Morgunblaðið - 05.10.1973, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1973.
19
Dagblað
frjálst á ný
Buenos Aires, — AP
Ríkisstjórn Argentínu hefur á
ný leyft Utgáfu hins vinstri
sinnaða dagblaðs E1 Mundo, en
skrifstofum þess var lokað á
föstudaginn fyrir að hafa birt yf-
irlýsingu Byltingarhers alþýð-
unnar, en sú skæruliðahreyfing
er bönnuð i landinu. I yfirlýsingu
þessari neitaði hreyfingin að eiga
aðild að morðinu á verkalýðsleið-
toganum og perónistanum Jose
Rucci. Stjórnvöld refsuðu einnig
sjónvarpsstöð einni fyrir sömu
sakir og fékk hún aðeins að leika
hljómlist í tvo sólarhringa. Blaða-
mannafélag Argentínu fordæmdi
báðar þessar refsingar stjórn-
valda.
RÓS DAUÐANS.
' Portland, Maine—AP
Thomas Laprino, 21 árs að
^aldri, var 1 ökuferð með stúlkunni
sem hann elskaði, Barbara Aube
25 ára. Hann lyfti annarri hendí
af stýrinu til að rétta henni rós
sem tákn ástar sinnar. Laprino
sagði lögreglunni að hann hefði
um leið misst stjórn á bifreiðinni
og klesst hana á brunahana. Bar-
bara Aube lézt samstundis.
Klasi af gervihnöttum.
Moskvu—AP
Sovézka ríkisstjórnin tilkynnti
á miðvikudag að hún hefði sent á
loft átta gervihnetti, og segja vest-
rænir sérfræðingar að þetta líkist
hringsólandi fjöloddaeldflaugum.
Er gervihnattaklasi þessi sendur
á loft með einni og sömu eldflaug-
inni.
Undankoman.
Perth, Ástralíu—AP
Michael Edward Priscoe, 23 ára
Suður-Afrikubúi, sem var að af-
plána fimm ára fangelsisdóm fyr-
ir marijuanasmygl til Ástralíu,
var sniðugur er tækifæri gafst að
stinga af. Óskað var eftir þvi að
Briscoe fengi að taka þátt I knatt-
spyrnuleik einum, og var það
leyft. Þegar á knattspyrnuvöllinn
kom og spenningur vegna leiksins
var að komast í hámark, gerði
Briscoe sér lítið fyrir og smaug út
af leikvanginum. Gerir lögreglan
nú leit að kappanum.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
VOLKSWAGEN
ARGERÐ 1974 ER KOMIN
V.W. kostar aðeins frá Kr
358,600,—
benzineySsla
er í lágmarki.
OG AKIO
OG SPARIÐv w ..‘SÍSS
og viðgerðaþjónusta er örugg og ódýr
OG AKIÐ
OG AKIÐ
LÆKKUÐ VERÐ - SPARIÐ OG AKIÐ VOLKSWAGEN
^HEKLAhf
tauqaveqi 170—172 — Sim 21240
ver
taugavegi 170—172 — Siru 21240
LOKAÐ
eftirhádegi, föstudaginn 5. okt.,
vegna jarðarfarar,
Júlíusar Ólafssonar.
H/F Brjóstsykursgerðin Nói,
Barónstíg 2.
LJós h.f.
Útsalan Laugavegi 20
lýkur næsta laugardag.
Allt á að seljast, þar sem verzlunin hættir
störfum.
HF. ÖLGERDIN EGILL SKALLAGRÍMSSON