Morgunblaðið - 12.08.1973, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.08.1973, Qupperneq 14
14 MORGU'NBLAÐIÐ — SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1973 Dr. Selma Jdnsdótlir: verur raunþúfu duustur? RÚSTIR þær hinar miklu, sem bera nafnið Hraunþúfuklaust- ur og eru í botni Vesturdals í Skagafirði, hafa mér um skeið þótt athyglisverðustu fornleif- ar á Islandi. Athygli mín beindist að rúst- um þessum, eftír að ég komst að raun um að hluti af býs- anzkri dómsdagsmynd er ristur á fjalir komnar frá Bjarnastaða hlíð í Vesturdal, nú í Þjóð minjasafni íslands, svo sem nánar verður greint frá síðar. Nokkuð hefui verið skrifað um rústirnar í Hraunþúfu- klaustri. Ekki verður það þó hér allt upp talið, en aðeins það, sem ég tel nákvæmast og merkast. 1 Jarðabók Árna Magnússon- ar og Páls Vídalín frá 1702— 14 segir svo: „Hraunþúfuklaust ur heitir hér í afréttinni. Þar sést lítið til girðinga og tófta- leifa mikillra, svo sem þar hafi stórbýli verið. Ekkert vita menn til þess, nema munnmæli segja, að í þessu plássi skuli fundizt hafa klukka sú, sem nú er á Goðdölum. Þetta land er í afréttinni og brúkast frá Hofi svo sem hennar eigið land. Tvennar girðingar sjást hér enn, sem ekki er nafn gefið, meinast verið muni hafa þræls gerði.“ Árið 1897 skoðaði Daniel Bruun rústirnar í Hraunþúfu- klaustri, mældi þær, gerði upp- drátt af þeim og segir frá nokkr um munnmælum, sem við þær eru bundnar. Grein hans um Hraunþúfuklaustur er birt í Ár bók Fornleifafélagsins 1898. Bruun tekur orðrétt upp úr Jarðabókinni, en segir svo: „Það [klaustrið] hefir verið insti bær í dalnum og vestan megin Hofsár, í fögrum hvammi, þar sem Hraunþúfu- kvísl rennur í hana, og langt (nær 1 mílu) frá mannabygð- um. Þangað koma að eins gangnamenn á haustum og liggja þá í helli einum í fjall- inu fyrir norðan bæ'nn. Munn- mæli segja, að hér hafi verið nunnuklaustur og húsin hafi verið svo mörg, að 50 hurðir hafi verið á járnum. Sagt er, að nunnurnar hafi grafið nið- ur kistil fullan af peningum í Hraunþúfu, sem svo er kölluð, •n það er stór klettur efst utan I fjallinu Hraunþúfumúla. Fjöll in umhverfis eru snarbrött og með háum gnípum. Sagt er, að I einhverri rústinni hafi fund- ist kirkjuklukka (eða öllu held ur brot af klukku), sem síðan var send út, til Danmerkur, og steypt upp af nýju. Sú klukka er nú í Goðdalakirkju. Mér þykir ekki ósennilegt, að hér hafi verið klaustur ein- hvem tíma, enda þótt engin skilríki finnist í fornum skjöl- um um að svo hafi verið; hér hefir verið einkar fagurt land, er hlíðimar voru skógi vaxnar og láglendið í dalnum grösugt. Kirkja sú, sem hér hefir verið, getur varla hafa verið sóknar- kirkja annarra dalbúa, því að þessi staður er svo afskektur, en þar á móti er óhjákvæmi- legt, að kirkja hafi verið hér, ef hér hefir verið klaustur. Það er með öllu óvíst, hvar kirkjan hefir verið, en munn- mælin segja, að það hafi verið’ tóftin 1, sem er þrískift og 5x5, 10x7 og 5x7 skref. Þá er tóftin 2, sem er 5x10 skref; tóftin 3 er ógreinileg og tóftin 4 er opin í annan enda og hefir liklega verið kví eða rétt. Tóftin 5 er stærst, 24x12 skref, og hafa þar eflaust staðið mörg hús saman í þyrping; þar hefir Mk- lega verið bærinn. Tóftirnar 6 og 7 eru ógreinilegar; hin fyrri getur hafa verið fjárhús með heygarði. Fulla nauðsyn bæri til að grafa upp þessar tóftir, en það mundi kosta ærið fé, bæði sök- um fjarlægðarinnar og stærðar tóftanna." Þá er nákvæm lýsing á um- hverfi og staðháttum í Hraun- þúfuklaustri, ásamt gömlum munnmælum, rituðum af Hall- grími Jónassyni í Árbók Ferða félagsins 1946. Þar segir svo: „Austan megin í dalnum er enn þá vitað um þessi eyðibýli m. a.: Stafn, Þrælsgerði, Hringa nes, en vestan Hamarsgerði (fram og yfir frá Giljum), Hrafnsstaði, Skóga, Tungu og Tungukot — og innst við botn Vestardalur í Skagafirði. Rústir Hraumþúfuklausturs þar sem örin bendir rennur Hofsá, fyrir ofan rústir nar. — Ljósmynd: Landmæling ar íslands. Eftir dalnum dalsins býlið, sem á sér ein- kennilegasta sögu allra þeirra, er í dalinum hafa staðið. Þetta býli er Hraunþúfuklaustur ... Þegar fram í Lambatungur kemur, — en þar er farið yfir ána, — verður ekki riðið nema fet fyrir fet sökum vegleysu, en rétt áður en botni dalsins er náð, víkkar hann litið eitt. Liggja grónar eyrar að ánni að vestan, en upp frá þeim lyng- og hrismóar, þýfðir. Þar er lítill gangnamannakofi. Áður var skýli leitarmanna í helli ein- um efst í Runuhlíð og heitir Háabaðstofa. Skammt hér inn- an við klofnar Vesturdalur. Úr suðvestri kemur hamragil ægi- djúpt ofan í megindalimn. Um það fellur Hraunþúfuá. Suð- austan þess hefst Hraunþúfu- múli, en handan hans fellur Runukvísl, einnig í m klu gili, og ganga austan að því Neðri- og Efri-Bakkar. En í hrismóunum ofan við gangnamannakofann sér enn móta fyrir óljósum rústum eða tóttum. Það eru rústirnar af Hraunþúfuklaustri. Hrauriþúfug'l eða Hraun- þúfnagil, eins og það er líka kallað, er með fiughömrum i báðum börmum, en umdir viða stórurðir. Hæsti barmur gljúf- ursins að norðan heitir Hóló- fernishöfði ... En nú skulum við hverfa stutta stund út í móana aftur, að hinum ævafornu bæjarleif- um, er e-iga sér svo kynlega og — því miður — óljósa sögu. Gömul niunnmæli. Hér átti að hafa verið munkaklaustur og bú allstórt. Kistill fullur af silfri á að vera grafimm í Hraumþúfu. Þann fjár sjóð fór ábótinn með þangað og hafði smala búsins með sér. Að greftrinum loknum fóru þeir upp á hæsta höfðann, norð an gilsins. Þar hratt ábóti smal anum ofan, svo að hann yrði ekki til frásagnar um hið fólgna fé. Smalinn átti að heita Hóió- fernis. Önnur munnmæli eru á þá leið, að smalinn hafi þreytzt svo með smjörstrokkimn á bak- inu, — þar sem rjóminn strokk aðist á hlaupunum, — að í ör- vilnan hafi hann gengið fyrir hamra til að binda endi á þá prísund. Og munnmæl'm segja meira. Þau láta klaustrið leggjast nið- ur í svarta dauða. En löngu seinna áttu að finnast í rúst- um þess þrir hlutir a. m. k.: kirkjuklukka, kaleikur og kop- arhringur. Var hringur sá síð- an notaður í kirkjuhurðina í Goðdölum. Bn um klukkuna er til skráð heimilld í ævisögu séra Jóns Steingrímssonar. Hann segir, að Guðný, afasyst- ir sín, — en hún lifði á fyrri hluta 18. aldar, — hafi „séð þá klukku, er fannst í jörðu að yfirhvolfdu kjaraldi i nokkuru plássi fyrir framan Hof í Skagafjarðardölum. Skyldi þar áður hafa verið eitt klaustur og eyðilagzt í stóru plágunmi 1404. Veit nú enginn til þessa. Á greindri klukku stóðu þessi orð: Vox mea est bamba, poss- um depellere Satan. Það þýðir Mitt hljóð er bamba, burt rek ég Satan." Klukka þessi átti svo að hafa verið flutt burtu, steypt upp og síðan notuð i Goðdalakirkju. — Samhljóða þessari frásögn séra Jóns Stein grímssonar eru enn þá lifandi mumnmæli í Vesturdal ... Nú eru tóttarbrotim á Klaustri að hverfa undir lyng og hrís. Að fáum árum liðnum sér þe'rra lítinm éða engan stað. Þetta dularfulla öræfaset- ur er þá að fullu horflð. Munn- mælin ein eru eftir, óljós, tví- ráð, efasöm, — og þau gleym- ast líka fyrr en varir. Efalaust kostar það nokkurt fé og fyrir- höfn að grafa upp rústirnar á Klaustri, en ekki væri það með öllu ósamboðið „söguþjóð", eins og íslemdimgar eru stund- um nefndir, enda veit ég, að fróðir menn og mætir hafa á þvi áhuga. — Dalsins og Klaustursins er nokkru nánar getið í bókinmi Frændlönd og heimahagar. Og ef til vill verð- ur lokið við uppgröft rústanna, þegár línur þessar koma fyrir almemnings sjónir." Báðir þeir Bruun og Hall- grímur, telja nauðsyn á því að grafa þessar miklu rústir upp. Eftirtektarvert er það, að Hall- grímur telur rústirnar hafa farið í auðn miklu fyrr em munmmæliin segja. Þessi skoð- un Hallgrims hefur fengið stuðning, eftir að Sigurður Þór arinsson og Jón Hnefill Aðal- steimsson grófu í rannsóknar- skyni nokkrar holur í rústimar árið 1970. Sigurður telur að rústirnar hafi verið komnar í eyði fyrir Heklugosið 1104. Hann sagði mér, að hann værl viss um að rústirnar væru æva- fornar. Eins og að framan greinir, hafa þeir Árni Magnússom, Daniel Bruun og Sigurður Þór- arinsson allir talið að í Hraun- þúfuklaustri hafi verið miklar byggingar að fornu. Munn- mæli þau, sem lifað hafa um þennan afskekkta stað, herma að þarna hafi verið klaustur, og Daniel Bruun segir að sér þyki ekki ósennilegt að þarna hafi verið klaustur e'inhverm tíma, þó að þess sjáist ekki get ið í fornum skjölum. Nafn stað arins bendir einnig til þess. En nú vaknar sú spurning, hvers vegna klaustur hafi ver- ið stofmað á þessum afskekkta stað, sem var ekki aðeims úr álfaraleið, heldur einniig þamnig í sveit settur að erfitt var að komast þamgað. Engar fornar ritaðar heimildir eru til um Hraunþúfuklaustur, en aftur á móti hefur ekki verið sparað að halda á lofti stofnun ann- arra klaustra á Islandi. Þau klaustur voru ekki stofnuð á af skekktum stöðum, heldur voru þau reist í blómlegum sveit- um í þjóðbraut, og létu sögu- ritarar ekki sitt eftir liggja að geta um stofnemdur þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.