Morgunblaðið - 28.09.1973, Síða 28

Morgunblaðið - 28.09.1973, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ _ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1973 velvakandi 0 tslenzkur fatnaður f Sjónvarpinu Guðrún Stefánsdóttir skrifar: Ég varð furðu lostin er ég horfði á sjónvarpsþáttinn „íslenzkur fatnaður“. Hvað vakti fyrir stjórnanda þáttarins og þátt- takendum? Að niðurlægja islénzka framleiðslu? Islenzkur fatnaður er fyllilega samkeppnisfær við þann erlenda, bæði hvað verð og gæði snertir. Mér þótti sneitt að kynsystrum minum, — að þær láti blekkjast af rangri vörumerkingu er ekki rétt. Ég hefi verið við verzlunar- störf í hart nær þrjátíu ár og hef aldrei orðið vör við slíkt. Ég sel fatnað frá MAX, Sjóklæðagerð- inni, L. H. Miiller og fleirum, og allir þessir aðilar merkja vöru sína, svo að viðskiptavinir fara ekki grafgötur hvaðan þær eru. íslenzka konan er föst fyrir og veit hvað hún vill. Islenzkur fatnaður hæfir ekki síður Islenzkri hispursmeyju en íslenzkri sómakonu. Reykjavlk,25. sept. 1973, Guðrún Stcfánsdóttir, Klapparstíg 27. “ # Úttekt á Sovét. „Húsmóðir" skrifar: „Þegar útvarpið var stofnað á Islandi þá átti það að vera lands- lýðnum til fróðleiks og skemmt- unar. Gæta átti hlutleysis í hvf- vetna, og gekk það lengi stórslysa- lítið. Það varð svo fyrir mörgum árum, að þjóðin fékk kommúnísta fyrir menntamálaráðherra. Þá fór margt að breytast, til dæmis þurfti þá að sækja formann út- varpsráðs alla leið til Danmerkur. Lengi getur vont versnað, og flæða nú yfir þjóðina skoðanir þeirra sænskmenntuðu, sem auð- vitað hlustuðu á „Palme-útvarp- ið“ I hinni hlutlausu Svíþjóð. ■ Núverandi menntamálaráð- herra greip tveim höndum þessa nýju heimsmenningu, og þar með rauk allt gamalt og gott út i veður og vind. Almenningur á Islandi gleymir seint nýmóðis barnatím- unum hennar Olgu Guðrúnar í fyrra. Blaðamaður á Þjóðviljanum var nýlega fenginn i útvarpið til að fræða Islendinga um lífið í Rúss- landi, og var lýsingin eins og við var að búast. Hann sagði m.a. frá verkamannsf jölskyldu og var hún auðvitað lukkuleg með líf sitt, þvi að allt var i framför. Samt kom fram, að húsnæðisskortur bitnaði á þessari fjölskyldu eins og öðrum og gamla konan drýgði tekjurnar með 45 rúblum á mánuði. Verka- maðurinn sætti sig við það, að verkstjóri hans hefði um 30 rúbl- um meira í mánaðarlaun en hann. Þetta er nú í landinu, þar sem allir eiga að hafa jafnt að bíta og brenna. Alþýða á Islandi veit, að lifs- kjör hennar hafa batnað mikið síðan 1917, og þá ekki sízt hvað snertir húsakost, svo að það er óþarfi fyrir blaðamanninn að vera að reyna að freista islenzkra verkamanna með sögunni sinni. Þeir íslenzku eru að öllu leyti betur settir, þó ekki væri nema vegna þess, aðþeir hafa verkfalls- rétt, en slík réttindi tíðkast ekki í Sovétrikjunum. Þegar verið er að lýsa högum og háttum annarra þjóða á auðvitað að nefna það, sem ólíkjast er þvi, sem er hjá okkur, og þvi, sem er einkennandi fyrir þjóð og stjórn- skipulag i viðkomandi landi. Þessu var alveg sleppt í umrædd- um þætti . Ekki var minnzt á ófrelsið, fangabúðirnar, meðferð- ina áskáldumogvísindamönnum, svo að eitthvað sé nefnt. Þetta er þó nokkuð, sem almenningur á Islandi myndi finna fyrir ef það fyrirfyndist hér. >>Húsmó3jr„.. 0 Vilhjálmur frá Skáholti Axel Sigurðsson skrifar: „Ég hlustaði á þátt Vilmundar Gylfasonar um Vilhjálm frá Ská- holti, sem fluttur var i útvarpið nýlega. Þátturinn var góður, svo Iangt sem hann náði, en hálfrar klukkustundar afgreiðsla á jafn svipmiklum persónuleika og minnisstæðu borgarbarni getur að sjálfsögðu ekki orðið tæmandi. Vel unnin kvöldvaka hefði verið Villa vini mínum sæmandi. Heldur var fátæklegt spjallið við Guðjón Halldórsson, enda varð hann oft að geta þess, að hann hefði ekki fylgzt með Vil- hjálmi á þeim hluta ævi hans, sem mönnum er einna minnisstæðast- ur, og þegar hann setti hvað mest- an svip á borgarlífið. Hefði verið nær að kalla til Helga Sæmunds- son eða Matthias Johannessen. Það hefði verið á færi þeirra manna að draga upp fyllri og meira fræðandi mynd af skáld- inu, blómasalanum, drykkju- manninum, umbótasinnanum, já, og trúmanninum Vilhjálmi Guð- mundssyni. Sjálfur var ég svo lánsamur að kynnast Villa nokkuð náið, og á ég margar góðar endurminningar frá gönguferðum okkar um mið- borgina á fögrum vor- og sumar- nóttum þegar náttúran og um- hverfið skörtuðu slíkri fegurð og kyrrð, að ekki var unnt sig frá að slita. Þá var margt rætt, og var sönn nautn að hlýða á skáldið tala hispurslaust um málefni dagsins og samtíðarmenn. Ég man einnig fagran morgun- inn þegar skáldin tvö, Vilhjálmur og Matthías Johannessen (þá óbreyttur blaðamaður) sátu á stéttinni fyrir framan Morgun- blaðshúsið og ræddu saman. Sigfús okkar Halldórsson hefði vafalaust getað gefið umræddum þætti mikið gildi, hefði hann kom- ið þar fram og sagt frá sér og Vilhjálmi. Sigfús samdi gullfall- egt lag við eitt fegursta kvæði Vilhjálms, íslenzkt ástarljóð. Ekki er víst, að allir viti, að þetta kvæði varð til eftir að Villi sá unga frænku sína, fimmtán ára gamla, með dáta upp á arminn. Þetta tók mjög á skáldið, og fall- egt kvæði varð til. Ráðlegg ég mönnum að lesa það i Ijósi þessa, og fær það þá meira gildi. Ég vona, að siðar verðí tekin saman góð dagskrá, lengri en umræddur þáttur, um Vil- hjálm frá Skáholti, svo að þeir, sem ekki fengu að vera honum samferða geti átt þess kost að kynnast þessu merkilega skáldi og manni. Axel Sigurðsson.“ SMJÖRLÍKID SEM ALLIR ÞEKKJA Hagkaup auglýsir Rósóttar dömublússur úr indverskri bómull ný- komnar. Amerískar „eskimóa” úlpur í barnastærðum. Buxur, peysur og vesti í úrvali. Fallegir dömu- og telpnagreiðslusloppar, nýtt snið, ný efni. Glæsilegir frottesloppar herra. Herra- og drengjaskyrtur I úrvali. Jerseybuxur og jakkar fyrir dömur i úrvali, einnig stórar stærðir. Aldrei meira úrval af gardínuefnum. Sængurfataefní í úrvali, hóje-krepp, damask, einlit og mynstruð léreft. Einlitt buxnaterylene nýkomið. Stórkostlegt matvöruúrval — viðskiptakortin vinsælu. Op/ð til kl. 10 i kvöld Sfratfnril 0 SÁFE COMPANY LTO. E N S K I R PENINGASKÁPAR þjófheldir — eldtraustir heimsþekkt — viðurkennd framleiðsla. E. TH. MATHIESEN H.F. SUÐURG'O’TU 23 — HAFNARFIRÐI — SlMI 50152 HfTM'| HI rA IHI HI M I HI HTH'lFt'Im í e-i'i i—i I H’l Hi'IA'Tr7TrfTrT!T'lTTT!Tf Það þekkja flestar konur hin frábæru gæði MDale“ prjónagarnsins. i i i i í í FASAN - HEILO - BABY ULL M TlZKULITIR UPPSKRIFTIR Verð:1 50-kr. per 1 00 gr. Fæst hjá: EGILL JACOBSEN,Austurstræti. VERSL. Hof, Þingholtsstræti. HANNYRÐABÚÐIIM, Linnetstíg, Hafnarfirði. HANNYRÐABÚÐIN Akranesi. KF. BORGFIRÐINGA, Borgarnesi. MOSFELL, Hellu. KYNDILL, Keflavík. I I I í i i i i i í i i í i TFHFI'I H nHTH IHIHIH IHIHIH IH I MI M l H IM I I-l IH l M' H1 F-iL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.