Morgunblaðið - 05.08.1973, Page 12

Morgunblaðið - 05.08.1973, Page 12
. 12 MOR'GU'NBT.AÐIÐ — SUN'NUDAGUR 5 AGOST 1973 Jón Björnsson rithöfundur: ÍSLAND — NATO i. UMBÆÐUR UM NATO OG VABNABMÁL Ég hef nýlega verið að blaða í „Samvinnunni", 1. hefti þessa árs. Kennir þar margra grasa, en meginefni heftisins er helg að utanríkisstefnu Isiands und ir heitin'U „ísland, Nato og Evrópa“. >að er að sjálfsögðu gotí eitt um það að segja að þessi mál séu rædd út frá sem flestum hliðum í víðlesnu tímariti. Ritsitjóranum, Sigurði A. Magnússyni, ber að þakka áhuga hans á því að sem flest sjónarmið komi í ljös, enda þótt „leiðararnir" séu stundum helzti einhliða og geti þannig viiit um fyrir lesendum um „stefnu" tlmaritsins, sem margir héldu að væri allt önn- ur en hálfgerður sænsk-finnsk ur kommúnismi sem þorir ekki að líta dagsins ljós ógrímubú- inn. En sleppum þvi að sinni. >að verður ekki hjá því kom izt að fjalla örlítið um forystu- grein ritstjórans, þar sem hann kemur með þá „persónu- legu játningu" að hann hefði verið einn þcirra „sem trúðu á heiðarlega og undir- málslausa samstöðu vestrænna rikja gagnvart tröllrikinu í austri — allt þar til staðreynd- ir samtimans þvinguðu mig tii að fordæma þær blekkingar sem ég hafði verið svæfður með“. >annig farast S.A.M. orð í forustugreininnd og vio þetta er ekki margt að athuga eins og ljóst mun verða. En að sjálfsögðu hlýtur það að gleðja alla réttþenkj- andi menn að náunginn játi hreinskilndsdega yfirsjónir sdn- ar, sem fylgja okkur eins og draugar vegna þess að við er- um öll „fædd i erfðasyndinni". >etta veit Sigurður A. Magnús son að minnsta kosti. En ósann indi eru ævinlega hvtmieið, en verst eru þó þau ósannindi sem óyggjast á „endurfæðingu" eða svonefndri „frelsun" frá viilu sins vegar, eins og augljóst er af fyrrnefndri forustugrein, af þeirri einföldu ástæðu að ég veit að S.A.M. veit betur, eins og skýrt kemur fram í mörg- um af þeim ágætu greinum sem birtar eru í sama hefti tíma- riitsins. Ég vildi því góðfúsleg- ast benda S.A.M. á að játning- ar ættu menn ekki að gera að lítt athuguðu máli og sízt af því tagi sem grein ritstjórans ber vott um. En sleppum þvi að sinnd. Nú tel ég það engan veginn í verkahring minum að fjalia um ritgerðir „Samvinnunnar“ um þetta afmarkaða efni, en geta má þó þess í leiðinni að hér gera menn úr öllum stjóm- málaflokkum grein fyrir skoð- unum sínum, og því ber að sjálf sögðu að fagna. En ég hef eigi að síður lúmskan grun um að fólk almenmt veitd þessum mál- um ekki þá athygii sem skyldi vegna meira aðkallandi vanda- mála sem og er eðlilegt. >að hef ur löngum verið svo hér hjá okkur að alit of margir hafa látið sig varða utanríl.ismálln minna en eðlilegt er. En sleppum nú öllum almemn um hugleiðingum um þetta mál svo sem „játningum" og fleiru í þeim dúr, sem ég efast þó ekki um að séu settar fram af heil- um hug. En gæta ber þess samt sem áður að heiðarlegar játning ar eru og hafa oft verið byggð- ar á misskiiningi. >að sem kom mér tid að skrifa þessar línur er ein grein í nefndu hefti, grein Vésteins Ólasonar lekt- ors er hann nefnir „Herstöðv- ar og öryggi". Ég er hræddur um að við getum ekki orðið sam mála um niðurstöðurnar að því er meginatriðin snertir og skal nú vikið að þvi örfáum orðum. II. SÉRKENNILEG FULLVEI,DISRÆ»A Áður en greim Vésteins Óla- sonar lektors verður lítidiega tekin tii athugunar finnst mér rétt að víkja örfáum orðum að ræðu þeirri sem Sigurður A. Magnússon flutti á fullveldis- fagnaði íslendinga í Kaup- mannahöfn síðastliðið haust. Ástæðan er sú að mér virðast margar af þeim skoðunum sem þar koma fram vera táknræmar fyrir þann hóp mannr sem viija halda þvi fram að „kalda stríð- inu“ sé lokið, og af því leiði að áhættulaust sé að halda áfram á þeirri línu sem kommúnistar og aðrir af þeirra sauða- húsi hafa verið að prédika um mörg ár. Nú vita allir sem fyligj ast með heimsmálunum að þessu „kalda striði" er alls ekki lokið, þótt hávaðinm sé miinni í biid. Og því strdði verð ur ekki lokið fyrr en smáþjóð- ir þær með sjálfstæða tungu og menningu — rétt eims og íslend ingar — sem voru kúgaðar und ir ægivald heimsvaldastefnu Rússa eftdr síðari heiimsstyrjöld ina, sem er í reyndimni ekkert annað en imperíalismi rússn- eska keisaradæmisins, fá full- komið sjálfstæði aftur. Fyrr en það hefur gerzt ættu kommún- istar — undir hverju nafni sem er — að hafa hægt um sig, og svo mikidlar sómatil- finningar ætti að megá krefjast af þelm að þeir nefndu aldrei framar ísland eða sjálf- stæði okkar í samanburði við kommúnistiskar aðferðir, t.d. í Tjekkóslóvakíu. í nefndrd ræðu minnist Jón Björnsson S.A.M. á Einar >veræing, senni lega í þeim tilgangi að nota nafn hans sem tákn I sambamdi við „nýja“ stefnu í sjálfstæðismál- um smáþjóða og þá fyrst og fremst íslands. Síðan ræð- ir hann um fsland og Tjekkó- slóvakíu, rétt eins og kúgun Rússa þar eigi eitthvað skylt við stöðu okkar og aðild að NATO og vamarsamninginn við Bandaríkin 1951. Sl'ík- ur samanburður er að sjálf- sögðu út í hött og ekki svara- verður. Röksemdir fyrir þess- ard staðhæfingu minnd eru kunn ar hverju mannsibarmi á íslandi. Rússar gerðu vopnaða innrás í Tjekkóslóvakíu (sem að visu var búin að vera lepp- ríki þeirra frá árinu 1948) vegna þess að Dubcek gekkst fyrir meira freisi, afnam rit- skoðun o.s.frv., en þetta þoldu valdhafamir í Kreml ekki og hindruðu þessa þróun í skjóld skriðdreka. En hvað hefur gerzt á Islandi sem á að vera „leppríki" Bandarikjanna sam- kvæmt skoðun þessara spek inga? Hvaða innrás hefur ver- ið gerð hér? Eru ekki gamlir Moskvukommúndstar í ríkis- stjórn, óáreittir af Bandaríkja- mönnum? Komi þessir aðil- ar svo með samanburð og standi vlð hann eins og þeir hafa vit til. Að vísu tel- ur S.A.M. meginmuninn á Bandarikjamönnum og Rússum vera þann að Rússar þviniga beint og „ætla að nota lepp- stjómina (í Tjekkóslóvakíu) tíl að koma til leiðar sömu þró- tin og hér hefur orðið án beinn ar þvingunar (leturbr. mim. J.B.)“. >etta finnast mér nú, eins og S.A.M. viðurkennir að visu, stór orð. Og það er stund- um erfiitt að standa við stóru orðin. Ailt tal um samamburð á þessum stórveldum er út i hött eims og hver læs maður hlýtur að sjá, en alvarlegast við þetta er þó það að álíka kennimigar og þessar hafa komizt inn í skólana, svo að ekki sé nú tal- að um útvarpdð, og afleið- ing þessamr starfsemi er m.a. að Æskulýðssamband fslands hefur klofnað. III. VÉSTEINS ÞÁTTUR ÓLASONAR Grein Vésteins Ólasonar lektors „Herstöðvar og öryggi", virðiist mér veru táknræn fyrir þann áróður sem rekimm hefur verið af offorsd miklu nú um skeið. Segja má að aðalinntak greiinarinnar sé að reyna að koma lesendunum í skilning um að aldt tal um útþenslustefnu Rússa sé fjarstæða ein, og mér skiilist að bak við það sé eim- hvers konar trú á rétt- mæti Jaltaráðstefnunnar, þar sem sigurvegaramdr komu sér saman um að Skipta Evrópu i áhrifasvæði. (>etta voru auð- vitað hreim svik við ailt sem heitir lýðræði og sjálfsákvörð- unarréttur þjóðanna, en sam- kvæmt þeiirri bugsjóna- stefnu, sem sumir virðast telja úrelta, hlaut ísland sjálfstæði 1918). >ess þarf naumast að geta, a.m.k. frá sjónarmiði vest- urveldanna, að þetta var aðeins hugsað sem bráðabdrgðalausn þar til friður yrði sam- inn. Rússar höfðu þvl ekki snef il af rétti til að stofna „alþýðu lýðveldi" undir járnihæl rauða hersims eftir að „þeir höfðu frelsað þessi ríki undan oki Hitlers“. En til hvers? Var það til að unddroka þau á jafn sví- Þóroddur Guðmundsson: Merkir frumkvöðlar lýð- háskólahreyfingarinnar Helga Kristjánsdóttir og Arnór Sigurjónsson. HJÓNIN Arnór Sigurjónsson og Helga Kristjánsdóttir fylltu bæði 8. áratuginn á þessu vori, hann 1. mai, híin 16. júní. Ásgeir forseti lét svo um mælt S mín eyru, eitthvert sinn, að Amór Sigurjónsson væri bezt að sér núlifandi manna í því, sem vajrðar atvinnullf Islendinga fyrr og sáðar, og ég hef fyrir satt, að hann hafi ekki farið með fleip- ur. >essa staðhæfingu get ég þó ekki rökstutt, sem að líkum læt- ur. Hins vegar hef ég haft nokk- ur kynni af Amóri sem skóla- manni, því að ég var tvö ár nem andi hans og önnur tvö samstarfs maður, tel mig því geta nokkuð satt sagt um vinnubrögð hans og Helgu á þeim vettvangi. >egar ég heyrðd þeirra fyrst getið, var ég bam að aldri eða tiltölulega ungur. Um þau fór Hólmfríður föðursystir mín þeim orðum, að þau væru „mæt- ar“ manneskjur. Ég man það al- veg orðrétt, eins og verið hefði í gær. Og ég tók þau orð bók- staflega svo sem véfrétt. Ég skildi þau sem hæstaréttardóm, er ekki verður áfrýjað og síður en svo hefur breytzt með árun- um, sem eftir það hafa liðið fram hjá eims og lest. Fyrstu kynni mín af þeim Am óri og Helgu urðu svo nokkrum árum eftir, að Hólmfriður lét mér ógleymanleg orð sin falla, eða veturinn 1922—23, þegar ég var nemandi þeirra á Breiðu- mýri, og urðu mér harla minnds- stæð, enn þá minnisstæðari en námsvetur minn á Laugum þrem árum siðar, þó að ég muni hann líka mjög vel. Vistin á Breiðumýri var í raun og veru fyrsta spor mitt á menntabraut- inni, að sumu leyti mjög þungt, en þess vegna einmitt eftirminni- legra. Ég var nefnilega haldinn vamtrausti á sjálfum mér og sáru óyndi mestan hluta vetrar. En Arnór og Helga sáu fyrir því, að ég hefði nóg að gera, enda var það bezta lækningin við óynd inu. Ég hafði kviðið mjög fyrir skólavistinni og minnist-oft far- arinnar suður Aðaldals- og Reykjadalsbraut, gangandi, ásamt >órgný bróður minum til fylgdar, með hest og kenru og koffortdð mitt á kerrunni. Mér fannst þessi leið aldrei mundi taka enda. Litið sem ekkert man ég nú úr skólasetningarræðu Amórs í þinghúsi Reykdæla á Breiðu- mýri. Frú Helga hélt líka ræðu við það tækifæri. Henni fórust meðal annars orð á þá leið, að vér værum alin upp við íslenzka stórhrið, oss þyrfti þvi ekki að koma frumstæð og örðug aðbúð á óvart, enda reyndist hún svo. Vatnið fraus á gólfinu í skóla- stofunni á morgnana, þegar það var þvegið, áður en stóri ofninn fór að hitna og bræddi klakann, slíkt hið sama vatn í könnum á svefnherbergjunum ofnlausu und ir súðinni. Öll skulfum vér meir og mánna, svo að sætin hristust, þegar vér neyttum matar í borð- sal kjallarans imdir skólastof- unni. Mér fundust orð Helgu við skólasetninguna hughreystandi. Ekki varð heldur löng bið á, að Amór segði við mig eitt og ann- að til örvunar. Hið fyrsta og minniiisstæðasta var það, sem hann skrifaði undir fyrstu heima ritgerð mína, þegar hann skilaði henni, sem voru orðin „mjög góð ur stíU“ og lét fylgja nokkur munnleg viðvirkenningarorð. >au féllu ldkt og vordögg á þyrsta sál unglingsins, léku sem þýðu- gola um vangann, enda varð ég var við, að ýmsir hinna nemend- anna öfunduðu mig af þessari fyrstu viðurkenningu, sem ég fékk fyrir ritstörf mín. Ég hygg, að fátt hafi haft önnur eiins áhrif á þroskaferil minn. >að væru þá helzt lofsyrðin, sem séra Her- mann Hjartarson á Skútustöð- um lét falla í minn garð fyrir annan stil. En séra Hermann tók að sér kennslu við skólann á Breiðumýri seint um veturinn í stað Amórs, þegar hann brá sér suður til að afla Alþýðuskóia >ingeyinga fylgis hjá þingi og þjóð. Ég segi þetta ekki sjálfum mér tdl drambsamlegs heiðurs, heldur þessum ágætu kennurum mínum til verðugs lofs. Af hvor- ugu hrósinu, Amórs eða Her- manns, ofmetnaðist ég. En báðir sáu þeir, hvað sveininum kom bezt, svo að hvergi hallaðist á: öivun tii að auka honum sjálfs- traust. Hvað Helgu Kristjánsdóttur viðvék, þá lét hún ekki heldur sitt eftir liggja með alveg frá- bæra kennslu. Meðal námsgreina sem hún kenndi, var danska. Ein hverju sinni sem oftar vair hún að skila dönskum stilum, sem hún hafði leiðrétt, og lét þess sér staklega getið upp yfir alla, að mér væri mjög að fara fram við stffiaigerðina þá. Auk þess væri rithönd min fögur og eftirbreytni verð og spurði, hver eáginlega hefði kennt mér að skrifa svo vel, sem ég gerði. Ég sagðist eiga það mest að þakka svönun- um á Sandvatni. >á fór Helga að hlæja, enda var hún með afbrigð um hláturmild, en skær og hrein rödd hennar naut sín einkar vel, þegar hún hló, og spurði, hvern- ig svo mætti vera. Ég sagði, sem var, að lengi hefði skrift mín verið mesta hrafnaspark. Uglu- pennarnir oddhvössu sem ég hefði notað við skriftarnámið hjá farkennaranum, hefðu stöðugt viljað stingast gegnum pappír- inn. >á sagðisit ég hafa fundið álftarfjöður einn góðan veður- dag, hiirt hana og skorið staf hennar til með skegghníf, sem ég hefði tekið traustataki einhvers staðar, og eignazt þannig mjúk- an penna og fengið með honum þá rithönd, sem ég hefði öðlazt. Vakti lýsingin á lærdómsaðferð minnii öskipta aðdáun og eftir- tekt þeirra, sem á mál mitt hiýddu. Elskulegust fannst mér þó Helga í minn garð, þegar hún tók upp á þvi að kalla mig „>ór- odd frænda", þó að við værum, mér vitanlega, lítið eða ekkert skyld. >á var ég kominn að Laug um. Ástæðan till þess að mér þótti svo vænt um þetta, var meðal annars sú, að ég var lengi vel ekki með öllu laus við af- brýðisemi i garð innsveitunga, af því að mér fundust þau Helga og Arnór taka Fnjóskdælinga, Reykdæli og Bárðdælinga fram yfir mig, útsveitarsveininn frá hraunjaðrinum við Skjálfanda, sem auðvitað var tóm ímyndun. En þegar Helga var farin að kalla mig frænda, þóttist ég þola samanburð við Jón á Víðivöllum, Tómas Tryggvason, Sigrúnu Ing ólfsdóttur og Kára í Víði'keri, að dómi hinna valinkunnu hjóna. >ví að valinkunn voru þau,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.