norðurlöndum.
Mirror er teiknaður af Jack
Holt og er lítill fjölskyldubátur.
Er hann sérstaklega auðveldur í
meðförum, ódýr og auðveldur í
smíðum. Mirror má bæði nota,
sem segl- og róðrabát enda er
hann ekki nema um 50 kg að
þyngd. Mirror kostar um 30.000
kr. með öllum útbúnaði. Er hann
fáanlegur hérlendis ósamsettur
hjá Siglingasambandi Islands.
Hinir bátarnir eru nokkru dýr-
ari.
Ofangreindir bátar eru allir
útbúnir með rríikil loftrúm og
því ósökkvanlegir, enda hefur
það verið stefna Siglinga-
sambandsins að viðurkenna ekki
báta, sem ekki fullnægja þessum
öryggiskröfum að fullu. Auðvelt
er að rétta þessa báta við ef
þeim hvolfir, en það er gert með
þvi að snúa stefninu upp í vind-
inn og einn af áhöfninni notar
kjölinn sem vogarstöng og bát-
urinn réttir sig við.
Þróun tækja og búnaðar til
siglinga hefur verið ör á síðari
árum og er óhætt að segja, að
fáanlegt er mjög gott úrval full-
kominna hluta, svo sem öryggis-
tæki, klæðnaðuir og allt er varð-
ar mastur, segl og bát.
Það er mikilvægt að menn
gæti fyllsta öryggis i öllu er
varðar siglingar. Nauðsynlegt er
að menn séu syndir áður en lagt
er út á seglbát og þó að þeir séu
vel syndir er skylda að klæð-
ast flotvesti í öllum tilvikum.
Eitt brýnasta verkefni Sigl-
ingaklúbbsins í dag er að koma
sér upp aðstöðu, þar sem sigl-
ingamenn geta geymt báta sína,
lagfært þá, skipt um föt, farið í
bað á eftir siglingu og sinnt ýms
um félagsmálum.
Borgaryfirvöld hafa sýnt
þessu máli mikinn stuðning og
hefur klúbbnum verið úthlutað
svæði fyrir starfsemina í Naut-
hólsvík, en þar e<r aðstaða ákjós
anleg til siglinga. Samþykkt hef
ur verið teikning af klúbbhúsi
og er i því bátageymsla, bún-
ingsklefar, böð, snyrting og setu
stofa. Er ekki að efa að á bak
við þessa ákvörðun býr einlæg-
ur samhugur og áíhugi siglinga-
manna og borgaryfirvalda
að koma upp aðstöðu fyrir þessa
íþróttagrein hér á höfuðborgar-
svæðinu.
Fyrir svo ungan klúbb sem
Brokey, er þetta mikið átak og
því ærið starf fyrir höndum.
Klúbburinn þarf á nýjum og
áhugasömum félögum að halda
og eru félagsmenn reiðubúnir að
gefa allar upplýsingar um sigl-
ingar eftir því sem þeir geta.
Stjórn klúbbsins skipa: Ragn-
ar Guðmundsson (formaður),
Ari Bergmann Einarsson, Bjarná
Bogason og Sigurður Einarsson.
Grimnes
85,90 metrar
FYRSTA meiriháttar frjáls-
íþróttamótið í Noregi fór fram á
Bislettleikvanginum í Osló um
helgina. Þar kastaði Björn Grim
nes spjótinu 85,90 metra og átti
4 köst yfir 80 metra. Audun Gars
hoi hljóp 100 metra htaup á 10,4
sek. og Arne Kvalheim sigraði í
5.000 metra hlaupi á 13:41,2 mín.
Annar var ungur hlaupari, Olsen
að nafni sem bætti sinn bezta
tíma úr 14:38,6 mín. í 13:56,0
mín. 1 hástökki sigraði Leif Ro-
ar Flkun, stökk 2,09 metra og
Tormod Lislerud kastaði kringl-
unni 58,60 metra.