Morgunblaðið - 01.06.1973, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 01.06.1973, Qupperneq 9
HT<2*r>r'<TT,TVTT-»T *r>m r’^omrTin a ptto 1 u'rwr 107Q 9 HEIMSÓKN forseta Banda ríkjanna og Frakklands til Reykjavíkur grípur inn í ýmsa þætti borgarlífsins, fyrir utan þá, sem blasa við fréttamönnum og ráða- mönnum varðandi fundi þeirra. Báðir forsetarnir hafa búsetu við Laufás- veg, eins og fram hefur komið. Þar hefur verið komið upp allöflugri gæzlu. þó sýnu meiri við bústað Nixons, að dæma eftir samtölum við nokkra íbúa götunnar, sem Mbl. ræddi við í síma í gær. Þá er Flókagata frá Rauð- arárstíg að Lönguhlíð einn ig lokuð almennri umferð. „EINS OG A» VERA I SÓTTKVl“ 1 NÆSTA húsi víð brezka send'iráðið, á Laufásvegi 25, býr Ásgerður Einarsdóttir á- samt uppkomnum syni sínum og hjá henind leigir líka ungt, erlent par. Ásgerður sagði, að það væri engu líkara en hún og þau öl, sem þama byggju, væru í sóttkví, því að enginn mætti til þeirra koma og íbú- ar götunnar yrðu að sanna bú seturétt sinn til að fá að komast leiðar sinnar. — Þessu var öllu Jokað frá klukkan sex á miðvfikudaginn og verður ekki opnað fyrr en Bandarikjaforseti er farinn, sagði hún. — Sorour miinn brá sér út í sjoppu í gærkvöldi og lögreglan taidi öruggara að fylgjast með honum. Svæðið er lokað við Heliusund og Þingholtsstræti og Skothúsveg og ibúar hafa verið beðnir að leggja blium sínum helzt ekki Laufásmegin. — Ég er héma alveg á fyrsta bekk, hélt Ásgerður glaðlega áfram og sagðist hafa fylgzt með þvi, þegar Nix on kom á miðvákudagsbvöld- ið og öðru hverju siðan. — Mér fannst hann lágvaxnari en ég hélt, en hann er geðugri maður en myndir sýna hann. Það er óhætt að segja að hér er al'lt fullt af öryggisvörðum, bandarískum, sumir eru ein- kennisklæddir og aðrir ekki, og auk þess eru íslenzkir lög- reglumenn héma. Ég hef ekki orðið vör við þá á þökum né í görðum, en af öffiu má ráða að þeir hafa góðar gætur á öilu. Enda er það sjáifsagt fynst verið er að halda þennan fund hér á annað borð. Við eigum kannski erfitt með að taka svoma miklar varúðarráð stafanir alvarlega, en ég hygg nú að þeir Viti aiveg hvað þeir eru að gera. Ég var spurð að því í gær, hvort ekki væri spennandd að búa á svona stað. Ég svaraði þvi bara tii, að það væri nú ekki hundrað í hættunni, þótt maður mætti ekfci fá gesti í tvo daga. Það lifðu vist flestir af. Og þessu fylgja raunar engin óþægdndi. Mér hefur aftur á móti fund- izt stundum vera af þvi leið- inleg óþaígindi, þegar Víet- nammótmælendur eru að þyrp ast að sendlráðinu og hafa í frammi óspelctir og vaða þá hér yfir affit. Ég hef nú ekfcert orðið vör við, að neinir óboðn- ir reyndu að komast hér inn Gestirnir úr bamaafmæiinu ræða hér glaðhlakkalegir við löggæzlumennina á I.aufásveginum. Hamlan götimnar má sjá bifreið, Nixons, en framan við hana er einn af öryggisvörðum for- setans viðbúinn öllu. Bamaboð með leyfi öryggisvarða Hólmfríður Gunnarsdóttir og Margrét Jónsdóttir koma með böm sín úr afmælisveizlu sonar skólasystur þeirra, Brynju Benediktsdóttur. í götuna, enda býst ég ekfci Við að þeim reyndist það mögutegt. AFMÆI.ISBCH) 1 NÆSTA HCSI M« NEXON Brynja Benediktisdóttir og Ertvngur GísI;vson, leitoarar, búa að Laufásvegi 20, sem er í nágrenni við bandarísfca sendiráðið. Morgunblaðið hringdi til þeirra hjóna í gær, og varð Eriingur fyirir svör- um. Erlinigur saigði, að heilmikill hópur öryggisvarða væri þama við húsið. Hajnin hefði þó efcki orðið var við að þeir væru neitt að sniglast í görð- unum, og ekki hefðu þeir enn gert sig heimakomna iinnain dyra. „Hingað að húsinu hleypa öryggisverðimir þó engum öðrum en þeim, sem hér búa," sagði Erlinigur. „Ef við ætlum að bjóða heim gestum, verð- um við að tiikynna öryggis- vörðunum komu þeima, og er þeim þá fylgt alveg heim að dyrum. Það stendur einmitt svo skemmtilega á núna, að við erum að halda upp á fjögurra ára afmæli sonar okfcar, Bene dikts, og auðvitað urðum við að tilkynna um komu smá- föiksiins, sem er nær 20 tais- ins.“ Eriingur sagöi, að það hefði gengið alveg snurðulaust að koma gestunum í gegnum þröng öryggisvarðanna, — enda er hæpið að þeir lláti sig svo ungt fólk mikliu skipta. Það var greinitega mikið um að vera í afmælishófinu, og illa séð að heimiliB'faðiirinn héldi sig í sítmanum. Br hann kvaddi sagði hann að tekum: „Það má segja að öryggis- verðirnir hefðu máitt standa sig dálítið betur. Að minmsta kosti famnst okfcur hjónunum það í morgun, því kfiukkan átta fengum við heimsökm. Hafði gesturimn talað örygigis- verðima inn á að hleypa sér að húsinu, sem þeir gerðu. Okkur fannst nú að þeir hefðu a. m. k. getað beðið með það fram yfir níu til þess að gefa okkur tækifæri á að sofa út.“ EKKERT GESTAKOMU- BANN í GRENND VIÐ POMPIDOU Magnús Aðalsteinsson, lög- regluþjónn og kona hans Hjördís Bjömsdóttir, svo og 13 ára sonur þeirra, eru meðal íbúa við Laufásveg 65. Þegar við náðum tali af Hjör dlísi í gær var Magnús í vinnu, sonurinn að undirbúa bíióferð og hún í þeim hug- leiðinigum að fara út í garð að gróðursetja plömtur. — Okkur iíður alveg ljórn- andi vel og enda þótt Lauf- ásvegur sé rnieð rólegri göt- um, hefur sjaldan verið jafn kyrr og núna, sagði Hjör- dís. Við höfum sannarlega ekki yfir neinu að kvarta. Það er mikið af vörðum hér í allls konar búnimgum í grenndinni, og gatan er lok- uð við Njarðargötu og Bar- ónsstig. Ég býst við að fylgzt sé með því að engir óvið- komandi slæðist hingað, en hömilur á ferðir íbúa hef ég ekki orðið við og ekfki höf- um heyrt um að neitt bann væri lagt við því að hingað kæmu gestir. Til okkar komu til dæmis í gær hjón frá Akureyri og stúlfca úr húsinu var að fara úit í morgun og þetta hefur allt gengið snurðulaust fyrir sig. Því er ekki að neita að við höfurn auðvitað reynt að kíkja dálítið úit og ég sá þegar Pomipidou kiom í fyrra- dag. Mér sýndist þetta vera virðúlegur maður og rnynd- ariegur. Það var dálítill mannsöfnuður við götuna í fyrradag, þegar forsetinn kom og svo fór fóllk eittihvað að safnast sarnan aftur í gær miongum, en ég heid að það fólík hafi anmað hvort verið fréttmenn að gegna skyiidum sánum eða bara forvitndr veg- farendur, því að hvergi hefur örlað á því að til tíðinda drægi og ég hef ékfci orðið vör við verði, hvorki á húsa- þöfcum né í görðium. Að minnsta kosti ekki hér hjá olkfcur í húsinu. í HÚSINU beint á móti bú- stað Pomipidöu, Laufásvegi 68, búa hjónin Renata G. Heiðar oig Haukur Heiðar, ásamt börnum sínum þremur. Frú Renata varð fyrir svör- uim, er við slógum á þráðinn í gær. Kvaðst hún affis ekki hafa orðið fyrir neinum óþægind- um af völdum þess umstanig.s, sem hefði fylgt nærveru Frakklandsforseta. Öryggis- verðimir væru mjög háttvis- ir og þægilegir í viðkynningu. Þeir hefðu athugað alla garða þarna í ni&grenninu áður en forsetann bar að garði, en sið- an haldið sig framan igirð- ingarinnar. „Ég vorkenndi þeim svo í gær,“ sagði Renata, „að ég hellti upp á könnúna, og setti út kaffi á brúsa. Þeimi veitti ekki af einhverju heitu 1 norðannepjunni, sem var í gær, enda gerðu þeir sér kafí ið að góðu.“ Renata gat þess, að fyrir u.þ.b. einum mánuði hefði flutt í nágrennið danskur mað ur, sem hér væri á vegum Sameinuðu þjóðanna. öryggis verðimir hefðu . athugað feril þess manns, en aðrir ibúar hefðu enigum spurninigum þurft að svara. Um efltirlit með um- ferð til og frá húsunum þama i nágrenninu sagði Renata, að þanigað væri fólki ekki hleypt nema þeiim, sem þar byggju, eða ættu erindi við Sbúana. Þetta hefði þó ekki vaidið neinium óþægind- um. „í gaarkvöldi var t.d. hóp ur ungs fóllks, sem ætlaði að heiimsækja eiinin náigranna minn“, sagði Renata. „Þau voru stöðvuð héma úti á bomi, á meðan viðkomandi húsraðandi var sóttur. Lóðis- aði hann siðan ailan hópinn heim ,til sín,“ Aðispurð hvort hún liefði ékki gaman af því að fylgjast með nmstanginu sagði Ren- ata: „Jú, það er nú lílkilega. Hér fyligjast aiiiir með af mitolium áhuga, bæði böm og fullterðn- ir. Fyrir bönniumum er þetta hreint ævinitýri, og eru því lítil vandlkvæði á að halda þeim heimavið. Ég reyni þó að halda þeim innan dyra, þeigar forsetinn kemiur eða 'fler, — svona rétt af öryggis- ást.æðum." Flrú Renata sagði, að sér þætti heiðiur að því að Pompidou skiykli vera valinn staður þama við götuna. Það væri eklki á hwrjum degi, Framh. á bl». 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.