Morgunblaðið - 05.10.1973, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1973.
28
SAI B Al N 1 Ed McBain: 1 ó heljQfþföm
4
„Carella," sagði læknirinn, „ég
sé, að þér hafið áhyggjur. Slappið
af. Þér þurfið ekki að hafa
áhyggjuraf neinu.“
Carella kinkaði kol!i, en það
vantaði allan sannfæringarkraft.
Hann fann nærveru Teddy við
hlið sér, Teddy hans, Theodoru
hans, stúlkunnar sem hann elsk-
aði, konunnar sem hann var
kvæntur. Hann stalst til að lfta á
andlit hennar, umlukið svörtu
hári, svart sem svartnættið sjálft,
brún augun Ijómuðu nú af stolti
og munnur hennar var hálfopinn.
Ég má ekki skemma þetta fyrir
henni, hugsaði hann meðsér.
Og samt tókst honum ekki að
hrista af sér efann.
„Má ég upplýsa yður um fáein
atriði, Carella?" spurði Randolph.
„Já, en ég er...“
„Þér hafið kannski áhyggjur af
barninu. Máski vegna þess að
kona yðar er bæði mállaus og
heyrnarlaus og fædd
þannig.....ef til vil óttizt þér, að
barnið fæðist einnig með þessum
ágalla. Þetta er ekki óeðlileg
hræðsla, Carella."
„Ég...“
.......en algjörlega ástæðu-
laus.“ Randolph brosti við.
„Læknavísindin vaða að vísu enn
f villu vanþekkingar á ýmsan hátt
— en við vitum að heyrnarleysi er
ekki arfgengt. Við höfum dæmi
um algjörlega heilbrigð börn þar
sem bæði foreldrin voru heyrnar-
laus. Með góðri umönnun og með-
ferð mun hún ganga f gegnum
meðgöngutímann, eins og allar
venjulegar verðandi mæður, og
fæða heilbrigt barn. Kona yðar er
hraustleikinn uppmálaður, og ef
ég má gerast svo djarfur — mjög
falleg kona.“
Teddy Carella las gullhamrana
af vörum læknisins og roðnaði
lítið eitt. Fegurð sína hafði hún
fyrir löngu meðtekið sem sjálf-
sagða, það var með hana eins og
sjaldgæfan rósagarð sem blóm-
ræktarmaðurinn er hættur að
taka eftir. Þess vegna kom það
ævinlega svolítið flatt upp á hana,
er hún heyrði ókunnuga taia um
hana á þennan hátt. Þetta var
andlitið og þetta var líkaminn,
sem hún hafði búið við öll þessi
ár. Henni stóð nákvæmlega á
sama hvernig umheiminum féll
við hvorttveggja. Hún vildi ein-
ungis að ein manneskja kynni að
meta þessar guðs gjafir: Steve
Carella hét sú manneskja. Og nú,
þegar hún fann, að Steve hafði
látið sér segjast og var reiðubúinn
að viðurkenna þetta framlag
hennar, fylltist hún óumræðilegri
gleði.
„Þakka yður fyrir, læknir,"
sagði Carella.
„Minnumst ekki á það,“ svaraði
Randolph. „Gangi ykkur vel báð-
um tveim. Ég þarf að fá þig aftur
lii iuín eftir fáeinar vikur,
Theodora. Annastu hana vel.“
„Alveg áreiðanlega," sagði
Carella og þau gengu út frá
heimilislækninum. Þegar þau
voru komin út á ganginn fleygði
Teddy sér i fang hans og kyssti
hann af ofsa.
„Heyrðu, heyrðu!" sagði hann.
„Ekkí hegða ófrískar konur sér
svona?“
En Teddy kinkaði kolli með
sigurglampa í augum. Með
snöggum höfuðhnykk benti hún i
átt að lyftunni.
„Langar þig heim, ha?“
Hún kinkaði til samþykkis.
„Og síðan hvað?“
Teddy varð dularfull.
„Það verður að biða lítið eitt,“
sagði hann. „Fyrst verð ég að
koma einu sjálfsmorðsmáli frá
mér.“
Hann ýtti á lyftuhnappinn.
„Ég hegðaði mér eins og
erkiflón, ekki satt?“
Teddy hristi höfuðið.
„Jú, svo sannarlega. Ég var
áhyggjufullur. Vegna þín og
barnsins." Hann þagnaði. „Mér
datt svolitið í hug. En fyrst verð
ég að votta frjósömustu konu
þessarar borgar ævarandi
virðingu mína.....“
Teddy glotti.
......Ég vil að við fáum okkur
glas saman. Við skulum skála
fyrir þér og barninu, ást.“ Hann
tók hana í arma sér. „Þína
"I ■
I þýðingu
Björns Vignis.
skál vegna þess, að ég elska þig
svo heití. Og skál barnsins vegna
þess, að það kemur til með að
deila ást okkar beggja." Hann
kyssti hana á nefbroddinn. „Og
siðan fer ég beint í sjálfsmorðið.
Verður það þá allt og sumt? Nei,
ekki aldeilis. Þetta er eftirminni-
legur dagur.* Þennan dag varð
fallegasta kona Bandaríkjanna,
nei, heimsins, skollinn hafi það,
algeimsins, — þess áskynja að
hún var með barni. Þess
vegna...“ Hann leit á úrið. „Ég
ætti að vera kominn niður á stöð
aftur um sjö leytið í siðasta lagi.
Viltu hitta mig þar? Ég verð fyrst
að skila skýrsiu, en síðan förum
við út og borðum saman, á ein-
hvern rólegan stað þar sem ég get
haldið í höndina þína og lotið að
þér til að kyssa þig hvenær sem
mér sýnist svo. Ertu til? Klukkan
sjö?“
Teddy kinkaði hamingjusöm
kolli.
„Og siðan förum við heim. Og
þá.... er viðeigandi að elskast....
með ófrískri konu á ég við? “
Teddy kinkaði ákaft kolli, og
gaf í skyn, að það væri ekki aðeins
viðeigandi heldur fyllilega eðli-
legt, siðferðilega réttmætt og
hrein nauðsyn.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast um sölu á 3000 m af „Ductile''-pípum fyrir
Vatnsveitu Reykjavíkur.
Útboðsskilmálar eru afhentir i skrifstofu vorri.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 30.
október 1 973, kl. 1 1.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
velvakandi
Velvakandi svarar í síma 10-
100 kl. 10.30—11.30, frá mánu-
degi til föstudags.
0 íslenzkt sauðfé —
islenzk ull
Halldóra Bjarnadóttir á
Blönduósi skrifar:
„Það hefur mikið verið skrifað
og skrafað um sauðfé og ullina
undanfarið, en lítið um úrbætur.
Já, hún á það sannarlega hjá
okkur sauðkindin, að hennar sé
minnzt. Hún hefur fætt okkur og
klætt í þúsund ár, og sagnir
herma, að helzti kaupeyrir okkar
Islendinga hafi verið vaðmál allt
fram á 14. öld, og þjóðin miðaði
beinlínis kauplag sitt við það
(alin vaðmáls).
En nú er sagt að 5 tonn ullar
liggi ónothæft i geymslu. Því er
þessu ekki sökkt í saltan mar eða
brennt til ösku heldur én að festa
dýr hús undir þetta illyrmi, sem
ekki er nothæft í stopp, hvað þá
annað?
Já, það er mikið rausað og
skammað, en fátt um úrbætur.
Sem betur fer eigum við
íslendingar enn mörg heimili, þar
sem fénu og ullinni er sómi sýnd-
ur. Furðulegt að. Búnaðarsam-
bandið eða ríkið skuli ekki fyrir
löngu hafa komið upp einu fyrir-
m\ndarheimili, þar sem fá má
rétta og heilbrigða meðferð á
fénu og ullinni? Fyrst eitt í land-
inu, síðan eitt í hverjum fjórð-
VERKSMIÐJU
ÚTSALA!
Opin þriöjudaga kl. 2-7e.h. og
föstudaga kl.2-9e.h.
Á UrrSÖLjUNNI:
Flækjulopi Vefnaðarbútar
Hespulopi Bílateppabútar
Flækjuband Teppabutar
Endaband Teppamottur
Prjónaband
Reykvikmgar reynið nyju hradbrautina
upp i Mosfellssveit og verzliðá utsolunm.
ÁLAFOSS HF
MOSFELLSSVEIT
ungi. Sauðféð á það hjá okkur
margfaldlega — og ullin — að því
sé sómi sýndur. Utlendingar, sem
vit hafa á, segja islenzku ullina
allri ull betri!
Þeír segja, að það sé farið að
flytja inn útlenda ull og að það sé
ullarskortur! Ilamingjan góða!
Látum nú sjá, íslendingar,
hvort ykkur er alvara með um-
bætur.
Halldóra Bjarnadóttir."
0 Skólasund
Ari Matthíasson, 9 ára, hringdi:
Hann spyr, hvers vegna krökkum
er ekki leyfður aðgangur að sund-
stöðum borgarinnar nema í fylgd
með fullorðnum þegar þar fer
fram skólasund.
Velvakandi hafði samband við
Stefán Kristjánsson, fþróttafull-
trúa Reykjavíkurborgar. Hann
sagði, að þessi ráðstöfun væri
vegna þess, að einfaldlega væri
ekki rúm fyrir önnur börn en
þau, sem væru í skólasundinu
meðan það slæði yfir.
I Sundhöllinni væri m.a.s. ekki
hægt að leyfa fullorðnum aðgang
að sundlauginni þegar sund-
kennsla færi þar fram. I Sund-
höllinni færi fram sundkennsla
frá mánudegi til föstudags, að
báðum dögum meðtöldum, á tíma-
bilinufrá 10 fyrir hádegi til 4 eftir
hádegi frá því i september og
fram í maí, nema þegar löng frí
væru um hátíðar.
1 öðrum sundstöðum Reykja-
víkurborgar væri kennt frá kl.
8.30 fyrir hádegi til 4 eða 5, sömu
daga, en þar fá fullorðnir aðgang
meðan á sundkennslu stendur.
0 Erfiðar strætisvagna
samgöngur
í Miðborginni
„Strætófarþegi“ skrifar:
„Kæri Velvakandi,
Ég er ein þeirra mörgu, sem
aldrei hafa lært að aka bil, og
mun umferðin vera dálítið
öruggari þess vegna. Eg verð því
oft að ferðast með Strætisvögnum
Reykjavíkur, og hefur mér líkað
það alveg prýðilega. Nú er þó
breyting á orðin til hins verra,
eða siðan svonefnd göngugata var
opnuð, en jafnframt lokuð fyrir
okkur strætófarþegum. Finnst
mér vera komið hálfgert járntjald
milli vesturs og austurs eða
vestur- og austurbæjar, hvað
strætisvagnaferðir snertir. Það er
líka einkennilegt, að meðan
keppzt er víða að gera brautir
beinar og sneiða af alla hlykki og
skrykki úti á þjóðvegum landsins,
skuli vera lögð slík lykkja á leið
þessara stóru og þungu vagna.
Þetta eykur umferðaröngþveiti
Jll HÚSIÐ
1. HÆÐ:
Byggingavöru-
kjördeild
Hér fáið þér veggfóðrið frá Decorene, Mac-gregor og
Vymura og Tónalitina frá Sjöfn. Flísar á veggi og gólf,
veggdúk, gólfdúk og ameriskar loftaplötur í miklu úrvali.
OPIÐ TIL KL. 10
IIIJÓN LOFTSSONHF
H Hringbraut 121 10 600
gamla miðbæjarins að miklum
mun, sem var þó nægilegt fyrir.
Að sama skapi minnkar öryggið,
sem á þó alltaf að vera framar
íílln píns oet segir 1 auglýsingun-
um. Samgönguæðar borga og
sveita samsvara æðakerfi f lfkama
mannsins, og nú hefur Reykjavík
greinilega fengið slæma
kransæðastíflu við gamla hjartað
sitt. Aðalæðin lokuð, aðrarþrengri
teknar við. Einhver stífla er lfka í
Lækjargötunni, þegar gangstéttin
er yfirfull af fólki, sem bíður eftir
vögnum, sem eru langt á eftir
áætlun. Ekki er hægt að reiða sig
á vagnana, eins og áður var. Auk
þess er miklu leiðinlegra að híma
í Lækjargötunni en í Austur-
stræti, og sést verr til vagnanna
þegar þeir koma. Á hinn bóginn
finnst mér ekkert á móti því að
loka götunni fyrir minni bílum.
Göngugötur eru mjög skemmti-
legar, en þurfa að vera meira á
hlið við aðalumferðaræðar. Þá
kemur mér í hug, hvers vegna
tíðkast nú ekki skemmtigöngur í
Hljómskálagarðinum lengur, sem
voru svo mjög f tízku í mínu
ungdæmi, og eins konar fram-
lenging á gamla rúntinum?
Vertu nú sæll Velvakandi
minn, og ég vona að þú vakir yfir
borginni okkarsem lengst.
Strætófarþegi.“
I
í
HIBltruHŒTIHl HIHIHIHIHI Fi m IHIHIH rFTTFU HTHl VT l'HHI
Þegar aðeins það bezta
nægir er notað:
DALE
baby 4áBJL
baby Orlon
Takið tillit til,
að húð
barnsins er
viðkvæm, og
notið aðeins
Dale garn.
i
i
r
i
i
r
BARNALITIR! UPPSKRIFTIR!
Verð kr, 1 09 per 50 gr.
Fæst hjá: Egill Jacobsen, Austurstræti.
Verzl. Hof, Þingholtsstræti.
Hannyrðabúðin, Akranesi.
Hannyrðabúðin, Linnetstíg Hafnarfirði.
Kf. Borgfirðinga, Borgarfirði.
Mosfell, Hellu. Kyndill, Keflavík.
LI—111—lll 11hrl 11 111 11r—ili iii iir—iii iii-HieHihHlt—III—111—lit—lll IIMTFTTfi