Morgunblaðið - 12.08.1973, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.08.1973, Qupperneq 2
2 MORGöNBLAÐrÐ — SU'N'NUÐAGUR 12. ÁGÚST 1973 Islenzkir togbátar: Viti reistur í Surtsey Eyjan mjög heit 12 Vestmannaeyingar eru nú lagðir af stað í leiðangpur til Frakklands, J)ar sem þeir ;etla að klifa Mount Blanc í þessum mánuði. Þessi mynd var tekin af Eyja peyjunum, þegar þeir lögðu af stað með Loftleiðaflugvél frá Keflavík, en þrír Ieiðangursmanna, þar af ein stúlka, voru farin á undan til þess að undirluia leiðariKiirinn. NÚ má g:era ráð fyrir, að aftur fari að sjást Ijós frá Surtsey, því vitaniálastjórnin er að atluiffa hvort ekki beri að reisa þar vita á næstunni. Aðalisteinn Júlíusson vitamála- stjóri, sagði i samtali við blaðið I gær,að þetta mál hefði verið á döfinni al'lt frá því „að Surts- ey hætti að vera sjálflýsandi." Menn frá- Vitamálasitjórn hefðú verið í Surtsey fyrir skömmu og kannað stæði fyrir vitann, en honum er ætiaður staður efst á eyjunni. Þegar þeir grófu að- eins ofan 1 jarðveginn kom i Ijós, að mjög mikili hiti er rétt undir yfirborðinu, þannig að far ið getur svo, að fresta verði vita byggingunni um einhvern tíma. Vitinn, sem reisa á í Surtsey verður litið steinsteypt hús með ljóshúsi úr plasti. Gas verður notað sem ljósgjafi. Þyrlur Land helgisgæzlunnar munu verða not aðar við að flytja efni út í eyj- una, þegar húsið verður byggt. Fiska í landhelgi þegar vit- að er um SÝR 1 Reykjavík Á FÖSTUDAGINN lézt á elli- heimilinu Grund Guðrún Frið- | finnsdóttir, tæpiega 103 ára að aldri. Hún vann sem verkakona I mestan hluta lífs síns, en frá ár inu 1957 hafði hún verið vist- | maður á Grund. ÍSLENZKIR togbátar virðast nú fiska eftir beztu getu innan landhelgislínunnar, einkum við Ingólfshöfða, þar sem góð línu- mið eru. Bátarnir halda sig utan lín- Unnar á daginn, þegar þeir vita að gæzluvélin SÝR er á flugi, en um Ieið og þeir frétta af því, að vélin er lent í Reykjavík, er togað imn fyrir línuna og hafa bátar sést toga í aðeins 0,3 sjó- mílna fjarlægð frá Ingólfshöfða. Bátarnir virðist eiga auðvelt með að forðast varðskipin í myrkrinu, því varðskipin eru með öðru vísi ljósaútbúnað en er á fiskiskipum. Geta sjómenin séð á Ijósaútbúnaðinum hvort varðskip nálgast, allt að hálf- tíma áður en skipið er komið á stáðinn, og á þeim títoa er bát- unum hægur leikur að kotoa sér út fyrir. Geta varðskipin ekki fylgzt nógu vel með ís- lenzku bátu-num, þar sem þau eru flest að störfum lengra úti i eltingaleik við Bretana. Morgunblaðið hefur fregnað að á næstunnii muni Land- helgisgæzlan reyna að fylgjast betur mieð íslenzku bátunum, m a. með þvi að hafa þyrlur úti á landi, en þær hafa reynzt mjög vel við gæzlustörf. — Mason Framh. af bls. 1 Perry Ma9on og síðar lamaða lögregluforiingjann Ironside. Þess má geta að í haust hef ja Perry Mason-þættir göngu sina á nýjan leik í sjónvarpi í Bandaríkjunum, með nýjum leikurum í aðalhlutverkum, en tveir af helztu mótleikur- um Burr, saksóknarinn og einkaspæjarinn eru látnir. Sigrar Davíð Golíat? Ný mynd, sem á aö hjálpa til, frumsýnd í dag I DAG verður frumsýnd hér á Landi ný kvikmynd, „Davíð sigrar Goiíat“, sem nngur, vestiirþvzkur kvikmynda- gerðaramður, Peter Krieg að nafni, hefnr gert um land- heigisdeilii fslendinga við Breta og Vestur-Þjóðverja. Myndin, sem var tekin hér á landi í maí og júní sl., er framleidd fyrír einkafjár- magn og tók Krieg hana sjálf ur ásamt aðstoðarstúlku sinní, Heidi Knott, auk þess sem hann naut fyrirgreiðslu íslenzkra stúdenta, íslenzka utanríkisráðuneytisins o. fl. Myndiin er 40 mínútur að lengd. Eins og Krieg tók skýrt fram sjálfur á fundi með fréttamönnum á föstudag, er „Davíð sigrar Golíat", efeki hlutlaus fræðslumynd og það ber nafnið raunar með sér líka, Ætlun hans var að gera mynd, sem kæmi á framfæri við erlendan almenning upp- lýsingum, sem að sögn Kriegs eru títt faldar eðá rangfærðar í fjölmiðlum. „Davíð sigrar Golíat“ er sem sagt áróðursmynd. Og sem slík á hún bara anzi skelégga spretti. Krieg legg- ur mest upp úr því að sýna mi.kilvægi fiskveiða fyrir ís- lendinga og þófct upplýsingar hans um atvininuhætti og þjóðlíf séu talsvert einhliða og engan veginn tæmandi, þá er sú mynd, sem hann bregð- ur upp af nánu sambýli manins og fiisks, svo rétt sem áróðursmynd er unnt. Tæknilega er myndin mis- jöfn að gæðum. Myndataka er stundum óstöðug, þótt sumt af því verði að skrif- ast á reikninig sjóveiki, sem he»-jaði á Krieg við töku á sjónum. Hins vegar bregður einnig fyrir furðu næmri til- finningu fyrir lífi, landslagi og lifnaðarháttum á íslandi, einkum ef tekið er tillit til þess hve skamman tíma Krieg hafði aflögu. Klippingar eru oft snöggar og vel hugsaðar, einkuim er atriðið frá fundin- um á Lækjartorgi athyglis- vert, svo og frá skrílslátun- um við brezka sendiráðið, þótt maður geti látið álykt- anir Kriegs af þeim liggja miilli hluta. Textinn, sem saminn er af Krieg, er mjög vilhol'lur ís- lendingum og oft ágætlega saminn, hnyttnir og gagn- orðir. Háð er jafnan árang- ursríkasti áróðurinn, og sem betur fer er Krieg það að Framh. á bls. 31 1 s I g I I I I I I I 1 I I Eru þeir að fá‘ann ? GLJÚFURÁ Veiði hefur gengið vel í Gijúfurá í sumar, eins og í flestum öðrum ám Borgar- fjarðar. Sigurður Tómasson, bóndi í Sólheimatungu, veitti Mbl. þær upplýsingar í gær, að 370 laxar væru nú komn- ir á land úr ánni, en leyfð er veiði á þrjár stengur. Laxínn er fremur smár í Gljúfurá, mest 5, 6 og 7 punda fiskar, en stærsti laxinn, sem enn er korninn á land, vó 12 pund. Fékkst hann á flugu nú um mánaðámóttn. Veiðiitiminn hófst i Gljúf- urá þann 20. júní, og gekk mjög vel í fyrstu. Sigurður sagði, að það benti til að ó- hætt væri að byrja veiðina fyrr á vorin, a. m. k. 5—J0 dögum fyrr. Fyrri hluta sum- ars, var að sögn Sigurðar, nær eingöngu veitt á maðk, en upp á síðkastið hefur fluguveiði aukiz-t til muna. Seinná hluta júlímánaðar var áin frekar vatnslítil, og dró þá talsvert úr veíðinni. Var þá tékið ti'l ráðs að opna fyrir vatnsmiðlun í Langa- vatni til þess að auka vatns- magnið í Langá og þá um leið í Gljúfurá, en þær renna sem ein á úr vatninu, en kvíslast nokkrum kílómetr- um sunnan vatnsins. Sigurð- ur sagði, að með auknu vatns magrii hefði veiðin í Gljúíurá aukizt að sama skapi. Loks gat Sigurður þess, að nú væri sjóbirtingur farinn að ganga talsvert í ána, og bæri mest á hon.um niður við Gljúfurárós. Þetta væri yfir- leitt mjög vænn fiskur, t. d. hefði Gunnar Sveinbjörnsson úr garði sett í einn 6 punda sjóbirttng í ósnum fyrir ekki alls löngu. Nær eingöngu íslenzkir veiðimenn hafa verið í Gljúf- urá í sumar. NORÐURÁ Nú er útlendingatímabilinu í Norðurá lokið, og landinn tekinn við. Veiði hefur þó verið fremur treg að undan- förnu, að sögn Sigríðar, ráðs- konu í veiðihúsinu, alls eru komnár á land 1501 lax. Sigríður sagði, að mikið hefði verið um stórmenni við ána að undanförnu, t. d. hefðu bankastjórar og aðrir yfirmenn Seðlabankans og Landsbankans verið þar við veiðar. Hefði þeim mörgum gengið sæmilega, t. d. hefði Kristinn Hallgrímsson í Seðlabanikanum sett í einn 19 punda, og Jóhannies Nordal í 15 punda lax, en það væru með stærri löxum, sem nú veiddust. í gær byrjuðu svo stjórnarmenn Landsvirkjun- ar veiðar, en þeirra á meðal eru borgarstjórinn í Reykja- vík, Birgir ísl. Gunnarsson, og Einar Ágústsson, utan- ríkisráðherra. LAXÁ í DÖLUM Hátt á áttunda hundrað laxa*eru nú komnir á land úr Laxá í Dölum, að sögn Gunn- ars Bjömssonar, brýta í veið'húsinu. Taldi hanin það vera svipað magn óg á sama tima í fyrra. bví þótt veið;n hefði verið afburða góð fyrri hluta sumarsins, þá hefði dregið svo úr henni á tírna- bili, að veiðin i heild, það sem af væri sumars, væri lík- lega svipuð og í fyrra. Á tímabili var mjög smár lax í ánni, en eftir að tók að rigna hefur veiði glæðzt og jafnframit gengið stærri lax. Gunnar sagði, að nú væri talsvert um að menn settu í 18—20 punda lax, og sl. þriðjudag veiddist stærsti lax sumarsins, 24 punda hængur. Veiddi Haukur Sveinbjarnar- son, starfsmaður hjá Eim- skip, þann stóra á flugu í svo- köliuðum Drykkjarhyl. Á sama stað fékk Haukur einn- ig 20 punda lax þann daginn. FLÓKADALSÁ Rúmliega 300 laxar eru nú komnir á land úr Flókadaisá en það er talsvert betri veiði en var á sama tíma í fyrra. Þess ber þó að geta, að veiði- tímabiiið var þá 60 dagar, en verður þrir mánuðir nú í sumar. í fyrra fengust alls 310 laxar, sem var talsvert minni afii en árið áður þegar veiddus't 465 laxar. Veiðitíma billð 1971 var eirang tveir mánuðir. Leyfð er veiði á þrjár stengur í ánni, eina fyrir hvert veiðisvæði, en veiði- svæðin þrjú eru samtals 12— 13 kílómetra löng. Hámarks- veiði á stöng er nú miðuð við 7 laxa yfir daginn, en undan- farin ár hefur verið miðað við 5 laxa. Ingvar Ingvarsson, bóndi að Múlastöðum, sagði í við- tali við Mbl. í gær, að undan- farna daga hefði veiðin geng- ið mjög þokkalega. Aflinn færi þó mikið eftir því hvort menn þekktu staðhætti, — þeir sem væru þarna kunn- ugir veiddu yfirlei'tt vel, en aðrir miður. Ýmist væri veitt á maðk eða flugu, og bætti Ingvar því við, að svo virtist sem laxinn tæki betur flug- una. Laxinn er fremur smár í Flókadalsá, mest 4—8 punda fiskar, og sagðist Ingvar teija, að meðalþungi yrði svipaður og í fyrra, eða um 6 pund. Stærsti iaxinn, sem veiðzt hefur í sumar vó 14 pund en hanm veWdi Sigur- laug Þorsteinsdóttir úr Reykjavík. Veið''timabiiið hófst þann 19. júní í Flókadalsá, en því lýkur 16. eða 19. séptember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.