Morgunblaðið - 05.10.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1973.
(• cé c
5—10 milljón ára stein-
gervingur á Reykhólum
Vaxandi aðsókn
að slysadeild
Aðsókn að slysadeild Borgar-
spítalans hefur farið mjög vax-
andi. I nýútkominni skýrslu um
Það vekur athygli, að i sjúk-
dómaskrá slysadeildar er á ár-
inu 1972 á skrá 31 tilfelli vegna
sjálfsmorðs eða sjálfsmorðstil-
rauna, en ekkí nema 23 árið
áður. Einnig eru 1972 5 tilfelli
vegna manndráps, en ekkert ár-
ið 1971.
Ráðhúsið á Höfn
FRAMKVÆMDIR við Ráðhús-
ið á Höfn I Hornafirði hófust i
febrúar 1970. Húsið er byggt í
mýri, en undir grunn þess voru
reknir 180 tréstaurar, 6 til 7
metrar að lengd. Arkitekt er
Ragnar Emilsson. Af húsinu
eru 222 fermetrar á tveimur
hæðum, hýsir neðri hæðin lög-
reglustöð og fangaklefa, en
einnig héraðsbókasafn. Á efri
hæð hússins verður skrifstofa
Hafnarhrepps og afgreiðsla,
skrifstofa tæknifræðings, toll-
gæzla, skrifstofa Rafmagns-
veitna rikisins, skrifstofa lög-
reglustjóra, fundaherbergi og
kaffistofa.
Slökkvistöð verður i viðbygg-
ingu við húsið, svo og geymslu-
herbergi. Um siðustu áramót
voru lögreglustöðin og slökkvi-
stöðin teknar í notkun, skrif-
stofur voru teknar í notkun í
júnímánuði síðastliðnum, en
héraðsbókasafnið flyzt væntan-
lega í húsið um næstu áramót.
— Fréttaritari.
1
Ráðhúsið áHöfn I Hornafirði. —Ljósm.: Elfas Jónsson.
þetta. Sagði Sveinn, að fyrir um
það bil 7 árum, þegar stein-
gervingurinn fannst hefði
Náttúrufræðistofnun verið
boðinn hann, en fyrir einhver
mistök hefði hann ekki verið
sóttur. Hefðu náttúrufræðingar
mikinn áhuga á að geta rann-
sakað hann, en til þess þyrftu
þeir að hafa hann. Þetta væri
mjög merkilegur gripur.
Tilefni fyrirspurnar blaðsins
var eftirfarandi frétt frá frétta-
ritara Mbl. á Reykhólum,
Sveini Guðmundssyni: —
Nýlega afhentu hjónin Aðal-
heiður Jónsdóttir og Þórarinn
Kristjánsson bóndi á Hólum I
Reykhólasveit formanni
byggðasafnsnefndar A-Barð.
stórmerkilegan trésteingerv-
ing, sem þau fundu I landi sfnu.
Þessi steingervingur mun vera
frá þvl á tertiertfma. Þessi
steingervingur er sennilcga sá
stærsti og fegursti sinnar teg-
undar, sem fundizt hefur hér á
landi og verður ekki metinn til
fjár. Þar sem undirrituðum er
málið skylt, færir hann þeim
hjónunum þakkir og vill jafn-
framt geta þess, að þetta er
ekki f fyrsta skipti, sem þau
hjón rétta fram hönd sfna til
eflingar raunverulegum
menningarmálum. — Sveinn.
38 milljónir
í Eyjasöfnun
SÖFNUN Göteborgs-Posten
vegna hamfaranna í Vest-
mannaeyjum er lokið — að þvf
er blaðið segir frá. Alls
söfnuðust 1.915.698,79 sænskar
krónur og er það jafnvirði 37,8
milljóna fslenzkra króna. Full-
trúar dagblaðsins, sem komu til
tslands sfðastliðið sumar af-
hentu forseta Islands, herra
Kristjáni Eldjárn, 1,5 milljón
sænskra króna, en nýlega af-
henti fulltrúi blaðsins aðal-
ræðismanni Islands f Svíþjóð
afganginn, rúmlega 415 þúsund
sænskar krónur.
Ekki eru öll tilfellin alvarleg.
Af slysadeild voru lagðir inn á
spítala á árinu 1.404 sjúklingar,
þar af 991 á Borgarspítalann,
230 á Landspítalann, 167 á
Landakot og 16 á aðra spítala.
Einn fallegasti steingerv-
ingur, sem fundizt hefur hér á
landi, er kominn f byggðasafn
Austur-Barðastranda-sýslu á
Reykhðlum. Er steingervingur
þessi úr tré, sem telja má f 300
árhringi og hefur þvf sennilega
verið yfir 400 ára gamalt, en
steingervingurinn er 5-10
milljón ára gamall að þvf er
Sveinn Jakobsson, forstöðu-
maður Náítúrufræðistofnunar
tJkði Mbl., er við bárum undir
hann frétt frá Reykhólum um
MfcS
^ ■■■ 's
• -
Ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á þennan frávilling út af Langa-
nesi f fyrradag. Hann var að sjálfsögðu brezkur. Morgunblaðið var
þarna á ferð um það leyti sem brezku freigáturnar voru að koma sér
út fyrir fimmtfu mflurnar. (Mynd: Brynjólfur)
Aðeins 32% neyzlu-
vara í fyrsta flokki
1 ársskýrslu heilbrigðismála-
ráðs Reykjavfkur fyrir árið
1972 kemur fram, að heil-
brigðiseftirlitið flokkaði f þrjá
flokka 451 stað, er fæst við
framleiðslu, sölu og dreifingu
neyzluvara f borginni. 1 fyrsta
flokk voru flokkuð fyrirtæki,
sem eru til fyrirmyndar varð-
Heyrnarskertir
af hávaða
Atvinnusjúkdómadeild lét
með aðstoð heyrnardeildar
mæla heyrn árið 1972 hjá 59
starfsmönnum í Reykjavík, sem
vinna í hávaða. Af þeim reynd-
ust heyrnarskertir35.
andi hreinlæti, umgengni og
meðferð nej’zluvöru. 1 annan
flokk fyrirtæki, er stöðugt
þurfa aðhald, en framkvæma
fyrirmæki eftirlitsins um úr-
bætur yfirleitt án IftiIIa tafa. 1
þriðja flokki eru hins vegar
staðir, þar sem reglur um góða
umgengni, ræstingu og með-
ferð neyzluvara eru meira eða
minna brotnar og illa gengur
að fá eigendur þessara fyrir-
tækja til þess að bæta úr ágöll-
um. Ógæfilega mikill tfmi fer
til eftirlits með þessum léiegu
stöðum, segir f skýrslunni.
Niðurstaða flokkunarinnar
var sú, að f 1. flokki reyndust
vera 32% af þessum 451 stað, f
2. flokki 55-58% og f 3. flokkí
10-13%
árið 1972 kemur í ljós, að það ár
komu á slysadeild 27.194 sjúkl-
ingar, sem er nær 3 þúsund
fleiri en árið áður. Það kemur í
ljós, að börn og unglingar eru
þar i meirihluta og tveir aldurs-
flokkar tíðastir þ.e. 14,2%
sjúklinga eru undir fjögurra
ára aldri og 14,1% á aldrinum
15—19 ára. En allir aldurs-
flokkar upp að tvftugu eru tíðir
gestir á slysadeild.
PIONEER
HLJÓMTÆKIN sem
ENGAN SVÍKJA
HLJOMTÆKJA
OG PLÖTUDEILD
TÍZKUVERZLUN UNGA FÖLKSINS
KARNABÆR
LAUGAVEGI 66 SIMI* 13630