Morgunblaðið - 17.06.1973, Blaðsíða 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGtfR 17. JÚNÍ 1973
«
Æskulýösrád Reykjavíkur:
Sumarbúðir opnaðar í Saltvík
Fjölbreytt starf Æskulýösráðs
SUMABSTABF Æskulýðsráðs
Reykjavíkur er hafið. Starfsem-
in er fjölbreytt og gfeng-st ráðið
m. a. fyrir sumarbúðum í Salt-
vík, reiðskóla, siglingum í Naut-
hólsvík, kynnisferðum í sveit,
Skotlandsferð og sumarstarfi í
hverfum.
í surnar verða starfrœktar sum
arbúðir Æskulýðsráðs í Saltvík
á Kjalarnesi frá 12. júní til 28.
júlí. Þar g-efst börnum á aldrin-
um 11—13 ára tækifæri til að
dveljast í 6 daga í búðunum við
leiki, fjallgöngur, íþróttir og nátt
úruskoðun. 350 böm geta dvalizt
í búðunum yfir sumarmánuðina,
en aðeins 8 hafa sótt um. Vakií
sú spurning fyrir forráðamönn
um Æskulýðsráðs, hvort þörf-
um fyrir sumarbúðir sé full-
nægt vegna litillar þátttöku.
Þá er starfræktur reiðskóli á
vegum Æskulýðsráðs og Hesta-
majinafélagsins Fáks í Saltvík.
Þátttakendur geta verið á aldr-
inum 9—14 ára og er lengd nám
skeiðsins 14 dagar. Mikil aðsókn
hefur verið að reiðskólanum, að
sögn Hinriks Bjamasonar, æsku
lýðsfulltrúa Reykjavíkur.
Fyrirkomulag reiðskólans er
þartnig, að börnunum er skipt i
tvo hópa og fer fyrri hópurinn
frá Reykjavík kl. 8.20 og er þeim
kennt að sitja hest undir leið-
sögn kennara, en dveljast síðan
við teiki. Seinni hópurinn fer frá
Reykjavík kl. 12.30 og dvelst við
söm/u iðju.
Æsfculýðsráð gengst einnig fyr
ir siglingum í Nauthólsvik, og
geta börn, sem eru fædd ’57—’61
gerzt meðlimir í klúbbnum. Böm
in geta farið á bátunum fjóra
daga vikunnar, mánudaga, þriðju
daga, fimmtudaga og föstudaga.
Sumarstarf verður í hverfum,
og er opið hús fyrir ungiinga
frá 13 ára aldri í Breiðholtssköla,
Hagaskóla og' Langholtsskóla.
Móirgt verður til gamans m. a.
teikir, skák, borðtennis, spil óg
bob. Þá verður spiluð tónlist og
einnig er kaffitería á staðnum.
Kynnisferð í sveit á vegum
Æskulýðsráðs Reykjavíkur og
Sambands sunnlenzkra kveona
er einn þáttur í starfi ráðsms.
Dvalist verður í þrjá dága á
sveitaheimilum í Villingaholts-
og Hraungerðishreppum. Dvölin
er ókeypis, en þátttakendum er
skylt, að veita jafnöldrum simim
úr sveitinni einhverja fyrir-
greiðslu í Reykjavik. Þátttakend
ur mega vera á aldrinum 10—12
ára og er enn rúm fyrir um 30
börn í þessar kynnisferðir.
Stangaveiðiklúbbur unglinga
verður einnig starfræktur, og er
veitt í Hafravatmi, Rauðavatni og
Eniðavatni m. a.
Fyrirhuguð er ferð til Glas
gow í boði Æskulýðsráðs Glas-
gowborgar dagana 16.—31. júií.
Farið verður í ýmsar ferðir um
nágranmahéruð og borgina, stund
aðar stglingar o. fl. Aldur þátt-
takenda er 14—18 ára og er þátt-
tökugjald 12.000 kr.
Klúbbastarísemi verður mikil
i sumar að Frikirkjuvegi 11 m. a.
skemmti- og ferðaklúbbar, leik-
flokkur tinga fólksins, kvik-
myinda og ljósmyndaklúbbur og
aðstaða til fundahalda fyrir
æskulýðsfélög og samtök.
Innritun í flokka stendur yfir
að Fríkirkjuvegi 11.
Skoðun forráðamanna SÍS:
Stjórnvöld taki vanda
mál iðnaðarins til
sérstakrar athugunar
Rekstrarhalli SÍS 57 milljónir 1972
EFTIR þrjú sæmilega hagstæð
rekstrarár hafa gífurlegar kostn
aðarhækkanir á sl. ári, samfara
opinberum ráðstöfunum til þess
aS halda niði tekjustofnum, orð
ið þess valdandi, að verulegur
rekstrarhalli varð hjá Samband
inu á árinu 1972. Þannig segir
frá rekstri Sambands íslenzkra
samvinnufélaga í fréttatilkynn-
ingu frá aðaifundi þess, sem hald
inn var að Hótei Bifröst í Borg-
arfirði dagana 6. og 7. júní. End
anleg niðurstaða á rekstrarreikn
ingi Sambandsins er halli að upp
hæð tæpar 57 milljónir króna,
en árið á undan, 1971, varð hagn
aður af rekstri Sambandsins tæp
iega 24 milljónir króna.
í fréttatilkynningunni segir að
þegar talan 57 milljóiiir í tapi,
komi út hafi verið teknir til
greina l ðir sem opinber gjöld að
upphæð 57 milljónir króna, af-
skriftir eigna 116 miiljónir, end-
urgreiðsiur til Sambandsfélaga
og frystihúsa 24 milljónir króna,
vextir af stofnsjóði 15 milljónir,
önnur vaxtagjöld umfram tekjur
147 milljónir króna og loks launa
greiðsiur að upphæð 520 milljón
ir króna. Heildarvelta Sambands
ins nam á árinu 1972 7.509 millj
ónum króna og jókst um 916 miUj
ónir frá árinu áður eða um 13.9%.
Ér það verulega minni aukning
en verið hefur næstu ár á undan.
Mest var velta Sambandsins í
sjávarafurðadeild 2.355 milljónir
króna.
1 ársskýrslu Sambands'ns seg
ir:
„Það virðist samróma áiit
stjómenda í iðnfyrirtækjum
Sambandsins, að hin mikla stytt-
ing vinnutímans hafi orðið fyrir
tækjunum verulegur þrándur í
götu rekstrarlega séð, enda var
stytting þessi framkvæmd með
lendu verðlagshöft. Velferð
þeirra þúsunda, sem nú hafa
framfæri af iðnaðarstörfum, er
und'r því komin, að takast megi
að f'nna farsæla lausn á þeim
vandamáium, sem hér hafa verið
rakin.“
Reksturskostnaður Sambainds-
úis jókst á árinu um 145 milljón
ir króna eða um tæplega 39%.
I fréttatiikynningu frá Sam-
bandinu um aðalfundnn er að
finna þessar upplýsingar um
starfsemi þess árið 1972:
Á sl. ári var á vegum Sam-
bandsins unnið að þremur meiri
háttar íramkvæmdum. 1 fyrsta
lagi var lokið við Kjötiðnaðar-
stöðina í Reykjavík, í öðru lagi
20%. A árinu sýndu 30 þessara
félaga hagnað samtals að upp
hæð 41 m'llj., en 16 félög s|'ndiu
halla að upphæð 13 millj. kr. Er
því nettóhagnaður allra fél^g-
anna 28 millj. kr., en afskriftir
þeirra nema 141 millj. kr.
Verzlanir félaganna voru alás
195 í árslok, þar af 95 kjörbúðiir.
Starfsmenn þeirra voru 2.304 í
árslok og hafði fjölgað um 194 á
árinu. Heildarlaunagreiðslur
þeirra til verzlunar- og skrif-
stofufólks námu 475 millj. kr.
og hækkuðu á árinu um 145
millj. eða 44%.
þeim hætti, að naumast gafst
nokkur tími til aðlögunar eða
skipulagsbreytinga. Þessa byrði
hefur iðnaðurinn orðið að axla á
sama tima og samkeppni eriend
is frá fer mjög vaxandi.
Við geogisfellingarnar 1967 og
1968 var hið nýja gengi látið
gilda við afre kning á birgðum
og ógreiddum útflutningi. Iðnað
inum bættist þannig verutegur
tekjuauki í íslenzkum krónum,
og er óhætt að fullyrða, að fyrir
bragðið var hægt að ráðast í ým
iss konar uppbyggingu, sem ella
hefði dregizt á langinn eða íar-
izt fyrir með öllu. Við gengisfell
inguna í desember 1972 var horf
ið frá hinni fyrri reglu og ákveð-
ið, að gengismunurinn skyldi
ekki renna til iðníyrirtækjanna
sjálfra heldur í sérstakan sjóð á
varð iðnaðurinn aif nokkrum
tekjuauka, sem hefði a.m.k. get
vegum hins opinbera. Þannig
Frá aðalfundinum.
að orðið til þess að draga úr
rekstrarhaila ársins 1972. Við
hækkun á gengi islenzku krón-
unnar i lok apríl sl. var aftur
horfið til h nnar fyrri reglu og
nýja genginu beitt strax. Þannig
voru iðnfyrirtækin dæmd til að
taka á sig verulegan geng'shalla.
Það er skoðun forráðamanna
Sambandsins, að þannig horfi
nú fyrir islenzkum iðnaði, að
stjómvöid komist ekki hjá þvi
að taka vandamál hans til sér-
stakrar athugunar. Á síðustu
m'sserum hafa söluverð erlend
is ekki hækkað svo neimu nemi,
og er hér að sjálfsögðu um að
ræða þróun, sem er gerólák þeirri
er átt hefur sér stað á ertendum
markaðí sjávarafurða. Áður var
vikið að harðnandi samkeppni
innanlands vegna lækkandi tolla
á innfluttum iðnvarningi og að
k>kum má nefna heimatilbúið
vandamál, þar sem eru hin inn-
var haiidið áfram vélvæðingu i
Sambandsverksm ðjunum á Ak
ureyri og iokið við stækkun á
verkstmiðj uhúsi Fataverksmiðj-
unnar Hekiu, og i þriðja lagi var
hafin bygging fóðurblöindunar-
stöðvar við komturnatna í Sunda
höfn. Til þessara framkvæmda
var á árinu varið um 126 millj.
kr.
Fastráðnum starfsmönnum
fjölgaði um 163 á árinu, og voru
þeir 1.450 í árslok.
Starfandi Sambandsfélög voru
46 í árslok. Félagsmannafjöidi
Sambandsfélaganna var 36.541 í
árslok og hafði þeim fjölgað um
3.097 á árinu. Voru þá 17,4% fs
lendinga innan Sambandskaupfé
laganna.
Heildarvelta félaganna 46 að
meðtöldum söluskatti nam 10.421
raiHj. króna á móti 8<719 millj.
kr. árið 1971, sem er aukning um
Háskóla-
menn fá
samnings-
rétt
SEM kunnugt er þá hefur Banda-
lag háskólamanna barizt fyrir
öflun samningsréttar við kjara-
samninga allt frá stofnun þesis
árið 1958, en fram til þessa hefur
BSRB farið með samningsgerð
fyrir háskólamertn í opinberri
þjónustu.
Nú hefur hins vegar BHM feng
ið viðurkenninigu frá fjármálaráð
herra, um að það geti farið eitt
og sér með sina kjarasamninga.
Mun BHM annast alla kjarasamn
inga fyrir háskólmenn í opinberri
þjónustu framvegis.
Viðurkenning fjármálaráð-
manna er byggð á lögum um
kjarasamninga opinberra starfs-
manna, sem sett voru nýlega.
Picasso myndum
stolið
Amtibes 13. júní — AP.
Þjófar brutusit inn í Picasso
safnið í Antibes aðfararnótt
miðvikudags, og stálu þaðan
fjórum litlum litógrafíum,
en skildu eftir mörg mun
verðmætari verk eftir Pi-
casso.
Myndirnar sýna Francoise
Gilot, sem bjó lamgi með
Picasso. Verðmæti myndarma
er áætlað um tvær millj. Xsl.
kr.