Morgunblaðið - 05.08.1973, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.08.1973, Qupperneq 4
4 MORGUiNBLAÐIÐ — SUNNUDAGUR 5. ÁGÚST 1973 ® 22-0-22* RAUÐARÁRSTÍG 31 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTÚN 29 BÍLALEIGA CAR RENTAL Tf 21190 21188 AVIS SIMI 24460 c- BÍLALEIGAN 5IEYSIR CAR RENTAL SAFNAST ÞEGAR . SAMAN § SAMVINNUBANKINN K€ EMUR Einangrun Góð plasteinangrun hefur hita- lei&ni'Staðal 0,028 til 0,030 kcai/mh. °C, sem er verulega minni hitaleiini, en flest önn- ur einangrunarefni hafa, þar á meðal glearM, auk þess sem plasteinangrun tekur nálega eng an raka eða vatn í sig. Vatrrs- drægni margra arvnarra einangr- unarefna gerir þau, ef svo ber undir. ac mjög létegri einangrun Vér hófum fyrstir al'lra, hér á landi, framleiðslu á einangrun úr plasti (polystyrene) og fram- leiðum góða vc-ru með hag- stæðu verði. Reyplast hf. Armúla 44 — sími 30978. ^ ■ GUNNAR JÖNSSON vV J lögmaður löggiltur dómtúlkur og skja’a- þýðandi í frönsku. Grettisgata 19a - Sími 26613 Við gluggann eftlr sr, Árelius Níelsson HÖFUÐBÖLIN við Breiða- fjörð og saga þeirra er snar þáttur í menningarsögu Is- lands. Það er eitt af því, sem átthagafélögin ættu að taka til framkvæmda að skrá þær sögur, ekki sízt, þar sem sveit ir eyðast nú óðum. að mann- fólki, og þá ekki sízt því fóiki, sem þar kann bezt skil á. Eitt elzta, helzta og merk- asta höfuðból Islands er Skarð á Skarðsströnd. Og jafnframt talið eizta óðal landsins. Sum ir telja að þar sé uppspretta átthagatryggðar á Islandi og hennar sterkasta taug og sama ætt hafi búið þar allt frá landnámsöld. Eitt er víst, sama ættin hef ur setið Skarð í meira en átta aldir. Meiri meðmæli á vart nokkur jörð. Þar hefur einnig verið búíð af rausn og mynd- arskap alla tíð, sannkallað höfðingjasetur. Ber þar hæst Ólöfu ríku, sem frægust er af deilum við Breta, eftir að þeir höfðu orð ið Birni hirðstjóra manni henn ar að bana. Útsýni frá Skarði einkum að kvöldi er hafið yfir allar lýsingar. Þar eiga við orðin: „Eins og heilög Guðs ritning lá hauður og sær, allt var himnesku gull-letri skráð.“ Þar er talið fegurst bæjar- stæði við Breiðafjörð, og er þá mikið sagt. Á staðnum er stórt tún, grösugar brekkur, gróðursælir ilmandi hvamm- ar, skjólsælar lautir, undar- legir og dularfulllir álfhamrar, silfurtær á, söngur fugla og báruhjal. En hér er ekki tími né tök til að lýsa Skarði né skrá þess sögu. Það var aðeins eitt þar og eitt hið merkasta, sem vak in skyldi athygli á, ef verða mætti til blessunar þeim, sem þar búá, þótt síðar yrði og þá um leið aiþjóð á Islandi. Við vorum svo lánsöm 72 úr söfnuði hér í Reykjavík að geta komið í Skarðskirkju í sumar, 8. júií, og lesið þar saman faðir vor og sungið sálmavers. Það var dýrðleg stund á þessum forna kirkjustað, með gröf Ólafar ríku undir altar- inu? og minningar hvíslandi úr öllum áttum frá ásjónu-m hinna sýnilegu og dýrmætu minjagripa þessa musteris, en þó ekki síður frá heimi þagnar og fortíðar. Sjálfsagt er kirkjan enn á sama stað þar sem Ólöf gekk til guðs- borðs og varði Illuga unnusta sinn, einstæðinginn fræga. En sú kirkja, sem þar er nú, er reist af Boga föður Elín borgar húsfreyju, sem enn býr á Skarði, en tengdaföður Kristins Indriðasonar manns hennar, sem er nýlega látinn. En þessi gestrisnu höfðings hjón hafa lengst búið á Skarði á þessari öld. Nú var þó skarð fyrir skildi á Skarði, þar sem Elínborg var ekki heima og enginn Kristinn, sem. leiddi okkur í kirkju með fræðandi orðræð- um og ljúfmannlegu fasi. Lítil stúlka úr Reykjavik á að gizka tólf ára gömul og tveir litlir drengir, annar kannski yngsti sproti ættar- innar á Skarði fylgdu okkur í kirkjuna. Var litla stúlkan leiðsögu- maður og furðulega fróð af svo ungum að vera, um auð- legð og dýrgripi kirkjunnar. Væri gott ef unga fólkið gengi sem flest í spor þessa barns úr borginni með því að þekkja og virða hið aldna og helga. Ég sagði auðlegð og dýr- gripi, en þau orð eru af að- dáun sögð og um leið undrun. Þarna eru gersemi, sem vandfundin yrðu hérlendis og miðað við, að þessi gersemi eru islenzk finmast þeirra lík- ar ekki erlendis. Kannski eru þarna hliðstæðir gripir við Skarðsbók ef rétt væri að gáð. Um verðmæti í aurum veit ég ekki, en vel mætti þar nefna orðið milljónir annars vegar og óbætanlegt tjón hins veg- ar. Vængjataflan yfir altarinu er líklega skorin í tré og sam kvæmt upplýsingum litlu stúlkunnar margra alda göm- ul, og sýnir brúðkaup, fæð- ingu og skím, fyrstu spor inn í kirkju Krists. Sagt er að Ólöf ríka hafi gefið kirkjunni þennan grip. Og einu sinni var hún lánuð út úr kirkjunni sinni, og kom auðvitað skemmd aftur heim. Þetta eru vandmeðfarin hnoss. Dýrindis Ijósahjálmur er líka í kirkjunni, sem litla stúlk an sagði, að væri úr Hóla- dómkirkju. Þá er einnig pre- dikunarstóllimn forn og merki legur, með vængjahurðum og myndatöflum. Myndirnar voru sagðar af fyrrverandi höfðingjum á Skarði Daða Bjamasyni og Amfríði konu hans Benedi'kts dóttur. En þau bjuggu á Skarði á 17. öld. Én sanmar- lega væri nauðsyh að hressa upp á letur myndánna. Það er erfitt lestrar ókunnugum. Messuklæðin eru líka forn frá tið Skúla sýslumanns Magnússonar, Ketilssonar. Sjálfsagt eru í kirkjunni margir fleiri dýrgripir, sem við ekki sáum né tókum eftir. I garðinum eiga margir merkismenn hinztu hvílu og flestir gleymdir nú. Það væri mikil og prúð fylking, ef hún gengi framhjá, búin sínu feg ursta í blóma lífs. En sjálf- sagt mundum við helzt kann- ast við Geirmund landnáms- mann heljarskinn, landflótta prins, sem fyrstur bjó á Skarði, Ólöfu ríku og Kristjám kammeráð. Ekki veit ég hver á þessa gripi og ræður þessum mdnj- um. Nú er víða mannfæð í söfnuðum sveita og erfitt um vik við þjónustu í kirkjum landsins. Eldra fólk, sem unni þessu og dáði, vissi sögu kirkna og gersema þeirra, flytur nú ýmist á elliheimill eða beint undir græna torfu í garðinum, inn í hóp þagnar- innar. Þegar við ókum burt inrni- lega hrærð í huga og í hjart- ans þökk fyrir stundina í musteri strandarinnar á þessu höfðingjasetri og báðum alla vel að lifa, þá spurði einhver: Hvað verður um alla þessa minningagripi og minninga- dýrð, þegar gamla fólkið er horfið? Hvað verður um öll þessl listaverk svona fágæt og dýr- mæt, ef þessi kirkja fýkur af grunni eða þá að kviknar í henni ? Hvað? En samt má helzt ekki flytja þá burtu. Hér eiga þeir heima. Sólin signdi Skarð geislafingrum vestan yfir fló ann. SKARÐSKIRKJA Á SKARÐSSTRÖND ÍSLENZKI vinsældalistinn þessa vikuna samkvæmt út- reikningiun þáfctarins Tíu á fcoppmim: 1 (6) YOUNG LOVE Donny Osmond 2 (3) GOING HOME Osmonds 3 (8) SEE MY BABY JIVE Wizzard 4 (10) ALL BECAUSE OF YOU Geordie 5 (—) SKWEEZE ME, PLEEZE ME Slade S (7) RUBBER BULLETS 10 c.s. 7 (1) MAMA LOU Les Hnmphries Singers 8 (2) BAD BAD LEROY BROWN Jim Croce 9 (4) YESTERDAY ONCE MORE Carpenters 10 (9) FLAKKARASÖNGURINN Yngvi Steinn Af Hstanum féllu fimm lög: Give me love — George Harrison (—); Gypsy man — War (—); Here I am (Come and take me) — Al Green (—); Welcome home — Peters & Lee (—); I belive in you (You believe in me) — Johnnie Taylor (—). Ný lög á lista.mim eru fimm: 11 DON’T TRY TO FOOL ME Jóhann G. Jóhannsaon 12 MINNING UM MANN Logar 13 ALBATROS Fleetwood Mac 14 DIRTY SHOES West, Bruce og Laing 15 SAY, HAS ANYBODY SEEN MY SWEET GYPSY ROSE Dawn □□aaao Brezki vinsældalistinn þessa vikuna, samkvæmt útreikn- ingum Melody Maker: 1 (I) I’M THE LEADER OF THE GANG ' (I AM) 2 (6) ALRIGHT ALRIGHT ALRIGHT 3 (2) WELCOME HOME 4 (3) LIFE ON MARS 5 (5) GOING HOME 6 (14) GAYE 7 (4) SKWEEZE ME, PLEEZE ME 8 (18) YESTERDAY ONCE MORE 9 (7) SATURDAY NIGHT’S ALRIGHT FOR FIGHTING Elton John 10 (8) RANDY Blue Mink Gary Glitter Mungo Jerry Peters & Lee David Bowie Osmonds Clifford T. Ward Slade Carpenters Bandaríski vinsældalistinon Ixwsa vikiuia., samkvæmt út- reiknlngum Cash Box: 1 (2) YESTERDAY ONCE MORE 2 (1) BAD BAD LEROY BROWN 3 (3) SMOKE ON TIIE WATER 4 (8) TOUCH ME IN THE MORNING 5 (4) SHAMBALA 6 (7) GET DOWN 7 (16) THE MORNING AFTER 8 (9) DIAMOND GIRL 9 (11) LIVE AND LET DIE 10 (10) MONEY Carpenters Jim Croce Deep Purple Diana Ross Three Dog Night Gilbert O’SulIivan Maureen Mc-Govem Seals & Crofts Wings Pink Floyd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.