Morgunblaðið - 13.06.1973, Síða 13
MORGU'NBL/Ð Ð .i ..... GUR 13. JÚNÍ 1973
13
Vietnam:
Samkomulag í dag?
París og Saigon, 12. júní.
AP—NTB.
KISSINGER og Ue Duc Tho
halda áfram viðræðum sínum á
morgun, þar sem þeim tókst
ekki að ná samkomulagi á 4
tíma fundi í dag. Kissinger kom
í morgnn frá VVashington, þar
sem hann ráðgaðist við Nixon
forseta um málið og stóð flugvél
hans í allan dag tilluiin til brott-
ferðar á flugvellinum, en siðdeg-
is var tilkynnt að brottförinni
hefði verið frestað um óákveð-
inn tima. Ekkert var látið uppi
um viðræðurnar í Paris.
Fréttaritarar segja að sam-
komulagið sé næstum tilbúið til
undirriitunar, en telja að það sem
helzt standi í veginum sé and-
staða Thieus forseta S-Vietnams.
Thieu kallaði fuM'tnia sinn í Par-
xs heim i dag tii skrafs og ráða-
gerða.
Skv. samkomulagi þessu eiga
deiluaðilar í S Víetnam að leggja
niður vopn 24 klukkustundum
eftir að samkomulagið hefur ver
ið undirrit. ð. Skv. því e.iga here-
höfðingjar aðila að hittasit þar
sem átök brjötast út tii að stöðva
þau og verða svæðisstjómir deilu
aðila afnumdar. f>es®i tvö atriði
áttu að taka giidi þegar eftir und
irritun vopnahléssamningsins 28.
janúar, en S Víetnamar og Viet-
eong hafa ekki getað komið sér
saman um framkvæmd þeirra,
raunar eins og margra arunarra
atriði. Vonazt er t 1 að hægt
verði að und rrita samkomulagið
á morgun í fundarlok.
Danska stjórnin riðar:
Guð ogSASgeta bjargað
lýst þvi yfir að harm muni ekk'
greiða frumvarpinu atkvæði og
þarf því stjómin að fá atkvæði
Olssns, til að frumvarpið falli
ekk'. á jöfnum atkvæðum.
Talsmaður SAS i Kaupmanna-
höfn sagði í kvöld að þota fé-
lagsins, sem tekur 152 farþega
væri fulibókuð frá Syðra-Straum
firði og Olsen væri ekki meðal
farþega. Þó sagði hann að hugs-
anlegt væri að einhver af starfs-
mönnum SAS myndi víkja úr
sæti fyrir Oisen. Fiugvélin á að
lenda á Kastrupflugvelli um kl.
14 að dönskum tíma og nær þá
Oisen í tæka tíð til þinghússins
til að greiða atkvæði. Gárungar
í Kaupmannahöfn sögðu í kvöld
að nú væru það aðe ns Guð og
SAS, sam gætu bjargað stjórn-
inni frá faili. Er þar átt við að
veðurskilyrði við Grænland verði
hagstæð svo að SAS-vél n geti
lent og komizt burtu.
5% ÁNÆGÐIR MED
STJÓRNINA
1 niðurstöðum Gallupkönnun-
ar, sem kunngerð var í Dan-
mörku á sunnudag, kemur fram
að aðeins 5% Dana er ánægðir
með stjórnina, 36% nokkuð
ánægðir og 51% óánægðir. Hafa
Danir aldre á sl. 12 árum verið
jafn óánægðir með stjóm sina.
Rændu flugvél
með $400.000
í Himalaya
Nýju Delhi, 12. júni AP.
ÞRÍR vopnaðir menn rændu
flugvél i Himalayaríkinu Nepal
um helgina, neyddu flugmann-
inn til að lenda á yfirgefnum
flugvelli á Indlandi og komust
undan með peninga að verðmæti
rúmlega 400.00(1 dollara.
Leit sem indversk yfirvöld gera
að ræfningjunum er sögð ein sú
víðtækasta sem heíur verið gerð
á sáðari tímum, en hún hefur
engciin árangur borið. Lögreglan
segir að flugvélarránið hafi verið
þrauts-kipulagt.
Flugvélarræningjarnir voru
Nepalborgarar og virðast hafa
vitað um peningana sem voru
fluttir með flugvélinni. FlugvöM-
uri.n n sem lent var á er í frum-
Skógi í Bi'harfylki og hefur Mtið
verið notaður siðan hainn var
gerður í síðari heimsstyrjöldiraii.
15 farþegar voru í flugvélinni
og þá sakaði ekki. Flugvélin var
í innanlandsflugi.
Sáðast sást til flugvélaarræningj
anna á hlaupum i frumslkógin'um
með peningakassana. Peningamir
voru í eigu Nepalbanka.
W atergatemálið:
Stans neitar allri vitn-
eskju um málið
Washington, 12. júní AP—NTB.
MAURICE Stans, fyrrverandi
viðsk iptaráðhejra Bandaríkj-
anna kom í dag fyrir rann-
sóknarnetfnd Öldungadeildar-
innar í Watargatomálinu, eftir
að lögfræðingi hans hafði mis-
takizt að fá dómstól til að losa
hann undan mætingarskyldu.
Stans sagði fyrir nefindinni
að hann hefði ekkert vitað um
siímahleranir, eða brot á kosn-
imgalögum. Hann sagði að
hugsanlegt hefði verið um að
ræða einhver óviljandi, minttii-
háttar brot á kosningalögum, er
kveða á um fjáröfliunarleiðir
framlbjóðenda, en að öðru leyti
hefði hann ekkert að segja
nefndinini. Lögfræðingur Stans
hafði reynit að komia í veg fyrir
að skjólstæðingur sinn kæmi
fyrir nefndina á þeim forsend-
um að spurnimgar þar gætu
haft áhrif á stöðu hans gagn-
vart dómstáli í New York, þar
sem mál hefur verið höfðað
gegm honum í samibandi við
leynilegar peningagjafir í kosn-
ingasjóð Nixons. Nefndin féllst
hiins vegar á að spyrja Stans
efcki spurniniga í sambandi við
það mál.
Alrikisdómari í Washington.
neitaði i dag að veirða við til-
msalum Archibald Cox, sérstaks
saiksóknara í Watergatemálinu
um að bannað yrði að sjónvarpa
beint frá yfirheyrslum öld-
ungdeildarnefnidarinnar. Cox
sagði a-ð hætta væri á að ýmis-
legt kæmi fram í yfirheyrslum
nefindarinnar, sem gæti útilok-
að að hægt yrði að velja kvið-
dómendur í samibahdi við máls-
höfðanir, sem kynnu að rísa
síðar vegna Watergatemálsins.
Dómarinn, Sirica að nafni taldi
sig ekki hafa vald til að banna
beinar fréttaútsendingar.
Sam: dómari tryggði í dag
John Dean, fyrrverandi lögfræði
ráðunauti Nixons forseta, að
ekki yrði hægt að nota gegn hon
um við réttarhöld, það sem hann
kann að segja er hann kerour
fyrir rannsóknarnefndina n.k.
þriðjudag. Maurice Stans kemur
aftur fyr.r nefndina i dag, mið-
vikudag, og síðar um daginn J.
S. Mogruder.
Þegar Anna Bretaprinsessa var á ferð í V-Þýzkalandi fyrir
skömmu hitti hún auðvitað unnusta sinn Mark Phillips, sem
dvelnr í Þýzkalandí í brezka hemum. Hér sést Phillips kveðja
unniistu sína með kossi á flugveliinum i Hannover.
Kaupmannahöfn, 12. júnS.
NTB.
HEIMILDIR 1 Kaupmannahöfn
seint í gærkvöldi, sögðu að m.k-
ill spenningur ríkti nú í höfuð-
borginni yfir því hvort Moses Ol-
sen næði í tæka tíð f ra Graanlandi
á morgtm, miðvikudaig, til að
bjarga ríkisstjórninni frá falli í
atkvæðagreiðsl'Uinni um nýju
ibúðalögin. Þingmaðuæ jafinaðar-
manna, Erhard Jakobsen, hefur
Átta gervitungl
Moskvu 9. júní. AP.
TASS frétta-stofan tilkynnti á
laugardag að að Sovétmenn
hefðu skotið á loft átta Kos-
mos gervitunglum með einni
eidflaug.
Fréttastofan sagði að skot-
ið hefði gengið vel og gervi-
tunglin, seæn eru númeruð 564
til 571, hefðu öll komizt á áætl
aðar brautir. Um hlutverk
gervituniglanna var ekki getið,
nema hvað að þau væru á-
framhald á núverandd geim-
ranmsóknum.
Óeirðir á
Helsingjaeyri
Kaupmannahöfn, 9. júnS.
NTB—AP.
ÓEIRÐIR brutnst út á Hels-
ingjaeyri á föstudagskvöld,
þegar unglingar réðust á
tyrkneskan verkamann og
kveiktu í bifreið hans, til að
hefna fyrir morð á dönskum
leigubilstjóra kvöldið áður.
Annar tyrkneskur verka-
maður hafði verið handtekinn
og grunaður um að hafa fram
ið morðið. Þegar lögreglan
hugðist koma Tyrkjanum til
hjálpar, réðusit unglimgamir
gegn henni og bárust áflogin
fljótt um götur bæjarims. Lög
reglan varð að sækja liðsauka
til Kau pmannahafnar til að
geta bælt niður óeirðimar en
unglingarniir köstuðu óspart
bensáns'prengjum. Um klukk-
an tvö á laugardagsmorgun
tókst að koma á kyrrð en þá
höfðu fjórtán verið handtekn-
ir, en einn lögregluþjónn slas-
aðist iilla er hann varð fyrir
bensiínspiengj u.
Hiroshima og
Nagasaki mótmæla
Tokyo, 9. júní. AP.
POMPIDOU Frakklandsfor-
seta bárust i dag mótmæli frá
einu borgum heims, sem varp
að hefur verið á kjarnorku-
sprengjum, Iliroshima og
Nagasaki, gegn fyrirhuguð-
um kjaraorkutilraunum
Frakka á suðurhluta Kyrra-
hafs.
And-kjarnorkuvopnanefnd
Hiroshima, sagði í skeyti til
forsetans að „sem fómarlamb
sprengjunnar, mótmælum við
frettir
í stuttu máli
með mestu vandliætingu fyrir-
hugaðri tiiraun og krefjumst
þess að henni verði tafarlaust
aflýst." Svipuð skilaboð bár-
ust forsetanum frá Nagasaki.
Kína kaupir hveiti
Washington, 9. júni.
NTB—AP.
SAMKVÆMT upplýsingum
bandariska landbúnaðarráðu-
neytisins hafa Kínverjar gert
samning iim kanp á 2,5 millj-
ónum lesta af hveiti og einni
milljón lesta af maís frá
Bandarikjunum.
Afhending kornsins fer
fram frá 1. júlí n.k. og stend-
ur fram á næsta ár. 1 fyrra
keyptu Kínverjar 1,2 milijón
ir lesta af komi frá Bandaókj
unum. Landbúnaðarráðuneyt-
ið bendir á að aukning á korn
kaupum Kínverja stafi ekki
af aukinni þörf heldur hafi
Bandaríkitn náð stærri hluta
kínverska markaðarins.
Orörómur um heim-
sókn Sovétleiðtoga
til Kairó
Kairó, 10. júní. AP.
SÁ orðrómur hefur farið vax-
andi, að einhver sovézkra
leiðtoga muni heimsækja
Egyptaland í þessari viku, áð-
ur en Brezhnev fer í hina op-
inberu heimsókn sína til YVash
ington þann 16. jiiní nk.
Fékk orðrómurinn byr und-
ir báða vængi þegar sovézki
sendiherrann í Kairó átti fund
með háttsettum egypzkum
emhættismönnum sl. laugar-
dag, en sendiherramn hafði síð
ustu fimm daga átt tvo fundi
með Sadat forseta Egypta-
lands og Ismail, aðairáðgjafa
Sadats um öryggismál. Sovézk
og egypzk yfirvöld hafa neit-
að að tjá si'g um frétt í eirvu
egypzku dagblaðanna, þar
sem gefið var í skyn að Pod-
gomy, forseti Sovétríkjanna
myndi fara til Egyptalands
einhvem næstu daga.
1500 farast
í fárviðri
Jakarta 9. júni. AP.
UM fimmtán hundruð sjó-
menn fórust í röð fellibylja,
flóða og brotsjóa, sem gengu
yfir Sundaeyjar (lagana 29.
april til 2. maí að því er sam- -
göngumálaráðuneytið í Ja-
karta hefur tilkynnt.
Erfiðlega hafði gengið að
fá nákvæmar upplýsingar um
tjón á fólki og eignurn, en sam
kvæmt opinberum tölum eru
skemmdir á mamnvirkjum
metnar á 7,2 milljónir Banda-
rikjadala. Rauði kross Indó-
nesíu hefur hjálparflug á
mánudaginn frá Jakarta til
Sundaeyja með fatnað og iyf
að verðmæti 1,2 milljónir dala.