Morgunblaðið - 17.06.1973, Síða 21

Morgunblaðið - 17.06.1973, Síða 21
MORGUjNSUMNUljAGOR 17. JÚMÍ 1973 53 MAZDA RX-2 í síðasta bilaþætti var rætt um Wankel vélarnar. Hér er litið á aðra af tveimur gerð- um Mazda bila með Wankel vélum sem þegar hefur verið ekið nokkuð hérlendis. Enn eru Wankel vélamar nokkru dýrari i framlelðslu en aðrar vélar vegna þess að fjölda framlaiðslan hefur engan veg inn náð hámarki og vélarnar sifellt endurbættar í ýmsum atriðum. Toyo Kogyo verksmiðjum- ar japönsku, sem smíða Mazda, hafa smíðað farair- tæki síðan 1920 og síðustu 10 árin hafa þær þróað snún ingsvélina (með leyfi fn'á Þýzkalandi). Wankel vélin í Mazda RX- 2 bíinum er tveggja sanigla (rotors) með tvöfaldri kveikju og gefur 130 hestöfl (SAE) við 7000 snún. á min. Stærð sprengirúms samsvar- ar 2292 rúmsm. Vélin vinnur vel og lipurlega. Viðbragðið 0—100 km/klst er 10 sekúnd- ur og hamarkshraðiun yfir 180 km/klst. Eins og aðrar Wankel vélar gengur þessi mjög vel á bensini með lágri oktantölu. Bensíneyðslan er hins vegar nokkuð mikil, frá um 17 1/100 km. Það er mjög þægilegt að aka innanbæjar í öðrum gír, en viðbragðið í hæsta gir ex ágætt frá einum hraða til annars. Gírsikiptingar eru auðveldar og gefa tilfiinningu um nákvæmni. Japanskir gir- kassar virðast raunar yfir- leitt mjög góðir. HlutföUin milli giranna eru ágæt, nema hvað annar girinn mætti e.t.v vera nokkru hærri. Nokkur hvinur heyrist frá girkassan um á ferð en það sitafar mest af því hversu hljóðlát vélin er. RX-2 er mjög lipur i akstri og sportlegri en flestir bílar aðrir á innlendum markaði. 1 beygjunum liggur hann vel þó geyst sé farið. Billinn last- ur vel að stjórn og gefur mikla öryggistilfinningu í akstri. Bremsurnar eru mjög góð- ar. Vökvaaðstoð geriir ástigið létt. Diskar eru að framan og skálar að aftan. Ástiig á kúpl ingu er hins vegair þymgra en eðlilegt er á svo kraft- mikium bíl. Þyngd bílsims er 975 kg. Útsýni úr bilnum er gott þó hliðarpóstarndir að aftan séu óþarflega breiðir. Sætin eru þægileg. Breið radíal- dekk eims og RX-2 bílaimir eru á hér eru ekki mjög hent ug nema við hraðakstur á malbiki. Fjaðrabúnaðurinn er góður og verður að vera gott jafnvægi miLli hjóla tiíl að hann njóti sín til fulls. Stjómtækjum er öllum vel fyrir komið. Hita- og loft- ræstikerfið virðist mjög gott. Nefna má að útvarpsstöng- inni er lyft og hún látin síga með rafbúnaði, við stuðning á hnapp í mælaborðinu. All- gott rúm er fyrir þrjá far- þega í aftursætinu. Farang- ursgeymslan er sæmilega stór en varadekk tekur þar tals- vert rúm. Mælaborðið er smekklegt en stýrishjóMð, sem er úr plasti með viðairlit getur orð- ið nokkuð sleipt í langri keyrslu. Mazda RX-2 verður vænt- anlega á almennum markaði hér i haust. Verðið er yfir 600 þúsund krónur. Umboðið fyrir Mazda hefur Bílaborg hf, Hverfisgötu 76. Nefndarmenn F.A.O., t.alið frá vinstri Björn Sigurbjömsson, Popper, R. Jackson og Rie'.sheiin. Ljósm. Mbi.: Brynjólfur. Matvælaskorturinn aldrei verið alvarlegri — segir Jackson forstjóri F.A.O. Um þessar munilir er stödd hér á iandi á vegum rlkisstjórn arinnar sendinefnd á vegum F.A.O., Matvæla- og menningar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Fonmaður sendinefndarinnar er Roy J. Jáckson, aðstoðarfor- stjóri Matvæla- og menningar- stofnunarinnar, ennfremur era i förinni Popper framkvæmda- stjóri fiskideildarinnar, G. E. Bielsheim svæðisstjóri F.A.O. I Evrópu og Björn Sigurbjörns- son, aðstoðarfranikvæmdastjóri hjá F.A.O. og Alþjóðakjarn- orkustofnuninni í Vín. Jackson sagði á fundi með blaðamönnum i gær, að nefnd- in væri búin að vera á íslandi siðan á laugardag og hefði hún kynnt sér mörg þau vandamál, ser.i ísland ætti við að gllma. Hann sagði, að þeir hefðu kynnt sér ýmis þau vandamál, sem F.A.O. gæti hjálpað Islandi veruiega með, enda gætu íslend ingar mikið lært af öðrum þjóð- um í sambandi við ýmiss konar skipulagningu og framkvæmdir og þar kæmi F.A.O oft að miklu gagni. Nefndi hann sérstaklega beitilönd og gróðursvæði á há- lendi íslands, og sagði að íslend- ingair þyrftu að gera stórt átak til að rækta upp hálendið. Það væri til dæmis skrýtið að land- græðslan hefði fyrir stuttu eign azt flugvél til fræ- og áburðar- dreifingar, sem væri mjög full- komin, ein svo kæmi i ljós, að aðeins væri ha:gt að reka vél- ína í nokkra daga á ári vegna fjárskorts. Hér þyrfti að bæta úr og nýta véllna eins og hægt væri. Til dæmis hefðu Ný-Sjá- lendinigar undanfarin ár borið jafn mikið magn af fræi og áburði á hálendi Nýja Sjálands á einum degi og Isilendingar hefðu gert á mörgurn undanförn um árum. Þá barst talið að fiskeldi i ám og vötnum á íslandi og sagði Jackson, að á þessu sviði ættu íslendingar mikla möguleika, og ennfremur ættu þeir að eiga stórkostlega möguleika í gróður húsarækt. Jackson sagði, að matvæla- skorturinn í heíminum væri ísk/ggilegur um þessar mundir. Á síðastliðnum tuttugu árum hefðu aldrei verið til jafn litlair matvælabirgðir í heiminum og einmitt nú. Þetta ætti sérstak- lega við um kornbirgðimar, og el kornuppskera brygðist víða i heiminum á þessu ári eins og í fyrra, þá myndi ástandið verða alvarlegt vlða í vanþróuðu lönd unum, en það væru þau, sem þyrftu mest á korninu að halda Hann sagði, að þar sem nefnd armenn væru fuMtrúar F.A.O., þá gætu þeir ekkert sagt um fiskveiðideilu Islendinga og Breta. Hitt væri anniað mál, að þeim væri mjög umhugað um verndun, sem flestra fiskimiða í heiminum og útfærsia fiskveiði landhelgi hvair sem væri í heiminum væri gerð í þvi augnamiði að vernda fiskstofna. Hafréttarráðstefnan í ChiJe á næsta ári myndi væntanlega skera úr um allar fiskveiðideil- ur, og marka einhverja vissa stefnu í þeim málum. Þá sagði Jaekson, að ástandið í fiskveiðimáium heimsins væri mjög alvarlegt, ekki sízt fyrir það, að meiira en 40% af öllum fiskafla heimsins færu til mjöl- vinnslu og síðan vært mjöldð selt sem dýrafóður. Hér þyrfti að verða breyting á, þvi meira en helmingur mannkyns sylti að einhverju leyti. Unnið væri að því, að framleiða mjöl till Nýtt orgel til Gufudalskirkju Á HVÍTASUNNUDAG messaði og fermdi vígslubiskupinn Sig- urður Pálsson í Gufudal í Barða- strandarsýslu. Þá vair tekið í notk un nýtt orgel eir frú Guðrún Guð mundsdóttir, ásamt bömum sín- um, gaf Gufudalskirkju til minn- ingar um eiginmann sinn Óskar Arinbjarnarson frá Eyri í Gufu- dalssveit. Bom Guðrúnar af- hentu kh-kjunni gjöfina, sem er hin vandaðasta. Við sama tæki- færi færði frú Kristín Sveins- dóttir fyrrverandi húsfreyja í Gufudai kirkjunni sérbikaira úr silfri að gjöf. Prófasturinn, séra Þórarinn Þór fyrrverandi sóknarprestur var viðstaddur, ávarpaði kirkju- gesti og þakkaði gjafimar. Mikið fjölmenni var við athöfnina, sem vaii' ölH hin hát.íðlegasta. — Fréttatilkynining. manneldiis og margt benti til þess, að það gæfi góða raun, en spurningin væri einnig sú hvort hinar fátækart þjóðir hefðu allt af efni á að kaupa fæðuna á því verði, sem hún væri boðin á. Að lokum sagði Jaok- son, að nefndarmenn hefðu far- ið til Vestmannaeyja i fyrradag og þeir hefðu allir dáðst að þvi hve Islendingar væru þraut- seiigir við að berjast við náttúru- öflin og hvað þeir virtust hafa náð góðum árangri þar úti. Svíi formaður Bengtson, landbúnaðarráð- lierra Svíþjóðar var í gær kosinn fonmaður nefndar á vagum Sameinuðu þjóðanna, sem fjalilar um mengun. Nefndin héllt sinn fyrsta fund í gær og á að vinna úr gögnum sem lögð voru fram á mengunarráðstefnu S.Þ., sem haldin var í Sví- þjóð í fyrra. — Ríkur rafvirki Framhald af bls. 45 haifa komizt inn á gatfl hjá heldra fólkiinu, þó hann hefði hvorki prófgráðu né ainnars konair nafn- bót að sitáta af, ef (með áherzlu saigt) hanin átti nógu milkla pen- inga. En meira hefur þurft en vinna hörðum hömdiuim til að ná þvi- Mku marki. Útsjóniarsemin hefur ilika þurflt að vera í laigi og hún ekki svo klén. Þetta hefur í og með venið spilamenn'ska, póker; kjarkur, heppni (hér heima reyndu sumir að leiika svipaðan leik með iiltlum árangri og við snöggtum minni orðstír á fyrstu áraituguim þessanar aldar og voru kalliaðir spekúlantar). AHIt hiaut þetta í mörgum dæmium að verða eifiná í merki- lega og spenmandi sögu, og þvl fremur, ef söguhetjan var komiiin ala leið frá svo gersamlega vanþróuðum dratthaiia veraldar sem í sland var í þá daiga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.